Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 16
I llugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, hætti við að fella niður skólagjöld nemenda í frumgreinanámi, en gert var ráð fyrir slíkri niður- fellingu í fjárlögum ársins 2013. Þetta hafði þær afleiðingar að ekki var unnt að ná fram hagræðingu hjá LÍN með því að draga úr lán- veitingum vegna skólagjalda eins og til stóð. Í staðinn ákváðu stjórn- völd að ná fram sparnaði með því að skerða lántökurétt námsmanna. Þannig voru gerðar umdeild- ar breytingar á úthlutunarreglum LÍN í miklum flýti; breytingar sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur nú dæmt ólöglegar vegna hins skamma fyrirvara sem námsmenn fengu til að bregðast við þeim. Áður en ný ríkisstjórn tók við stjórnartaumunum var stefnt að því að fella niður skólagjöld frum- greinanema með það fyrir augum að hækka menntunarstig á vinnu- markaði. Þessar aðgerðir átti að fjármagna með ónýttum fjárheim- ildum úr fjárlögum og fyrir vikið var áætlað að útlán LÍN vegna skólagjalda myndu lækka um allt að 125 milljónir króna. Athygli vek- ur að fjárhæðin er nánast sú sama og nemur hagræðingarkröfunni sem stjórn LÍN var gert að bregðast við í sumar. Þegar fyrri ríkisstjórn lét af störfum benti allt til þess að áform- in yrðu að veruleika og skólagjöld frumgreinanema yrðu felld nið- ur með tilheyrandi sparnaði fyrir lánasjóðinn. Einungis átti eftir að ganga frá samningum milli menntamálaráðuneytisins og þeirra háskóla sem bjóða upp á námið. Eftir stjórnarskiptin var hins vegar fallið frá þessum hug- myndum. Skólagjöld við frum- greinadeildir í Bifröst, HR og Keili hafa ekki verið felld niður og því hefur LÍN ekki getað hætt að lána fyrir þeim. Afleiðingin er sú að fjár- hagsstaða lánasjóðsins er verri en búist var við og staða fólks sem hyggur á frumgreinanám engu betri en áður. Hugðust hækka framlög ríkisins Ein af forsendum fjárlaga ársins 2013 hvað varðar LÍN var að skólagjaldalán myndu lækka um allt að 125 milljónir króna vegna fyrrnefndra áforma. Semja átti við háskóla sem bjóða upp á slíkt nám um að fella niður eiginleg skóla- gjöld gegn því að ríkisframlag til hvers nemanda yrði hækkað. Til þess átti að nota fjármuni úr fjár- lagalið 02-320, sem er eyrna- merktur námi á framhaldsstigi vegna aðstæðna á vinnumarkaði, en stýrihópur verkefnisins Nám er vinnandi vegur stakk upp á því að hann yrði nýttur með þess- um hætti. Átti þetta að vera liður í menntaátaki stjórnvalda og að þjóna þeim tilgangi að auka að- gengi að frumgreinanámi og koma til móts við fólk á vinnumarkaði sem sækist eftir háskólamenntun en hefur ekki lokið framhalds- skólanámi. Góð reynsla af frumgreinanámi Í tillögu stýrihópsins er fullyrt að skólagjöld vegna frumgreinanáms séu veruleg hindrun fyrir fólk á vinnumarkaði sem hefur hug á að bæta stöðu sína og mennta sig. Því sé æskilegt að gera skólunum kleift að hætta að innheimta skólagjöld umfram hefðbundin skráningar- gjöld. „Góð reynsla hefur verið af aðfararnámi við íslenska háskóla og stofnanir á þeirra vegum. Innan átaksverkefnisins Nám er vinnandi vegur var þannig lægsta brottfall meðal atvinnuleitenda í slíku námi. Þá er námið stutt, samþjappað og því fjárhagslega hagkvæmt,“ segir í greinargerð tillögunnar. „Meðal- aldur nemenda er hár og hefur námið verið góður kostur fyrir fólk á vinnumarkaði án stúdentsprófs sem vill styrkja sína stöðu með há- skólanám í huga.“ Verkefnisstjórnin samþykkti tillöguna þann 23. apríl. Við stjórnarskiptin nokkrum vikum síðar átti einungis eftir að ganga frá samningum við háskólana. Vandi vegna niðurskurðar Sú hagræðingarkrafa sem LÍN var gert að bregðast við í sum- ar nam 127 milljónum. Eins og fram hefur komið er þetta nán- ast sama fjárhæð og sparast átti hjá sjóðnum með niðurgreiðslu skólagjaldanna. Eftir að dóm- ur féll í máli námsmanna gegn LÍN hefur Illugi Gunnarsson full- yrt að niðurstaða dómsins auki á fjárhagsvanda LÍN. Af ofansögðu má þó ljóst vera að fjárhagsvandi LÍN er tilkominn vegna pólitískrar ákvörðunar um niðurskurð ríkis- útgjalda. Eins og DV hefur áður fjallað ítarlega um er uppi krafa um flatan 1,5 prósenta niður- skurð til allra ráðuneyta á næsta fjárlagaári. Samkvæmt lausleg- um útreikningum má ætla að hag- ræða þurfi um tæpan milljarð hjá mennta- og menningarmálaráðu- neytinu. DV sendi menntamálaráðu- neytinu fyrirspurn um málefni lánasjóðsins og frumgreinanema en engin svör höfðu borist þegar blaðið fór í prentun. DV hefur þó heimildir fyrir því að þeim skólum sem bjóða upp á frumgreinanám hafi verið veittir sérstakir fjár styrkir án þess þó að gerð væri krafa um aflagningu skólagjaldanna. n Áherslubreyting Illuga bitnar á námsmönnum n Ráðherra hætti við að létta undir með frumgreinanemum n Kemur niður á fjárhagsstöðu LÍN Stúdentar höfðu betur n „Þetta er fullnaðarsigur“ Málefni Lánasjóðs íslenskra náms- manna hafa verið mikið í umræðunni undanfarnar vikur. Þann 30. ágúst felldi Héraðsdómur Reykjavíkur þann dóm að LÍN hefði verið óheimilt að breyta útlánareglum námslána með jafn skömmum fyrirvara og gert var þegar ákveðið var að hækka lágmarksein- ingafjölda lánþega úr 18 einingum upp í 22. Jónas Fr. Jónsson, stjórnarformaður LÍN, fullyrti að til stæði að áfrýja dómn- um og var niðurstöðu Héraðsdóms ekki fylgt í heilar tvær vikur eftir að hann féll. Á fimmtudaginn var hins vegar sú ákvörðun tilkynnt að dómnum yrði ekki áfrýjað. „Þetta er fullnaðarsigur. Málinu er hér með lokið og þetta þýðir í rauninni að við unnum þetta mál,“ segir María Rut Kristinsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands, í sam- tali við DV.is. „Það var engan veginn hægt að gera þessar breytingar með þessum fyrirvara. Okkar málstaður var réttur og sannur,“ segir hún. Þrátt fyrir að ætla ekki að áfrýja dómn- um hefur menntamálaráðherra lagt áherslu á að þeirri stefnumörkun verði fylgt að miða námsframvindukröfur við 22 einingar á misseri en framkvæmd þeirrar breytingar verði frestað til skólaársins 2014 til 2015. María Rut segir að Stúdentaráð sé mótfallið breytingunum en vilji nýta þann tíma sem vinnst með því að finna lausn sem sé ásættanleg fyrir alla. 16 Fréttir 13.–15. september 2013 Helgarblað Fallið frá áformum vinstristjórnar Sú ákvörðun menntamálaráðherra að falla frá niðurfellingu skólagjalda frumgreinanema bitnar harkalega á fjárhag LÍN, enda stóð til að ná fram hagræðingu hjá sjóðnum með því að draga úr útlánum vegna skólagjaldalána. Skorið niður til LÍN Leitast var við að skera niður til lánasjóðsins með því að herða útlánareglur og skerða lántökuréttindi námsmanna. Héraðsdómur dæmdi breytingarnar ólöglegar og verður málinu ekki áfrýjað til Hæstaréttar. MyNd: SiGtryGGur Ari Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.