Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Page 39
E lon Musk spennti bogann hátt þegar hann nefndi bílaframleiðslufyrirtæki sitt eftir Nicola Tesla en margir vilja meina að hann hafi átt hugmyndirnar sem Edison gerði að veruleika. Tesla Motors var stofnað með því markmiðið að brjóta staðal­ mynd rafmagnsbíla og kynna til sögunnar ökutæki sem væri keypt vegna þess að það skaraði fram úr sem ökutæki, en ekki út af vistvæn­ um eiginleikum. 2006 afhjúpaði Tesla Roadster, rafmagnssportbíl sem komst allt að 400 kílómetra á fullri hleðslu og stóðst allan saman­ burð við sportbíla í sama verðflokki. Ég fékk tækifæri til að prófa Per­ formance útgáfu af Model S. Mjúkar, ávalar línur með höfuðljósum sem leyfa áhorfanda ekki að gleyma því að villidýr toga gripinn áfram. Það er einkennileg tilfinning að heyra ekk­ ert í bílnum nálgast og enn skrýtnara að taka af stað. Í ökumannssætinu heyrist eingöngu smá hvinur þegar rafmagnsgjöfin er stigin til fulls. Sætin eru úr mjúku gervileðri og ök­ umannssætið stillanlegt í 6 víddum. Mælaborð er LCD skjár sem breytir um ham eftir því hvort bíllinn er á ferð eða ekki. Milli ökumanns og farþega er 17 tommu snertiskjár. Ef sætisstillingu er breytt þá býð­ ur snertiskjárinn ökumanni að vista stillingar. Það er augljóst að mikill tími hefur farið í að hanna upplifun ökumanns og reynsla mín var mjög jákvæð. Bíllinn vegur mikið, um 2,1 tonn að þyngd en gefur ekkert eftir í hröðun og aksturseiginleikum. Raf­ hlaðan er staðsett í gólfi bílsins og þyngdarpunkturinn því mjög neðar­ lega. Notendastillingar eru settar fram af Android tölvu með 3G tengingu. Grunnhugbúnaðarpakkinn er með­ al annars með streymandi útvarps­ stöðvar og Google Earth leiðsagnar­ forriti. Hægt er að vafra á netinu á snertiskjánum og setja inn Android smáforrit. Nú þegar eru komin sér­ hæfð smáforrit fyrir Tesla bíla. Per­ formance útgáfan býður upp á stillingar fyrir fjöðrun og stífleika stýris. Breyting á stillingum skilar sér í verulegum mun á aksturseigin­ leikum. Eina ökustillingin sem ég saknaði var að hægt væri að stilla mjúka hröðun, en að mínu mati var rafmagnsgjöfin eilítill „gikkur“. Ég fann ekki eins mikið fyrir því þegar ég slökkti á endurhleðslu rafgeymis við hemlun, en það er virkni sem skilar verulegum orkusparnaði og synd að sleppa. Drægni bílsins og orkunotkun eru sýnd á mælaborði, bæði meðal­ talsnotkun og punktmæling. Það er ánægjulegt að sjá við hemlun að orka kemur inn á rafhlöðuna nema slökkt sé á endurvinnslu. Á fullri hleðslu við bestu aðstæður á bíllinn að komast 500 kílómetra og myndi því geta komist léttilega frá Reykja­ vík til Akureyrar án þess að hlaða. Í venjulegri innstungu myndi taka 30 tíma að fullhlaða tóma rafhlöðu, en með 3­fasa rafmagni og aukabúnaði sem leyfir 80 ampera hleðslu ekki nema 80 mínútur. Hægt er að vænta 15 kílómetra drægni fyrir hverja klukkustund af hleðslu úr venjulegri innstungu. Eldsneytiskostnaður er mun lægri en bensínbíla, áætlaður um 7% af eldsneytiskostnaði bensín­ bíls. Hægt er að skipta út batteríi á skiptistöðvum og tekur það um 90 sekúndur. Á Ofurhleðslustöðvum er hægt að fylla rafhlöðuna á 30 mínút­ um. Í Bandaríkjunum eru þær nægi­ lega margar til að hægt er að keyra frá austurströnd til vesturstrandar og mun Elon Musk keyra þá leið áður en árið er liðið með fjölskyldu sinni. Model S er ekki beint á markað sem hugsar mikið um rekstrar­ kostnað. Sambærilegir bílar eins og Mercedes S class, BMW 5­Series eða Audi A8 eru í sama verðflokki og gæðaflokki. Enginn þeirra stenst samanburð á hröðun, sérstaklega á fyrstu metrunum. Meðan bensín­ bílarnir eru að snúa upp túrbínun­ um og opna ventla þá rífur rafmót­ orinn Tesla af stað eins og enginn sé morgundagurinn. Með hóflegu mati á eldsneytis, rafmangs og viðhalds­ kostnaði má áætla hins vegar að Model S borgi sig upp á líftíma bif­ reiðarinnar og mætti því líta á hann sem sparnaðarfjárfestingu. Það er einhver ljómi yfir Tesla merkinu sem mig grunar að eigi eftir að eiga sér sess í hugum bílaáhugamanna. Þó biðin eftir Model S hafi orðið lengri en Tesla gaf væntingar um, þá er út­ koman svo stórglæsileg að auðvelt er að fyrirgefa töfina. Dásamlegur bíll sem stendur undir nafni. n Ítarlegri umfjöllun í vefútgáfu. n Rafmagnsbíll sem stendur undir nafni n Viðmótshannað ökutæki Bílar Árni Steingrímur Sigurðsson arnisig@dv.is Tesla Model S ✘ Kostir: Hljóðlátur, ódýr í rekstri, umhverfisvænn, viðmót ökumanns, rúmgóður ✔ Gallar: Erfið eign án bílskúrs Eyðsla: 206 vattstundir/km Hestöfl: 416 Gírar/þrep: Sjálfskiptur, einþrepa Drif: 9,73:1 afturhjóladrifinn Árekstrarpróf: 5 stjörnu NHTSA Verð: Frá 11.860.000 Umboðsaðili: Even hf. Mælaborð Breytir um ham eftir því hvort hann er í akstri. Snertiskjár Hægt er að stilla ýmsa eiginleika bílsins af snertiskjánum og nota Google Maps. Húddgeymsla 150 lítra geymsla í húddinu. Barnasæti í skotti Hægt er að opna 2 barnasæti í skotti í stað farangursrýmis. Ökumannssæti Sæti og stýri eru stillan- leg og hægt að vista stillingar. GeimflauG á hjólum Glæsilegur lúxusbíll Ekkert við Model S minnir á rafmagnsbíl. MynDir: SiGtryGGUr Ari Kafbáturinn seldur Lotus Espirit­bifreið James Bond sem búinn var þeim eigin­ leikum að vera einnig kafbátur var seld í vikunni á uppboði í London. Bifreiðin sem notuð var í myndinni The Spy Who Loved Me fór á sem svarar til ríflega 105 milljóna íslenskra króna en er þó ekki raunverulega útbúinn til köfunar. Bifreiðinni var breytt fyrir tökur á James Bond og eftir þær breytingar er í raun og veru ekki heldur hægt að aka um götur og er þetta verð því einkar hátt. Hér er fyrst og fremst um safngrip að ræða og sýnir verðið einnig hvað hlutir tengdir fræg­ um myndum geta farið á mikinn pening í dag. Porsche 911 50 ára Einn frægasti sportbíll bíla­ sögunnar fagnar fimmtíu ára af­ mæli um þessar mundir. Porsche 911 var fyrst kynntur til sögunnar árið 1963 og hefur verið fáanleg­ ur síðan með miklum breyting­ um í gegnum tíðina en hefur alltaf haldið nafni sínu og útliti sem allir þekkja. Gæði þessara bíla þekkja líka allir bílaáhuga­ menn og til marks um það eru um 70% allra 911 Porsche bíla sem smíðaðir hafa verið enn á götunni og er það met sem fáir bílaframleiðendur geta státað sig af. Umboðsaðili Porsche á Íslandi, Bílabúð Benna, heldur upp á þennan áfanga þessa dag­ ana og er með flotta sýningu á 911­bílum í sýningarsal sínum. Hybrid Benz Með nýjasta útspili Mercedes Benz á E class­bílnum er hægt af fá þennan fallega bíl í fyrsta skiptið í hybrid­útgáfu. Bíll­ inn sem nú er kominn á mark­ að heitir E 300 Blue TEC Hybrid og er með fjögurra sýlindra dísil túrbó­mótor ásamt 20 KW rafmótor. Með þessum bún­ aði er eldsneytisnotkun bílsins aðeins 4,1 lítri á hundraðið og Mercedes­bíllinn er með einn léttasta rafmótorinn sem fyrir­ finnst í þessum útgáfum bíla í dag. Askja sem er umboðsað­ ili Mercedes Benz á Íslandi er komin með nýja E class­bílinn í sýningarsal sinn en hybrid­út­ gáfan hefur enn ekki verið pönt­ uð til landsins. Bílar 39Helgarblað 13.–15. september 2013

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.