Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Qupperneq 38
Ég er reynslunni ríkari eftir dvölina fyrir austan og lærði af algerum snill­ ingi sem heitir Sigríkur Jónsson. Hann þjálfaði meðal annars Skugga frá Hofi 1, sem var annar á heimsmeistara­ móti íslenska hestsins í Berlín núna í sumar í fimmgangi. Ég tel það líka mikil forréttindi fyrir stelpurnar mín­ ar að hafa kynnst því að búa í sveit. Ég á eftir að sakna mikið sveitalífsins og að vera ekki að vinna við tamn­ ingarnar en þetta á eftir að nýtast mér vel með mína eigin hesta. Ein allra besta vinkona mín býr þarna fyrir austan svo við eigum eftir að halda tengingunni við sveitina. Ég hef til dæmis verið á vigtinni síðustu tvær hrútasýningarnar á Voðmúlastöðum og vonast ég til að fá að vera aftur með í ár. Lífið er svo allt öðruvísi í sveitinni. Þar er ekki þessi ys og þys.“ Spennandi tímar fram undan Ég er svo þakklát fyrir að fá að vinna með frábærum konum eins og Ásdísi Ósk Valsdóttur sem er eigandi stof­ unnar. Hún er alger snillingur og eru það mikil forréttindi að fá að læra af henni. Þeir sem eru að huga að því að kaupa eða selja eign verða að hafa í huga að öll framsetning skiptir höfuð­ máli til þess að fá sem mest verðmæti út úr eigninni. Þar kem ég sterk inn,“ segir Nadia og kímir og bætir svo við, „eignin er bara ný á markaðnum einu sinni.““ n 38 Lífsstíll 13.–15. september 2013 Helgarblað N adia Katrín Banine rær á önnur mið og hefur nú snúið sér að sölu fasteigna. Nadia var ein af þremur þáttastjórnendum Innlits Út­ lits fyrir nokkrum misserum og segir reynslu sína úr þeim þáttum reynast sér vel í nýja starfinu. „Ég var að byrja sem sölumaður og innanhúsráð­ gjafi á fasteignasölu sem heitir Húsa­ skjól samhliða starfi mínu sem flug­ freyja hjá Icelandair. Ég er svolítið að blanda saman þeirri reynslu sem ég náði mér í við Innlit Útlit. Því ég hef alltaf haft brennandi áhuga á arki­ tektúr og hönnun og fæ mikið út úr því að endurskipuleggja húsnæði fyrir söluferli, en þessi þjónusta er í boði án endurgjalds fyrir viðskipta­ vini mína. Innanhúsráðgjöf fasteigna fyrir sölu er þekkt úti um allan heim. Þetta er oft aleiga fólks sem er verið að meðhöndla og skiptir því miklu máli að vanda til verks og skapa sem mest verðmæti út úr eigninni,“ segir Nadia full áhuga yfir nýjum starfsvettvangi. Stressuð og óhamingjusöm Hún hefur brennandi áhuga á hönnun og tísku en hún vakti athygli fyrir húsgögn og herbergi sem hún gerði upp og breytti á fagran hátt fyrir Innlit Útlit. Hún glímdi við alvarleg veikindi fyrir nokkrum árum og að lokum sigraðist hún á þeim með já­ kvæðnina að vopni. Henni var að vonum mjög brugðið við greininguna en neitaði að leggjast í volæði. „Það gerði mér alveg svakalega gott að skipta um umhverfi þar sem mér fannst ég bara vera útkeyrð eftir að ég greindist með brjóstakrabba­ mein fyrir tæpum þremur árum. Í mínu tilfelli kenni ég um álagi, stressi og óhamingju. Ég ræddi þetta lítið við vini og mína nánustu og ákvað strax að láta þetta ekki taka völdin í mínu lífi. Ég held að það sé gífurlega mikil­ vægt fyrir þá sem greinast að skoða hvað má betur fara og hvað þeir geta gert sjálfir til að aðstoða við batann.“ Fór í detox og breytti um mataræði „Það er ótrúlegt hvað það er hægt að gera mikið sjálfur með breyttum lífs­ stíl. Auðvitað er hvert tilfelli einstakt. Ég spurði mig að því oft af hverju ég væri að lenda í þessu og í kjölfarið skoðaði ég lífsstíl minn og lagaði það sem betur mátti fara. Ég var í tveimur störfum, nýskilin og alltaf á ferðinni. Síðan var ég um tíma í sambandi sem var engan veginn heilbrigt. Ég byrj­ aði á því að fara í detox til Jónínu Ben til að hreinsa líkamann. Síðan hafði ég samband við hana Lukku í Happ. Hún er alger snillingur þegar kemur að mataræði og borðaði ég mikið hjá henni og fékk frábæra ráðgjöf. Sykur er til dæmis besta fóður sem krabba­ meinsfrumur geta fengið. Það var eitt­ hvað sem ég hafði ekki hugmynd um.“ Á eftir að sakna sveitalífsins Nadia hefur verið búsett fyrir austan þar sem hún hefur lagt stund á hesta­ mennsku. Nú er hún flutt aftur til höf­ uðborgarinnar og heldur að hún eigi eftir að sakna sveitalífsins. „Þetta er breyting frá síðustu vetr­ um þar sem ég var flesta virka daga inni í hesthúsi á Syðri Úlfsstöðum og brunaði svo í bæinn um helgar í vinnuna hjá Icelandair. n Nadia Banine náði sér af veikindum n Flutti úr sveitinni Haslar sér völl á nýjum vettvangi „Ég ræddi þetta lítið við vini og mína nánustu. Íris Björk Jónsdóttir blaðamaður skrifar iris@dv.is Nýir tímar nýtt andlit Það getur verið þreytandi að horfa í spegilinn og sjá sama fésið dag eft­ ir dag. Því er ekki úr vegi að brydda upp á nýjung þennan veturinn og fá sér gleraugnaumgjörð til að breyta aðeins til. Það er liðin tíð að menn séu kallaðir gleraugnaglámar þó þeir þurfi að notast við þetta lífs­ nauðsynlega hjálpartæki sem gerir þeim kleift að sjá mun á konum og mönnum á förnum á vegi og stýra framhjá hættum sem þeir annars hefðu ekki séð. Því þurfa þeir sem sjá vel ekki að vera feimnir við að fá sér gleraugnaumgjörð án sjón­ glers. Þetta þykir ekkert tiltökumál í dag og getur þú leyft þinni innri sköpunargleði að njóta, svo dæmi sé tekið, fagurdökkri gleraugnaum­ gjörð sem rammar augun svo fal­ lega inn. Nærbuxur liðinna ára Þreyttur á boxer­nærbuxunum sem þú hefur gengið í frá ferm­ ingu? Þegar þörf er á nýjungum þarf ekki að sjá inn í framtíðinni. Það nægir oft að líta til baka og sjá hverju maður hefur misst af. Karl­ menn á þrítugs aldri hafa margir hverjir klæðst boxer­nærbuxum frá því þeir stigu sín fyrstu skref og ekki fengið að upplifa nærveruna af þessum gömlu og klassísku nær­ buxum sem feður þeirra og afar fengu að kynnast svo ærlega á síð­ ustu öld. Er ekki kominn tími til að sýna smá djörfung þennan vetur og fara í aðsniðnar nærbuxur sem veita þann nauðsynlega stuðning sem oft er svo mikil þörf á? Hér verður enginn neyddur til að gera neitt en komdu nú elskunni þinni á óvart með þessari nýjung. Hvað er það versta sem gæti gerst? Mislitir sokkar málið Þó stórmenni mannkynssögunnar á borð við Steve Jobs og Jesú Krist hafi gengið berfætt líkt og ekkert væri sjálfsagðra þá kjósa nú flest­ ir að hylja tærnar í þessum klass­ íska klæðnaði. Sem hefur þó „nota bene“ tekið stakkaskiptum frá því forfeður okkar notuðust við dýraskinn til að ylja sér. Sokkarnir hafa um aldir þjónað hlutverki stöðutákns og voru um tíma tákn um hreinleika trúarleiðtoga og ríki­ dæmi aðalsstéttarinnar. Þó sokk­ arnir í dag hafi tapað þessum ljóma eftir að það varð á færi nærri allra íbúa vestrænna ríkja að fjárfesta þeim þá geta þeir verið tákn um frumleika einstaklinga. Hér áður fyrr voru menn úthrópaðir furðu­ fuglar og sérvitringar fyrir að ganga í mislitum sokkum en nú er enginn maður með mönnum nema hann þori að taka skrefið og sýna um leið litagleðina og frumleikann sem býr í hjartanu. n Taktu til og hafðu allt snyrtilegt í kringum þig. n Gakktu frá öllu inni í skáp og hafðu ekki of mikið af persónulegum myndum uppi við, eins og teikningar eftir börnin á ísskápnum eða veggjum. Fólk vill sjá hlý- leika en ekki hafa hlutina of persónulega. Það verður að geta séð fyrir sér að búa inni á þínu heimili. n Settu rúmteppi yfir sængurfötin, enginn vill sjá hvernig þú sefur. n Komdu öllum snúrum snyrtilega fyrir. n Raðaðu upp á nýtt í öllum hillum og fækkaðu eins og hægt er öllum lausa- munum. n Mjög mikilvægt er að hafa eldhús og baðherbergi snyrtileg. Hreinlætisilmur í þessum rýmum er mjög aðlaðandi. n Ef þú átt gæludýr gakktu frá öllum ummerkjum eftir þau. Það eru ekki allir kaupendur dýrafólk. Kattasandur inni á baðherbergi er ekki aðlaðandi. Ráð frá Nadiu fyrir þá sem eru í söluhugleiðingum Flutt úr sveitinni Nadia er flutt úr sveitinni og hefur skipt um starfsvettvang. Mynd: KriStinn MagnúSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.