Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 8
8 Fréttir 13.–15. september 2013 Helgarblað
Synjun sýslumanns kærð
n Náttúruverndarsamtök Íslands segja synjun vera brot á EES-samningnum
F
ern náttúruverndarsamtök;
Landvernd, Náttúruverndar-
samtök Íslands, Náttúru-
verndarsamtök Suðvesturlands
og Hraunavinir, óskuðu eftir lög-
banni nýverið vegna framkvæmda
við lagningu vegar í Gálgahrauni.
Sýslumaðurinn í Reykjavík hafn-
aði þeirri beiðni á miðvikudaginn
vegna þess að samtökin voru ekki
talin hafa lögvarða hagsmuni í mál-
inu. Samtökin kærðu synjunina
undir eins til héraðsdóms. Sam-
kvæmt lögmanni samtakanna stang-
ast lagatúlkun sýslumanns á við
EES-samningin sem og Árósasamn-
ingin. „ Sýslumaður talar um að um-
hverfisverndarsamtökin hafi ekki
lögvarða hagsmuni. Við mótmælum
því vegna þess að það kemur skýrt
fram í tilskipun sem er hluti af EES-
samningnum sem fjallar um mat á
umhverfisáhrifum að umhverfis-
verndarsamtök hafi alltaf hagsmuni
í svona málum. Það verður að túlka
íslenska löggjöf með hliðsjón af því,“
sagði Ragnheiður Elfa Þorsteins-
dóttir, lögfræðingur samtakanna, í
samtali við DV. Að sögn Ragnheiðar
mun kæra samtakanna ekki tefja fyr-
ir vegagerðinni og vonast hún því eft-
ir skjótari afgreiðslu.
„Þetta er óþarfa vegur yfir fallegt
hraun, það væri vel hægt að hanna
þetta öðruvísi þannig að kröfum um
umferðaröryggi væri fullnægt án
þess að fara þarna yfir. Þetta er göm-
ul hugmynd sem passar ekki í nútí-
mann,“ segir Árni Finnsson, formað-
ur stjórnar Náttúruverndarsamtaka
Íslands, í samtali við DV. Samtök-
in hafa bent á að framkvæmdin sé
ólögmæt bæði vegna þess að fram-
kvæmdaleyfi sem gefið var út árið
2009 til eins árs sé löngu útrunnið
sem og að umhverfismat, sem hafi
tíu ára gildistíma, sé orðið ellefu ára.
„Sú valdníðsla og valdhroki vega-
málastjóra að skrifa undir verksamn-
ing við ÍAV tveimur vikum eftir þing-
festingu málsins á sér sem betur fer
engin þekkt fordæmi. Vonandi eru
þessar aðfarir ekki boðberi þess sem
koma skal á Íslandi, þá væri réttarrík-
inu stefnt í voða,“ segir í fréttatilkynn-
ingunni. n hjalmar@dv.is
Á
kæra á hendur Þór Óliver
Gunnlaugssyni var þingfest
í Héraðsdómi Reykjavíkur í
vikunni. Þór er sakaður um
að hafa hótað tveimur lög-
reglumönnum lífláti ásamt því að
hafa verið með fíkniefni í fórum
sínum í júlí 2012. Þór, sem hét áður
Þórhallur Ölver, oft kenndur við
Vatnsberann, afplánar 16 ára dóm
á Litla-Hrauni fyrir að hafa ráðið
viðskiptafélaga sínum Agnari W.
Agnarssyni bana á heimili Agnars
að Leifsgötu árið 1999.
Var handtekinn á bensínstöð
í fyrra
Samkvæmt ákæru frá ríkissak-
sóknara var Þór staddur á bens-
ínstöðinni Olís við Álfheima á
Suðurlandsbraut árla morguns
þann 16. júlí 2012 þegar lögreglu
bar að garði og handtók hann.
Þór er sakaður um að hafa hót-
að tveimur lögreglumönnum líf-
láti þar sem hann sagðist ætla að
„koma heim til þeirra og skjóta þá.“
Hótunin átti sér stað í lögreglu-
bifreiðinni í kjölfarið af handtök-
unni. Við komu á lögreglustöðina
á Hverfisgötu kom í ljós að Þór var
með fíkniefni í fórum sínum, þar á
meðal amfetamín.
Hrottafengið morð framið
undir áhrifum vímuefna
Þór var sem áður segir dæmd-
ur fyrir að hafa banað Agnari W.
Agnarssyni á hrottafenginn hátt
aðfaranótt 14. júlí árið 1999 en
mikið magn amfetamíns og kóka-
íns var í blóði Þórs þegar hann
framdi morðið. Agnar var stunginn
margsinnis víða um líkamann á
heimili sínu að Leifsgötu 28 með
þeim afleiðingum að hann lést.
Undirbúningur að
reynslulausn árið 2011
Árið 2011 var auglýst eftir Þór
þegar hann lét sig hverfa af Land-
spítalanum við Hringbraut þar
sem hann var undir læknishönd-
um einn síns liðs. Lögreglu var þá
strax gert viðvart og lýst var eft-
ir honum í fjölmiðlum. Síðar kom
í ljós að Þór hafði tekið leigubíl á
meðferðarheimilið Hlaðgerðarkot
án þess að gera lögreglu viðvart.
Dóttir Þórs, Elín, sagði í kjölfarið í
samtali við Fréttablaðið að til hefði
staðið að sleppa föður hennar þar
um haustið og að undirbúningur
fyrir þá reynslulausn væri hafinn.
Kallaður Vatnsberinn
Bæði amfetamín og e-töflur fund-
ust í fórum Þórs við handtöku hans
ári síðar, eða árið 2012, samkvæmt
því sem fram kemur í ákæru. Að-
almeðferð málsins mun fara fram
þann 15. október næstkomandi.
Þór hefur setið í fangelsi á Litla-
Hrauni frá árinu 1999 og á hann
langan sakaferil að baki, sem nær
allt til ársins 1975. Hann er einnig
þekktur sem Vatnsberinn, en þá
nafngift hlaut hann í kjölfar dóms
vegna stórfelldra svika á virðis-
aukaskatti í tengslum við vatns-
verksmiðju í Hafnarfirði á tíunda
áratug síðustu aldar. n
ritstjorn@dv.is
n Þór Óliver ákærður fyrir fíkniefnabrot og fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti
Sagður hafa hótað
lögreglu lífláti
Þór Óliver Gunnlaugsson Þór Óliver
hét áður Þórhallur Ölver Gunnlaugsson og
hefur einnig verið kallaður Vatnsberinn.
Þór Óliver, áður Þórhallur Ölver, fyrir dómi Þór Óliver hefur setið inni á Litla-Hrauni
síðan árið 1999 fyrir hrottalegt morð. 14 ár eru því liðin af upphaflegum 16 ára dómi hans.
Kjarvalsklettur Náttúruverndarsamtök hafa barist gegn vegaframkvæmdum í Gálga-
hrauni og kröfðust lögbanns á framkvæmdir. Þeirri beiðni var hafnað. MyNd CarloS FErrEr
Fé tefur umferð
Næstu daga má búast við um-
ferðartöfum á vegum í uppsveit-
um Árnessýslu vegna fjárrekstra
haustsins, segir í tilkynningu frá
lögreglunni á Selfossi. Fé var safn-
að saman af Hrunamannaafrétt
og rekið eftir Hrunamannavegi
yfir í Kirkjuskarð á fimmtudag, en
þar voru nýjar réttir vígðar í dag,
föstudag.
Föstudaginn 13. september
verða tafir bæði á vegi Skeiðar-
vegi, númer 30, og Þjórsárdals-
vegi, númer 32, vegna fjárrekstra
frá Fossnesi og niður í Reykjaréttir
en þó verður hægt að fara hjáleið-
ir og sæta lagi á meðan áð er á
leiðinni.
Laugardaginn 14. september
geta orðið tafir vegna fjárrekstra á
Skeiðarvegi, númer 30, frá klukk-
an 13.00 og eitthvað fram eftir
degi.
MyNd raKEl ÓSK
Snjór á
Siglufirði
Snjórinn er farinn að láta sjá sig
fyrir norðan ef marka má frétt á
vefmiðlinum siglo.is. „Vetur Kon-
ungur minnir aðeins á sig á Sigló
í dag,“ segir í fréttinni sem birt
var á fimmtudagsmorgun og með
henni fylgja myndir af snjógráum
fjöllum. „Það er að vísu ennþá
frekar lélegt í snjónum, óttalegt
slabb og bleyta en það breytist nú
örugglega til batnaðar þegar líður
nær jólum.“ Skíðaáhugafólk og
vélsleðamenn á Siglufirði hugsa
sér eflaust gott til glóðarinnar við
þessi tíðindi.
Keypti
rafmagnsbíl
Norðurorka fékk afhentan raf-
magnsbíl á fimmtudag. Bíllinn
er af gerðinni Mitsubishi I-MiEv
sem er fyrsti fjöldaframleiddi raf-
magnsbíllinn í heiminum. „Um
18% af þeirri orku sem nýtt er á
Íslandi er innflutt jarðefnaelds-
neyti og er það aðallega notað í
samgöngum og fiskveiðum. Tæki-
færi Íslendinga til þess að minnka
koltvísýringsmengun með notkun
raforku í samgöngum er því raun-
hæfur kostur,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Norðurorku.