Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Síða 27
Lífsstíll 27Vikublað 1.–3. júlí 2014 Einn tíundi drekkur sig til dauða Eitt af hverju tíu andlátum full- orðinna einstaklinga í Bandaríkj- unum má rekja til áfengisneyslu. Þetta kemur fram í rannsókn sem birtist í Preventing Chronic Dis ease og fjallað var um í USA Today. Vísindamenn rýndu í skýrslur um andlát fólks á aldrinum 20–64 ára frá 2006–2010 og tóku saman alla þá sem létust þar sem áfengi var beinn orsakavaldur, líkt og í bílslysum, áfengiseitrunum og of- beldisverkum, sem og þá sem lét- ust eftir mikla og langa neyslu. Samkvæmt Daily Beast deyja 2,5 milljónir Bandaríkjamanna árlega vegna áfengis. Rúmlega 71prósent þeirra sem látast fyrir aldur fram eru karlmenn. Lækning við krabbameini finnst aldrei Samkvæmt nýrri rannsókn ætt- um við að lækka væntingar okk- ar þegar kemur að stríðinu gegn krabbameini. Höfundur greinar í Nature segir sjúkdóminn jafn- gamlan fjölfrumungum og að honum verði líklega aldrei útrýmt. „Við höldum að við munum geta læknað krabbamein af því að okkur tókst að senda menn til tunglsins. En það er í raun barnaleg fullyrðing. Við ættum að einbeita okkur að því að skilja sjúkdóminn betur til að efla með- ferðir í stað þess að ætla að lækna hann,“ sagði vísindamaðurinn Thomas Bosch við Kiel-háskólann í samtali við Washington Post. Lauslæti getur verið gott Í nýrri rannsókn kemur fram að þeir sem sofa regulega hjá án þess að vera í föstu sambandi eru afslappaðri og lausari við stress og andlegt álag. Fjallað hefur verið um rannsóknina í Time og Huffington Post. Vísindamaðurinn Zhana Vrangalova viðurkennir þó að þegar rýnt sé nokkra mánuði fram í tímann komi í ljós að lauslæti eykur líkur á þunglyndi. „Ef þú ert að sofa hjá þeim sem þú vilt sofa hjá af því að þig langar til þess munu áhrif þess verða góð. Hins vegar ef þú ert að gera það á röng- um forsendum eða ert of drukk- in/n til að taka ábyrga ákvörðun muntu finna fyrir afleiðingunum.“ Vekja athygli á kvenkyns fyrirmyndum Ljósmyndasamkeppni með alþjóðlega valdeflingu kvenna að leiðarljósi U ngmennaráð landsnefndar UN Women á Íslandi vill vekja athygli á öllum þeim kven- kyns fyrirmyndum sem fólk verður vart við í sínu hversdagslega lífi. Því hafa þau efnt til ljósmynda- samkeppni undir þemanu „konur sem fyrirmyndir.“ Með þessu vilja samtökin varpa ljósi á valdeflingu kvenna hvar- vetna um heiminn en UN Women hefur nýverið hrint í framkvæmd herferðinni Bejing+20 sem minn- ist kvennafundarins í Peking árið 1995. Var sá fundur vendipunktur í réttindabaráttu kvenna. Herferðinni er ætlað að fagna þeim árangri sem hefur náðst á síðustu 20 árum á sama tíma og settur er kraftur í að klára þá vinnu sem enn er eftir. Ungmenna- ráð UN Women tekur þátt í að vekja athygli á þeim árangri sem nú þegar hefur náðst með því að varpa ljósi á þær konur sem hver og einn upplifir sem fyrirmynd, með frekari valdefl- ingu kvenna að leiðarljósi. „Kjarni Bejing-hugsjónarinnar er að jafnrétti fyrir konur og stúlkur, jafn réttur, jöfn tækifæri og jöfn þátt- taka mun gera heiminn betri fyrir okkur öll. Munið, enginn getur gert allt, en allir geta gert eitthvað. Hefj- umst handa!“ sagði Jan Eliasson, aðstoðarframkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, þegar herferðinni var hrint úr vör í síðustu viku. Hægt er að taka þátt í ljósmynda- samkeppni Ungmennaráðs UN Women með því að senda ljósmynd sem fólk telur tengjast þemanu á net- fangið youth@unwomen.is fyrir 19. júlí. Dómarar í keppninni eru Saga Sigurðardóttir ljósmyndari, Ólafur Stephensen, ritstjóri hjá 365 miðl- um, Vilborg Ólafsdóttir leikstjóri og Erlendur Pálsson áhugaljósmyndari. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir sig- urvegara, meðal annars frá Dusted, Grillmarkaðnum, Sólheimum, Tapas barnum og Kol. n salka@dv.is Ungliðarnir öflugir Ungmennaráð UN Women stendur fyrir ljósmyndasamkeppni til að vekja athygli á kvenkyns fyrirmyndum og árangri jafnréttisbaráttunnar. Unnið í 50 ár á rennibekk n Júlíus er 75 ára og langar ekki til að hætta n „Ég er nú bara unglamb“ S umum finnst að ég ætti að fara að hætta, ég veit nú ekki til hvers. Ég er ekki neitt gamalmenni,“ segir Júlíus Sigmarsson, starfsmaður á renniverkstæði hjá véltækni- og málmiðnaðarfyrirtækinu Héðni. Júlíus verður 75 ára á þessu ári og hefur starfað hjá fyrirtækinu í 50 ár. Júlíus, sem yfirleitt er kallað- ur Júlli, lærði til rennismiðs á sín- um yngri árum og réð sig í vinnu hjá Héðni 24 ára. Hann hefur unnið á rennibekknum síðan þá og finnst það lítt tíðindavert. Það er þó ekki al- geng sjón í dag að fólk sé svo lengi að í líkamlegri vinnu. Hvað þá að það sé jafn trygglynt fyrirtæki sínu og Júlíus. Hann er það ánægður í starfi sínu að hann sá enga ástæðu til að setj- ast í helgan stein 67 ára líkt og líf- eyrisaldur Íslands leyfir. „Ég var við góða heilsu, til hvers fjandans? Sitja heima og góna upp í loftið? Þegar ég byrjaði í Héðni árið 1963 eða 1964 voru karlar hérna yfir áttrætt, einn eldri en 92 ára. Ég er nú bara ung- lamb. Nú fæst enginn í þetta. Allir í háskólanum að læra íslensku eða einhverja vitleysu.“ Ekki of gamall fyrir starfið Þrátt fyrir að vinna líkamlega vinnu á rennibekk segir hann starfið á rennibekknum ekki reynast sér of erfitt „Nei, nei, stundum gengur vel og stundum illa. Það liggur misvel á manni,“ segir Júlíus en tæknifram- farir síðustu áratuga gerðu vinnuna auðveldari. „Þetta er auðveldara en það var. Minna afl sem þarf að nota.“ Júlíus á eiginkonu og tvær dætur en honum finnst engin ástæða til að ætla að hann sé orðinn of gamall fyr- ir starfið. „75 ár er ekkert mikill aldur. Hugsaðu þér þegar þú varst sjö ára, það var ekki mikill aldur. Tíu sinn- um það, er það mikið? Nei. Ef mað- ur hugsar það þannig er þetta ekki langur tími. Þegar maður lítur til baka er þetta alveg ótrúlegt,“ segir Júlíus. „Alveg súper“ Júlíus hefur í gegnum tíðina ekki séð neina ástæðu til að skipta um starfs- vettvang því honum líkar starfið hjá Héðni vel. „Það er mjög gott fyrir- tæki. Alveg súper. Ég er allavega ekki orðinn leiður á því ennþá.“ Þótt Júlíus sé búinn að vera hjá sama fyrirtækinu í 50 vill hann meina að hann hafi unnið á þremur stöð- um. „Við vorum fyrst í gamla Héðins- húsinu vestur á Mýrargötu. Svo fór- um við í Garðabæ og nú erum við í Hafnarfirði hér suður af Straums- vík,“ segir Júlíus. „Þetta er eiginlega tilbreyting í sjálfu sér, ég get sagt að ég hafi unnið á þremur stöðum. Svo- leiðis að það styttir starfsaldurinn töluvert skal ég segja þér,“ segir Júlíus sem er hógværðin uppmáluð. Langar ekki að hætta „Það er nú ekki hægt að vera að þvælast hérna til hundrað ára aldurs,“ segir Júlíus sem telur lík- legt að hann hætti seinna á þessu ári, en þó með trega. „Ég stefni að því svona með sjálfum mér. Mað- ur verður að sætta sig við það líka,“ segir Júlíus sem segist þó í raun ekki langa til að hætta. „Nei, hvað langar mann? Það held ég ekki nei. Annars myndi ég bara hætta núna.“ Júlíus lætur engan segja sér hvort eða hvenær hann eigi að hætta, enda nýtur hann starfsins og það er fyrir öllu. „Ég er alveg frjáls til að hætta hvenær sem ég vil, ég ræð því alveg sjálfur. Maður þakkar bara fyrir að þeir vilji hafa svona eldri menn,“ segir hinn 75 ára dugnaðar- forkur. Engin markviss áform „Þá ætla ég bara að hætta, og ekki gera neitt,“ segir Júlíus aðspurður hvað hann muni taka sér fyrir hend- ur þegar hann lætur af störfum. „Ekki nein plön. Það getur vel verið að maður fari eitthvað til útlanda. En ekki neitt markvisst.“ n Salka Margrét Sigurðardóttir salka@dv.is „Til hvers fjandans? Sitja heima og góna upp í loftið? Trygglyndur dugnaðar- forkur Júlíus hefur unnið hjá Héðni í 50 ár og langar lítið að hætta. Mynd SigTryggUr Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.