Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Page 32
32 Menning Vikublað 1.–3. júlí 2014
Dagur leiðir
safarí
Dagur B. Eggertsson mun leiða
Reykjavík Safarí fimmtudags-
kvöldið 3. júlí. Boðið verður upp
á kvöldgöngur í miðbæ Reykja-
víkur á sex tungumálum þar
sem menningarlífið og menn-
ingarstofnanir í miðborginni eru
kynntar. Bent er á leikhús, styttur
bæjarins og aðra menningar- og
sögutengda staði og staldrað við
á nokkrum menningarstofnun-
um Reykjavíkur. Göngurnar eru
hugsaðar fyrir íbúa af erlendum
uppruna og aðra nýja íbúa borg-
arinnar en ferðamenn og allir
aðrir eru hjartanlega velkomn-
ir. Boðið er upp á leiðsögn á
íslensku, ensku, pólsku, víet-
nömsku, arabísku og frönsku.
Þegar göngunni lýkur munu
allir hóparnir hittast í aðalsafni
Borgarbókasafns þar sem boð-
ið verður upp á hressingu og
skemmtun frá Sirkus Íslands.
Lagt verður af stað frá Grófarhúsi,
aðalsafni Borgarbókasafnsins,
Tryggvagötu 15, klukkan 20.00.
n Hyggjast koma á fót 90 fermetra tónlistarstúdíói í gömlu frystihúsi
S
vona verkefni gefa manni
mjög sterka tilfinningu fyrir
tilgangi,“ segir myndlistar-
konan Una Sigurðardóttir.
„Þar sem verkefnið er mjög
ögrandi vex maður innan þess og er
stanslaust að auka þekkingu sína og
getu.“ Hún og unnusti hennar, írski
tónlistarmaðurinn Vinny Vamos,
vinna nú að uppsetningu á 90 fer-
metra upptökuveri í gömlu íssílói
í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðv-
arfirði. Lokatakmarkið er að geta
boðið tónlistarfólki upp á eins-
taka aðstöðu og vinnustofudvöl á
Stöðvarfirði þar sem unnt verður
að fullvinna tónlist til útgáfu. Stefnt
er að því að Stúdíó Síló verði tilbú-
ið um næstu áramót en upptöku-
verið dregur nafn sitt af fyrra hlut-
verki rýmisins en þar voru ísbirgðir
frystihússins geymdar á árum áður.
„Með því að samnýta þá aðstöðu
sem þegar hefur verið komið upp
verður hægt að taka upp allt efni á
plötu, prenta út umslög og umbúð-
ir, þrykkja á boli og plaköt og jafnvel
halda tónleika í salnum hér,“ segir
Una Björk í samtali við DV. Ljóst er
að umtalsverðar framkvæmdir eru
fram undan en þau hafa þegar afl-
að timburs og annars efniviðar hjá
velviljuðum Austfirðingum. Þrátt
fyrir að verkefnið sé að öllu leyti
unnið í sjálfboðavinnu munu þau
þurfa fjármagn til kaupa á upptöku-
búnaði. Þau ákváðu því að safna
áheitum á hópfjármögnunarsíð-
unni Karolina Fund og geta áhuga-
samir þannig tekið þátt í fjármögn-
un þess.
Frystihúsi umturnað
Sköpunarmiðstöðinni var kom-
ið á legg af þeim Rósu Valtengojer
og Alexander Smára Gjöveraa árið
2011 þegar þau, með hjálp ná-
granna og vina, ákváðu að breyta
gömlu 2.300 fermetra frystihúsi á
Stöðvarfirði í rými fyrir skapandi
fólk, og stuðla um leið að upp-
byggingu á svæðinu. Nú þremur
árum síðar er þegar búið að koma
upp tónleikasal, vinnustofum og
þremur verkstæðum; járn- og tré-
smíða- auk rafmagnsverkstæðis. Þá
er áætlað að keramik og prentverk-
stæði verði tilbúin í haust sem og
fleiri vinnustofur listamanna.
Una og Vinny hafa verið búsett á
Írlandi síðustu misseri en þar hafði
Vinny starfrækt upptökuver síð-
astliðinn áratug. Þau komu til Ís-
lands í vetur og settust að á Stöðv-
arfirði. Segja má að þau hafi fallið
fyrir Sköpunarmiðstöðinni þar sem
sjálfbærnin er höfð að leiðarljósi og
ekki leið á löngu þar til þau fengu þá
hugmynd að koma á fót fyrrgreindu
upptökuveri. Vinny segir hið gamla
íssíló mjög vel hljóðeinangrað og
því hentugt fyrir upptökuver.
Stúdíó í heimklassa
Nýverið fengu þau til liðs við sig
Texasbúann John H. Brandt, en
hann er mjög þekktur hönnuður
og hljómburðarráðgjafi og hefur
hannað upptökuver í yfir fjörutíu
löndum. „Hann er búsettur í Indó-
nesíu um þessar mundir og við
vinnum að hönnuninni í gegnum
Skype þessa dagana,“ segir Una og
bætir við að það hafi verið ómet-
anlegt að fá hann til liðs við ver-
kefnið. Vinny tekur undir þetta:
„Með hönnun John H. Brandt verð-
ur hljómburðurinn í stúdíóinu eins
og hann gerist bestur.“
Una vonast til að aðstaðan muni
laða að jafnt innlenda sem erlenda
tónlistarmenn sem myndi glæða
mjög tónlistarlíf á Austurlandi. Hún
segir marga þegar hafa sýnt áhuga.
„Það er skemmtilegt að segja frá
því að fjölmargir hafa nú þegar
haft samband við okkur og langar
til þess að koma og taka upp.“ Una,
Vinny og félagar njóta nú liðsinnis
fjórtán sjálfboðaliða frá samtök-
unum World Wide Friends en eins
og gefur að skilja eru ýmsar fram-
kvæmdir í gangi.
Gott fyrir vinnualka
„Núna er til dæmis verið að leggja
grunninn að nýjum vinnustofum
sem verða settar upp síðar í sumar,“
segir Una og bætir því við að vinnu-
andinn sé afar góður. „Já, hér er mik-
il vinátta og það er svo mikil orka í
fólkinu að hér erum við nánast að
allan sólarhringinn. Þetta er kjörið
fyrir svona vinnualka eins og mig en
það segi ég nú bara vegna þess að
þetta er svo rosalega skemmtilegt
og verkefnið allt er auðvitað mjög
áhugavert og spennandi.“
Þegar þetta var skrifað höfðu
um 190 þúsund krónur safnast af
þeirri hálfu milljón sem upp á vant-
ar til þess að klára Stúdíó Síló. Sam-
skotssafnanir á Karolina Fund virka
þannig að söfnunin er felld niður
og fjármagni skilað til styrkveitenda
ef ekki næst sett markmið á gefnu
tímabili. Þess vegna biðla þau Una
og Vinny til áhugasamra að leggja
þeim lið, enda geti margt smátt
gert eitt stórt. Á vefsíðu söfnunar-
innar á Karolina Fund má sjá bráð-
skemmtilegt kynningarmyndband
um verkefnið og þannig kynnast því
betur. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is
Hentugt húsnæði Vinny Vamos hefur starf
rækt upptökuver í Írlandi síðasta áratuginn.
Hann segir gamla íssílóið mjög vel hljóðein
angrað og því hentugt fyrir upptökuver.
Breytt hlutverk Verið er að breyta 2.300 fermetra frystihúsi á Stöðvarfirði í rými fyrir
skapandi fólk.
Úr ísnum í eld-
heitt upptökuver
Fyrir tónlistarmenn
Una Sigurðardóttir von
ast til að aðstaðan muni
laða að jafnt innlenda
sem erlenda tónlist
armenn, sem myndi
glæða mjög tónlistarlíf
á Austurlandi.
„… fjölmargir hafa nú
þegar haft samband
við okkur og langar til þess
að koma og taka upp
Reynir sterki
Tökur á heimildamyndinni Reyn-
ir sterki hefjast þann 7. júlí. Frá
þessu greinir vefsíðan Klapptré
en það er vonarstjarna íslenskrar
leikstjórnar, Baldvin Z, sem gerir
myndina. Zetafilm, fyrirtæki
Baldvins framleiðir myndina
með stuðningi frá Kvikmynda-
miðstöð Íslands. Myndin fjall-
ar um ævi Reynis Arnar Leós-
sonar sem lést í desember 1982
þá rúmlega fertugur. Hann bjó
yfir ótrúlegum styrk og komst
meðal annars í Heimsmetabók
Guinness fyrir að brjótast út úr
fangaklefa sem hann sat hlekkj-
aður inni í. Myndin verður frum-
sýnd jólin 2015.
Portishead
velur myndirnar
Listahátíðin ATP eða All To-
morrows Parties fer fram dagana
10.–12. júlí. Breska sveitin Portis-
head er aðalnúmer hátíðarinn-
ar en meðlimir hennar sjá einnig
um að velja þær kvikmyndir sem
sýndar verða. Um hefð er að ræða
á ATP-hátíðum en Portishead
velur einnig bækur sem meðlim-
ir mæla með og þannig gefst há-
tíðargestum tækifæri til að kynn-
ast meðlimum hljómsveita og
menningarsmekk þeirra. Í ár er
það hins vegar þannig að Portis-
head velur myndirnar en söngv-
arinn og alþingismaðurinn Óttarr
Proppé velur bækurnar en hann
starfaði lengi í bókabúð áður en
ferill hans í stjórnmálum hófst.