Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 18
18 Fréttir 13.–15. september 2013 Helgarblað
Ljósmyndarar Reuters
hafa verið á ferð og
flugi í vikunni sem er
að líða og myndað
það helsta sem gerst
hefur á byggðu bóli.
Hér sést brot af því
besta frá liðinni viku.
Barn með
sprengju Þó að Sýr-
lendingurinn Issa sé einungis
tíu ára er hann í fullu starfi í
vopnaverksmiðju föður síns í
hinni stríðshrjáðu borg Aleppo.
Issa vinnur fjölbreytt störf í
verksmiðjunni þó sérsvið hans
sé viðgerðir á sprengjuvörpum.
Faðir hans er meðlimur í
Frelsisher Sýrlands sem berst
gegn stjórn Bashar al-Assad
Sýrlandsforseta. Issa vinnur alla
daga vikunnar, að föstudögum
undanskildum, og er vinnu-
dagurinn tíu klukkustundir.
Mótmæli barin niður Óeirðalögreglumaður sést hér skjóta táragasi í átt að
mótmælendum í Istanbúl, stærstu borg Tyrklands, í vikunni. Fólk þusti út á götur borgar-
innar þegar það spurðist út að mótmælandi hefði látið lífið í borginni Antakya í mótmælum
gegn meintu harðræði lögreglu. Hundruð manns tóku þátt í mótmælunum og fóru þau líka
fram í höfuðborginni Ankara.
Rústir einar Ung stúlka stendur fyrir framan gjörónýta byggingu í bænum Ariha í norðurhluta Sýrlands. Byggingin var sprengd
í loft upp á mánudag og að sögn uppreisnarmanna í Sýrlandi stóðu sveitir hliðhollar Bashar al-Assad Sýrlandsforseta fyrir árásinni. Ekkert
lát er á borgarastyrjöldinni í Sýrlandi en yfirvöldum þar í landi hefur verið gefinn frestur til að láta efnavopnabirgðir sínar af hendi, ella eiga á
hættu að verða fyrir árás Bandaríkjahers.
Mannslífi bjargað Slökkviliðsmaður bjargar hér
verkamanni í borginni Lu‘an í Anhui-héraði í Kína á mánudag.
Verkamaðurinn á myndinni var við vinnu í byggingarkrana við blokk
í borginni þegar stoðir undir krananum gáfu sig. Sem betur fer
hrundi kraninn þó ekki en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd mátti
litlu muna. Verkamaðurinn var í 18 metra hæð og hefði varla þurft
að spyrja að leikslokum ef hann hefði fallið á götuna fyrir neðan.
Stund
milli stríða
Palestínskir
verkamenn hvíla
lúin bein og reykja
sígarettur í leyni-
legum smyglgöng-
um sem liggja frá
Gaza-ströndinni
til Egyptalands.
Egypskar öryggis-
sveitir lögðu á það
aukna áherslu
í sumar að loka
smyglgöngum
sem liggja til
Egyptalands frá
Gaza-ströndinni.
Um göngin er alls
konar varningi
smyglað, meðal
annars matvælum
og eldsneyti.
Fréttir 19