Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Side 25
Neytendur 25Vikublað 1.–3. júlí 2014
Dýrasta kakan í miðborginni
n Mikill verðmunur reyndist á súkkulaðikökusneiðum n Ódýrasta sneiðin hjá Tíu dropum n Vegamót með þá dýrustu n 590 króna munur á sneið
Around Iceland
Laugavegi 18b
n Súkkulaðikaka: 890 kr.
Munnharpan
Hörpu tónlistarhúsi
n Súkkulaðimúskaka: 820 kr.
Vegamót
Vegamótastíg 4
n Brownie: 1.190 kr.
n Heit súkkulaðikaka: 1.290 kr.
Tíu dropar kaffihús
Laugavegi 27
n Súkkulaðikaka: 700 kr.
Laundromat
Austurstræti 9
n Súkkulaðikaka: 1.090 kr.
Hressingarskálinn
Austurstræti 20
n Súkkulaðikaka: 890 kr.
Súfistinn
bókakaffi
Laugavegi 18
n Súkkulaðikaka: 890 kr.
Kaffibrennslan
Laugavegi 21
n Súkkulaðikaka: 950 kr.
Café Babalú
Skólavörðustígur 22a
n Súkkulaðikaka: 880 kr.
Mokka kaffi
Skólavörðustíg 3a
n Súkkulaðikaka: 930 kr.
Prikið
Bankastræti 12
n Súkkulaðikaka: 890 kr.
Kaffitár
Bankastræti 8
n Súkkulaðikaka: 850 kr.
Te og Kaffi
Lækjartorgi
n Súkkulaðiterta: 840 kr.
Kofinn
Laugavegi 2
n Súkkulaðikaka: 850 kr.
Ódýrast
Tíu dropar kaffihús:
Súkkulaðikaka – 700 kr.
Dýrast
Vegamót:
Heit súkkulaðikaka – 1.290 kr
Mega loka fyrir erlendar stöðvar
365 miðlar mega loka fyrirvaralaust á stöðvar sem sýna frá HM
Þ
ví miður hafa samtökin ekki
fundið neitt ólögmætt við
þessa tilhögun þó svo óánægja
neytenda sé vel skiljanleg,“
segir á heimasíðu Neytendasamtak-
anna. HM í knattspyrnu stendur nú
yfir og samtökunum hafa að sögn
borist margar fyrirspurnir um lok-
un á almennum sjónvarpsstöðvum
á meðan íþróttaviðburðirnir standa
yfir.
Fram kemur að í skilmálum
365 miðla sé að finna ákvæði þar
sem fyrirtækið áskilur sér rétt til að
breyta fyrirvaralaust auglýstri dag-
skrá miðla sinna og einnig rétt til að
breyta fyrirvaralaust samsetningu
og fjölda stöðva í hverjum áskriftar-
pakka.
HM-leikir hafa í nokkrum til-
fellum verið sýndir á stöðvum sem
innifaldar eru í áskriftarpökkum
fyrir tækisins. Í einhverjum tilfellum
virðist hafa verið lokað fyrir stöðvar
á meðan leikur fer fram. Neytenda-
samtökin segir að í ljósi ákvæðisins
sé hæpið að um samningsbrot sé að
ræða. „Þó er gagnrýnisvert hversu
ríkan áskilnað 365 gerir til breytinga
á dagskrá sinni með þessu ákvæði.“
Fram kemur einnig að oft sé
það þannig að umræddar sjón-
varpsstöðvar hafi aðeins sýningar-
rétt frá íþróttaviðburðum í því landi
sem þær starfa, eða innan tiltekins
svæðis. Því séu dæmi þess að stöðv-
arnar loki sjálfar fyrir útsendingar
út fyrir landsteinana. RÚV sé til að
mynda ekki heimilt að streyma efni
sínu á ruv.is, nema til þeirra sem eru
á Íslandi.
„Í þriðja lagi kemur til skoðunar
hvort það væri ekki brot gagnvart
þeim sem hefur einkarétt til sýningar
á viðkomandi efni hér á landi að
önnur sjónvarpsstöð sýndi atburði
sem fyrrnefndi aðilinn hefði einka-
rétt á að sýna.“ n baldur@dv.is
Sviss 365 miðlar
mega loka á erlendar
stöðvar sem sýna frá
HM. Mynd ReuTeRS
Café París
Austurstræti 14
n Súkkulaðikaka: 1.090 kr.
Café Mezzo
Lækjargötu 2a
n Súkkulaðikaka: 890 kr.
Mikil berja-
spretta
DV hafa borist fregnir af því að
víða á Norðurlandi stefni í af-
burðagóða berjasprettu. Mikil
hlýindi hafa ríkt nyrðra framan
af sumri og segja kunnugir að
berin verði tilbúin tveimur til
þremur vikum fyrr en í venjulegu
árferði. Þá heyrði DV af vönum
berjatínara í Öxarfirði sem hafði
ekki séð aðra eins berjasprettu í
tvo eða þrjá áratugi. Þessar frétt-
ir vita sannarlega á gott því að-
albláber, bláber og krækiber eru
meinholl og góð fæða, sem Ís-
lendingar nýta margir hverjir í
stórum stíl. DV hefur ekki fregn-
að af berjasprettu í öðrum lands-
fjórðungum.
Hleðslustöð
í Borgarnesi
Hraðhleðslustöð fyrir rafbíla hef-
ur verið sett upp í Borgarnesi.
Orka náttúrunnar (ON) á stöðina
en vann verkefnið í samstarfi við
N1. Stöðin er sú sjöunda í röðinni
af tíu sem ON opnar á Suður-
og Vesturlandi og sú fyrsta sem
stendur við þjóðveg 1 að því er
fram kemur í fréttatilkynningu
frá Eiríki Hjálmarssyni, upplýs-
ingafulltrúa ON. Fram kemur að
fyrirhugað sé að setja upp stöðvar
í uppsveitum Suðurlands og í
miðborg Reykjavíkur. Hleðsla
verður gjaldfrjáls næstu tvö árin,
eða meðan á tilraunaverkefninu
stendur.
Vanstilltar
vogir
Alls þurfti að endurstilla 186
vogir í verslunum, af 640 vogum
sem skoðaðar og löggiltar voru
í fyrra. Þetta kemur fram á vef
Neytenda stofu. Þar er bent á
mikilvægi þess að neytendur geti
treyst því að mælingar séu rétt-
ar og löggilding mælitækja sé í
gildi. Bent er á að vogir sem vigti
undir 100 kílóum og notaðar séu
til að selja vörur til neytenda eigi
að hafa sýnilegar upplýsingar um
vigtunina, þannig að neytendur
sjái greinilega útreikning verðs á
þeirri vöru sem keypt er. Tekið er
fram að löggildingarmiðinn eigi
einnig að vera sýnilegum neyt-
endum.