Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 22
22 Umræða 13.–15. september 2013 Helgarblað T uttugu ár eru liðin síðan Ísrael og Frelsissamtök Palestínu (PLO) komust að niðurstöðu um Óslóar- samkomulagið, yfirlýsingu um takmarkaða sjálfstjórn Palest- ínumanna, sem var undirritað á flötinni fyrir frama Hvíta húsið í Washington DC hinn 13. septem- ber 1993. Í viðbrögðum við áfang- anum var sagt að um væri að ræða gífurlega mikilvæg pólitísk straum- hvörf. Opinberlega viðurkenndi Ísrael PLO sem lögmætan fulltrúa Palestínumanna og PLO viður- kenndi tilverurétt Ísrael. Innan skamms fór að bera á gagnrýni á samkomulagið. Sumir veltu fyrir sér hvernig sú sjálfstjórn, sem stofnað yrði til undir for- ystu Yassers Arafat, myndi leiða til palestínsks stjórnsvæðis undir her- setu Ísraelsmanna, þar sem palest- ínskt sýndarríki yrði háð verulegum fjárstuðningi alþjóðasamfélagsins. Við upphaf annarrar uppreisn- ar Palestínumanna í september árið 2000, birtist hópur „verndara“ friðar ferlisins; Kvartettinn svo- nefndi, samansettur af Sameinuðu þjóðunum, Rússlandi, Bandaríkj- unum og Evrópusambandinu. Kvartettinn ýtti úr vör „vegvísi til friðar“ árið 2002, með ákalli um sjálfstætt palestínskt ríki sem lifði í friði við hlið Ísrael. Í gegnum tíðina hefur komið til umræðu fjöldi hindrana í friðarferl- inu, til að mynda hið stöðuga ólög- lega landnám Ísraela á hernumda hluta Vesturbakkans og í Austur- Jerúsalem. Smá vonarglætu varð vart í september, 2005, þegar Ísrael kúplaði sig frá allri landnemabyggð á Gaza og lýsti því yfir í kjölfarið að herseta á Gaza hefði runnið sitt skeið, jafnvel þótt Gaza væri í reynd sem risavaxið fangelsi sem sætti enn harkalegra umsátri að afstöðn- um kosningum í Palestínu árið 2006. Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur við nokkur tækifæri hafið máls á afleiðingum hins ólöglega landnáms á viðvarandi frið á þessu svæði. En hvorki á öðru kjörtímabili sínu né í heimsókn sinni til Ísrael, í apríl 2013, minntist hann á það. Forysta Palestínumanna er hik- andi við að hefja samningaviðræður af nokkru tagi áður en byggð á land- námssvæðunum hefur verið stöðv- uð. Ísrael krefst þess að samninga- viðræður hefjist að nýju án skilyrða. Æ oftar heyrast yfirlýsingar þess efnis að tveggja ríkja lausnin sé andvana. Þeir sem fylgjast með gangi mála beina sjónum sínum að tveimur möguleikum: sameinað lýðræðisríki Gyðinga og Araba, þar sem Arabar yrðu innan tíðar í meiri hluta, eða ríki Gyðinga með stækk- andi minnihluta Palestínumanna í ríki aðskilnaðar þar sem ríkti ólga og andóf. Útgangspunktur okkar er sú alþjóðlega samþykkta afstaða að Ísrael beri ábyrgð á ólöglegri hersetu Palestínu; Vesturbakkan- um, Austur- Jerúsalem og Gaza- svæðinu. Opinberlega fullyrðir Ísr- ael að það hafi ekki hersetið svæðið, öllu heldur stjórnað landsvæði frá 1967, sem ekki hafði lotið stjórn annars ríkis. Þessi afstaða var for- dæmd af Alþjóðadómstólnum í ráðgefandi yfirlýsingu varðandi „aðskilnaðarmúrinn“ um Vestur- bakkann. Ósló, höfuðborg friðar Ágreiningur varð til árið 1947 þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna mæltist til þess að Palestína sem laut breskri stjórn yrði klofin. Í september, 1993, virtist sem frið- samleg laus væri í sjónmáli. Í heim- ullegum samningaviðræðum í Nor- egi komust fulltrúar ríkisstjórnar Ísrael og forysta PLO að samkomu- lagi sem lyktaði með Óslóar- samkomulaginu. Að vera milliliður í samkomu- lagi á milli Ísrael og forystu Palest- ínumanna varð rós í hnappagatið hjá Noregi. Ósló styrkti ímynd sína sem höfuðborg friðar. Hvað varðaði norska stjórnmálamenn virtist sem hlutverk þeirra sem sáttasemjarar væri mikilvægari útflutningsvara en fiskur og orka. Jafnvel þegar málefni um allan heim, sem ekki vörðuðu átök, bar á góma var horft til Noregs sem málsmetandi aðila. Friðar- verðlaunum Nóbels fylgdi fjöldi verkefna víða um lönd; en átökin á milli Ísrael og Palestínu urðu bara eitt verkefni af mörgum, en mikil- vægt engu að síður. Síðan 1993 hef- ur fölva slegið á vegsemdina sam- fara æ fleiri röddum sem segja tíma Óslóar liðinn. Að taka að sér hlut- verk sáttasemjara fylgir áhætta og sá sem það gerir þarf að vera viðbúinn því að fá skömm í hattinn og sæta gagnrýni, og jafnvel verða gerður ábyrgur fyrir árangrinum. Sa sem gerir „frið“ að vörumerki sínu skapar væntingar. Nýta verður diplómatískar og efnahagslegar aðferðir til að gera jákvæða sýn að veruleika. Sem eitt af auðugustu löndum heims ætti Noregur að láta til sín taka. Í nýlegri brautryðjenda- grein er velt upp þeirri spurningu hvort Noregur hafi lent í öngstræti í hlutverki sínu sem sáttasemjari með því að grípa til stuðnings á fjár- lögum og þróunarsjóða til að vega upp á móti hverjum þeim afturkipp sem orðið hefur í pólitískri þróun á milli Ísrael og Palestínu. Gagnrýnið mat Hægt er að byggja mat á samkomu- laginu á sögulegu og pólitísku samhengi þess, beina sjónum að ramma skilyrða og takmörkun- um sem gætu haft alvarlegar af- leiðingar hvað varðar árangur af samkomulaginu. Einnig er hægt að fókusa á raunverulegan árangur sem snertir fólkið sem málið varð- ar, Palestínumenn og Ísraelsmenn, á hinum ýmsu sviðum samfélags- ins. Hverjar eru horfurnar á árangri fyrir Ísraelsmenn og Palestínu- menn? Hverjar eru horfurnar í aðild Bandaríkjanna, Evrópusambands- ins, Noregs og annarra? Hversu mikil áhrif hafði Ósló á Palestínu- menn á Vesturbakkanum og Gaza- svæðinu, sem og fanga í ísraelskum fangelsum? Um nokkurra ára skeið var Óslóarsamkomulagið sagt dautt og grafið, en birtist á ný sem hornsteinn pólitísks frumkvæðis. Er samkomulagið dautt? Býr enn með því lífsmark og mikilvægi? Skýrt svar við þessum spurningum liggur ekki á lausu. Öllu alvarlegra er að Óslóar- samkomulagið er af mörgum talið örgustu svik við þjóðernis- kennd Palestínumanna. Í stað þess að leiða til fullvalda og sjálfstæðs palestínsks ríkis, sem hefur verið þrá meirihluta Palestínumanna og málsmetandi alþjóðlegra aðila, lagði samkomulagið grunninn að áframhaldandi hersetu, en með palestínskri ásýnd. Í stað þess að styrkja einingu meðal Palestínu- manna leiddi Óslóarsamkomulagið til myndunar nokkurra fylkinga. Gæti Óslóarsamkomulagið borið árangur? Samkomulagið formaði aðeins samkomulag hvað varðaði pólitíska vegferð Ísraelsmanna og Palestínumanna til óskilgreindrar framtíðar. Palestínumenn trúðu að sjálfstæð þjóð og fullvalda ríki yrðu lyktirnar. Í ísraelskum pólitískum kreðsum var enga sameiginlega sýn að finna aðra en þá að halda utan um hersetuna á besta mögulega máta. Í ljósi sögulegra vísbendinga má leiða líkur að því að forysta Ísrael hafi aldrei verið reiðubúin til að veita Palestínu fullveldi. Tuttugu árum síðar Að leggja mat á útkomuna af Óslóar- samkomulaginu er flóknara en kann að virðast. Það hafa augljóslega ver- ið deildar meiningar, frá upphafi um ætlaðar málalyktir. Sumir spyrja hvort friðarferlið hafi yfirhöfuð ver- ið raunhæft og spyrja hvort þeir sem komu að því hefðu ekki átt að gera sér grein fyrir því að þeir tveir aðil- ar sem það varðaði höfðu ólík sjón- armið og áform. Í Ísrael eru margir hlynntir tveggja ríkja lausninni sem einu leiðinni fram á við og horfa til Óslóarsamkomulagsins sem mik- ilvægs tækis til að ná því mark- miði. Í sumum hlutum Palestínu er Óslóarsamkomulagið fordæmt sem landráð, talið grafa undan löngun fólksins til að öðlast sjálfstæði og frelsi, og talið orsök pólitísks flokka- dráttar. Væru Palestínumenn betur settir í dag án Óslóarsamkomu- lagsins? Við getum ekki sagt til um það. Það sem við getum tjáð okkur um er raunsæi samkomulagsins. Við getum einnig bætt einhverju við hvað varðar afleiðingarnar. Enn er von um betri framtíð fyrir fólkið sem málið varðar, Palestínumenn og Ísraelsmenn, þrátt fyrir að efasemd- ir breiðist út. Gagnkvæm viðurkenn- ing á rétti hvor annars til að lifa og dafna án þess að vera stimplaður er nauðsynleg. Þegar Alþingi Íslands, árið 2011, lýsti yfir fylgi við viður- kenningu á Palestínu sem fullvalda og sjálfstæðu ríki innan landamær- anna frá 1967, sendi það skilaboð til alþjóðasamfélagsins um að grípa til aðgerða, og fordæmdi hersetuna og samþykkti lögmætan rétt Palestínu- manna. Óslóarsamkomulagið hef- ur ekki náð þeim árangri – enn sem komið er. 46 ár er alltof of langur tími und- ir hersetu í alþjóðlegu samfélagi sem vegsamar mannlegt öryggi og reisn. n Óslóarsamkomulagið 1993–2013 Aðsend grein Petter Bauck Mohammed Omer n Gagnrýnið mat 13. september 1993. Palestínskir mótmælendur brenna þjóðfána Bandaríkjanna og Ísrael ofan á kistu sem á er skrifað „Óslóarsamkomulagið“.„Jafnvel þótt Gaza væri í reynd sem risavaxið fangelsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.