Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 28
Vikublað 1.–3. júlí 201428 Lífsstíll
Færanlegt húsnæði
Er lítið að gera í götunni þinni? Ekki
málið, við lestum bara húsinu eitthvert
annað.
Vængjuð einstaklingsför
Það er erfitt að sjá með hvaða hætti
vængjuðu einstaklingsförin áttu að vera
drifin áfram en það er eitthvað mjög
heillandi við að geta svifið um á eigin
vængjum og reykt pípu í leiðinni.
Framtíðin fyrir
hundrað árum
n Svona var framtíðarsýnin árið 1900 n Flogið með vængjum og gengið á vatni
Þýski súkkulaðiframleiðandinn
Hildebrand gaf út póstkort í kring-
um aldamótin 1900 þar sem spáð
var fyrir um hvernig framandi fram-
tíð myndi líta út aldamótin 2000.
Þá, sem nú, leitaðist fólk við að
reyna að skilja og spá fyrir um hvað
framtíðin bæri í skauti sér. Á með-
al þess sem Hildebrand spáði fyrir
um var þak á stórborgir, vængjuð
einstaklingsför, færanlegar gang-
stéttir og veðurvélar. Vatnslestin Erfitt að ímynda sér hvernig þessi græja átti að ganga neðansjávar en skemmtilega undarleg hugmynd.
Lögreglan sér í gegn-
um veggi Þetta tækniundur átti
að gera lögreglumönnum kleift að sjá
verknað glæpamanna í gegnum veggi
með röntgentækni. Þá vantaði einungis
að lögreglan hefði vitneskju um
nákvæmlega hvar og hvenær glæpur
færi fram.
Gengið á vatni Virðist mjög hentugt að festa við sig loftbelg og skíði til þess að ganga á vatni. Þak á stórborgir Hversu hentugt væri að skella bara
upp þaki á Reykjavík þegar haustlægðirnar koma?
Leiklist sjónvarpað Hildebrand var þó ekki alltaf
fjarri lagi. Þarna má sjá hvernig leikrit sem fer fram á einum stað er
varpað annað.
Færanlegar gangstéttir Hildebrand spáði því að
í framtíðinni þyrfti hefðarfólk ekki að hreyfa sig fet. Það biði bara
eftir því að gangstéttin færi með það yfir götuna.
Skoðunarkafbátar Á þessum tíma var hönnun kafbáta þegar hafin en spáin
um að þeir yrðu notaðir í stórum stíl í ferðamennsku neðansjávar hefur enn ekki ræst.
Veðurvélar Eitt af þeim
atriðum sem maðurinn mun sennilega
aldrei ná að beisla, veðrið.
Búa til svifhjól
Hvern hefur ekki dreymt um að
eiga svifhjól eins og í Star Wars?
Nú gæti sá draumur ræst, ef hug-
myndir bandaríska fyrirtækisins
Aerofex verða að veruleika. Það
vinnur nú að þróun slíks farar-
tækis. Farartækið ber vinnu-
heitið Aero-X og er svipað að
stærð og lítill bíll. Framleiðend-
ur vonast til að það muni rúma
tvo farþega en tilraunaútgáfan
hefur einungis pláss fyrir einn
hugrakkan. Aero-X mun svífa
rétt yfir jörðinni og vonast er til
að það komist á rúmlega 70 kíló-
metra hraða á klukkustund. Ráð-
gert er að svifhjólið komi á al-
mennan markað árið 2017.
Þegar
farangur
tapast
Breska blaðið Telegraph tók ný-
lega saman ráð fyrir ferðalanga
sem verða fyrir því að farangur
þeirra tapast eða berst seint.
Samkvæmt blaðinu er lykilatriði
að fylla út eyðublað og tilkynna
um seinkun eða tjón á farangri
áður en farið er frá viðkomandi
flugstöð – svokallað PIP-eyðu-
blað. Þá þarf að lýsa töskunni
í smáatriðum en ekki er vit-
laust að eiga myndir af henni
í símanum. Með því að fylla út
eyðublaðið ætti að vera hægt að
fylgjast betur með gangi mála
þegar hringt er í farangursþjón-
ustuna á flugvellinum. Ef að
taskan finnst ekki innan þriggja
vikna er hún formlega „týnd“ en
á meðan er flugfélagið skuld-
bundið til að sjá farþegum fyrir
nauðsynjavöru svo sem salernis-
vöru, nærfötum og öðrum
nauðsynjum sem kunna að vera
í töskunni. Ýmist er slíkt greitt
út strax eða viðkomandi tekur
kvittanir fyrir kaupunum. Að
lokum mun flugfélagið að öllum
líkindum reyna hrinda kostnaði
yfir á tryggingafélag ef taskan
finnst ekki og þá þarf að skoða
vel hvort trygging sé yfirhöfuð
til staðar og hvort hún bæti allt
sem bæta þarf.