Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Blaðsíða 35
Menning 35Helgarblað 13.–15. september 2013 Listin gefur lífinu merkingu á myndlistarsýningar. Það var líka ómetanlegt að fá að kynnast þessum dularfullu listamönnum sem hann umgekkst, Gunnlaugur Scheving var til að mynda tíður gestur á heim- ili okkar, kom vikulega í mat eins og fleiri listamenn.“ Foreldrar Tinnu eru báðir látnir. Gunnlaugur árið 1998 en Herdís í fyrra. Herdís hafði numið leiklist í London og var leikkona við Þjóðleik- húsið allan sinn feril. Hennar síð- asta hlutverk var í leikritinu Karma fyrir fugla sem sýnt var í Þjóðleikhús- inu á síðasta leikári. Rétt fyrir síðustu sýninguna bankaði dauðinn að dyr- um og það kom í hlut Tinnu að fara í búning móður sinnar og ljúka síð- ustu sýningunni. Kvaddi mömmu gegnum listina „Það var auðvitað afar sárt að missa hana,“ segir Tinna og heldur svo áfram. „En hún var búin að skila sínu og kvaddi með glæsibrag. Hún var í raun í fullu fjöri á leiksviðinu, allt fram á sinn síðasta dag. Ég hafði lof- að henni þegar hún tók við hlutverk- inu að leysa hana af ef eitthvað kæmi upp á. Hún vissi auðvitað að sinn tími væri að renna út. Það var heiður og sérstök upplifun að ganga í henn- ar fótspor þarna í annað sinn á ferl- inum, þó tilefnið væri annað og öllu sorglegra. Mér fannst ég eiginlega ekki vera á staðnum.“ Herdís var mikil baráttukona og hennar helsta hugðarefni var ágangur sauðfjár á gróðurlendi á hálendinu. Eitt af hennar síðustu verkum var heimildamyndin Fjall- konan hrópar á vægð sem sýnd var í Ríkissjónvarpinu á síðasta leikári. „Pabbi var áræðinn og hugrakkur maður, stundum svolítið fljótfær. Mamma var alltaf varkárari en ótrú- lega staðföst og dugleg og mikil hug- sjónamanneskja. Ég var heppinn að eiga þau bæði að. Og alla mína stóru fjölskyldu,“ segir Tinna og talið berst að bræðrum föður hennar og Þórði Sveinssyni afa Tinnu, sem starfaði sem yfirlæknir á Kleppi. „Þeir voru mjög sérstakir þessir Kleppsbræð- ur allir, fæddir og aldir upp í næsta nágrenni við geðsjúkrahúsið. Pabbi var víðsýnn og sagði alltaf að það hefði mótað sig fyrir lífstíð að kynn- ast því snemma hvað lífið gat verið brogað. Hann var mikill húmanisti og virkur í mannúðarmálum og sem lögfræðingur beitti hann sér alla tíð í þágu þeirra sem minna máttu sín í samfélaginu.“ Geðveiki í öllum ættum Í leikritinu Englar alheimsins, sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu, er varpað upp heldur óhuggulegri mynd af Kleppi „fyrir daga lyfjanna“ þegar afi hennar var við störf. Tinna segir auð- velt að horfa með gagnrýnisaugum til þess tíma en ekki megi gleyma því hve fá úrræði voru í raun til staðar. „Ég veit þetta var ekki einfalt, en ég veit líka að afi lagði sig allan fram og var óþreytandi í að leita lausna. Hann stundaði ýmsar óhefðbundnar lækn- ingar, svo sem vatnslækningar, þar sem sjúklingar í „agil“ ástandi eins og það var kallað, voru settir til skipt- is í heit og köld böð. Þó það hafi sjálf- sagt ekki verið þægilegt, þetta hef- ur verið eins konar sjokkmeðferð, en hún virkað oft til að koma fólki út úr þráhyggjuástandi. Hann reyndi líka að virkja sjúklingana til vinnu, einfaldrar vinnu, til að koma reglu á huga þeirra, eins og hann orðaði það, svokallaðrar Klepps- vinnu. Ég held að þessi rússíbanareið sem fólk fer í gegn- um á sýningu á Englum alheims- ins, þessi sýn inn í heim geðveikinnar, snerti djúpt, það á að minnsta kosti við um mig sjálfa. Þetta er erfiður og flókinn sjúkdómur sem stend- ur okkur nærri. „Það er geðveiki í öllum ættum“, eins og segir í bókinni og við erum í raun öll mislangt frá normalfráviki.“ En hvenær kviknaði draumurinn um að verða þjóðleikhússtjóri? „Ég var lengi virk í félagsmál- um, var í forsvari fyrir Leikarafé- lag Íslands, sat í þjóðleikhúsráði um árabil fyrir leikara og það höfðaði til mín að koma að málum og láta til mín taka. Svo kom sá tímapunktur á mínum ferli að ég fór að hugsa um framtíðina. Mér fannst ég hafa verið heppin, ég hafði átt farsælan feril í leiksviðinu en langaði til að takast á við nýja ögrun. Ég fór MBA-nám í stjórnun samhliða vinnu og sótti um stöðu þjóðleikhússtjóra eins og um 20 aðrir umsækjendur. Ég gerði mér engar sérstakar vonir um að fá stöð- una en ég fann að ég var tilbúin að taka við því. Maður má heldur ekki verða of þaulsetinn í starfi. Ég hafði fengið mín tækifæri sem leikkona en leikkona sem stendur á fimmtugu veit að þeim tækifærum á bara eftir að fækka og ég var ekki tilbúin til að minnka við mig.“ Leiklistin er mjög karllæg stétt … „… sérstaklega þegar kemur að leikstjórn. Þar hafa karlmenn verið ráðandi. Þetta var þeirra svið. Vissu- lega eru þeir enn í meirihluta í stétt leikstjóra en það eru alltaf að koma fram fleiri konur sem hafa sýnt það áræði að stíga inn á þennan vettvang.“ Hvaða stefnu komstu með inn í þetta starf? Og hefur sú stefna geng- ið upp? „Það var mín löngun að efla ný- sköpun, kalla eftir fleiri íslenskum leikritum og leita leiða til að stuðla að þróun þeirra. Mig langaði að kalla eftir verkum sem ættu erindi og gætu stofnað til samtals við áhorfendur. Ég einsetti mér að stefna að því að helmingur verka á leiksviðum Þjóð- leikhússins á hverju leikári væru ný og eldri innlend og það hefur gengið eftir. Um það má lesa í ársskýrslum Þjóðleikhússins sem eru aðgengilegar á vef leikhússins. Auðvitað eru þetta ekki allt ný frumsamin leikrit, en af þessum árangri er ég stolt. Svo lang- aði mig að efla barnastarf og leiklistar- uppeldi. Við stofnuðum nýtt svið, Kúl- una, fyrir smærri barnasýningar árið 2006 og þar höfum við sýnt mikið af frumsömdum verkum, til dæmis verk eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og þrjú verk eftir Áslaugu Jónsdóttur. Og nú erum við að opna brúðuleikhús á leikhúsloftinu í aðalbyggingunni í samstarfi við Bernd Ogridnik og Brúðuheima. Ég er mjög stolt af því að í vetur bjóðum við upp á samtals tíu barnasýningar á ólíkum sviðum í húsinu. Að síðustu langaði mig til að efla hlut kvenna í íslensku leiklistarlífi og leita leiða til að veðja á konur sem höfunda og leikstjóra.“ Er pólitískt valið í embætti þjóðleikhússtjóra? „Ég get í raun ekkert sagt til um það. Ég hlýt að trúa því að ég hafi verið metin að verðleikum. Svo spil- aði eflaust inn í að það var tími kom- inn á að kona tæki við stöðu þjóðleikhússtjóra,“ segir Tinna sem varð fyrsta konan til að gegna þessu starfi. Pólitísk umræða En það eru ekki bara ráðningar sem verða pólitísk bit- bein. Umræðan um menningu og listir er hápóli- tísk og snýst að stórum hluta um krónur og aura. Eru listamannalaun rétt- lætanleg? Má skera nið- ur kvikmyndasjóð um helming? Þurfum við yfir- höfuð Þjóðleikhús? Það hef- ur margt breyst síðan hugsjónamenn byrjuðu að safna fyrir Þjóðleikhúsi upp úr 1920 og þjóðin gladdist yfir því að eiga loksins alvöru leikhús. Ætli spurningin í dag sé ekki hve mörgum mannslífum hægt er að bjarga fyrir það fé sem rennur til Þjóðleikhússins? „Auðvitað er öllu til fórnandi til að bjarga mannslífum en umræðan má ekki fara niður á þetta plan, þá getum við sett nánast hvað sem er á vogarskálarnar og alltaf fengið sömu niðurstöðuna. Við ættum heldur að spyrja hvers virði er lífið ef það fær hvorki lit né merkingu og gengur út á það eitt að vinna, borða og sofa,“ segir Tinna. „Þannig var það lengst af hér í þessu harðbýla og menningarsnauða landi, fólk beit á jaxlinn og harkaði af sér, við eigum fleygar setningar í mál- inu sem segja þetta; „bókavitið verð- ur ekki í askana látið“ og þetta með að „skemmta skrattanum“. Þeir örfáu sem stunduðu listir voru helst litnir hornauga, voru eins og „skepnur frá öðru tímabili jarðsögunnar sem kallaðar eru fornfygli“ eins og Hall- dór Laxness lýsir listamönnum svo skemmtilega í Alþýðubókinni sem kom út á þriðja áratug síðustu aldar.“ Spurning um forgangsröðun Tinna heldur áfram: „Frá þeim tíma eða réttara sagt frá því að stríðinu lauk og við hlutum sjálfstæði sem þjóð höfum við í raun tekið heljar- stökk í menningarlegu tilliti. Sama ár og Þjóðleikhúsið var opnað var Sin- fóníuhljómsveit Íslands einnig stofn- uð og við áttum í fyrsta sinn stétt at- vinnulistamanna. Og báðar þessar stofnanir hafa verið í stöðugri fram- þróun síðan, að ég tali nú ekki um allt annað sem hefur dafnað og þroskast. Og hvað á svo núna, ofan á þrengingar og niðurskurð síðustu ára, sem vissu- lega hefur verið mikill og höggvið nærri starfsemi Þjóðleikhússins, á þá að ganga enn lengra og kannski bara slá þetta allt saman af? Ég get ekki trúað á slíka forheimskun. Hvað sem öðru líður, þá er þetta alltaf spurning um forgangsröðun. Viljum við búa í menningarsamfélagi þar sem velferð þegnanna snýr ekki aðeins að því að lifa af á skurðarborðinu, heldur líka að því að lifa innihaldsríku lífi.“ Milljarðar afskrifaðir Tinna tekur sem dæmi fréttir af af- skriftum stórfyrirtækja og skuldir fyrrverandi útrásarvíkinga sem að öllum líkindum verða afskrifaðar. Hún segir nær að horfa á þær fjár- hæðir, sem lendi á endanum á skatt- greiðendum, en fjárframlag til lista sem skili sér margfalt til baka. „Hvort er betra; opinber stuðn- ingur sem er uppi á borðinu, sem má lesa í fjárlögum hvers árs, sem skil- ar sér margfalt til baka til samfélags- ins, beint og óbeint, eða sá opinberi stuðningur sem er þvingaður fram, er afleiðing rangrar stefnumörkun- ar og áhættusækni einstaka manna eða fyrirtækja, eða hvað eru þessar endalausu afskriftir annað en þving- aður opinber stuðningur? Sparisjóð- ur hér, fjárfestingafélag eða banki og þetta hleypur á tölum sem eru marg- falt hærri en allur opinber stuðning- ur til listalífsins frá lýðveldisstofn- un. Einn einstakur banki telur sig hafa orðið fyrir tilteknu tjóni vegna stjórnarhátta eins stjórnanda og slitastjórnin höfðar mál til að krefja viðkomandi um endurgreiðslu. En það er eiginlega blásið á það af hálfu verjanda viðkomandi bankastjóra, það taki því ekki, það fáist ekkert upp í kröfuna og þó svo eitthvað fengist, færi það bara í lögfræðikostnað. En þetta eina mál, þessi tiltekna upp- hæð sem hér um ræðir, jafngildir opinberum stuðningi til Þjóðleik- hússins í allt að eitt hundrað ár. Og hvar erum við þá stödd í umræðunni, hvað er á vogarskálunum? Við megum heldur ekki gleyma því að alls staðar í heiminum eru það skapandi greinar sem koma best út og mestar vonir eru bundnar við til framtíðar. Listir og menning skapa líka atvinnu á erfiðum tímum og auka efnahagsvöxt. Við getum svo sannar- lega litið okkur nær í þessu samhengi og verið stolt af því sem við eigum og okkur hefur tekist að skapa. Ég hlýt að ætla að stjórnmálamenn séu skyn- samir upp til hópa og þessi umræða sé eins konar stormur í vatnsglasi.“ Breytingar framundan Tíu ár sem þjóðleikhússtjóri er langur tími. Næsta leikár verður það síðasta sem Tinna gegnir embættinu. Hvað tekur við? „Já, nú fer að líða að því að minn tími renni út. Ég á bara eftir að skipu- leggja eitt leikár í viðbót og mig langar að velja vel inn á það. Ætli það sé ekki það sem ég hugsa mest um þessa dag- ana. Að klára þau verkefni sem mig dreymdi um að ná að framkvæma þegar ég tók við þessu starfi. Hvað býður mín svo er óráðið en ég er nán- ast til í hvað sem er. Þessi reynsla sem leikhússtjóri hefur verið mér dýrmæt, mikil áskorun, bæði listrænt séð og líka hvað varðar að standa í fæturna í þessum ólgusjó sem við höfum siglt í gegnum. Og ég hef alla trú á að ég geti skilað leikhúsinu stolt af mér til þess sem tekur svo við.“ Hefur þetta embætti breytt þér á einhvern hátt? „Ég kem af gólfinu. Ég var leikkona hér við húsið og nú er maður hin- um megin við borðið. Í svona stjórn- unarstöðu hefur maður í raun örlög og starfsframa margra í höndum sér. Starfið felur ekki aðeins í sér að koma hugmyndum í framkvæmd heldur er líka stór hluti af starfinu að hafna hug- myndum og þá um leið fólki. Það tek- ur á og ég veit að ég er ekki alltaf vin- sælasta manneskjan á svæðinu, en hjá því verður ekki komist, ég hef sætt mig við það. Þjóðleikhúsið er eign okkar allra, við sem hér störfum erum í þjón- ustuhlutverki við listina, okkur er falið að viðhalda eldinum og verja það starf sem hér er unnið. Ég hef reynt að axla þá ábyrgð og gera mitt besta.“ n Fríður hópur Tinna ásamt systkinum sínum Hrafni Gunnlaugssyni kvikmyndagerðar- manni, Þorvaldi Gunnlaugssyni stærðfræðingi og Snædísi Gunnlaugsdóttur lögfræðingi. „Mér fannst ég eiginlega ekki vera á staðnum Þórður Sveinsson Afi Tinnu Gunnlaugs- dóttur var yfirlæknir á Kleppi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.