Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 37
Lífsstíll 37Helgarblað 13.–15. september 2013 S tóra stundin er að renna upp. Á sunnudaginn fljúg­ um við Ólafur Sveinsson til Parísar með WOW air og ferðin á hæsta tind Evrópu­ sambandsins hefst formlega. Við munum leggja, strax á sunnudags­ kvöldið, af stað til franska fjallabæj­ arins Chamonix þar sem aðlögun okkar hefst strax á mánudeginum undir handleiðslu fjallagarpsins Gregory. Það er spenna í loftinu. Eins og segir í kynningu þessa bloggs fékk ég hugmyndina í árslok 2010 þar sem ég glímdi við offitu og lungu sem veru mettuð af tjöru eftir 40 ára reykingar. Mér gekk illa að sofna í þá daga. Hóstahviður ætl­ uðu mig lifandi að drepa. Bifhárin voru lömuð og réðu ekki við að koma tjörunni upp úr lungunum. Ég var eins og reykspólandi bíll sem komst hvorki lönd né strönd. Það tók mig gjarnan nokkrar mín­ útur að hagræða mér þannig í rúminu að öndunarvegurinn héld­ ist opinn. Og mæðin var að drepa mig. Stigar voru mikil hindrun sem fylgdi líkamlegt erfiði. Á þessum tímapunkti var ég sem gangandi tímasprengja. Offitan, stressið og hreyfingar­ leysið var ávísun á snöggan og óvæntan dauðdaga. Ég hugsaði mitt mál vandlega og komst að þeirri niðurstöðu að það væri í senn skynsamlegt og nauðsynlegt að bæta lífsgæðin og forða mér út úr lífsháskanum. Mér er minnis­ stætt þegar ég reifaði áform mín fyrir nánustu fjölskyldu. 135 kílóa þungur maðurinn lýsti því yfir að hann ætlaði að fara á eigin afli á hæsta tind Íslands, Hvannadals­ hnúk, auk þess að klífa Ok og fleiri fjöll; mörg fjöll og himinhá. Van­ trúin skein úr andlitum ættingj­ anna. Ekki lagaðist það þegar ég færðist í aukana og sagðist stefna á sjálft Hvíta fjallið, Mont Blanc. Þá sá ég brosviprur sem sumum tókst ekki að leyna. Ég hefði alveg eins getað sagt að ég ætlaði að feta í fót­ spor Krists og ganga á vatni. Auðvitað gat ég ekki vitað hvort mér tækist að standa við yfir­ lýsingarnar. Viljastyrkurinn þurfti að vera til staðar og það þurfti allt að ganga upp. Ótal tilraunir mín­ ar til þess að sigrast á offitunni og taka upp heilbrigt líf höfðu reynst skammvinnar. Ég léttist og þyngd­ ist á víxl. Í rauninni var holdafar mitt eins og flóð og fjara. Það var því ólíklegt að mér tækist að standa við fyrirheitin sem ég gaf sjálfum mér fyrir þremur árum. Ég þurfti að gjörbreyta um mataræði og taka upp reglu­ bundna hreyfingu. Verkefnið var einfalt. Það þurftu að fara 40 kíló og ég þurfti að fá lungu og lappir til að funkera í þá veru að mér tækist að klífa há fjöll. Árið 2011 reyndist mér hagstætt. Kílóin fuku og þrekið óx. Hvert fjallið af öðru féll að fót­ um mér. Þegar svo kom að sjálfum Hvanndalshnúk komst ég þangað en náði ekki að toppa vegna veð­ urs. Í þriðju tilraun lukkaðist að standa við þau áform og ég stóð vorið 2013 á hæsta tindi Íslands. Þegar ég flýg til Parísar liggur fyrir að ég hef staðið við allt sem ég lofaði sjálfum mér nema það að klífa Hvíta fjallið. Ég er búinn að fara á helstu fjöll Íslands og stærstu jöklana. Tjaran er horfin úr lungunum og ég sef eins og ung­ barn. Heimildir herma að ég sé meira að segja hættur að hrjóta með jafnafgerandi og skerandi hætti og gerðist áður. Glottið er fyrir löngu horfið af andliti ættingjans vantrúaða. Sjálfur legg ég bjartsýnn til at­ lögu við lokatakmarkið. Ég hef ekki hugmynd um hvort veður­ guðirnir hleypa okkur Óla upp í 4.808 metra. Ef ekki tekst að toppa í þessari atrennu kem ég bara aftur rétt eins og gerðist með Hvanna­ dalshnúk. Á endanum kemst ég upp. n Reynir Traustason Baráttan við holdið Ég er hættur að hrjóta Við æfingar fyrir ferðina á Mont Blanc Laufskörðin á mörkum Esju og Móskarða- hnúka þykja tilvalin til að vinna bug á lofthræðslunni. Mynd: ReyniR TRausTason Stígðu út fyrir þægindarammann n Öðruvísi afþreying í náttúru Íslands n Boðið upp á fallhlífarstökk og brimbrettaferðir geta farið í svokallað farþegastökk þar sem þeir stökkva ásamt vönum stökkvara. Þá er boðið upp á stökk úr ýmist fjögur, tíu eða tólf þúsund feta hæð og er yfirleitt stokkið úr flugvél, en þó stundum úr þyrlu. Líkt og gefur að skilja þurfa veð­ urskilyrði að vera góð en aðeins er stokkið yfir vor­ og sumartímann og eitthvað fram á haust. Brimbrettaferðir Flestir tengja brimbrettaferðir einkum við hitabeltisstrendur Ástralíu, en hver segir að þörf sé á hvítum ströndum og volgum sjó þegar menn vilja skella sér á brim­ bretti? Okkar kolsvörtu fjörur og stórbrotni sjór bjóða nefnilega upp á magnaðar aðstæður fyrir fólk sem hefur áhuga á bárubruni og eru nokkur fyrirtæki hérlendis sem bjóða upp á slíkar ferðir. Bárubrun er nokkuð krefjandi en farið er með vönum leiðsögu­ manni og eru ferðirnar í boði fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Allur nauðsynlegur búnaður sem og kennsla fyrir þá sem þurfa á henni að halda er innifalin í verði. Brimbrettaferðir eru, líkt og gef­ ur að skilja, mjög háðar veðri og vindum og því hentugra að fara yfir sumartímann. n Vélsleðaferð Boðið er upp á vélsleða- ferðir á allflesta jökla landsins. Fallhlífarstökk Boðið er upp á fallhlífar- stökk á Hellu og Sandskeiði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.