Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Side 34
34 Menning 13.–15. september 2013 Helgarblað Listin gefur lífinu merkingu F yrir utan Þjóðleikhúsið eru verkamenn að störfum. Bygging Þjóðleikhússins hófst árið 1929 en húsið var ekki vígt og tekið í notkun fyrr en árið 1950. Í millitíðinni hafði breski herinn notað húsið sem her- gagnageymslu. Það tók því um 20 ár að byggja Þjóðleikhúsið en fram- kvæmdum við húsið virðist samt aldrei lokið. Nú á að stækka geymslu- pláss, en aðstöðuleysi við aðalsviðið hefur háð starfseminni og verið ákaf- lega kostnaðarsamt í gegnum tíðina. Leikhúsið heldur áfram að stækka og þroskast með þjóðinni. Þjóðin virðist hins vegar aldrei hafa verið jafn skipt í afstöðu sinni til lista og menningarstarfsemi. Lista- menn hræðast blóðugan niðurskurð og gildi stofnana, líkt og Þjóðleik- hússins, er dregið í efa. Inni á þröngum gangi eru skrif- stofur starfsmanna. Þeir sem unnið hafa í leikhúsi vita hvílík völundarhús slík hús geta verið. Skrifstofa Tinnu Gunnlaugsdóttur er innst á gangin- um. Nú er veturinn að byrja og ein af mörgum frumsýningarhelgum að ganga í garð. Íslensk verk á sviði „Við byrjum haustið með sérstakri áherslu á innlend verk, þetta er ís- lenskt haust. Englar alheimsins eru komnir á fullan skrið á Stóra sviðinu. Við frumsýnum nýtt verk, Maður að mínu skapi eftir Braga Ólafsson, á stóra sviðinu núna um helgina. Og svo um næstu helgi frumsýnum við Harmsögu, nýtt verk eftir Mikael Torfason, í Kassanum,“ segir Tinna. „Bæði þessi verk vekja upp spurn- ingar. Bragi er maður hins fínlega húmors og hér hefur hann skil- að meinfyndnu verki, sem er slétt og fellt á yfirborðinu en leynir svo sannarlega á sér. Mikael er aftur á móti að varpa ljósi á þá örvæntingu og uppgjöf sem getur stundum fylgt mannlegum samskiptum. Þessi verk eru þannig áleitin hvort með sínum hætti, gefa kannski engin skýr svör en það er jú hlutverk leikhússins að spyrja spurninga, varpa ljósi á mál og fá okkur til að hugsa.“ Tinna segist sérlega stolt af því framboði sem er af íslenskum leik- ritum í Þjóðleikhúsinu í ár. Auk fyrrnefndu verkanna tveggja var barnaleikritið Hættuför í Huliðsdal eftir Sölku Guðmundsdóttur frum- sýnt um síðustu helgi í Kúlunni. Og svo mun Auður Ava Ólafsdóttir fylgja eftir hinu vel heppnaða leikriti Svört- um hundi prestsins, sem sýnt var í Kassanum fyrir tveimur árum, með nýju leikriti sem ber heitið Svanir skilja ekki. Verk með erindi „Við í leikhúsinu eru alltaf á höttun- um eftir nýjum íslenskum verkum, góðum verkum með erindi. Við höf- um markvisst kynnt nýja höfunda og höldum því áfram í vetur. Í fyrra voru það Kristín Eiríksdóttir og Karí Ósk Grétudóttir. Í vetur erum við líka að halda áfram að reyna á höfunda sem þegar hafa sýnt markverðan árangur. Það fylgir því alltaf áhætta að taka ný verk til sýninga. Óvissu- þættirnir eru mikli fleiri þegar um ný verk er að ræða. Það veit enginn hver niðurstaðan verður og því fylgir oft mikil spenna. Auður Ava og Bragi voru hvött sérstaklega til að skrifa verk fyrir Þjóðleikhúsið og tóku þeirri áskorun. Svo kynnum við Mikael Torfason til leiks sem nýtt leikskáld.“ Það verður áhorfenda og gagn- rýnenda að dæma hvort áhættan með hinum nýju íslensku verkum í vetur borgi sig. En Tinna er óhrædd við að leggja sín verk í dóm. Hún var leikkona við Þjóðleikhúsið í ein 25 ár og lék mörg burðarhlutverk. Færri vita þó að hún ætlaði sér á einum tímapunkti að verða læknir og hóf nám við Háskóla Íslands í líffræði. Úr líffræði í leiklist „Móðir mín var leikkona og ég hafði alla tíð verið tengd leikhúsinu mjög sterkum böndum. Fékk að sjá sýn- ingar sem barn og þá ekki bara barnasýningar auk þess sem ég var í leiklistarstarfi í gagnfræðaskóla og síðan í Herranótt. Ég ætlaði mér ekkert endilega að verða leikkona, var jafnvel að hugsa um að verða læknir. Það er mikið af læknum í minni föðurætt og pabbi vildi hvetja mig í þá átt. Eftir stúdentinn var ég mjög óráðin og ákvað að taka mér smá frest til að átta mig á sjálfri mér. Eitt ár var markmiðið. Ég safnaði í smá sjóð og lagði svo ein upp í langt ferðalag. Ég ferðaðist á puttanum um Suður-Evrópu, var lengi á hinum mörgu og margvíslegu grísku eyjum og kynntist alls staðar frábæru fólki. Þegar ég var komin hálfa leiðina til Indlands og sá fram á að þurfa að framlengja ferðina ef ég ætlaði alla leið, ákvað ég að þetta væri komið gott. Ég kom heim, staðráðin í að hefja nám. Ég innritaði mig í líffræði í Háskóla Íslands en hitti fljótlega krakkana sem höfðu verið með mér í Herranótt og þau sögðu mér frá Sál skólanum. Þau hvöttu mig til að koma í leiklistina og ég sló til, þó ég væri ekki alveg tilbúin til að stíga skrefið til fulls og í eitt ár var ég í líf- fræði á daginn og leiklistarskólan- um á kvöldin. Þegar Sál sameinaðist Leiklistarskóla Íslands þurfti ég að gera upp við mig hvort námið yrði ofan á. Og eftir þennan fyrsta vetur var það ekki erfitt val. Leiklistin var svo skemmtileg, ég var búin að stíga yfir þröskuldinn og vissi að það yrði ekki aftur snúið.“ Sál var leiklistarskóli sem rekinn var af nemendunum sjálfum. Andi hippatímabilsins sveif yfir vötnum. „Jú, þarna voru nemendurnir sjálfir sem ráku skólann, réðu kennarana og bjuggu til sína eigin stundaskrá. Það var búið að leggja niður leiklistarskóla Þjóðleikhússins og Leikfélags Reykjavíkur og þarna var hópur fólks sem vildi ekki una þessu ástandi. Ég var í þriðja árgangi þessa skóla sem síðan sameinaðist Leiklistarskóla Íslands. Þetta var frá- bært tímabil.“ Eftirminnilegir tímar Á þessum tíma kynntist Tinna fólki sem átti eftir að hafa áhrif á hana í listinni. Kennarar við skól- ann voru sterkir karakterar eins og Bríet Héðins dóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Kjartan Ragnarsson, Stefán Baldursson og fleiri. Hjónin Þórhildur Þorleifsdóttir og Arnar Jónsson höfðu stofnað Alþýðuleik- húsið fyrir norðan, sem vakti mikla athygli og var mikið nýjabrum og um það bil sem Tinna útskrifaðist voru þau að setja á laggirnar svokallaða sunnandeild. „Þórhildur og Arnar voru for- sprakkarnir í starfi Alþýðuleikhús- ins. Það var rekið í Lindarbæ og gamla Hafnarbíói. Ég tók virkan þátt í því starfi, lék í leikritum og var líka framkvæmdastjóri á tímabili. Það var mikill drifkraftur í Arnari og Þór- hildi og þau voru í raun í hlutverki mentors í lífi mínu á þessum tíma. Við vorum 22 sem útskrifuðumst úr mínum árgangi í leiklistarskólanum, þeirra á meðal var bekkjarsystir mín Hanna María leikari í Borgarleikhús- inu.“ Ferill Tinnu fór vel af stað. Hennar fyrsta hlutverk á sviðum stærri leik- húsanna var hjá Leikfélagi Reykja- víkur, en hún var fljótlega komin upp í Þjóðleikhús. „Strax haustið eftir fékk ég svo spennandi verkefni í Þjóðleikhúsinu. Hlutverk í nýju verki eftir Nínu Björk Árnadóttur – Hvað sögðu englarnir í leikstjórn Stefáns Baldurssonar. Svo tók við titilhlutverkið í Smalastúlkan og útlagarnir í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Eftir það var ég leik- kona hér í Þjóðleikhúsinu í ein 25 ár. Ég fékk mikið af spennandi tækifær- um og bitastæðum hlutverkum. Það var til dæmis einstakt fyrir mig að fá að leika Snæfríði Íslandssól í upp- setningu Þjóðleikhússins á Íslands- klukkunni árið 1986. Þar tók ég við keflinu af móður minni, en þetta var hlutverkið hennar í opnunarsýningu Þjóðleikhússins á Íslandsklukkunni á sínum tíma og mikil áskorun að fá að feta í hennar fóspor. Ég lék líka titilhlutverkið í Jermu eftir Federico Garcia Lorca, Fedru eftir Racine, Nastösju Filipponu í Fávitanum á móti Hilmi Snæ, sem þá var að byrja sem leikari, svo fátt eitt sé nefnt. Og svo má ekki gleyma gamanhlutverk- unum eins og í Rita gengur mennta- veginn. Mér þykir líka mjög vænt um þau hlutverk.“ Tinna hlaut einnig viðurkenn- ingar fyrir leik sinn í kvikmyndum. Hún var tilnefnd til Evrópuverðlauna fyrir leik sinn í myndinni Í skugga hrafnsins sem bróðir hennar Hrafn Gunnlaugsson leikstýrði árið 1988 og hlaut svo Edduverðlaunin sem leikkona ársins í myndinni Ungfrúin góða og húsið áratug síðar. Hún hlaut einnig alþjóðleg verðlaun fyrir sama hlutverk á kvikmyndahátíðinni í Solchi í Rússlandi. Listræn fjölskylda Leiklistin hefur alltaf staðið Tinnu nærri. Móðir hennar, Herdís Þor- valdsdóttir, var ein af þekktari leikkonum þjóðarinnar og faðir hennar, Gunnlaugur Þórðarson hæstaréttarlögmaður, var mikill listunnandi. Tinna var yngst fjögurra barna þeirra. „Starf mömmu gerði það að verk- um að leikhúsið var alltaf nærri,“ segir Tinna. „Pabbi hafði hins vegar mikla ástríðu fyrir myndlist. Málarar voru tíðir gesti á heimilinu, pabbi keypti mikið af málverkum og kenndi okkur börnunum að meta myndlist. Ég man eftir því sem krakki að hafa farið oft í leikhús en ég fór ekkert sjaldnar Tinna Gunnlaugsdóttir átti farsælan feril sem leikkona áður en hún tók við embætti þjóðleikhús- stjóra. Í bráðum níu ár hefur hún stýrt Þjóðleikhúsinu í gegnum góðæri og hrun. Hún segir umræðuna um framlög til lista og menningar á villigötum og varar við því að ákvarðanir um niðurskurð séu teknar með stundarhagsmuni í huga. Tinna segir frá uppvexti sínum, leikaraárunum og sorginni sem fylgdi því að missa móður sína í fyrra. Viðtal Símon Birgisson simonb@dv.is Tinna ásamt móður sinni Það féll í hlut Tinnu að ganga í hlutverk Herdísar Þorvalds- dóttur, móður sinnar, í Karma fyrir fugla þegar Herdís féll frá. „Viljum við búa í menningarsam- félagi þar sem velferð þegnanna snýr ekki að- eins að því að lifa af á skurðarborðinu, heldur líka að því að lifa inni- haldsríku lífi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.