Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 31
Brynja Þorgeirsdóttir „Allt sem við gerum og allt sem er í kringum okkur er menning,“ segir Brynja Þorgeirsdóttir, sem furðar sig á umræðunni um menningu gegn atvinnulífi. Mynd: dV ehf / Sigtryggur Ari Fólk 31helgarblað 13.–15. september 2013 mikla vinnu. „Ég hef fengið rosalega mikla hjálp frá mömmu, hún hefur alveg verið kletturinn minn varðandi þetta. Ég hef alltaf unnið svo mikla vaktavinnu og inni á milli eru langir vinnudagar og þá hefur hún stokkið til og hjálpað.“ „Þetta gerðist mjög hratt“ Nokkrum árum eftir að Brynja eign­ aðist fyrsta barnið greindist hún með sortuæxli. „Allt í einu tók ég eftir fæðingarbletti á lærinu og sem betur fer var hann þar, en ekki á bakinu eða í hársverðinum, því þá hefði ég ekki tekið eftir honum. Hann birtist bara allt í einu og var eitt­ hvað skrýtinn og út af öllum þessum áróðri og upplýsingum sem voru alls staðar í kringum mann þá fór ég strax og lét skoða hann. Hann var fjarlægður og þetta var bara húðkrabbamein, ekki einu sinni á forstigi. Þannig að þetta gerðist mjög hratt. Ég fór til læknis ekki mikið meira en mánuði eða tveimur eftir að hann birtist, og allt meinið náð­ ist með skurðaðgerð.“ Brynja segir allar líkur á að æxlið hafi myndast vegna sólbruna en á unglingsárunum fór hún í tvær sólar­ landaferðir með fjölskyldunni þar sem hún brann illa auk þess sem hún stundaði ljósabekki reglulega. „Á þessum tíma var ekkert verið að spá í þessi mál. Krakkar brunnu bara og það þótti ekkert mál. Það var ekki vitað eins mikið um hættuna,“ segir hún og bætir við að hún hafi haldið sig frá sólinni síðan. fer aldrei aftur í ljós „Hættan við húðkrabbamein er að það er eins og þau sái sér. Þau vaxa niður í húðina og dreifa sér síðan um lík­ amann og ef þau eru búin að dreifa sér þá er mjög erfitt að lækna þau.“ Brynja segir þessa lífsreynslu hafa verið afar óhugnanlega og er þakklát fyrir að bletturinn myndaðist á lærinu en ekki annars staðar. „Þetta kemur ekkert endilega á staðinn þar sem maður brann. Þetta getur til dæmis verið undir iljunum eða inni í eyrunum.“ En hvað hefur Brynja lært af þessari reynslu? „Ég forðast sólskin og fer aldrei aftur í ljós,“ segir hún ákveðin. „Ég byrj­ aði að fara í ljós mjög ung, bara tólf ára eða eitthvað, og fór mikið á ung­ lingsárunum. Þetta var bara gert. Það voru ljósabekkir í sundlaugum og fyrir ferminguna fóru allir í ljós.“ ekkert líf án menningar Brynju segist ekki líka sú umræða sem á sér reglulega stað um mikilvægi menningar á tímum niðurskurðar. „Mér leiðist umræðan um „menn­ ingu vs. atvinnulíf“. Eins og þetta séu stríðandi fylkingar. „Til hvers er menn­ ing ef við höfum ekkert að borða?“ Þessi umræða. Hún er grunnhyggin vegna þess að það er hægt að líta á þetta þannig að það séu tveir öxlar í þjóðfélaginu. Annar öxullinn sé efna­ hagslífið og pólitíkin og hinn sé menn­ ingin og hið andlega svið. Og þeir eru alveg jafngildir. Með hinu andlega á ég við þekkingu, listir, tungumál og allt þetta andlega líf. Það er ekkert líf án menningar og það er svolítið hollt að hugsa til baka, til dæmis til þess tíma þegar verið var að skrifa Íslendinga­ sögurnar sem var skapandi starf. Ef það hefði ekki verið gert, hver væri þá staða íslenskunnar núna? Væri hún þá yfir höfuð til, ef við ættum ekki þennan menningararf?“ Listamannalaunin klink Hún bendir á að skapandi greinar velti miklum fjármunum út í þjóðfélagið, mun meira en ríkið leggi nokkurn tím­ ann í þær. „Og ríkið leggur náttúrlega miklu minna í þær en ríkið hefur nokkurn tímann lagt í til dæmis það að bjarga bönkunum og öðru í efnahagslífinu,“ segir hún og ítrekar mikilvægi menn­ ingar; hún sé allt í kringum okkur. „Allt sem við gerum og allt sem er í kringum okkur er menning; tungu­ málið sem við tölum, hugsun okkar og meira að segja stóllinn sem við sitjum á er hannaður af hönnuði í skapandi grein. Og án þess er ekki neitt. Alveg eins og að án efnahagslífs er heldur ekki neitt.“ Hún segist því furða sig á andstöðu svo margra við listamannalaun. „Umræðan um þessar latte­ lepjandi 101 afætur sem eiga bara að ráða sig á togara í Vestmannaeyjum og vinna. Ég trúi bara ekki að nokkrum finnist þetta í raun og veru ef menn skoða málin grannt. Fólk sér ofsjón­ um yfir listamannalaunum en þetta er bara klink miðað við svo margt ann­ að. Það þarf að horfa á þetta sem eina samhangandi heild.“ rÚV eins og olíuskip „Þær hafa allar eitthvað við sig,“ segir Brynja, spurð um muninn á því að starfa hjá Ríkisútvarpinu, Stöð 2 og Skjá Einum. Hún segir mestan mun þó á því að starfa hjá einkareknu fyrirtæki annars vegar og ríkisreknu hins vegar. „RÚV hefur stundum verið líkt við risastórt olíuskip sem er rosalega traust en það breytir ekkert um kúrs mjög hratt, viðbragðsflýtirinn er ekkert afskaplega mikill. Stöð 2 er kannski meira eins og spíttbátur sem kemst allt hratt en vantar svolítið þykktina og stöðugleikann. Það er kannski besta samlíkingin.“ Eins segir Brynja meira fjárhagslegt öryggi hjá RÚV. „Starfsmenn í einkafyrirtækjunum búa við þrengri kost vegna þess að starfsöryggið er minna og rekstur Stöðvar 2 hefur sveiflast mikið í gegn­ um árin. Að sama skapi er búið að skera mikið niður hjá RÚV, það er búið að skera niður um fjórðung frá hruni og við starfsmennirnir þurftum að taka á okkur sex til níu prósenta launalækk­ un í tvö ár. Þannig að það var auðvitað skorið niður hér eins og annars staðar.“ En hvað finnst Brynju um það að RÚV sé á auglýsingamarkaði? „Mér finnst það bara sjálfsagt. Þetta snýst svolítið mikið bara um upplýs­ ingamiðlun. RÚV nær til allra lands­ manna, auglýsendur vilja auglýsa hjá RÚV og á meðan það koma ekki til aðrir tekjustofnar á móti þá verð­ um við auðvitað að vera á auglýsinga­ markaði.“ nýir þættir í bígerð Undanfarið ár hefur Brynja unnið að nýjum sjónvarpsþáttum um íslenska tungu ásamt Braga Valdimar Skúla­ syni. Þættirnir nefnast Orðbragð og eru sex talsins en þeir verða sýndir á sunnudagskvöldum á RÚV í vetur. „Þeir fjalla um tungumálið í sínum víðasta skilningi – á skemmti­ legan hátt. Þetta eru skemmtiþættir en skemmtunin er samt ekki á kostn­ að dýptarinnar. Áhorfendur eiga helst ekki að fatta að það sé verið að fræða þá.“ Brynja segir að gerð þáttanna hafa verið afar krefjandi en skemmtilega. „Fyrir utan börnin mín og slík stór lífsverkefni er þetta langstærsta verk­ efni sem ég hef nokkurn tímann tek­ ið að mér. Þættirnir eru svo flóknir í vinnslu og það eru svo mörg „element“ í þeim að þetta var mjög flókið. Það eru yfir hundrað manns sem koma að ein­ um svona þætti.“ Aðspurð segist Brynja alveg geta hugsað sér að gera fleiri seríur af Orð­ bragði. „Svona þættir geta mjög auðveld­ lega haldið áfram í nokkur ár því þetta er svo stór leikvöllur af efni; tungu­ málið er svo marghliða og það eru svo margir skemmtilegir vinklar sem er hægt að taka. Það væri alveg gaman að gera eina eða tvær seríur í viðbót.“ n „Það sat lengi í mér djúp óréttlætis tilfinning

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.