Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 27
Fólk 27Helgarblað 13.–15. september 2013
mér karlmenn sem eru á einhvern
hátt líkir honum, kaldir, fjarlægir,
hugsa ekki um börnin sín og hafna
mér. Ég hef reynt að breyta þeim
alveg eins og ég reyndi að breyta
pabba mínum.
Í gærkvöldi var ég að hugsa um
viðtalið og hugsaði með mér að nú
væri nóg komið, ég ætlaði ekkert að
tala um pabba. Síðan fór ég að hug
leiða hvað það var sem hann gerði
mér ef ég gæti séð það í mynd. Þá sá
ég að hann sneri baki við mér.
Ég var bara lítil sex ára stelpa og
skildi þetta ekki, hvort ég hefði gert
eitthvað, hvort ég gæti kannski fært
honum kökur og vínarbrauð, hvort
ég gæti kannski tekið hjartað úr
mér og fært honum eða hvort þetta
væri einhver leikur og ég ætti líka að
snúa baki við honum. Ef ég kastaði
mér í gólfið og öskraði þá gerði
hann kannski meira en að snúa
baki við mér, hann gekk kannski
í burtu. Ég skildi þetta ekki og ég
varð svo hrædd. Pabbi var náttúru
lega heimurinn, eins og mamma, og
þegar ég skildi hann ekki þá skildi ég
ekki heiminn.
Undanfarin ár hefur óttinn læðst
aftur að mér og ég hef látið það bitna
á fólkinu mínu. Í gærkvöldi þá skildi
ég þetta allt í einu og þegar ég var
búin að fara í gegnum þetta í hug
anum þá var þessi litla stelpa ekk
ert hrædd lengur. Þá gat hún sagt
við pabba sinn: „Voðalega ertu með
síðan rass pabbi. Þú ert allur krump
aður og haltur. Heldur þú að ég sjái
ekki hvað þú ert að gera?““
Varð geðveik þegar pabbi dó
Húmorinn hjálpar ekki bara held
ur felst einnig í honum ákveðin af
staða og kurteisi gagnvart lífinu. „Að
taka lífið alvarlega er ruddalegt. Það
getur verið til marks um geðveiki
að hlæja að alvarlegum atburðum
en það getur líka verið til marks um
geðveiki að gera það ekki.
Ég fór út í búð um daginn og hitti
þar konu sem gifti dóttur sína með
hálskraga og sagðist hafa tekið það
svo alvarlega. Þá áttaði ég mig á því
að ég hef líka verið að taka lífið allt
of alvarlega en ég var að koma úr
skaðlegu sambandi. Ég get fengið
brjósklos af þunga lífsins og það er
líka vont,“ segir hún og hlær.
Strákarnir hennar hjálpuðu
henni að nota húmorinn sem verk
færi. „Það getur verið vandmeð
farið en það virkar. Svona virkar
sjálfsvinnan, þú getur farið aftur
í gegnum hið liðna og öðlast nýja
sýn á það. Fram til þessa hef ég ver
ið föst í gömlu myndinni, alltaf að
þóknast karlmönnum og bíða eftir
því að þeir hafni mér, aldrei ánægð
nema þeir geri það en vil það samt
ekki. Ég dýrkaði pabba og ég dýrkaði
karlmenn og lét þá stjórna lífi mínu.
Þetta hélt mér í heljargreipum og
var svo mikið „trauma“ í mínu lífi
að ég varð geðveik þegar pabbi dó,“
segir hún hugsi.
Hún var 21 árs þegar hún veiktist
fyrst á geði. „Ég hef alltaf hugsað
með mér að þetta hafi verið pabba
að kenna því hann hafnaði mér og
þegar hann dó varð höfnunin svo
mikil að ég varð geðveik. Ég var
að glíma við miklar tilfinningar á
þessum tíma, hann dó í apríl og ég
varð ástfangin í júlí. Ári seinna fór
kærastinn minn frá mér og þá varð
ég svo geðveik að ég var sett inn á
Klepp.“
Fyrsta maníukastið
Sjálf sá hún ekkert athugavert við
ástandið, henni fannst hún ekk
ert geðveik heldur æðisleg. „Ég sat
í stóra rauða húsinu og Guð var bú
inn að velja mig. Loksins hafði eitt
hvað gott gerst í mínu lífi, loksins
hafði Guð séð mig og loksins hafði
ég fengið þessa viðurkenningu.
Ég man að ég sat og hausinn var
rauðglóandi á meðan ég reiknaði út
bílnúmer, hvenær heimsendir brysti
á. Ég átti að fara upp í sjónvarp og
láta vita hvenær þetta ætti að ger
ast, vera hetjan sem mætti á svæð
ið og allir myndu víkja fyrir, eins og
Rauðahafið sem opnaðist. Síðan
myndi ég segja í sjónvarpinu að það
þyrfti að breyta heiminum og all
ir myndu finna það í hjarta sínu að
ég væri að segja sannleikann. Fólk
myndi segja Elísabet – hún er líka
dóttir skáldsins, það hlýtur eitthvað
að vera að marka hana. Auðvitað var
þetta sækó harðstjórn og frekja.
Ég gekk alltaf um í síðum austur
lenskum kjól sem mamma hafði
gefið mér, þvoði ekki á mér hárið
og svaf ekki. Mér fannst þetta bara
æðislegt. Þetta var eins og víma,
bara miklu betra en öll önnur víma.
Ég var algjörlega í eigin heimi.“
Mamma hennar var hins vegar
ekki lengi að átta sig á því að eitt
hvað var að þegar Elísabet fór að
venja komur sínar þangað. „ Síðan
fannst mér hún svo leiðinleg að ég
rauk alltaf á dyr og kom svo aftur. Á
endanum lét hún svipta mig sjálf
ræði og leggja mig inn á Klepp.
Fyrir vikið talaði ég ekki við hana í
nokkur ár, en hún gæti hafa bjargað
lífi mínu. Það er náttúrulega alveg
týpískt að maður særir þá verst sem
maður elskar mest. Reiðin var svo
mikil og ég var svo týnd, að drekka
og reykja hass. Strákurinn minn var
svo tekinn af mér þegar hann var
fimm ára og lífið var fullt af einhverj
um stóráföllum.“
Missti son sinn frá sér
Sonurinn ólst upp í góðu yfir
læti hjá föðurfjölskyldunni á Bol
ungarvík. Elísabet átti hins vegar
erfitt með að sætta sig við þessa
ákvörðun og talaði ekki heldur við
barnsföður sinn og foreldra hans
mörg ár. „Ég tókst á við þetta með
reiði en í reiðinni var engin lausn. Í
aðra röndina vorkenndi ég mér fyrir
að hafa átt barn svona ung og ver
ið ein að hugsa um hann en það var
aðeins afsökun alkóhólistans fyrir
neyslunni.
Þegar ég fór í meðferð urðu kafla
skil í mínu lífi og ég gat farið að tak
ast á við það að hafa misst af upp
eldi hans. Þá var ég búin að eignast
tvíburana og vissi að það skipti máli
að vera til staðar þegar þeir þurftu
plástur á fingurinn eða vatn að
drekka því þeir voru búnir að leika
sér svo lengi úti, eða þegar þeir
kölluðu á mig til þess að sýna mér
kónguló sem skreið upp handriðið
hérna úti. Það eru þessir litlu hlutir
sem lífið er búið til úr.
Elsti sonur minn kom til mín á
jólum, um páskana og í sumarfrí
inu. Ég var alltaf að bíða eftir því að
hann yrði reiður út í mig því mér
fannst ég hafa brugðist honum og
vera svo sek. En hann afvopnaði mig
alltaf með gleðinni yfir því að sjá mig
og sýndi mér aldrei neitt nema ást.
Mér fannst svo skrýtið að hann væri
ekki frávita af reiði því ég hafði sjálf
verið svo reið út í foreldra mína. En
hann hefur alltaf verið góður sonur
og staðið með mér í gegnum súrt og
sætt. Þó að ég hafi ekki fengið að ala
hann upp þá var ég alltaf mamma
hans.“
Fyrirgaf sjálfri sér
Eftir meðferðina flutti hún í litla
húsið með bláu hurðinni á Fram
nesveginum þar sem hún hefur rað
að hjartalaga steinum upp í svefn
herberginu, steinum sem koma víðs
vegar að og hún hefur sankað að sér
á löngu tímabili.
Það var hér í húsinu henn
ar Elísabetar sem hún fann jarð
tenginguna sem hana hafði svo
lengi skort og gat loks grátið.
„Næst þegar einhver
snýr baki í mig þá get
ég sagt honum að hann sé
með helvíti síðan rass
M
y
n
d
ir
K
r
is
ti
n
n
M
a
g
n
ú
ss
o
n