Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 25
Eins og staðan er núna þá er ég ekki á leiðinni í pólitík Við teljum þetta ekki svaravert Magnús Júlíusson tengdasonur Bjarna Ben og formaður SUS. – DVAnna Pála Sverrisdóttir – Vísir Sátt í flugvallarmálinu Spurningin „Já, ég fer til Kanada.“ Parbatie Sahadeo 42 ára sjoppustarfsmaður „Ég fer ekki neitt.“ Felice 55 ára bókasafnsvörður „Ég fer til Lundúna í nóvember.“ Aron Birgisson 25 ára athafnamaður „Ég fer einnig til Lundúna í nóvember. Við ætlum saman, sjáðu til.“ Sigurður Konráðsson 24 ára athafnamaður „Já, ég ætla til að fara þangað sem heitt er.“ Adrian Corley 23 ára starfsmaður ljósmyndasafns Ætlar þú til útlanda í vetur? 1 Minningargrein um grimma móður: „Ofsótti og kvaldi alla“ Marianne Theresa Johnson-Reddick fékk kaldar kveðjur barna sinna í minningargrein. 2 „Hugh – hann er uppí tré!“ Papparazzi-ljósmyndarar komu Hugh Jackman leikara til hjálpar. 3 Varaður við því að kvænast unnustu sem myrti hann Jordan Linn Graham hrinti eiginmanni sínum fram af klettabrún í Banda- ríkjunum. 4 Rukka fyrir allt að 125 prósent vinnu Meðlimir í slitastjórn Kaupþings rukka ríflega 30 þúsund krónur á tímann. 5 „Við erum á kúpunni“ Kreppa ríkir á veiðileyfamarkaði. 6 Berbrjósta konur auglýsa Lýsi í Rúmeníu Forstjóri Lýsis segir umboðsaðila í Rúmeníu bera alfarið ábyrgð á markaðssetningunni. 7 Seldi bjór út af skemmtistað Barþjónn í miðborginni hefur verið ákærður fyrir brot á áfengislögum. Mest lesið á DV.is Að standa með sjálfum sér … E inhverju sinni var til spakur mað- ur sem hét Prótagóras. Margt er hann svo sem frægur fyr- ir, en afstæðishyggja hans er þó eitt af því sem hefur fengið margan manninn til að spá og spekúlera. Þótt einum þyki vindurinn kaldur þá get- ur öðrum þótt sami vindur heitur og það merkilega er, að báðir hafa á réttu að standa. Við höfum sem sagt öll rétt fyrir okkur, samkvæmt kenningunni. En löngu glötuð bók þessa spekings ku hafa byrjað á orðunum: „Maðurinn er mælikvarði allra hluta …“ Það er kannski óþarfi að skjóta af- stæðishyggju hins forna spekings í kaf, jafnvel þótt við teljum okkur geta sagt að sumir menn geti aldrei talist mæli- kvarðar eins eða neins, vegna þess að þeir mæla vart satt orð af munni. Ef sópranógengið, sem núna situr að kjötkötlum ríkisvaldsins, mun ein- hvern tíma leiðrétta misræmi lána og efna loforðin gagnvart heimilunum í landinu þá mun það einungis verða gert ef það getur orðið til hagsbóta fyrir þá sem ekkert hafa við bættan hag að gera. Fagurgali Sigmundar Davíðs Oddssonar, er nefnilega ekki í tengsl- um við neinn sannleika. Og ekki hefur hann heldur neitt með réttlæti að gera. Sópranógengið er komið til valda til þess að hjálpa þeim sem meira mega sín. Þetta geta þeir hvítflibbadrengir gert í skjóli hjarðhegðunar Frónbúa; vegna þess að Íslendingar eru hoknir af aumingjagæsku og bláeygðari og trúgjarnari einfeldningar finnast hvorki á byggðu bóli né utan þess. Skýrt og reyndar afar eðlilegt og jafnframt hversdagslegt dæmi um hjarðhegðun þjóðarinnar sem að mestu býr við sundin blá, birtist í heita pottinum nú fyrir skemmstu. Menn sátu þar og smjöttuðu á gáfumanna- tali um ýmis mál. Ágætur og samvisku- samur einstaklingur, sagðist ekki geta tjáð sig um málefni Evrópu og aðildar- viðræður; fyrst yrði hann að kynna sér þau mál til hlítar. Þá var það að einn af þeim bláeygðari, sagði: -Æ, nei, bless- aður vertu nú ekki að fara að kynna þér þau mál, því þá verður alveg ómögu- legt að ræða við þig. Á Íslandi er stranglega bannað að standa með sjálfum sér. Við eigum að fara að háttum hjarðarinnar og ef við gerum það ekki þá erum við kommún- istar, arabar; asnar eða bjánar. Inntak orðræðunnar er aukaatriði, á með- an aðalatriðið er að orðræðan falli vel að eyrum þeirra sem helst af öllu vilja heyra marklaust og innantómt gjálfur. Óráðshjal sópranógauranna, er sett á svið með lygina að leiðarljóri, til þess eins að bjarga fyrirbærum einsog: Bændahöllinni, ofdekraðri útgerð, fólki sem veit ekki aura sinna tal og öðrum dillibossum hrunsins. Að standa með sjálfum sér; virkja eigin sannfæringu til góðra verka og hvika hvergi frá settu marki, er … eða ætti allavega að vera aðalsmerki hverrar manneskju, jafnvel þótt hún þurfi ekki að halda því fram að henn- ar skoðun sé hin eina rétta. Að leita sanngjarnra lausna og fylgja þeim eftir, ætti að vera sjálfsagt hverjum manni. Það sem til þarf, er sá sannleikur sem kemur fjöldanum vel – ekki lygi sem hentar einvörðungu þeim sem gírug- astir eru. n Fyrst kom ég og síðan kom ég sjálfur og sætti mig við lífið hér, ég hafði hætt að vera einsog álfur út úr hól – sem betur fer og sá að ef ég er ekki með sjálfum mér þá er ég bara hálfur. R eykjavíkurflugvöllur er nú til umfjöllunar í tengslum við til- lögu borgarstjórnar Reykjavík- ur að nýju aðalskipulagi. Þar er áfram gert ráð fyrir því að flugvöllur- inn í Vatnsmýri þoki á áföngum á næsta skipulagstímabili. Sameiginleg markmið – ólíkir hagsmunir Um málið eru að vonum afar skipt- ar skoðanir vítt og breitt um land. Því miður hefur umræða um málið þó alltof oft einkennst af gagnkvæmum upphrópunum skoðanaandstæðinga. Nú heyrist jafnvel lagt til að borgar- stjórn verði rænd forræði skipulags- mála flugvallarsvæðisins og það flutt til Alþingis á skjön við anda stjórnarskrár og Evrópusáttmálans um sjálfsstjórn sveitarfélaga, sem Ísland er aðili að. Ég er í hópi þeirra sem tel að flugvallarsvæðið í sjálfri mið- borginni sé tímaskekkja en vil um leið undirstrika að það hlýtur að vera sameiginlegt markmið allra að góðar samgöngur séu á landinu öllu til höfuðborgarsvæðisins og þar með talið flugsamgöngur. Þótt flugvellir séu víða í borgum, eru þess fá dæmi ef nokkur að flug- vellir í atvinnuskyni séu í sjálfri miðborginni. Það verður að horfa til þess að það eru margar hliðar á málinu sem allar eiga rétt á að vera teknar alvarlega í umræðunni. Þar má nefna öryggismálin í kringum flug og þá hættu sem íbúum á höf- uðborgarsvæðinu kann að stafa af flugrekstrinum, það eru skipulags- hagsmunir borgarinnar, einkum sá mikli samfélagslegi kostnaður í formi vannýttra innviða og um- hverfis- og slysakostnaðar sem er fylgifiskur dreifðrar byggðar. En það eru líka sjónarmiðin um greið- an aðgang landsmanna að höfuð- borginni, hagsmunir sjúkraflugs og fleira mætti ugglaust telja til. Sjúkraflugbraut ekki það sama og innanlandsflugvöllur Í mínum huga er brýnt að tryggja hags- muni sjúkraflugsins. En þarf sjúkra- flugið á að halda fullkomnum þriggja flugbrauta innanlandsflugvelli? Er ekki rétt að halda röksemdum um sjúkra- flugið aðskildum frá rökstuðningi við allt innanlandsflug í Vatnsmýri? Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að sjúkrafluginu sé tryggð góð flugbraut í Vatnsmýrinni þótt dregið sé úr umfangi flugvallarins að öðru leyti og þannig komið til móts við sjónarmið borgarinnar um upp- byggingu á svæðinu (sem eru samfé- lagslegir hagsmunir og eiga ekkert skylt við þjónkun við verktakabransann eins og stöku menn halda fram). Um það á að geta tekist sátt. Ég hef lagt til að hafin verði vinna við að skipuleggja flugvallarsvæðið þannig að sem best sé komið til móts við ólík sjónarmið. Að þeirri vinnu þurfa að koma borgaryfirvöld, samgönguyf- irvöld, samtök sveitarfélaga og ýmsir hagsmunaaðilar og frjáls félagasamtök sem láta sig málið varða, bæði af höfuð- borgarsvæðinu og landsbyggðinni. Sátt í boði Markmiðið á að vera að ná sátt sem ég tel að geti verið í boði ef allir mæta til umræðunnar með það í huga. Sáttin gæti í mínum augum falist í því að það verði áfram flugvallarstarf- semi í Vatnsmýri, flugbrautum verði fækkað, þeim hnikað til og austur- vestur brautin gerð að aðalflugbraut og byggð verði þétt. Fyrsta skrefið í þá átt væri að fresta ákvörðun um skipulag flugvallarsvæðisins um nokkur ár, enda verði sá tími nýttur til að finna viðvarandi lausn til fram- búðar að teknu tilliti til hinna ólíku hagsmuna. Þetta ætti að vera útláta- laust þar sem vart er við því að búast að áform um niðurlagningu norður- suður flugbrautarinnar árið 2016 nái fram að ganga úr þessu. Ég vona og vænti að borgaryfir- völd og samgönguyfirvöld taki vel í sáttahugmyndir í þessa veru því það er öllum mikilvægt að nálgast þetta viðfangsefni með opnum og lausn- amiðuðum huga í stað þess að rífa hvert annað á hol í heiftúðugum deilum. n Haustganga með hundinn Þessir félagar létu smá vind og rigningu ekkert á sig fá og skelltu sér í góðan göngutúr á Seltjarnarnesi á miðvikudag. Mynd KriStinn MagnúSSonMyndin Skáldið skrifar Kristján Hreinsson Kjallari Árni Þór Sigurðsson alþingismaður og fyrrv. borgarfulltrúi Umræða 25Helgarblað 13.–15. september 2013 Ég er í fótbolta til að byrja leiki Eiður Smári Guðjohnsen – Fótbolti.net

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.