Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 24
F lestir eru sammála um mikil- vægi aukinnar fjárfestingar til að auka hagvöxt á Íslandi. Þessi grein er til að vekja athygli á já- kvæðri þróun. Skýrar vísbendingar eru um að fjárfestingar aukist nú til muna í Reykjavík. Íbúðabyggingar eru hafnar að nýju, fyrstu atvinnulóðun- um eftir hrun hefur verið úthlutað, fleira en eitt hótel er í undirbúningi og umtalsverð fjárfesting er væntanleg í helstu vaxtargreinum atvinnulífsins. Hótelbyggingar hafa verið mest í um- ræðunni. Þessi grein fjallar um allt hitt. Hlemmur plús Íbúðafjárfesting er að aukast aftur í Reykjavík eftir mikla lægð í kjölfar hrunsins. Tökum dæmi. Lóðir fyrir 173 íbúðir hafa selst á árinu í Úlfarsár- dal eftir algjört stopp. Við Hlemm má nefna þrjá reiti. Í Einholti-Þver- holti er Búseti að hefja byggingu 230 fjölbreyttra búseturéttaríbúða. Á Hampiðjureit er að hefjast vinna við byggingu 130 íbúða og auglýst hefur verið nýtt deiliskipulag vegna 99 stúd- entaíbúða í Brautarholti 7. Uppbygging er líka hafin að 175 íbúðum sem rísa eiga spölkorn frá, í Mánatúni. Heildar- fjárfesting í þessum fjórum verkefnum er varla undir 20 milljörðum króna. Gamla höfnin Reykjavíkurborg auglýsti nýlega nýtt deiliskipulag fyrir Gömlu höfnina. Þar festi borgin nýverið kaup á landi þar sem reisa má um 250 nýjar íbúðir ásamt þjónustu- og atvinnuhúsnæði. Þegar er hafin bygging 63 nýrra íbúða á lóð gömlu Hraðfrystistöðvarinnar sem ljúka mun síðar á þessu ári. Í næsta nágrenni leysti svo borgin nýverið til sín lóðina Tryggvagötu 13. Þar viljum við líka byggja upp. Fjárfesting í sjávarútvegi Hafnarsvæðið er að verða eitt líflegasta og skemmtilegasta svæði borgarinnar með nýjum veitingastöðum, versl- unum og hönnunarbúðum á hverju horni. Sjávarútvegsfyrirtæki hafa farið að fjárfesta að nýju í borginni, eftir að kveðið var upp úr um að hafnarsvæðið yrði áfram fyrir hafnarstarfsemi. Brim hefur bætt við sig 3,5 milljarða togara. HB-Grandi hefur byggt Ísbjörninn, nýja frystigeymslu í Örfirisey, auk þess að lofa að gera upp gömlu húsin sín. Í húsnæði Faxaflóahafna hefur líka byggst upp Sjávarklasinn, samstarf fjölda þekkingarfyrirtækja í tengslum við sjávarútveg. Vísindagarðar og stúdentaíbúðir í Vatnsmýri Unnið er hörðum höndum við að flytja inn í um 297 stúdentaíbúðir í Vatnsmýri sem teknar verða í gagnið á þessum vetri. Og borgin vill meira fyrir stúdenta. Fljótlega verður efnt til skipulagssamkeppni um svæði Háskóla Íslands til að finna lóðir fyrir fleiri stúdentaíbúðir. Þá vinnur borgin þétt með Háskóla Íslands til að bygging Vísindagarða í Vatnsmýri hefjist. Þeir verða ný vídd við þekk- ingarhagkerfi borgarinnar og gefa spennandi tækifæri. Fjárfesting borgarinnar Eitt fyrsta verk borgarstjórnar- meirihluta Besta flokksins og Sam- fylkingarinnar var að flýta fram- kvæmdaverkefnum fyrir hálfan milljarð sumarið 2010. Þetta voru mannaflsfrek verkefni sem voru til- búin til framkvæmda með skömm- um fyrirvara. Samhliða var ákveðið að efna til framkvæmdaátaks árin 2011, 2012 og 2013 þar sem varið yrði um 6,5 milljörðum í fram- kvæmdir á vegum borgarinnar hvert ár. Þetta voru alger umskipti og meira en tvöföldun framkvæmda frá þriggja ára áætlun fyrri meirihluta. Af þessum verkefnum má nefna stórfellt viðhald í sundlaugum borg- arinnar, yfirstandandi skólabygging- um hefur verið flýtt, skólalóðir endurgerðar og ráðist í metnaðar- fulla uppbyggingu hjólreiðastíga um alla borg. Af næstu verkefnum má nefna skóla og sundlaug í Úlfarsár- dal, útilaug við Sundhöllina, þjón- ustumiðstöð í Grafarvogi og endur- gerð Hverfisgötu. Ákveðið hefur verið að framlengja átakið til næstu tveggja ára. Fjárfestingaráætlun og nýr Landspítali Til að efla hagvöxt er líka mikilvægt að ný ríkisstjórn ýti undir fjár- festingu en fresti henni ekki. Fang- elsi á Hólmsheiði, Hús íslenskra fræða, Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur og Náttúruvísindasafn í Perlunni eru allt góð verkefni sem skapast hefur óþarfa óvissa um. Nýr Landspítali er svo þjóðarnauðsyn sem sparar fé, bætir aðstæður sjúk- linga og starfsfólks og er lykilatriði í endurreisn og framtíðarsýn um heil- brigðiskerfi í fremstu röð. Þessi verk- efni eru öll tilbúin til framkvæmda. Það er skýrt hagsmunamál Reykvík- inga að ríkisstjórnin rói í sömu átt og atvinnulífið og borgin og láti verkin tala. Þannig sköpum við tekjur til að eiga fyrir auknum framlögum til vel- ferðarmála og skóla, þar sem ekki er síður þörf á að taka til hendinni eftir erfið niðurskurðarár. n Sandkorn Y firgangur og ráðaleysi er það sem helst einkennir fyrstu mánuði ríkisstjórnar Sig- mundar Davíðs Gunnlaugs- sonar. Sumarið fór í að skerða tekjur ríkissjóðs með því að viðhalda ekki auðlegðarskatti og tryggja lækkun veiðigjalds. Risastórt svarthol í rekstri ríkissjóðs stækkar þar með án þess að uppi séu hugmyndir eða útfærsla á því að auka tekjur eða skera niður útgjöld. Undanfarin fjögur ár hefur staðið mikil vinna við samninga um hugsan- lega aðild að Evrópusambandinu. Stórfé hefur verið varið til þeirra mála. Lokaniðurstaðan átti að nást með þjóðaratkvæðagreiðslu um þá samn- inga sem í boði yrðu. Nú hefur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra nær einhliða ákveðið að slíta við- ræðunum. Þótt yfirlýsingar hans gangi út á að einungis hafi verið gert hlé á viðræðum er augljóst að hann er að eyðileggja málið og þar með að hrifsa frá þjóðinni réttinn um að kjósa um aðild á grundvelli samnings. Síðasta afrek ráðherrans er að leysa samn- inganefndir Íslands frá störfum og svipta þær þannig umboði til að halda áfram því starfi sem staðið hefur í fjög- ur ár. Í brottrekstrarbréfinu er reyndar tilgreint að ekki sé um að ræða form- leg slit á viðræðum heldur einungis hlé. Hræsni er eina orðið sem nær utan um þann málflutning. Báðir stjórnarflokkarnir töluðu þannig fyrir kosningar að það kæmi til kasta þjóðarinnar að kjósa um fram- hald eða lok viðræðna. Nú reyna póli- tískir spunakarlar að halda því fram að þeir hafi meint að ekki yrði haldið áfram viðræðum nema þjóðin fengi að kveða upp sinn dóm. Utanríkis- ráðherrann túlkar málið þannig að ástæðulaust sé að leyfa þjóðinni að ráða. Einræðistilburðirnir og vald- níðslan er takmarkalítil. Hann kýs að líta framhjá því að báðir stjórnarflokk- arnir sögðu skýrt að þjóðaratkvæða- greiðslan færi fram. Þar væri aðeins spurning um tímasetningu. Allir þeir sem vilja standa vörð um lýðræði og vald fólksins hljóta að for- dæma þessa framgöngu. Þar skiptir engu hvort fólk aðhyllist inngöngu í Evrópusambandið eða ekki. Aðalat- riðið er að fólkið í landinu fái að ráða framvindunni í stað þess að ráðherrar með einræðistilburði traðki á rétti þess. Það er deginum ljósara að fólkið í landinu á þann rétt að dæma í mál- inu. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur á síðari tíma valdaferils síns gerst talsmaður fólksins í landinu. Hann hefur hiklaust beitt valdi sínu svo þjóðin fengi að ráða niðurstöðu í umdeildum málum. Nú hlýtur að koma til kasta hans að nýju. Lausnin á ESB-málinu er í raun einföld. Lýðræðissinnar á Alþingi þurfa að knýja fram afgreiðslu máls- ins í einhverri mynd. Það gæti verið í formi þingsályktunartillögu um að halda áfram eða slíta viðræðum. Niðurstaða Alþingis, hver sem hún yrði, færi síðan að frumkvæði forset- ans í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar með næðist fram þjóðarvilji. Því verður ekki trúað að óreyndu að forseti Ís- lands hafi glatað lýðræðisástinni en sett valdablokkina sem nú vermir ráð- herrastólana í fyrsta sæti. Komi ESB- málið ekki til kasta þjóðarinnar yrðu það svik við fólkið í landinu. n Skuldasúpa Hrannar n Skuldasúpan sem Bænda­ samtökin glíma við vegna Hótels Sögu er hrikaleg. Það mun hafa hallað undan fæti í rekstri hótelsins í tíð Hrann­ ar Greipsdóttur, fyrrverandi hótelstjóra, sem þótti skuld- sækin. Þyngsti bagginn að bera er Hótel Ísland sem innlimað var í reksturinn á sínum tíma. Lánardrottnar hótelsins eru sagðir sæmi- lega rólegir enda eru Bændasamtökin í áskrift að skattpeningum almennings. Sótt að Degi n Dagur B. Eggertsson, leið- togi Samfylkingar í borgar- stjórn, þykir vera sæmilega traustur í sessi þótt hann beri stærsta ábyrgð á Jóni Gnarr og Besta flokknum í borg- arstjórn. Ekki eru þó allir ánægðir með hann. Hermt er að Oddný Sturludóttir borgarfull- trúi hafi full- an hug á að komast að stýrinu. Hún er sögð hafa að baki sér kvennaher sem íhugi nú að sækja að Degi. Stúlkan og karlinn n Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, er í miklum ham þessa dag- ana og hyggst lögsækja Há- skóla Íslands, fyrir að hafa rekið sig und- ir þrýstingi frá femínistum. Óljóst er hvort hann fær bæt- ur en rótin að málinu er áreiti Jóns Baldvins á hendur systurdóttur eigin- konu sinnar. Einhver kynni að telja að ekki væri síður ástæða væri fyrir stúlkuna, Guðrúnu Harðardóttur, að fara í mál við Jón Baldvin vegna skaða sem hún varð fyrir. Þar er hægt um vik því Jón Baldvin hefur að hluta játað sök. Einelti á Steinunni n Steinunn Valdís Óskars­ dóttir, fyrrverandi borgar- stjóri og þingmaður, hrökkl- aðist úr stjórnmálum í kjölfar þess að styrkir til hennar komust í hámæli og hópur fólks tók til við að mótmæla framan við heim- ili hennar. Nú er ljóst að Steinunn vill uppreist æru. Hún sakar Birgittu Jónsdóttur pírata um að hafa staðið að baki aðför- inni að sér. Steinunn er sú eina úr hópi ofur- styrkjaþega sem þurfti að víkja. Og sætti því einelti. Menn á borð við Guðlaug Þór Þórðar­ son sitja sem fastast. Okkur fallast hreinlega hendur Ég hataði líkamann sem ég sá í speglinum María Rut Kristinsdóttir formaður SHÍ. – DV Freyja Haraldsdóttir um skort á fyrirmyndum fyrir fatlaða - freyjaharalds.wordpress.com Lýðræðisást forsetans„Aðalatriðið er að fólkið í landinu fái að ráða framvindunni „Það er skýrt hags- munamál Reykvík- inga að ríkisstjórnin rói í sömu átt og atvinnulífið og borgin og láti verkin tala Reykjavík er á uppleið Kjallari Dagur B. Eggertsson Höfundur er formaður borgarráðs Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu­ og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 24 13.–15. september 2013 Helgarblað Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is MynD SiGtRyGGUR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.