Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Qupperneq 26
Vikublað 1.–3. júlí 201426 Lífsstíll Ganga til heiðurs ljósmóður Skyldmenni Guðrúnar endurtaka heimferðina 100 árum seinna G uðrún Teitsdóttir útskrifaðist úr ljósmæðraskólanum í Reykjavík árið 1914. Til þess að komast heim aft- ur gekk Guðrún frá Borgarnesi til Grænumýrartungu. Skyldmenni hennar ætla að gera slíkt hið sama næstu helgi, hundrað árum seinna, þegar þau munu ganga kílómetrana 87 til heiðurs Guðrúnu og til styrktar góðu málefni. Þegar Ásdís Þorbjarnardóttir var fimmtán ára skrifaði hún minningar og sögu ömmu sinnar. Þar sagði Guðrún barnabarni sínu hvernig hún gekk leiðina á tveimur dögum og hefur Ásdís varðveitt söguna síð- an. „Ég hef alltaf hugsað í hvert skipt sem ég keyri norður, hér byrjaði amma að labba og hér hætti hún,“ segir Ásdís Þorbjarnardóttir, barna- barn Guðrúnar, um hvatann að því að vilja endurtaka þrekvirki ömmu sinnar. „Klæðnaðurinn hefur verið fábrotinn miðað við okkar klæðnað í dag,“ segir Ásdís en Guðrún gekk ásamt annarri ungri konu og voru þær í pilsum og dönskum skóm. Ás- dís og skyldmenni ætla að ganga leiðina á þremur dögum og verða sennilega með betri viðbúnað til- tækan en þær stöllur á sínum tíma. Þeim fannst tilvalið að ganga til heiðurs ömmu sinni á 100 ára ljósmóðurafmæli hennar og vildu þau í leiðinni styrkja gott málefni. „Líf, styrktarfélag Kvennadeildar Landspítalans er upplagt af því það var náttúrlega ævistarf ömmu. Að taka á móti börnum og hlúa að veiku fólki og dýrum,“ segir Ásdís og munu öll áheit renna þangað. Hægt er að hringja í síma 907-1116 til þess að leggja inn 1.500 króna áheit. Einnig er hægt að leita nánari upplýsinga um gönguna undir heitinu Ljósa- ganga, á vefnum. n salka@dv.is Ganga heila helgi Ásdísi og systur hennar langaði til að ganga til heiðurs ömmu sinni. Guðrún að störfum 100 ár eru liðin síðan Guðrún útskrifaðist. Facebook-síða fátæklingsins n Íslensk gjafasíða slær í gegn á netinu n „Algjör snilld að geta gefið hlutina“ Í slendingar henda mörg hundruð tonnum af fullkomlega nýtilegum hlutum á ári hverju, sökum pláss- leysis. Á sama tíma vantar mörg þúsund Íslendinga nýtilega hluta, sökum efnaleysis. Facebook-síðan „Gefins, allt gefins“ reynir að jafna þetta ójafnvægi með því að byggja brú milli skorts og gnægðar. „Það er náttúrlega alger snilld að geta gef- ið hlutina í stað þess að þurfa að henda þeim eða láta þá fúna inni í geymslu,“ segir Ellen Rose Guð- mundsdóttir, einn umsjónarmanna síðunnar, og bætir við að svona vett- vang hafi lengi vantað eins og virkni fólks á síðunni er til vitnis um. Við- skiptin gagnast gjarnan báðum að- ilum. „Þetta er mjög þörf síða. Þegar ég flutti losnaði ég við marga kassa af dóti sem ég var hætt að nota.“ Túbusjónvörp og hjónarúm Á síðunni er allt milli himins og jarð- ar í boði endurgjaldslaust. Þegar þessi orð eru rituð er leikskóla- kennari nýbúinn að bjóða ísskápinn sinn og heimavinnandi húsmóðir svarar um hæl og segist þiggja með þökkum. Nokkru fyrr setur skrif- stofukona mynd af túbusjónvarpi með innbyggðu VHS-tæki inn á síð- una, auk eftirfarandi: „Ömmustóll með böngsum, leikteppi og ljósgrár brjóstgjafarpúði með hvítum gæs- um. Sækist sem fyrst í 200 Kóp.“ En fólk er ekki einungis að bjóða hluti. „Á einhver ferðagrill fyrir mig?“ spyr frístundaleiðbeinandi og kona á miðjum aldri skrifar „Vantar stórt hjónarúm gefins.“ Suma vantar ekki eitt heldur allt. Þannig óskar kona, sem segist á Facebook vera mamma í fullu starfi (e. full time mommy), eftir þessu: „Óska eftir bíl fyrir snúlluna mína, skóm, fötum, dóti sem hljóð heyr- ist í, Dóru, Latabæ, Ávaxtakörfunni, Stubbunum og Strumpunum.“ Fólk er fljótt að bregðast við bón- inni og spyr hana í hvaða stærð dóttirin sé. Eftir viðbrögðin færir móðirin sig síðan ögn upp á skaftið og biður líka um sandala. Heiðarleiki Í hópnum eru tæplega 14 þúsund manns og fjölmargar færslur eru settar inn daglega, en fólk þarf að hafa hraðann á vilji það tryggja sér gæðin enda margir um hituna. Ellen Rose segir að langflestir notendur síðunnar séu heiðarlegir en bætir við að í stórum hóp séu alltaf skemmd epli. „Það komu upp einhverjar ásak- anir um að fólk væri að selja hlutina sem það fékk gefins. Ég skoðaði það mál en fann engar óyggjandi sann- anir um slíkt misferli. Þessi viðskipti fara að mestu heiðarlega fram – held ég,“ segir Ellen. Gleðileg jól Þótt andlög gjafagerninganna séu í flestum tilfellum húsgögn og aðrir hlutir segir Ellen að matargjafir tíðk- ist einnig. „Sem dæmi setti kona inn færslu fyrir áramótin og sagðist ekki eiga fyrir mat. Viðbrögðin stóðu ekki á sér. Fjölmargir réttu henni hjálp- arhönd og hún gat því haldið gleði- leg jól.“ n Ókeypis ofn Þennan ofn vantar nýtt heimili. Gjafmild Ellen Rós er einn umsjónar- manna síðunnar. Rafmagn úr líf- rænum úrgangi Litlu sprotafyrirtæki í Bandaríkj- unum hefur tekist að búa til orku- gjafa úr lífrænum úrgangi. Fyrir- tækið Harvest Power veitir fjölda heimila rafmagn og hita með þessum umhverfisvæna hætti. Fyrirtækið byrjaði á að búa til áburð og jarðveg úr úrgangin- um en uppgötvaði síðan að það gæti notað sama efni til að búa til orku. Lífrænum úrgangi er bland- að saman við bakteríu og það brotið saman í efni sem notað er til framleiðslu orku. Þessi nýjung er ekki umfangs- mikil enn sem komið er, en gæti orðið að framtíðarleið við endur- nýtingu úrgangs einn daginn. Vill ekki láta hressa sig við Ný rannsókn sem samtökin American Psychological Associ- ation birti á dögunum gefur til kynna að fólki sem líður illa vill ekki að aðrir hressi það við. „Fólk á erfitt með að takast á við nei- kvæðar tilfinningar annarra, og því telja flestir lausnina vera að fá viðkomandi til að hugsa jákvætt og reyna að láta þeim líða betur,“ segir rannsakandinn Denise Marigold. Með þessu heldur fólk að það sé að hjálpa, en í raun er verið að einangra þann sem líður illa. „Þeim líður eins og fólk sýni vandamálum þeirra ekki skilning og virði ekki tilfinningar þeirra,“ segir hún. Þetta þýðir þó ekki að við eig- um að samþykkja og ýta undir lágt sjálfstraust vinar, heldur eig- um við að sýna samúð og skiln- ing í stað þess að reyna að breyta hugarfari viðkomandi. Greining ADHD aukist mest hjá konum Greining á ADHD hefur aukist mest hjá konum á aldrinum 24 til 36 ára samkvæmt nýrri banda- rískri rannsókn. Á rannsóknarár- unum, 2008–2012, jókst notkun lyfja við ADHD um 85 prósent hjá þessum aldurshópi. Þetta er ekki vegna þess að konur séu líklegri til að vera með ADHD en karlar, heldur vegna þess að þær eru síður greindar sem börn. Hegðun stúlkna með athyglisbrest og/eða ofvirkni kemur gjarnan fram á annan veg en hjá drengjum og fellur ekki endilega inn í mót staðalímyndar ADHD. Þær fá því síður greiningu og viðunandi úrræði. „Konur eru ólíklegri til að vera greindar,“ segir dr. Geri Markel sálfræðingur. „Stúlkurnar passa oft ekki inn í það sem fólk hugsar þegar það ímyndar sér ADHD.“ Baldur Eiríksson baldure@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.