Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 6
„Inngrip í friðhelgi einkalífs“ n Píratar mótmæla ríkisstjórnarfrumvarpi Í júní lagði forsætisráðherra fram frumvarp um breytingu á lög- um um Hagstofu. Markmið þess var að heimila Hagstofu að óska eftir persónugreinanlegum upp- lýsingum af fjárhagslegum toga frá fyrirtækjum og einstaklingum um viðskipti þeirra við þriðja aðila. Ríkisstjórnin hefur sagt að tilgang- ur þessara laga sé að afla upplýs- inga um fjárhagsstöðu einstaklinga fyrir mögulega höfuðstólslækkun lána. Áform þessi hafa verið mjög umdeild meðal bæði stjórnar- og stjórnarandstöðuþingmanna. Helstu mótmælin hafa þó komið úr röðum þingmanna Pírata. Þeir segja að rökin fyrir frumvarpinu séu ekki nægilega sterk til að ganga inn á friðhelgi einkalífs með þeim hætti sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- maður Pírata, sagði í samtali við DV að frumvarpið væri bæði vanhugsað og að það gengi inn á friðhelgi einka- lífsins með vondum hætti. „Ástæðan fyrir þessu er svo ofboðslega slæm því þetta er bara tímaskortur og óþolin- mæði. Það á ekki einu sinni að nýta þessi gögn fyrr en á næsta ári eftir að nefndin um höfuðstólslækkun lána er búin að skila af sér. Það er bara ver- ið að keyra þetta í gegn núna vegna þess að þeir vilja klára þetta á þessu þingi, ekki vegna þess að þessi út- færsla sé svo góð,“ sagði Helgi Hrafn. Spurður hvort frumvarpið verði sam- þykkt á þingi í óbreyttri mynd þrátt fyrir mótmæli ýmissa þingmanna Sjálfstæðisflokksins sagði Helgi Hrafn: „Ég skil ekki hvernig sjálfstæð- ismenn sem trúa á málstað Sjálfstæð- isflokksins geti samþykkt þetta. Mér sýnist þeir eingöngu ætla að sam- þykkja þetta mál til að þóknast Fram- sóknarflokknum. Það er óvíst hvað sjálfstæðismenn gera, hvort þeir fari eftir sínum gildum eða hvort þeir guggni fyrir framsóknarmönnum.“ n Sami tekinn níu sinnum Samkvæmt tilkynningu frá Lög- reglustjóra á Suðurnesjum hafa akstursbrot þar sem ökumenn hafa keyrt undir áhrifum fíkniefna aukist talsvert frá því á sama tíma í fyrra. Það sem af er á árinu hafa sam- tals 149 akstursbrot verið skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum en aðeins 89 brot voru skráð á sama tímabili árið 2012. Þarna er því um 67 prósenta aukningu að ræða milli árshluta. Þá eru dæmi um að sami ökumaður hafi verið tekinn níu sinnum fyrir fíkniefna- akstur og annar sjö sinnum. Báðir óku án ökuréttinda. Lögreglan á Suðurnesjum ákvað í fyrra að taka sérstaklega á fíkniefnavanda í sínu umdæmi. Kim á bók- menntahátíð Danski rithöfundurinn Kim Leini mun fjalla um kynni sín af Grænlandi og áhrifum danskrar tungu og menningar þar í landi á Bókmenntahátíð sem nú er hafin. Skáldsögur hans hafa jafn- an fjallað um grænlenskt sam- félag og veitt sérstaka innsýn í menninguna þar. Stofnun Vig- dísar Finnbogadóttur í erlend- um tungumálum við Háskóla Ís- lands stendur fyrir viðburðinum í samvinnu við Bókmenntahátíð. Málstofan fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnins sunnudaginn 15. september og hefst kl. 15.30. Umræður fara fram á dönsku. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir. n Ungir drengir voru inni í Skessuhelli þegar hælisleitandi framdi sjálfsvíg A ð minnsta kosti fjórir drengir urðu vitni að því þegar hælisleitandi frá Tékklandi svipti sig lífi í Skessuhelli síðastliðinn sunnudag. Drengirnir voru inni í hellinum þegar þessi voveiflegi at- burður átti sér stað. Þeir munu ekki hafa áttað sig á því hvað maðurinn var að gera inni í hellinum, héldu fyrst að hann væri að fremja gjörn- ing tengdan Ljósanótt, og reyndu að ná sambandi við manninn. Það var ekki fyrr en fullorðin kona kom þar að og kallaði lögregluna til sem þeir áttuðu sig á aðstæðunum. Þeim var í kjölfarið veitt áfallahjálp en líðan þeirra er eftir atvikum. Málið hefur vakið óhug á meðal íbúa bæjarins. Vinsæll á meðal barna Maðurinn sem um ræðir lætur eftir sig unglingsdreng sem nú er í hönd- um barnaverndaryfirvalda. Skessu- hellir er manngert byrgi, nálægt smábátahöfninni í Reykjanesbæ. Hann er sagður heimili skessu sem kom sjómönnum til bjargar í ofsa- veðri á Suðurnesjum. Tveir útgangar eru á hellinum og inni í honum er stærðarinnar tröllskessa, listaverk listahópsins Norðanbáls. Hann hefur lengi ver- ið vinsæll á meðal barna í bæn- um. Drengirnir sem þar voru að leik þennan örlagaríka dag munu fá áframhaldandi aðstoð og fylgst er með líðan þeirra. Líðan góð eftir atvikum Eins og DV greindi frá á miðviku- daginn fengu 25 hælisleitend- ur á gistiheimilinu Fit áfallahjálp á vegum Rauða krossins í kjölfar at- burðarins. „Svona er auðvitað alltaf sorgaratburður og það er eðlilegt að fólk sýni viðbrögð við því,“ sagði Áshildur Linnet, framkvæmdastjóri Rauða krossins í Hafnarfirði, í sam- tali við DV. Heimildarmaður DV sem þekk- ir til drengjanna segir líðan þeirra góða eftir atvikum. Svo virðist sem þessi hryllilegi atburður hafi ekki haft of mikil áhrif á þá. Slík áhrif geti þó komið fram seinna. „Það getur verið að þetta komi ekki til með að hafa nein áhrif á þá. Maður vonar það auðvitað.“ Öll viðbrögð eðlileg Guðný Björnsdóttir, verkefnastjóri Rauða krossins á Akureyri, hefur starfað með áfallahjálparteymi Rauða krossins. Hún segir að í rauninni sé um sálræna skyndi- hjálp að ræða. „Við komum á vett- vang og erum til staðar á fyrstu stig- um áfalls, fyrir þá sem verða vitni að slysum, en í framhaldinu taka heil- brigðis- og félagsmálayfirvöld við keflinu.“ Áfallateymið er með eftirfylgni fyrstu dagana, en það fer eftir að- stæðum hverju sinni hversu lengi sú eftirfylgni varir. Guðný segir við- brögð fólks eins misjöfn og slys- in eru mörg. „Það fer eftir hverjum einstaklingi fyrir sig.“ Hún segir að í raun séu öll viðbrögð eðlileg. „Þetta er bara óeðlilegt ástand þannig að það verður bara að tækla hvert til- vik fyrir sig. Það er misjafnt hvernig hlutirnir verka á fólk.“ Áföll barna öðruvísi Guðný segir börn upplifa áföll á ann- an hátt en fullorðnir. „Það er auðvit- að munur á því hvernig börn og full- orðnir upplifa áföll. Þau fara meira inn og út úr áföllum. Inn í sinn leik og hugarheim og svo koma þau aft- ur á meðan fullorðnir eru meira bundnir af áföllunum.“ Hún segir að áfallateymi Rauða krossins skilji engan eftir í óvissu. „Við komum málum alltaf áfram til réttra aðila.“ Maðurinn kom hingað til lands frá Kanada fyrir tveimur mánuðum og óskaði eftir því að fá viðurkenn- ingu á stöðu sinni sem flóttamaður hér. Honum er lýst sem hlédrægum einfara. Fjöldi hælisleitenda býr við þröngan húsakost á gistiheimilinu Fit en íbúum þar hefur fjölgað á síð- ustu árum. Í umfjöllun DV á mið- vikudaginn var greint frá því að mað- ur frá Lettlandi hefði framið sjálfsvíg á gistiheimilinu árið 2008. Þá hafa fjölmargir hælisleitendur reynt að svipta sig lífi á síðustu árum. n Fjórir drengir Fengu áFallahjálp Skessuhellir Drengirnir voru inni í hellinum þegar atvikið varð. Þeim var veitt áfallahjálp í kjölfarið. 6 Fréttir 13.–15. september 2013 Helgarblað Forsíða DV 9.11.13 Helgi Hrafn Gunnarsson Segir Sjálf- stæðismenn vera þóknast Framsóknar- flokknum. Mynd: ©THordur SVeinSSon Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.