Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Síða 36
Námskeið í rötun n Tilvalið fyrir fjallagarpa og útivistarunnendur D agana 23., 25. og 28. sept- ember næstkomandi stend- ur Endurmenntunarskólinn fyrir námskeiði í rötun og notkun GPS-staðsetningartækja. Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu grunnatriði rötunar en auk þess að læra á áttavita munu þátttakendur æfa sig í því að lesa kort sem og vinna með stefnur, vegalengdir og staðsetningar. Námskeiðið er því tilvalið fyrir fjallagarpa sem og fólk sem stundar mikla útivist en færni í rötun getur komið sér vel á hálendi Íslands og í öðrum óbyggðum. Á námskeiðinu læra þátttak- endur að vinna með GPS-stað- setningartæki en farið verður yfir allar helstu stillingar þeirra sem og helstu notkunarmöguleika. Þá verður unnið með kort í bland við GPS-tæki þar sem gögn verða unn- in af kortum og skráð í tækin auk þess sem farið verður yfir hvern- ig flytja má gögn á tölvutæku formi í og úr slíkum tækjum og eins hvernig hægt er að vinna með GPS- gögn í tölvu. Um er að ræða þriggja daga námskeið sem tekur alls átta klukkustundir. Tvo daga verður kennt innandyra í þrjár klukku- stundir í senn en þriðja dag nám- skeiðsins verður útiæfing sem tekur um tvær klukkustundir. Leiðbein- andi námskeiðsins er Sigurður Jónsson björgunarsveitarmaður og kostar námskeiðið 23.900 krónur. Nánari upplýsingar má finna á vef- síðu Tækniskólans, tskoli.is. n horn@dv.is Við getum gert betur S teingrímur Matthíasson heitinn, héraðslæknir á Akureyri, skrifaði litla bók fyrir um öld síðan, nánar tiltekið árið 1918, um kynsjúkdóma þess tíma og sem þá voru kallaðir samræðis- sjúkdómar. Hann nefndi kverið sitt Freyjukettir og Freyjufár og vísaði þar til sagna í Snorra- Eddu. Í henni var minnst á ástar- gyðjuna Freyju og kettina henn- ar sem hafa verið skáldum lengi yrkisefni. Í kverinu gerði Stein- grímur vel grein fyrir alvarleg- um samfélagsvandamálum þess tíma og sem tengdust lekanda og sárasótt. Köttunum hennar Freyju í þá daga. Í dag eru þeir aðrir, lúmskari og sem læðast lengi með veggjum. Danir bjóða bólusetningar til 26 ára aldurs Í tilefni af mottumarsinum 2013, benti ég á mikilvægi HPV (Human Pappiloma Virus) bólu- setningar kvenna fyrir bæði kyn- in. Ekki þannig aðeins til að verj- ast leghálskrabbameini hjá þeim, heldur einnig sem óbeina smit- vörn fyrir karla gegn sífellt al- gengara krabbameini í munni, koki, og endaþarmi. Krabba- mein sem tengist mest langvinn- um HPV-veirusýkingum í slím- húðum unga fólksins og breyttri kynhegðun í nútíma samfélagi. Í Danmörku hefur maður ekki komist hjá því sl. ár að sjá endur- teknar auglýsingarnar í fjölmiðl- unum um gildi HPV-bólusetn- inga sem Danir bjóða nú ungum konum ókeypis til 26 ára aldurs. Markmið er enda að ná til sem flestra kvenna á sem skemmstum tíma. 300 konur í keiluskurð á ári Nýgengi leghálskrabbameina kvenna á Norðurlöndunum, sem í flestum tilvikum (70%) tengist HPV-veirusýkingu upphaflega, er um 9 konur af hverjum 100.000. Tíðnin hefur farið lækkandi með góðri krabbameinsleit og sem mun væntanlega lækka mikið þegar árangur af bólusetningum gegn HPV-veirunni fer að skila sér. Forstigsbreytingarnar finnast hins vegar miklu oftar og hátt í 300 konur fara í keiluskurð á hverju ári hér á landi í dag vegna þeirra, auk þess sem margfalt fleirum konum er fylgt náið eft- ir. Um 20 einstaklingar greinast síðan á ári með HPV orsakað/ tengt krabbamein í munnholi og koki, fleiri karlar en konur. Áætl- að hefur verið að eftir nokkur ár (2020) greinist síðan fleiri karlar með HPV orsakað krabbamein (í munni, koki og í endaþarmi) í Bandaríkjunum, en konur með leghálskrabbamein. 40% yngri kvenna smituð Samspil HPV-veirunnar við ýmsa aðra áhættuþætti krabba- meina svo sem reykinga, áfengis og jafnvel getnaðarvarnarpill- unnar er talið geta skýrt um 7% allra krabbameina í dag. Áætlað er að yfir 40% yngri kvenna séu smituð af HPV-veirunni í leg- hálsi á hverjum tíma og án þess að nokkur einkenni séu til staðar, svo sem kynfæravörtur sem eru einnig HPV orsakaðar, en af öðr- um stofnum en þeim sem valda krabbameinum. Um 7% full- orðinna eru taldir líka með smit í munnholi. Þar sem karlinn getur ýmist verið smitberi eða fórnar- lamb sýkingarinnar. Ráðgjöf um kynheilbrigði hvað þetta varðar er því mikilvægt um leið og notk- un getnaðarvarna er rædd við unga fólkið í dag í skólunum og í heilsugæslunni. Hvað með drengina? Sl. tvö ár höfum við aðeins boðið grunnskólastúlkum í 9. bekk bólusetninguna ókeypis (Cervarix). Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum og Kanada mæla með HPV-bólusetningu ( Gardasil) líka fyrir drengi og sem ver þá, þá um leið gegn kynfæravörtum og er slík bólu- setning ókeypis í dag í Ástral- íu. Ákvörðun til að bæði kyn- in njóti góðs af sem fyrst. Bjóða þyrfti a.m.k. öllum stúlkum til 26 ára aldurs ókeypis bólusetningu gegn HPV á Íslandi eins og Dan- ir gera. Og spurningin er síðan, hvað ætlum við að gera í málefn- um ungra drengja í dag, en sem verða karlmenn á morgun? n „Hvað ætlum að gera í málefnum ungra drengja í dag? Vilhjálmur Ari Arason Af sjónarhóli læknis Týndar Gott er að vera fær í notkun korta og GPS-tækja þegar fara á út í óbyggðir. L íkt og með flest annað hættir okkur til að festast í ákveðn- um venjum þegar kemur að útivist. Það er svo þægi- legt að fara alltaf á Esjuna eða Keili, nú eða bara í Heiðmörk eða Elliðaárdalinn. En hvað með að hugsa út fyrir kassann og prófa eitthvað allt annað? Blaðamaður DV tók saman nokkra hluti sem fá fólk til að stíga út fyrir þægindarammann og taka vel á því í hinni stórfenglegu nátt- úru sem Ísland býður upp á. Vélsleðaferðir Nokkur fyrirtæki bjóða upp á vél- sleðaferðir en slíkar ferðir eru farnar á allflesta jökla landsins. Boðið er upp á slíkar ferðir fyrir einstaklinga sem og stærri hópa og því tilvalin afþreying fyrir vina- hópa, vinnustaði og nemendafé- lög svo eitthvað sé nefnt. Farið er með vönum leiðsögumanni sem stýrir leiðangrinum og eru ferðirn- ar yfirleitt klukkutími hið minnsta. Tveir einstaklingar geta setið á sama sleðanum en til að mega stýra slíku tæki er nauðsynlegt að vera með fullgild ökuréttindi. Einn helsti kosturinn við vél- sleðaferðir er að þær eru í boði allt árið auk þess sem hægt er að fara í slíkar ferðir ansi víða um landið og ættu því flestir Íslendingar, óháð búsetu, að geta skellt sér í eina slíka. Þetta er frábær skemmt- un fyrir fólk á öllum aldri og til- valið fyrir alla fjölskylduna að fara saman því börn geta setið á sleða með foreldrum sínum. Köfun eða snorkl Ferðamenn flykkjast ekki ein- göngu á Þingvelli vegna náttúru- fegurðar eða sögulegs mikilvægis staðarins. Gjáin Silfra þykir nefni- lega einstaklega hentugur staður til köfunar og er orðinn einn vin- sælasti köfunarstaður í heimi. Er- lend tímarit hafa margoft útnefnt Silfru sem einn ákjósanlegasta stað sem völ er á fyrir slíka afþreyingu og hafa fjölmargir erlendir kafarar komið hingað til lands til þess eins að berja gjána augum. Silfra er í Þingvallavatni en vatnið í henni er kristaltært og því geta kafarar búist við einstaklega fagurri sjón er þeir kafa á fleka- mótum Evrasíuflekans og Norður- Ameríkuflekans. Hitastig vatnsins er á bilinu tvær til fjórar gráður allt árið um kring en hægt er að kafa í gegnum hella og komast niður á allt að 40 metra dýpi. Menn geta þó ekki farið að kafa í Silfru nema þeir séu með tilskilin köfunarréttindi en fyrir þá sem ekki hafa slík er einnig í boði að snorkla í gjánni. Fallhlífarstökk Auk þess að vera algjört adrena- lín-„kikk“ býður fallhlífarstökk upp á ótrúlegt útsýni yfir það stór- fenglega landslag sem landið okk- ar býr yfir svo þetta er sannarlega eitthvað sem fólk með ævintýraþrá ætti að kynna sér betur. Fallhlífar- stökksfélagið Frjálst fall býður upp á fallhlífarstökk á tveimur stöðum á landinu; annars vegar á Hellu og hins vegar Sandskeiði. Ýmis mis- munandi stökk eru í boði, lærðir stökkvarar með tilskilin réttindi mega stökkva einir en byrjendur Stígðu út fyrir þægindarammann n Öðruvísi afþreying í náttúru Íslands n Boðið upp á fallhlífarstökk og brimbrettaferðir 36 Lífsstíll 13.–15. september 2013 Helgarblað Hörn Heiðarsdóttir blaðamaður skrifar horn@dv.is Köfun í Silfru Silfra þykir einn besti köfunar- staður í heiminum í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.