Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Side 2
2 Fréttir 13.–15. september 2013 Helgarblað DAGUR KARTÖFLUNNAR Dagskrá: 14:00-14:15 Áslaug Helgadóttir Norrænt samstarf 14:20-14:40 Hildur Hákonardóttir Áhrif kartöflunnar á þéttbýlismyndun á Íslandi 14:45-15:05 Brynhildur Bergþórsdóttir Nýting kartöflunnar 15:15-16:00 Tekið upp úr kartöflu - garðinum og úrslit í kartöfluréttarkeppni kynnt Samkeppni um besta kartöfluréttinn: Allir geta tekið þátt og komið með kartöflurétt, dómnefnd velur besta réttinn - vegleg verðlaun. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir, aðgangur ókeypis. Opið alla daga frá 15. maí til 15. sept. milli kl 11–18. Á öðrum tímum eftir samkomulagi. sími 483 1504 | husid@husid.com | www.husid.com Dagur kartöflunnar Málþing í Húsinu á Eyrarbakka 14. september 2013 kl. 14:00–16:00 Draumurinn lifir 3 Ísland á fína möguleika á að komast í umspil um sæti á lokakeppni HM í Brasilíu næsta sumar eftir frábæran sigur á Albönum, 2–1, í E- riðli undankeppn- innar á þriðjudags- kvöld. Íslenska liðið lék vel í leikn- um og var feikilega vel stutt af 9.768 áhorfendum sem fylltu Laugardals- völl og létu grenjandi rigningu ekk- ert á sig fá. DV fjallaði um leikinn á miðvikudag og var leikmönnum gef- in einkunn fyrir frammistöðu sína í leiknum. Gylfi Þór Sigurðsson var besti maður Íslands í leiknum að mati blaðsins og fékk einkunnina 9. Leynd yfir sjálfs- vígi 2 Hælisleitandinn sem svipti sig lífi í Skessuhelli við smábáta- höfnina í Reykjanesbæ á sunnu- daginn var frá Tékklandi. Þetta kom fram í umfjöllun DV um mál mannsins á mið- vikudag. Hann kom hingað til lands frá Kanada fyrir tveim- ur mánuðum og óskaði eftir því að fá viðurkenningu á stöðu sinni sem flóttamaður hér. Manninum var lýst af viðmælendum DV sem hlédrægum einfara en hann var um fertugt. Hann bjó með syni sínum á gistiheimilinu en drengurinn er nú í umsjón barnaverndaryfirvalda. Börn í kulda og myrkri 1 „Við vorum að koma heim með nýfætt barn þegar rafmagnið og hitinn fór af öllu húsinu. Þetta var mjög erfitt fyrir okk- ur,“ sagði ung móð- ir sem búsett er í skrifstofuhúsnæði í Hamraborg 7 í Kópavogi, í samtali við DV á mánudag. Hiti og rafmagn var tekið af húsinu í byrj- un síðustu viku vegna vangoldinna reikninga eigenda og kom ekki aftur á fyrr en undir lok vikunnar. Um það bil 30 manns, að mestu frá Póllandi og Eystrasaltslöndunum, búa í her- bergjum hússins en því hefur verið breytt í einhvers konar íbúðahótel. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni Deilt um virkni inflúensulyfs n Heimilislæknar sagðir skrifa upp á lyfið til að losna við sjúklinga F lestir Íslendingar kannast við lyfið Tamiflu, sem oft er not- að sem meðferð eða fyrir- byggjandi lyf gegn inflúensu þegar inflúensuveira er að ganga í samfélaginu. Færri vita þó að innan læknageirans er töluvert deilt um virkni þess. Rannsóknir á virkni lyfsins hafa ekki sýnt fram á með óvefengjanlegum hætti að lyfið geri nokkuð gagn í að hefta útbreiðslu eða að það hafi nokkuð forvarnar- gildi. Nú er líða fer að haustmánuð- um sem og inflúensutímabilinu og er því vert að líta á gildi lyfsins. Engar óháðar rannsóknir Eins og fyrr segir þá er töluvert deilt um virkni lyfsins og er það helst vegna þess að framleiðandi lyfsins, Roche, neitar að deila upplýsing- um svo óháðar rannsóknir geti farið fram. Óháðir aðilar, svo sem óháðu rannsóknarsamtökin Cochrane, hafa þó greint þær rannsóknir sem Roche hefur gefið út og var útkom- an úr þeim að draga mætti þá niður- stöðu að lyfið dragi smávægilega úr þeim tíma sem fólk er veikt af inflú- ensuveiru – um á að giska hálfan til heilan dag. Auk þess töldu óháðu rannsakendurnir að óljóst væri hvort lyfið stöðvaði útbreiðslu inflúensu- veira. Greining Cochrane-samtak- anna á rannsóknum á virkni lyfsins leiddu hins vegar í ljós að töluverð slagsíða var á þeim, það er að segja útgefna rannsóknir voru einum of jákvæðar miðað við gefna reynslu. Inntöku lyfsins fylgja auk þess ýmis aukaáhrif svo sem tíð uppköst. Skrifa upp á lyfið til að losna við sjúklinga Þrátt fyrir óljóst gildi lyfsins er þó nokkuð um að heimilislæknar skrifi upp á lyfið fyrir sjúklinga sína. Eins og hefur komið fram er lyfið helst notað þegar inflúensutímabil stend- ur yfir. Samkvæmt heimildum DV er ein ástæða fyrir því að heimil- islæknar skrifi upp á lyfið að sum- ir sjúklingar krefjast skjótra við- bragða við sjúkdómum sem læknast oftast sjálfkrafa með tíma. Lyfið er hins vegar ekki ódýrt, en tíu hylkja skammtur kostar að jafnaði rúm- lega sex þúsund krónur. Þar sem lyfið er merkt sem núll prósent lyf af Sjúkratryggingum Íslands þýðir það að lyfið er ekki niðurgreitt. Árið 2012 var heildarfjöldi seldra pakkn- inga rúmlega fjögur hundruð stykki. Engar tölur eru komnar fyrir árið 2013 en fyrr á árinu voru birtar frétt- ir þar sem lyfjafræðingur kvartaði yfir skorti á lyfinu. Þá stóð yfir inflú- ensufaraldur á landinu. „Sérkennilegt lyf“ Haraldur Briem sóttvarnalæknir gefur ekki mikið fyrir gagnrýni á Tamiflu. „Rannsóknir frá Cochrane- samtökunum eru yfirleitt í nei- kvæðari kantinum, þeir eru mjög krítískir. Þeir birta mjög gjarnan greinar um gagnsleysi hins og þessa lyfs. Þeir hafa verið krítískir á þetta lyf en af flestum er þetta lyf talið gagnlegt.“ Haraldur segir þó að vara- samt sé að líta á lyfið sem lausn við inflúensu faraldri: „Það dreg- ur mjög snögglega úr einkennum … en á heildina litið ef þú ert að nota þetta við árstíðabundinni in- flúensu ertu að græða mjög stuttan tíma, það styttir aðeins tímann sem þú ert veikur. Flensan gengur yfir á nokkrum dögum og ef þú tekur lyfið snemma geturðu aðeins stytt veik- indin. Á heildina litið ef maður er með venjulega flensu er ekki líklegt að þetta sé að skila neinu. Þetta er mjög sérkennilegt lyf, því það slær mjög fljótt á einkennin en maður er nokkra daga að jafna sig engu að síður.“ Spurður hvort það tíðkist að skrifa upp á lyf til að losna við sjúk- linga segir Haraldur: „Það kann að vera, en í tilvikum sumra sjúklinga eins og þeirra sem eru lungnasjúkir þá getur það átt rétt á sér. Hraust fólk þolir nú samt inflúensuna.“ n Hjálmar Friðriksson blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is Haraldur Briem sóttvarnalæknir Segir lyfið gera gagn fyrir þá sem eru veikir fyrir. Fólskuleg árás á Litla-Hrauni Karlmaður varð fyrir fólskulegri líkamsárás í fangelsinu Litla- Hrauni á fimmtudag. Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl í skyndi á Selfoss skömmu eftir árásina með áverka í andliti. Lögreglan á Sel- fossi staðfesti þetta í samtali við DV á fimmtudag. Samkvæmt heimildum DV varð maðurinn fyrir árás tveggja manna og var hann barinn ítrekað með lás í andlitið svo hann lá óvígur og alblóðugur eftir. Höggin skiptu tugum samkvæmt heimildum DV. Að sögn varðstjóra hjá lög- reglunni á Selfossi er málið til rannsóknar. Sló lækni við skyldustörf Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir veitast með ofbeldi að lækni á Heilbrigðisstofun Suðurnesja þann 11. desember 2011. Var maðurinn ákærður fyrir að slá lækninn með flötum lófa á hægri kinn með þeim af- leiðingum að hann hlaut mar yfir hægra kinnbeini og tognun í hálsi. Árásarmaðurinn játaði sök en bar því við að hann hefði verið í and- legu ójafnvægi þegar atvikið átti sér stað og auk þess undir áhrifum vímugjafa. Dómurinn er skilorðs- bundinn til tveggja ára.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.