Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Side 9
Fréttir 9Miðvikudagur 16. október 2013
Landsmönnum
fjölgar lítillega
Í lok þriðja ársfjórðungs þessa árs
bjuggu 325.010 manns á Íslandi.
Þetta voru 163 þúsund karlar og
162.010 konur. Landsmönnum
fjölgaði um 1.200 á ársfjórðungn
um. Þetta kemur fram í tölum sem
Hagstofa Íslands birti á þriðjudag.
Erlendir ríkisborgarar búsettir hér
á landi voru 22.760. Á höfuðborgar
svæðinu bjuggu 208.210 manns.
Í tölunum kemur fram að á
þriðja ársfjórðungi þessa árs hafi
fæðst 1.130 börn, en 530 einstak
lingar látist. Á sama tíma fluttust
620 einstaklingar til landsins um
fram brottflutta. Brottfluttir einstak
lingar með íslenskt ríkisfang voru
170 umfram aðflutta, en aðflutt
ir erlendir ríkisborgarar voru
790 fleiri en þeir sem fluttust frá
landinu. Fleiri konur en karlar flutt
ust frá landinu.
Danmörk var helsti áfangastað
ur brottfluttra íslenskra ríkisborgara
en þangað fluttust 420 manns á
þriðja ársfjórðungi. Til Danmerkur,
Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.080
íslenskir ríkisborgarar af 1.370 alls.
Af þeim 540 erlendu ríkisborgurum
sem fluttust frá landinu fóru flestir
til Póllands, 100 manns.
Flestir aðfluttir íslenskir ríkis
borgarar komu frá Danmörku
(380), Noregi (230) og Svíþjóð
(230), samtals 830 manns af 1.200.
Pólland var upprunaland flestra
erlendra ríkisborgara en þaðan
fluttust 400 til landsins af alls 1.330
erlendum innflytjendum. Þýska
land var næst í röðinni, en þaðan
fluttust 110 erlendir ríkisborgarar
til landsins.
Allt fjarlægt
úr húsinu
Lögreglan á Suðurnesjum var
nýverið kvödd að íbúðarhúsi í
umdæminu, sem búið var að
fjarlægja nær allan húsbúnað
úr. Í tilkynningu frá lögreglunni
á Suðurnesjum kemur fram að
Íbúðalánasjóður hafi eignast
húsið fyrir skömmu og feng
ið að því lykla í síðustu viku,
þegar íbúar þess yfirgáfu það.
Búið var að fjarlægja nær alla
skápa úr húsinu, helluborð, háf,
ísskáp, bakaraofn úr eldhúsi,
blöndunartæki af baði, úr eld
húsi og vaskahúsi, allar skápa
höldur, auk bílskúrsopnara. Að
auki var búið að fjarlægja fimm
hurðir úr húsnæðinu.
Lögregla hefur haft upp á
flestum mununum og er málið í
rannsókn.
Borgin veitir
neyðaraðstoð
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
samþykkt samhljóða að veita
sem svarar 100 krónum á hvert
barn í Reykjavík til hjálparstarfs
vegna yfirstandandi stríðsá
stands í Sýrlandi.
UNICEF á Íslandi er falið
að ráðstafa fénu frá Reykja
víkurborg. Tillagan kom upp
haflega frá Vinstri grænum
en Sóley Tómasdóttir borgar
fulltrúi flokksins hvatti önnur
sveitarfélög til að fara að dæmi
Reykjavíkurborgar.
Þ
ó þetta sé ömurlegt þá er
þetta tækifæri sem þarf að
nota til að breyta því hugar
fari hjá ríki og borg að þetta
eru ekki aumingjar heldur
er þetta fólk af holdi og blóði eins
og þú og ég. Fólk með væntingar og
vonir fyrir lífið sem urðu að engu
og enda á Klambratúni. Það er öm
urlegt,“ segir Ólafur Ólafsson, ann
ar forsvarsmanna áfangaheimilisins
Draumasetrið.
DV greindi frá því síðastliðinn
föstudag að utangarðsmaður hefði
fundist látinn á Klambratúni. Maður
inn, Letti um fertugt, hét Horst Gorda.
Þó ekki sé einsdæmi að útigangs
menn láti lífið í Reykjavík þá er mál
Horst frábrugðið að því leytinu til að
Horst fæddist sem kona og var í kyn
leiðréttingarferli samkvæmt heimild
um DV. Meðal annars vegna þeirrar
staðreyndar var staða Horst jafnvel
enn verri fyrir vikið í löskuðu kerfi þar
sem úrræðaleysi þykir vandamál.
Ólafur, sem er bundinn trúnaði við
sína skjólstæðinga, þekkti ágætlega
til Horst sem hafði búið hjá honum í
Draumasetrinu við Héðinsgötu sem
er áfangaheimili fyrir fólk sem villst
hefur af leið í viðjum fíknarinnar.
Hann þoldi þetta ekki
Samkvæmt upplýsingum DV frá þeim
sem til þekktu hafði Horst verið lengi
í kynleiðréttingarferlinu. Hann hafði
mætt miklu úrræðaleysi í sínum mál
um og féll eiginlega milli skips og
bryggju sem heimilislaus transmaður
með fíknivanda. Þetta erfiða ferli hafi
haft miklar afleiðingar í baráttu hans
fyrir því að eignast líf og þak yfir höf
uðið. Það fólk sem reyndi að hjálpa
honum þurfti til að mynda að krefja
hann skilríkja. Það gat reynst honum
þungbært að framvísa þeim því á
þeim kom fram að hann væri kona.
Hann kom því oft að lokuðum dyrum
í kerfinu sökum þess að hann leit út
eins og karlmaður.
En Ólafur minnist hins þjakaða
Horst af hlýhug
„Þetta var yndislegur strákur en
bara rosalega einmana. Hann ætlaði
að verða edrú og eignast fallegt líf en
það fór eins og það fór. Hann var alltaf
fullur af von þegar hann kom hingað
aftur og aftur. Hann var auðvitað mitt
á milli í kerfinu og vissi náttúrulega
ekkert hvar hann stóð.“
Samkvæmt upplýsingum DV var
Horst mikill fíkill sem að sögn þeirra
sem til þekktu notaði vímuefni til að
deyfa sig. Hann hafi verið því sem
næst fastagestur á gjörgæsludeild
eftir að hafa tekið of stóra skammta.
Þessi neysla hans ofan á kynleið
réttinguna og því sem henni fylgdi,
var því oft erfið blanda.
„Hann kom að lokuðum dyrum
út af sínum málum hvar sem hann
steig niður fæti. Hann var náttúru
lega gríðarlegur fíkill. Og út af hverju
var hann að deyfa sig svona fram í
dauðann? Hann þoldi ekki álagið sem
á honum var og var tilfinningalega
hruninn,“ segir Ólafur.
Óttaðist að endirinn væri nærri
Ólafur kveðst hafa síðast rætt við
Horst tæpri viku áður en hann lést.
Þá hafi verið þungt í honum hljóðið.
„Hann sagði við mig: „Þetta endar allt
á einn veg ef ég fæ ekki hjálpina núna.
Þá er ég bara farinn“,“ rifjar Ólafur
upp. Hann segir Horst hafa búið á
Draumasetrinu skömmu áður en
hann lést. Menn þurfa hins vegar að
fara út þegar þeir fara í neyslu en Ólaf
ur hafði leyft honum að koma aftur.
„Við fleygjum engum út þrátt fyr
ir að eftirspurnin sé mikil. Við höfum
gefið fólki séns á að fá hjálp og afeitra
sig í minnst tíu daga og þá eru þeir vel
komnir að koma í sitt gamla herbergi.
Ég gæti auðveldlega fleygt mönnum
út og tekið aðra inn en ef þetta verður
þannig, eins og eitthvert færiband, þá
á maður að hætta í þessu.“
Hvað Horst varðar hafi hann fund
ið að allar götur væru honum lokaðar
þegar út var komið.
„Svo hafði hann engan samastað
og fór í algjört „blackout“ í allri neyslu
og hafði alltaf gert og endaði bara ým
ist á gjörgæsludeild eða bara einhvers
staðar úti, eins og gerðist í þessu til
felli,“ segir Ólafur.
Fimm látist á viku
Ólafur bendir á að mál Horst sé ekki
einsdæmi og segir fimm utangarðs
menn hafa látist á síðastliðinni viku.
„Þetta er miklu alvarlegra en fólk
gerir sér í hugarlund.“ Tveir ungir
menn hafi fyrirfarið sér í síðustu
viku og þrír aðrir hafi látist sökum
ofneyslu fíkniefna. Og þetta hafi ekki
bara gerst í Reykjavík.
„Þetta er úti um allt. Það má bara
ekkert tala um þetta. Tölfræðin segir
að það séu tveir á dag sem eru að
reyna sjálfsvíg með einum eða öðr
um hætti, á Íslandi 2013. Það er alveg
ömur legt. Og að fólk verði bara úti
eins og Horst. Hann dó úr vonleysi og
afskiptaleysi.“
Árangur í málum sem þessum
er að mati Ólafs óásættanlegur og
dauðsföll síðustu viku séu aðeins
toppurinn á ísjakanum. „Þetta er að
gerast í hverri einustu viku að fólk er
að fara vegna fíkniefna og áfengis.“
Á mánudagskvöld segir Ólaf
ur að 180 manns hafi sótt samveru
hjá honum þar sem hinna látnu var
minnst.
Á að veita fólki hjálp
Hvað úrræðaleysi í málaflokki utan
garðsfólks varðar þá hefur oft ver
ið bent á Gistiskýlið í Þingholtsstræti
sem fyrir löngu er sprungið sökum
eftirspurnar. Ólafur segir að Drauma
setrið sé að taka inn allt að 40 manns
sem hvergi hafa höfði sínu að halla en
fái ekki krónu, hvorki frá ríki né borg.
„Það er eins og þeir vilji helst ekkert af
okkur vita. Þetta er auðvitað bara af
skiptaleysi og við sem þjóðfélag erum
orðin svo blind á þetta. Við tölum um
fórnarkostnað á mannslífum, sem er
ömurlegt að tíðkist í dag. Það á ekki að
vera neinn fórnarkostnaður í þessu.
Það á bara að veita fólki hjálp.“
Ólafur hefur oft vitnað í stefnu
Besta flokksins í málefnum úti
gangsfólks sem var „Allskonar fyrir
aumingja“ í aðdraganda sveitar
stjórnarkosninga. „Það er lýsandi
dæmi hvernig borgin lítur á þennan
málaflokk.“ n
n Útigangsmaður í kynleiðréttingarferli fannst látinn á Klambratúni
Á endastöð á Klambratúni
Horst Gorda fannst látinn á Klambra-
túni þann 11. október eftir erfiða lífs-
baráttu þar sem hann glímdi meðal
annars við mikinn fíknivanda.
Mynd sigtryggur ari
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
„Þetta var yndis-
legur strákur en
bara rosalega einmana.
Ömurleg örlög útigangsfólks
Ólafur Ólafsson þekkir, sem forsvarsmaður
Draumasetursins, vel til þeirra sem glíma
við fíknivanda og geðræn vandkvæði á
götunni. Mynd sigtryggur ari
„Dó úr vonleysi
og afskiptaleysi“
sKjÁsKot aF wayn.coM