Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2014, Side 38
Vikublað 1.–3. júlí 201438 Fólk
Svarti sauðurinn
K
ardashian-fjölskyldan er sögð
vera að undirbúa inngrip og
að koma Rob Kardashian í
meðferð eftir að TMZ birti
myndir af honum að reykja
kannabis og drekka hóstasaft. Rob
hefur átt erfitt uppdráttar undanfarin
misseri en hann hefur fitnað mikið og
af raunveruleikaþáttunum Keeping
up with the Kardashians að dæma
virðist baráttan við aukakílóin lítið
ganga.
Kódín og gras
Á myndum sem TMZ birtir sést Rob
reykja kannabis og drekka úr bolla
sem á stendur „Siplean – Codain
Boys“ en þessi glös eru vinsæl undir
drykkinn Sizzerup eða Purple drank
eins og hann er jafnan kallaður. Um
er að ræða hóstasaft sem inniheld-
ur kódín og lyfið promethazine en
hóstasaftinu er jafnan blandað út í
Sprite, Mountain Dew eða aðra gos-
drykki. Íslenska lyfjafyrirtækið Acta-
vis er á meðal fyrirtækja sem hafa
framleitt hóstasaftið og selt í Banda-
ríkjunum.
Sizzerup er sífellt vaxandi vanda-
mál í Bandaríkjunum en neysla þess
hófst í rappsenunni vestan hafs og
hafa rapparar eins og Lil Wayne ver-
ið þekktir fyrir mikla neyslu þess.
Neysla kódíns í miklum mæli get-
ur hægt á starfsemi öndunarfæra og
þegar neysla áfengis og annarra efna
bætist ofan á er voðinn vís.
Vill ekki í meðferð
Kim, systir Rob, er sögð hafa hringt
á hinar ýmsu meðferðarstofnanir til
þess að fá ráðleggingar en Rob hef-
ur hingað til neitað að fara í með-
ferð. Í þáttunum sem fjalla um líf
fjölskyldunnar talar Rob opinskátt
um þyngdaraukningu sína og virðist
hún leggjast þungt á kappann. Hann
hefur reynt að koma sér aftur í form
en án árangurs.
Á meðan virðist allt ganga eins
og í sögu hjá flestum öðrum í fjöl-
skyldunni. Kim giftist nýlega rapp-
aranum Kanye West og dóttir þeirra,
North, fagnaði sínu fyrsta afmæli
nýverið. Þá á Kourtney von á sínu
þriðja barni og Kendall hefur náð
skjótum frama sem fyrirsæta. Móð-
ir Robs, Kris Jenner, hefur sagt í þátt-
unum að þyngdaraukning Robs og
óheilbrigður lífsstíll hans sé þegar
farið að ógna heilsu hans.
Þegar Kim og Kanye gengu í það
heilaga ætlaði Rob ekki að vera við-
staddur brúðkaupið. TMZ greindi
frá því að Rob kærði sig ekki um
athyglina og myndatökurnar sem
fylgdu en sjálfsímynd hans er sögð
í molum eftir að hann bætti
á sig. Skömmu fyrir brúð-
kaupið flaug hann til Frakk-
lands en fjölskyldumeðlimur
fór og sótti hann.
Lamar sparkað
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kar-
dashian-fjölskyldan tekst á við eitur-
lyfjafíkn. Körfuboltastjarnan og fyrr-
verandi eiginmaður Khloe, Lamar
Odom, hefur glímt við mikla fíkn.
Khloe sparkaði kappanum þegar
neyslan var sem mest en hann er nú
sagður hafa bætt ráð sitt og vinnur
hörðum höndum að því að vinna hug
hennar á ný. Khloe beið hins vegar
ekki eftir því og er nú í sambandi með
rapparanum French Montana.
Lamar hafði bókað heila eyju
nærri Saint-Tropez til að fagna 30
ára afmæli Khloe en ekkert verður úr
því. Hún fagnaði
afmælinu ásamt
Montana og
nánustu vinum
á Gansevoort-
hótelinu í New
York á fimmtu-
dag. n
n Rob Kardashian er sagður stríða við fíkn
Áhyggjufullar Kardashian-mæðgur eru
ekki sáttar við þróun mála.
Gripinn Fjölskyldan reynir
að koma Rob í meðferð.
Í vondum málum Rob Kardashian vill komast í form en reykir
bara gras og drekkur hóstasaft.
Ólátaseggur Shia var ekki upp á
sitt besta á söngleiknum Cabaret en
hér sést hann yfirgefa dómsal á Man-
hattan í New York á föstudaginn.
Leikarinn Shia LaBeouf færður í handjárnum af söngleik
L
eikaranum Shia LaBeouf var vís-
að út af Broadway-söngleiknum
Cabaret á dögunum. Hinn 28
ára leikari var með mikla truflun
á fyrri hluta sýningarinnar. Hann fór
meðal annars baksviðs og rassskellti
nokkra leikara ásamt því að reykja
inni í leikhúsinu. Þegar lögregla var
kölluð á staðinn á hann að hafa hót-
að þeim í reiðikasti. Lögreglan hand-
járnaði hann og færði hann á lög-
reglustöð í New York þar sem hann
gisti í fangaklefa eina nótt.
Hann hefur verið kærður fyrir að
fara inn á eign annars í leyfisleysi og
fyrir ósiðlega hegðun.
„Hann sýndi ósiðlega hegðun,
var að reykja og leit út fyrir að vera í
vímu inni í leikhúsinu,“ sagði fulltrúi
lögreglunnar í New York við tímaritið
The Wrap.
Leikarinn Benj Pasek greindi frá
atvikinu á samskiptavefnum Twitter
og sagði að LaBeouf hafi verið færður
út grátandi af sex lögreglumönnum.
Heimildamenn segja einnig að hann
hafi lyktað mjög illa.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem að
Shia LaBeouf sýnir slíka hegðun á al-
mannafæri. Hann hefur oft komist í
heimspressuna fyrir að koma á óvart
með óæskilegri hegðun. n
Rassskellti leikara og reykti inni
Flúr á hausinn
Kelly Osbourne fékk sér nýver-
ið húðflúr á höfuðið eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd. Kelly
er eins og nafnið gefur til kynna
dóttir söngvarans Ozzy Osbo-
urne. Húðflúrið fékk hún sér
vinstra megin á höfðinu en á því
stendur einfaldlega „Stories“
eða „sögur“. Kelly er þekkt fyrir
lítið annað en að vera dóttir föð-
ur síns. Undanfarin ár hefur hún
verið með þáttinn Fashion Police
ásamt hinn kjaftforu og síungu
Joan Rivers.
Nota fanga-
myndir af
frægum
Tónlistarhjónin Beyoncé og Jay
-Z nota fangamyndir eða „mug
shot“ af frægu fólki á tónleikaferð
sinni, On the Run, sem hófst
þann 25. júní síðastliðinn. Fanga-
myndir af stjörnum eins og Justin
Bieber, 50 Cent, Robert Downey
Jr., Russell Brand og af Jay-Z sjálf-
um munu birtast á skjá fyrir aftan
sviðið. Klæðaburður Beyoncé
hefur einnig vakið nokkra athygli
en hún virðist vera að færa sig
meira í áttina að kynþokkafullum
klæðaburði og tilburðum á tón-
leikum og í myndböndum sínum.
Þreyttur rokkari
Gítarhetjan og tónlistargoðsögn-
in Eric Clapton íhugar að hætta
tónleikaferðum. Clapton verður
70 ára á næsta ári og segir 50 ár af
stöðugu rokki hafa tekið sinn toll.
„Það er fullt af hlutum sem mig
langar til þess að gera, en ég er
að íhuga að setjast í helgan stein.
Ég hugsa að ég leyfi mér að halda
áfram að taka upp tónlist inn-
an skynsamlegra marka,“ sagði
Clapton í samtali við The Mirror
en hann sagði bakverki og ýmsa
undarlega kvilla hrjá sig eftir tón-
listarferilinn. Annað sem Clapton
segir að dragi úr ánægjunni af
því að ferðast sé að heimurinn sé
að minnka. Of mörg lönd séu að
verða smærri útgáfa af Banda-
ríkjunum og séu að tapa sérstöðu
sinni. Clapton hefur vanið kom-
ur sína hingað til lands á hverju
sumri í mörg ár. Þá veiðir hann
lax í Vatnsdalsá og í Laxá á Ásum.