Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 17
Fréttir Erlent 17Vikublað 1.–3. júlí 2014 S jónarpsmaðurinn og barna ­ níðingurinn fyrrverandi, Jimmy Savile, er sagður hafa misnotað lík kyn­ ferðislega. Þetta kemur fram í rannsóknargögnum á veg­ um NHS, National Health Service, sem breskir fjölmiðlar hafa greint frá. Fram hefur komið að Savile misnotaði að lágmarki 500 börn á ferli sínum, að því er nýleg skýrsla greinir frá. Skýrslan, sem birt var á dögun­ um, var unnin af barnaverndar­ samtökunum NSPCC (National Society for the Prevention of Cru­ elty to Children) að beiðni frétta­ þáttarins Panorama, sem sýndur á er BBC, hvar Savile starfaði um árabil. Yngstu fórnarlömb sjón­ varpsmannsins voru tveggja ára gömul, að því er fram hefur komið, en hann var í góðri aðstöðu, ver­ andi umsjónarmaður skemmti­ þáttarins Top of the Pops, til að brjóta á börnum og unglingum. Í skýrslunni kom fram að sam­ starfsmenn Savile vissu frá fyrsta degi að maðurinn væri kynferð­ isbrotamaður, án þess að til­ kynna um framferði hans. Sum­ ir hafi meira að segja aðstoðað hann við að finna fórnarlömb – og sent börn inn í búningsklefa sjón­ varpsmannsins, vitandi hvað beið þeirra. Níddist á líkum Nú hefur komið á daginn að brot­ in eru jafnvel enn fjölbreyttari, umfangsmeiri og viðbjóðslegri en talið var. Í rannsóknargögnum NHS birtist vitnisburður starfs­ fólks sem vann á Broadmoor psychiatric­sjúkrahúsinu og Leeds General Infirmary, þar sem Savile starfaði í tvo áratugi. Fólkið full­ yrðir að Savile hafi verið tíður gestur í líkhúsinu, þar sem hann hafi misnotað þau lík sem þar voru hverju sinni. Hann hafi rætt um það við þau að hann ætti við líkin og níddist á þeim kynferðis­ lega. Af því hafi til að mynda verið teknar myndir. Hann hafi talað um athæfið á þann máta að hann hafi ekki staðið einn að verki. „Þeir“ hafi hjálpast að við að koma líkun­ um í þannig stöðu að hægt væri að athafna sig. Savile hafði á ferli sínum aðgang að ótal sjúkrahúsum og stofnunum víðs vegar um Bretlandseyjar. Rannsakendur hafa safnað gögn­ um frá 28 slíkum stofnunum. Misnotaði börn áratugum saman Í gögnunum birtist líka vitnisburð­ ur fólks sem fullyrðir að skartgripir, sem Savile gekk gjarnan með, hafi meðal annars innihaldið auga­ steina látinna fórnarlamba hans. Séu þessar frásagnir réttar virð­ ist Savile, sem lést í október 2011, hafa verið sannkallað skrímsli í mannsmynd. Hann notaði frægð sína til að misnota jafnt ómálga smábörn sem unglinga um ára­ tugaskeið, sama hvort þau voru lífs eða liðin. Þetta gerði hann í skjóli samferðamanna sinna, sem vissu af voðaverkum hans en sögðu ekki frá. Ekki hlustað á kvartanir Á hluta þess tíma sem brotin áttu sér stað gegndi Savile stjórn­ unarstöðu hjá Broadmoor. Það var gert að áeggjan Cliff Graham, ráðuneytisstjóra hjá heilbrigð­ isráðuneytinu, sem kepptist við að dásama Savile. „Hann er stór­ kostlegur maður og ég treysti honum fullkomlega,“ sagði með­ al annars í tilkynningu frá ráðu­ neytinu árið 1988. Eins og áður sagði vann Savile meðal annars sem sjálfboðaliði hjá Leeds Gener­ al Infirmary. Þar hafa fundist að lágmarki 60 fórnarlömb, á aldrin­ um fimm til 75 ára. Flest fórnar­ lömbin voru börn, á þeim tíma sem brotin áttu sér stað, af báð­ um kynjum. Þetta voru börn sem voru sum mikið veik og áttu veru­ lega bágt. Níu þeirra tilkynntu um nauðganir eða önnur kynferðis­ brot en engar slíkar umkvartan­ ir má finna í gögnum yfirmanna Savile, frá þeim tíma. Síðasta brot­ ið, gegn börnum á þessari stofnun, sem komið hefur upp á yfirborðið, framdi hann árið 2009, þá 82 ára gamall. Sleginn til riddara Fram kemur í gögnunum að Savile hafi verið vel liðinn innan ráða­ manna á áttunda og níunda ára­ tugnum. Starfsfólki þeirra stofn­ ana sem hann vann hjá gerði hann ljóst að hann væri til þess bær að ráða og reka fólk. Hann var meira að segja í miklum metum hjá Mar­ gréti Thatcher. Fram kemur í gögnunum að orðrómur hafi reyndar verið uppi um að hann renndi hýru auga til ungra kvenna. Áður en hann var sleginn til riddara árið 1990 var gengið á hann með þennan orðróm og hann var beðinn um að fullvissa nefndina sem veitti orðuna um að ekkert misjafnt kæmi upp, hlyti hann slíka viðurkenningu. Það gerði hann og engan virtist gruna hvurs lags hryllingur gekk á. Þeir sem eitthvað vissu, þorðu ekki að stíga fram í ljósi stöðu mannsins og valda. Hann var ósnertanlegur. n SkrímSli í mannSynd n Viðurstyggileg brot níðingsins Jimmys Savile koma enn upp á yfirborðið n Níddist á líkum Baldur Guðmundsson baldur@dv.is „Hann er stórkost- legur maður og ég treysti honum fullkom- lega. Raðníðingur Savile er sagður hafa misnotað að lágmarki 500 börn. Stofna kalífadæmi Leiðtogi ISIL segist vera leiðtogi allra múslima H ryðjuverkasamtökin ISIL hafa tilkynnt um stofnun kalífa­ dæmis, íslamsks ríkis, á stóru svæði sem nær frá Aleppo í norðurhluta Sýrlands að Diyala­ héraði í austurhluta Íraks. Samtök­ in hafa farið mikinn að undanförnu og lagt undir sig stór svæði, eink­ um í Írak. Eitt helsta markmið sam­ takanna var stofnun sameinaðs ís­ lamsks ríkis og segist forsprakki samtakanna, Abu Bakr al­Baghdadi, nú vera leiðtogi allra múslima. Ljóst er að tilkynningu ISIL verð­ ur ekki tekið þegjandi. Þannig hafa írakskar hersveitir lagt aukinn þunga í að ná borginni Tíkrit aftur á sitt vald. Uppreisnarmenn náðu borginni á sitt vald þann 11. júní síðastliðinn. Í tilkynningu samtakanna kom einnig fram að nafnið ISIL, sem merkir Íslamska ríkið í Írak og Sýr­ landi, yrði nú lagt til hliðar og sam­ tökin myndu hér eftir notast við nafnið Íslamska ríkið í samræmi við stofnun ríkisins. Við sama tilefni sagðist Abu Bakr al­Baghdadi nú heita Caliph Ibrahim. Þá voru allir múslimar hvattir til að sýna samtök­ unum hollustu og „hafna lýðræði og öðru rusli frá Vesturlöndum“. n Leiðtoginn Abu Bakr al-Baghdadi segist nú vera leiðtogi allra múslima. EyeSlices augnpúðar Ferskari augu á 5 mínútum Púðana má nota í 10 skipti facebook.com/Eyeslices/IcelandUpplýsingar um sölustaði:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.