Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Side 21
Umræða 21Vikublað 1.–3. júlí 2014 Töldu tímaspursmál hvenær ég myndi gefast upp Lukka að ekki fór verr Eigum að vera vírus Jón Gnarr um pólitíska andstæðinga sína. – NBCSalman Tamini um hatur í garð múslima eftir kosningabaráttu Framsóknar. – DV Tómas Beck, skólastjóri Flugakademíu Keilis, um nauðlendingu flugvélar Keilis. – mbl.is. „Mér finnst það stórkostlegt að hér sé fólk sem er til í að fórna tíma sínum og þreki í að leita að fólki sem það þekkir ekki neitt. Þarna hafa hundruð manna lagt til einhverjar þúsundir vinnustunda án þess að fá krónu fyrir. Það er svona fólk sem á að fá Fálkaorðuna, frekar en afdankaðir eldgamlir sendiherrar.“ Erlingur Pálmason um leit björgunarsveitarmanna að Ástu Stefánsdóttur. Leitinni lauk formlega um helgina en hún bar ekki árangur. „Ég hef aldrei verið skoðanabróðir Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrr en núna. Þetta er hárrétt hjá henni „ást er einfaldlega bara ást“ og að þurfa að verja eða réttlæta þá tilfinningu árið 2014 er hreint og klárt fáránlegt. Vel gert Jóhanna Sigurðardóttir!“ Friðgeir Sveinsson um ræðu sem Jóhanna Sigurðardóttir hélt á viðburði fyrir hinsegin fólk í Toronto á dögunum. Þar ræddi Jóhanna meðal annars um þau viðbrögð sem hún fékk þegar hún var kjörin forsætisráðherra, jákvæð og neikvæð, og neikvætt viðhorf í garð hinsegin fólks í heiminum. „Ást er einfaldlega ást,“ sagði Jóhanna meðal annars. „Vegna fjölda fyrirspurna viljum við koma því á framfæri að það er opið fyrir mataraðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands í Iðufellinu í allt sumar. Við lokum ekki vegna sumarleyfa.“ Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, tjáði sig í kommentakerfi DV vegna fréttar um söfnun fyrir konu sem þjáist vegna mikilla tannskemmda. Þarf konan að nærast á fljótandi fæði vegna þeirra. „Ég þarf virkilega að klípa mig – er þetta raunveruleikinn árið 2014? Hreppaflutningar á fólki vegna geðþóttaákvarðana stjórnmálamanna – þvílík vanvirðing gagnvart þessu flotta fólki sem þarna vinnur og lífi þeirra. Fasistaháttur af verstu gerð!“ Ingunn Loftsdóttir um þá ákvörðun að flytja starfsemi Fiskistofu til Akureyrar. Tilkynnt var um flutninginn á fundi með starfsmönnum á föstudag. 35 14 17 9 Vinsæl ummæli við fréttir DV í vikunni Næntís Umsjón: Henry Þór Baldursson Ögmundur Jónsson þingmaður Vinstri grænna Kjallari D V var með ágæta úttekt um helgina á úthlutunum úr Framkvæmdasjóði ferða- mannastaða frá því sjóð- urinn var stofnaður 2011 og fram á þennan dag. Fram kom að úthlutanir úr þessum sjóði væru farnar að teygja sig upp und- ir milljarðinn og hafi féð verið not- að til að bæta aðgengi og aðstöðu við viðkvæma og eftirsótta náttúru- verndarstaði. Flestum ber saman um að fjár- magn til slíkra framkvæmda mætti vera meira. Fráleitar eru hins vegar þær staðhæfingar sem heyrst hafa að undanförnu að nánast ekkert hafi verið gert og allt í niðurníðslu alls staðar! Þannig er það náttúrlega ekki þótt aðstöðu þurfi vissulega víða að stórbæta. Náttúruvernd tylliástæða En það er skiljanlegt að ákafamenn um rukkun ýki vandann. Þeir vilja láta svo líta svo út að þeir séu nú að koma náttúrunni til hjálpar á ögurstundu! Sömu menn berjast hins vegar jafnframt af lífs- og sál- arkröftum gegn því að ríkið setji fé inn á þessi svæði því þar með eru forsendur þeirra til að rukka ferða- menn brostnar. Fyrir þeim vak- ir fyrst og fremst að hafa ábata af gjaldheimtunni en nota hins vegar náttúruvernd sem tylliástæðu. Ríkisstjórn afsalaði tekjum! Furðu vakti að ríkisstjórnin og sá meirihluti sem hún styðst við á þingi, skyldi láta það verða eitt sitt fyrsta verk að falla frá fyrirhug- aðri hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustu þannig að hún sæti við sama borð og aðrar atvinnu- greinar. Nei, þetta mátti ekki því fyrst yrðum við að laða fleiri ferða- menn til landsins, af ferðamennsk- unni mætti almannasjóðurinn ekki hagnast nema að ferðamenn yrðu enn fleiri. Þannig réttlætti fjármála- ráðherra andstöðu sína við hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu á Alþingi fyrir réttu ári. Einn og hálfur milljarður tapaðist Í athugasemdum með frumvarpi hans sagði: „Ætla má að lægri virð- isaukaskattur á gistiþjónustu hafi áhrif á eftirspurn og muni þannig gagnast ferðaþjónustunni við sitt markaðsstarf … Verði frumvarpið að lögum lækka tekjur ríkissjóðs að óbreyttu um rúmlega 500 m.kr. frá áætlun fjárlaga fyrir árið 2013. Þá er einnig áætlað að árið 2014 og eftir- leiðis muni tekjur ríkissjóðs verða um 1,5 milljörðum kr. lægri árlega en ella hefði orðið að óbreyttum lögum. Á móti því tekjutapi vegur, ef að líkum lætur, aukin eftirspurn og viðbótartekjur a.m.k. til lengri tíma litið.“ Þarna varð ríkissjóður með öðrum orðum af hálfum öðr- um milljarði sem nýta hefði mátt til náttúruverndar. Náttúruspjöll við Kerið Þá er ónýtt tækifærið að innheimta komugjald til landsins og láta það renna til að bæta salernisaðstöðu og til stígagerðar á viðkvæmum stöð- um. Sú framkvæmd er hins vegar vandasöm. Landamærin á milli þess að sjá fyrir góðri aðstöðu og aðgengi annars vegar og mann- virkjum í „óspilltri náttúru“ Ís- lands hins vegar liggja ekki í augum uppi. Margir minnast þess að koma í fyrsta skipti að Kerinu í Gríms- nesi, ganga nokkur skref frá bíla- stæðinu – sem þar er í boði Vega- gerðarinnar – og horfa síðan niður í eldgíg sem var þeim áður hulinn. Öll þessi dramatík er að sjálfsögðu horfin eftir að þurfa að standa í röð til að kaupa miða svo upplifa megi hið óvænta! Þar fyrir utan er rukkunarskúr- inn að sjálfsögðu ekkert annað en náttúruspjöll svo og plankagrind- verkið sem komið hefur verið upp til að beina túristum að posavélunum. Umhverfisstofnun lætur frá sér heyra Tvennt er ástæða til að staldra við vegna atburðarásar síðustu daga. Í fyrsta lagi ber að fagna því að Um- hverfisstofnun lýsti því yfir – loksins! – að gjaldheimtan væri ólögleg. En jafnframt kom fram að forstjórinn þar á bæ hefði skrifað umhverfis- ráðherra til að spyrjast fyrir um það hvort gera ætti samning við gjald- heimtumenn við Kerið til að gera gjaldtöku þeirra löglega. Í því sam- bandi vil ég minna á að ákvörðun um að opna á gjaldheimtu, eins og tíðkast hefur við Kerið í Gríms- nesi, er stórpólitískt fordæmismál. Bót í máli er þó að samkvæmt lög- um yrðu skilyrði slíkrar samnings- gerðar afar þröng og undir engum kringumstæðum mætti lögum sam- kvæmt gefa tækifæri til arðtöku. Málið leyst yfir kaffibolla? Hitt sem stendur uppúr atburðum síðustu daga er sú yfirlýsing frá Geysisrukkurum í fréttum Stöðvar 2 á sunnudagskvöld að þeir bindi vonir við boð ferðamálaráherrans um kaffifund nú um mánaðamótin. Þar mætti hugsanlega ná samkomu- lagi. Þetta þykir mér ekki lofa sérlega góðu. Ekki svo að skilja að slæmt sé að fólk komi saman til kaffidrykkju heldur er það hitt að ríkið á ekki að semja við þá sem taka sér vald eins og þessir aðilar hafa gert og virð- ast jafnframt staðráðnir í að koma ár sinni þannig fyrir borð að þeir og þeirra niðjar geti átt náðuga daga um alla framtíð í krafti eignarhalds á landi sem liggur að náttúrugersem- um sem heyra okkur öllum til. n „Þar fyrir utan er rukkunarskúrinn að sjálfsögðu ekkert annað en náttúruspjöll. MyNd RÖGNvaLdUR MÁR Rukkurum boðið í kaffi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.