Dagblaðið Vísir - DV - 13.09.2013, Side 46
46 Fólk 13.–15. september 2013 Helgarblað
Skiptir níu sinnum um gervi
n Ívar á sviði norska þjóðleikhússins
L
eikarinn Ívar Örn Sverris
on fer með fjölda hlutverka í
uppsetningu þjóðleikhússins
í Ósló á Ronju ræningjadóttur
og má hafa sig allan við að vera
skjótur baksviðs. „Ég fer með ýmis
skemmtileg hlutverk í sýningunni.
Það er töluverð tónlist, söngur og
dans í sýningunni og ýmsar ævin
týraverur sem stíga á svið og gæða
skóginn hennar Ronju lífi. Ég skipti
um búning níu sinnum í sýn
ingunni sem er persónulegt met.
Ívar Örn hefur verið búsettur
í Noregi undanfarin ár en vakti
athygli hér heima í hlutverki sínu
sem Hamlet í uppfærslu Leikfélags
Akureyrar og sem Stígur í barna
þættinum Stundin okkar. Í Noregi
hefur hann fengið ýmis tækifæri
og er eftirsóttur vegna þess hve
fjölbreyttum hæfileikum hann er
gæddur. Ívar hefur þótt liðtækur
nútímaballettdansari og þá hefur
lagt stund á Capoeira og Parkour.
Á síðasta ári lék hann aðalhlutverk
í stuttmyndinni Tumult sem var til
nefnd til BAFTAverðlauna.
Nú nýtur hann náðar hjá norska
þjóðleikhúsinu og sýningin stefnir í
að verða vinsæl.
„Cecilie Mosli, sem er þekkt leik
kona hér í Noregi, er leikstjórinn og
er þetta hennar fyrsta leikstjórnar
verkefni við þjóðleikhúsið. Ég og
„breakarinn“ Chenno Tim erum
eins konar „team“ í uppsetningunni
og hoppum og skoppum um þegar
tækifæri gefst og framkvæmum
ýmis „stönt“. Það er töluvert vökva
tap á þessum tveimur tímum sem
sýningin stendur yfir og ég drekk
tvo lítra af vatni á meðan. Sýningin
hefur fengið glimrandi dóma í öll
um helstu fréttamiðlunum og salan
hefur tekið mikinn kipp.“ n
Mikið að gera Það er
nóg að gera hjá leikaran-
um Ívari Erni í uppfærslu
norska þjóðleikhússins á
Ronju ræningjadóttur.
Bjarni Ben
búinn að læra
að synda
Fjármálaráðherra Íslands, Bjarni
Benediktsson, fer ekki lengur um
á hundavaði því nýlega útskrif
aðist hann af skriðsundsnám
skeiði.
Ekki er vanþörf á að kunna
traust sundtök í brimsjó stjórn
málanna. Bjarni sagði frá áfang
anum á Facebooksíðu sinni. „Í
morgun útskrifaðist ég af skrið
sundsnámskeiðinu. Kemst nú
skammlaust á milli bakka og
finn framfarir í hvert skipti sem
ég fer. Hef haft mjög gaman af
kennslunni. Það opnar nýjan
heim að geta synt skriðsund sér
til ánægju. Um leið er sundið góð
líkamsrækt,“ segir Bjarni.
Þrjár myndir á
afmælisdaginn
Ómar Ragnarsson er þekktur fyrir
að höndla það vel að sinna fjöl
mörgum verkefnum í einu. Það
gerir hann svo sannarlega á Degi
íslenskrar náttúru, 16. september,
sem er jafnframt afmælisdag
ur hans. Daginn þann frumsýnir
hann þrjár kvikmyndir.
Kvikmyndirnar eru allar til sýn
ingar í Bíó Paradís. Um er að ræða
heimilda og fræðslumyndina
Akstur í óbyggðum (43 mín) sem
fjallar um hvernig best sé hægt að
njóta íslenskrar náttúru í akstri
um óbyggðir landsins án þess að
lenda í vandræðum og skemma
viðkvæmt land.
Þá verða frumsýnd tónlistar
myndböndin Íslandsljóð eftir
Ómar Ragnarsson og Reykjavíkur
ljóð eftir hann og Gunnar Þórðar
son.
Bubbi 17 ára
Tónlistarmaðurinn Bubbi
Morthens fagnaði sautján ára
edrú afmæli á miðvikudag. Bubbi
greindi frá þessu á Facebook
síðu sinni þar sem hann sagð
ist þakklátur fyrir hverja sekúndu
sem hann hefði náð að halda sér
án efna en hamingjuóskunum
hreinlega rigndi yfir Bubba þegar
hann tilkynnti þetta. Bubbi hefur
háð mikla baráttu við fíknina og
miðlað af reynslu sinni til ung
menna með því að fara í fram
haldsskóla landsins og fræða
nemendur um þessi málefni.
Spaugstofan verður
í stjórnarandstöðu
n Pálmi Gestsson segist myndarlegur eins og Bjarni Ben
L
eikarinn Pálmi Gestsson er
á þönum þegar blaðamaður
slær á þráðinn til hans. Hann
er að vanda með fjölmörg
verk efni á sinni könnu. Það er
frumsýningarhelgi, hann fer með eitt
aðalhlutverka í leikriti Braga Ólafs
sonar, Maður að mínu skapi, sem er
frumsýnt á laugardag.
„Ég er að leika stjórnmálamann.
Fyrrverandi ráðherra, sem sumir
vilja að meina að hafi verið svældur
úr ráðherraembætti. Ég hugsa að
einhverjir myndu nú segja að það
hafi verið góð ástæða fyrir því,“ segir
hann um hlutverk sitt.
Verður slegist um að leika
Óttarr Proppé
Pálmi er ekki óvanur því að bregða sér
í hlutverk stjórnmálamanna og þeir
félagar í Spaugstofunni snúa aftur á
skjáinn hjá Stöð 2 í vetur og að sjálf
sögðu búnir að máta sig í hlutverk
nýrra ráðherra ríkisstjórnarinnar.
„Við erum komnir í startholurnar
strákarnir. Ég hef af illri nauðsyn
þurft að leika Bjarna Benediktsson,
hann er talinn ákaflega myndarlegur
maður, svolítið eins og Ken hennar
Barbie. Ég veit ekki hvort það er um
auðugan garð að gresja í hópnum,
kannski ég sé myndarlegastur.“
Það verður Örn Árnason sem
leikur Sigmund Davíð. „Það er
kannski af því þeir eru ekkert ósvip
aður í laginu þótt litaraftið sé öðru
vísi.“
Þeir Spaugstofumenn hafa þurft
að kynna sér nýja þingmenn ríkis
stjórnar. Pálmi heldur að í því verði
ýmis freistandi tækifæri. „Það verður
slegist um að leika Óttarr Proppé og
Elínu Hirst. En allt eru þetta mikil og
freistandi tækifæri sem koma þarna
upp.“
Saknar Steingríms
Hermannssonar
Þeir sakna stjórnmálamanna sem þeir
hafa leikið í gegnum tíðina og hverfa
af vettvangi. „Já, það er alltaf þannig
að maður saknar þeirra sem hafa
horfið af sjónarsviðinu í pólitík og af
veraldarsviðinu. Mér fannst til dæm
is afskaplega gaman, án þess að ég
ætli að gera mikið upp á milli, að leika
góðmennið Steingrím Hermannsson.
Hann tók því alltaf svo vel og það fór
vel á með okkur Steingrími.“
Aldrei fallið styggðaryrði
Þeir félagar þreytast ekkert á sam
starfinu að sögn Pálma. „Það er nú
svo ótrúlegur andskoti hvað við
verðum lítið þreyttir hver á öðrum.
Ég held að í þau þrjátíu ár sem við
höfum þekkst þá hafi aldrei fallið
styggðarorð á milli okkar,“ segir Pálmi
og segist halda það vera óvenjulegt.
„Já, þrjátíu ár eru óvenjulega langur
líftími.“
Halda sínu striki
Hann segir þá í Spaugstofunni ekki
ætla að skorast undan því að veita
nýrri ríkisstjórn gott aðhald með
gríni og glensi.
„Ég held að það verði ekki nokkur
vafi á því að við höldum okkar striki
í því. Þessi þáttur er þess eðlis að
hann er til þess að spegla samfélag
ið og við teljum okkur skylt að gera
það. Þetta er flokksópólitískur hópur
og okkur finnst skylt að vera í stjórn
arandstöðu hverju sinni.“
Konan tekur slátur í síðkjól
Pálmi er vel kvæntur Sigurlaugu
Halldórsdóttur. „Við erum alltaf að
rifja það upp hvað við erum búin að
vera gift lengi. Ég held að við séum
búin að vera gift í ellefu ár en erum
búin að vera saman í bráðum 20 ár.“
Sigurlaug er þekkt fyrir auð
uga kímnigáfu sína og Facebook
stöðufærslur hennar þykja prýðis
skemmtun. Í þeim auglýsir hún eft
ir hvítum sundmeyjarbúning eða
biður um sundfélaga í kvöldsund til
Viðeyjar.
„Hún er mikill húmoristi og
lýgur öllu á Facebook,“ segir Pálmi
og hlær og segir af henni óborgan
legar sögur úr sláturtíð sem nú nálg
ast. „Hún kallaði einu sinni allar til,
vinkonur sínar til að taka slátur. Þá
voru þær allar á síðkjólum og há
hæluðum skóm,“ segir hann frá. „Og
einu sinni á ári hittast þær, enn og
aftur á síðkjólum, skemmta sér og
fara svo í sundballett. Þetta er allt
orðið frægt að endemum.“
Þau fjörugu hjón eiga tvö heim
ili og eru með annan fótinn í Bol
ungarvík. En þau réðust saman í það
stórvirki að gera upp gamla hús
ið sem Pálmi fæddist í. Hjari kall
ast heimili þeirra í Bolungarvík og
er bæjarprýðin en á sínum tíma var
húsið dæmt til niðurrifs.
„Það hefur verið okkar hjartans
áhugamál að hlúa að þessu húsi og
þetta er okkur dýrmætt tilfinninga
lega,“ segir Pálmi sæll og glaður. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Ill nauðsyn Pálmi segist leika
Bjarna Ben af illri nauðsyn en ekki
sé um auðugan garð að gresja
þegar kemur að ytri fegurð í
hópnum.
Mynd HAlldÓr SVeInbjörnSSon.