Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Qupperneq 24
Vikublað 1.–3. júlí 201424 Neytendur
Ó
dýrasta súkkulaðiköku-
sneiðin í miðborg Reykja-
víkur fæst hjá Tíu dropum
á Laugavegi. Dýrustu
sneiðina er hins vegar að
finna á Vegamótum. Þetta leiðir
verðkönnun DV á kökusneiðum
á tuttugu kaffihúsum og veitinga-
stöðum í miðborginni með-
al annars í ljós. Alls munar 590
krónum á dýrustu og ódýrustu
sneiðinni.
Heit umræða
Hátt verðlag hér á landi, sem bein-
ist fyrst og fremst að erlendum
ferðamönnum, hefur verið mikið
á milli tannanna á fólki á síðustu
vikum, eða allt frá því bæjarfulltrúi
á Akureyri, Logi Einarsson, vakti
athygli á málinu á Facebook-síðu
sinni. Loga ofbauð hreinlega þegar
honum var gert að greiða 1.290
krónur fyrir sneið af súkkulaði-
köku og rjóma á veitinga- og kaffi-
húsi í Mývatnssveit. „Það koma
eiginlega aldrei Íslendingar hing-
að,“ var svarið sem hann fékk frá
þjónustustúlkunni á kaffihúsinu.
Þar sem miðborg Reykjavíkur
er viðkomustaður flestra ferða-
manna sem sækja Ísland heim
lék DV því forvitni á að vita hvað
sneið af súkkulaðiköku kostar í
miðbænum.
Nokkrar gerðir af
súkkulaðikökum
Könnunin fór fram með þeim
hætti að blaðamaður gekk á milli
staða og tók sjálfur niður verð á
súkkulaðikökusneiðum. Verð mið-
ast við uppgefið og auglýst verð
á hverjum stað. Leitast var við að
finna staði sem selja hefðbundna
súkkulaðiköku með kremi. Margir
staðir bjóða hins vegar upp á aðr-
ar gerðir af súkkulaðikökum. Café
Haítí og Iða bókakaffi eru til dæm-
is með franska súkkulaðiköku á
matseðlinum og þá býður Munn-
harpan í Hörpu upp á svokallaða
súkkulaðimúsköku. Á Vegamótum
eru tvær aðrar gerðir af súkkulaði-
kökum á boðstólum, annars vegar
heit súkkulaðikaka og hins vegar
súkkulaðibrownie. Þá eru kökurn-
ar misjafnar í stærð og lögun. Ekki
er tekin afstaða til gæða, bragðs
eða þjónustu á hverjum stað held-
ur aðeins rýnt í verð. Að lokum
skal tekið fram að þessi könnun
er ekki tæmandi, víða er hægt að
fá sér kökusneið í miðborginni, en
hún gefur góða yfirsýn yfir verðlag
og framboð á súkkulaðikökum í
101 Reykjavík.
Tíu dropar kaffihús ódýrast
Sem fyrr segir er ódýrasta sneiðin
af hefðbundinni súkkulaðiköku
í miðborginni á 700 krónur hjá
Tíu dropum á Laugaveginum.
Hin hefðbundna súkkulaðikaka
er hins vegar dýrust hjá Stofunni
Café en þar kostar sneiðin 1.150
krónur. Dýrasta súkkulaðikakan
í verðkönnun DV er aftur á móti
heit súkkulaðikaka sem borin er
fram með vanilluís og ferskum
ávöxtum. Hún fæst á Vegamótum
og kostar 1.290 krónur.
Sneiðin dýrari
á veitingastöðum
Könnunin nær til kaffihúsa og bistro,
staða sem maður myndi gjarn-
an sækja einungis til þess að fá sér
kaffibolla og kökusneið. Þannig
voru veitingastaðir sem bjóða upp
á súkkulaðikökur í eftirrétt undan-
skildir þessari könnun. Kökusneið-
ar á stöðum sem bjóða einnig upp á
heitan mat, til dæmis á Vegamótum,
Café París og Laundro mat, eru dýrari
en almennt gengur og gerist á kaffi-
húsum. Ef könnunin næði eingöngu
til kaffihúsa hefði Stofan Café vinn-
inginn en þar kostar sneiðin 1.150
krónur. Eftirfarandi eru
verðdæmi
á súkkulaðkök-
um á nokkrum
öðrum
veitingastöðum
í miðbænum:
Súkkulaðikaka
á veitinga-
staðnum Jör-
undi í Austur-
stræti 22
kostar 1.290
krónur, frönsk
súkkulaði-
kaka kostar
1.290 á Lækj-
arbrekku og
1.300 krónur á
Skólabrú. Heit
súkkulaðikaka
kostar 1.490
krónur á
veitingastaðn-
um Meze á
Laugavegi og þá
kostar súkkulaði-
kúla Grillmarkaðar-
ins 1.990 krónur. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Dýrasta kakan í miðborginni
n Mikill verðmunur reyndist á súkkulaðikökusneiðum n Ódýrasta sneiðin hjá Tíu dropum n Vegamót með þá dýrustu n 590 króna munur á sneið
Café Haítí
Geirsgötu 7b
n Frönsk súkkulaðikaka: 950 kr.
Iða bókakaffi
Vesturgötu 2a
n Frönsk súkkulaðikaka: 690 kr.
Bergsson
Templarasundi 3
n Súkkulaðikaka: 790 kr.
Allt að 450 króna álagning á rós
Verðkönnun hjá átta blómabúðum á höfuðborgarsvæðinu
D
V barst ábending um að álagn-
ing á rósum væri ansi mikil í
blómabúðum miðað við verð
hjá heildsölum. Blaðamaður
DV kannaði málið og hringdi í átta
blómabúðir á höfuðborgarsvæðinu,
auk einnar heildsölu, og fékk upp-
gefið verð á stökum, afskornum rós-
um.
Hjá blómaheildsölunni Sama-
sem á Grensásvegi fást háar, afskorn-
ar rósir á 295 til 375 krónur stykkið.
Verðið ræðst af stærð rósanna. Stök
rós kostar hins vegar á bilinu 590
til 990 krónur í blómabúðum. Dýr-
ustu rósirnar fást hjá 18 rauðum rós-
um í Kópavogi og í Blómavali en þar
er hægt að fá staka rauða rós á 990
krónur. Þegar búið er að draga virðis-
aukaskattinn frá verðinu standa eftir
737,55 krónur. Það þýðir að búðirnar
bæta allt að 442,55 krónum á hverja
rós.
aslaug@dv.is
Þetta kosta rósirnar í
blómabúðunum:
n Garðheimar: 820 kr. stk.
n Blómastofa Friðfinns, Síðumúla:
890 kr. stk.
n 18 rauðar rósir, Kópavogi:
990 kr. stk.
n Blómabúðin Dögg, Hafnarfirði:
890 kr. stk.
n Dalía, Glæsibæ: 790 kr. stk.
n Reykjavíkurblóm, Borgartúni:
590–890 kr. stk.
n Blómaval: 890–990 kr. stk.
n Sóleyjarkot, Garðabæ: 890 kr. stk.
Árétting
Hamraborg ehf. á Ísafirði vill
koma því á framfæri vegna út-
tektar DV á ódýrustu vegasjopp-
um landsins í síðasta tölublaði að
tvenns konar hamborgaratilboð
væru í boði á staðnum. Annars
vegar hamborgarar sem eru eld-
aðir á morgnana og settir í kork-
box. Þeir eru síðan hitaðir upp í
örbylgju. Hins vegar hamborgar-
ar sem eru steiktir á grilli og hægt
er að fá með frönskum kartöflum.
Örbylgjuhamborgari og kók í dós
kostar 749 krónur. Þetta er tilboð-
ið sem kostaði 699 krónur árið
2012 og vísað var til í greininni.
Hamborgaratilboð á grilli (ham-
borgari, franskar og kók í dós)
kostar hins vegar 1.199 krónur.
Cherokee-bifreiðar
innkallaðar
Neytendastofa vekur athygli á
Rapex-tilkynningu vegna innköll-
unar á bifreiðunum Jeep, Grand
Cherokee, árgerðum 2002 og
2003 WK- og WG-body. Ástæða
innköllunarinnar er sú að hætta
er á að loftpúði geti þanist út
fyrirvaralaust. Til að draga úr
þessari hættu þarf að setja milli-
stykki inn á rafmagnslúm við
loftpúða tölvunnar. Ekki er vitað
til þess að slys hafi átt sér stað í
tengslum við þetta.
Ekkert umboð er hér á landi
fyrir þessar bifreiðar. Neytenda-
stofa bendir hins vegar eigendum
ofangreindra bifreiða á að hafa
samband við Bíljöfur til þess að fá
nánari upplýsingar.
Lélegar ryksugur
bannaðar
Frá og með 1. september næst-
komandi verður ryksugufram-
leiðendum á Evrópska efnahags-
svæðinu, sem Ísland tilheyrir,
ekki lengur heimilt að selja og
dreifa orkufrekum heimilis-
ryksugum. Frá þeim tíma eru
leyfileg orkumerki fyrir ryksug-
ur hámark 1.600 vött. Algengustu
ryksugurnar eru hins vegar 1.800
vött. Þetta kemur fram á vefsíðu
Neytendastofu.
Með nýjum reglum verða
enn fremur bannaðar á markaði
ryksugur sem nota mikla orku,
ryksuga illa, eru hávaðasam-
ar, losa mikið ryk í andrúmsloft-
ið eða endast illa. Þetta hefur í
för með sér betri gæði og minni
eyðslu, allt til hagsbóta fyrir neyt-
endur.
Stofan Café
Vesturgötu 3
n Súkkulaðiterta: 1.150 kr.