Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Blaðsíða 23
Fólk 23Miðvikudagur 16. október 2013
Ásgeir slær í gegn erlendis
E
yþór Ingi Gunnlaugsson, fulltrúi
Íslands í Eurovision-keppninni
síðastliðið vor, er eitt af andlitum
ADHD-samtakanna í vitundar-
átaki sem nú stendur yfir. Eyþór segist
hafa greinst ungur að aldri með athygl-
isbrest og lesblindu. „Pabbi var sjó-
maður og mamma heimavinnandi.
Henni var ráðlagt að setja mig á lyf en
hún vildi það ekki og í staðinn ákvað
hún að fara með mér í skólann sem var
svolítið sérstakt. Hún mætti í tíma til að
athuga hvort að ég væri ekki örugglega
að halda mig við efnið,“ segir Eyþór Ingi
sem segist hafa verið mikill sveimhugi.
Óvirkur en ekki ofvirkur
„Ég átti mjög erfitt með að einbeita
mér að efninu. Það var alveg nóg ef
einhver missti pennaveski í gólfið, þá
fór ég að spá í það frekar og gleymdi
því að ég væri að reikna. Þótt að ég
hefði raunverulegan áhuga á því sem
ég var að gera var nóg að heyra skell
einhvers staðar og þá var athyglin
farin,“ segir Eyþór sem segist þó ekki
þjást af ofvirkni. „Oft fylgir athyglis-
brestinum ofvirkni og kallast þá
ADHD. Ég var ekki þannig. Það má
eiginlega frekar segja að ég hafi verið
óvirkur. Ég var hægur og utan við
mig. Ég held einmitt að ég hafi getað
setið kyrr endalaust sönglandi eitt-
hvað eða bara að leika mér með blý-
antinn. Stundum fór ég með leikþætti
úr Heilsubælinu fyrir þá sem sátu við
hliðina á mér.“
Ofureinbeiting
Eyþór Ingi segir athyglisbrestinn
stundum vera til vandræða en hon-
um fylgi einnig ýmsir kostir. „Ég lendi
alveg í svona sóni þegar ég er að
semja tónlistarefni hérna heima. Þá
gleymi ég umhverfinu í kringum mig
og upplifi alveg súperfókus. Ég held
að það þurfi sérstakt umhverfi til að
geta beitt þannig einbeitingu. Að sitja
í skóla með 20 krökkum sem eru allir
að blaðra og hávaði mikill … ég gæti
aldrei sest niður og byrjað að semja
músík í þannig umhverfi. Aðstæðurn-
ar skipta máli.
Gleymdi jakkafötum á biðskyldu
„Einu sinni var ég að spila í Akur-
eyrarkirkju og var nýbúin að fjárfesta
í nýjum jakkafötum sem ég var með í
poka. Ég hélt á pokanum og var með
gítarinn í hinni þar sem ég beið fyr-
ir utan kirkjuna. Þá hringdi allt í einu
síminn og það varð bara of mikið í
einu fyrir mann með athyglisbrest.
Þannig að ég lagði frá mér gítarinn og
ákvað að hengja pokann með jakka-
fötunum upp á biðskylduskilti svo að
ég gæti svarað símanum. Svo talaði
ég aðeins í símann þangað til að bíll-
inn kom að sækja mig. Ég skellti á,
tók upp gítarinn og settist inn í bíl og
keyrði í burtu. Nokkrum klukkutím-
um síðar áttaði ég mig á því, þegar að
ég átti að fara í næsta gigg, að ég var
ekki með allt með mér. Það var ekki
fræðilegur möguleiki að muna hvað
ég hafði gert við jakkafötin. Þannig að
ég fékk félaga minn til þess að rúnta
með mér um allan bæinn að leita.
Svo fann ég þau fjórum klukkustund-
um síðar, hangandi á biðskyldunni.“
Tvær plötur framundan
Eyþór Ingi vinnur nú að því að leggja
lokahönd á fyrstu breiðskífu sína sem
von er á í nóvember og mun bera
heitið Eyþór Ingi og atómskáldin. Svo
er ég að vinna að nýrri plötu með
Todmobile í tilefni af 25 ára af-
mæli hljómsveitarinnar,“ segir
Eyþór Ingi sem gekk til liðs við
hljómsveitina árið 2010 og kom
fram á plötunni Sjö. „Þetta er
hljómsveit sem er jafn gömul og
ég,“ segir Eyþór Ingi í léttum dúr
að lokum. n
n Gleymdi nýju jakkafötunum hangandi á biðskylduskilti
n Í hópi tíu handhafa Ebba-verðlaunanna
T
ónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti
hefur freistað gæfunnar á er-
lendri grundu og staðið sig vel.
Það má meðal annars sjá á því
að hann hefur verið valinn í hóp tíu
handhafa Ebba-verðlaunanna sem
veitt verða við hátíðlega athöfn í Gron-
ingen í Hollandi þann 15. janúar á
næsta ári. Verðlaunin eru veitt því tón-
listarfólki sem þykir hafa náð fram-
úrskarandi árangri með tónlist sinni út
yfir landamæri heimalands síns.
Kynnirinn á afhendingunni verð-
ur enginn annar er hinn virti breski
sjónvarpsmaður Jools Holland.
Sigurvegararnir eru valdir annars
vegar af markaðsgreiningarfyrirtæk-
inu Nielsen Music Control á grund-
velli tónlistarsölu og útvarpsspilunar.
Hins vegar er valið byggt á atkvæða-
greiðslu innan Samtaka evrópskra
útvarpsstöðva og tengslanets
evrópskra tónlistarhátíða.
Verðlaunin eru nú veitt í ellefta
sinn og er þetta einungis í annað
sinn sem íslensku tónlistarfólki
hlotnast þessi heiður en í fyrra hlaut
hljómsveitin Of Monsters and Men
verðlaunin. Á meðal annarra sem
hafa hlotið þessi verðlaun síðastliðin
ár eru stór nöfn eins og Adele, Lykke
Li, Mumford & Sons, Damien Rice,
C2C og Katie Melua. Ásgeir er því svo
sannarlega kominn í hóp hæfileika-
ríkra tónlistarmanna.
Auk þess að koma fram á verð-
launahátíðinni hefur Ásgeiri, sem
sleppir Trausta nafninu erlendis, verið
boðið að taka þátt í Eurosonic-tónlist-
arhátíðinni í annað sinn. n
Fær Ebba-verðlaunin Kominn í hóp tónlistarfólks á borð við Of Monsters and Men,
Adele, Lykke Li, Mumford & Sons og Damien Rice.
Ævintýraleg útrás
Ragnar Bragason, leikstjóri Málm-
haus, og aðalleikkona myndar-
innar, Þorbjörg Helga Þorgilsdótt-
ir, hafa í ótalmörgu að snúast því
myndin er í útrás eftir að hafa vak-
ið verðskuldaða athygli á Toronto
International Film Festival.
Útrásin er ævintýraleg en bæði
Ragnar og Þorbjörg skrifuðu und-
ir samning við APA-umboðsskrif-
stofuna í Bandaríkjunum sem eru
til dæmis með Gary Oldman inn-
an sinna vébanda. Ragnar er ný-
komin heim frá Kóreu og nú kom-
in til Brasilíu.
„Ævintýrið kringum Málmhaus
heldur áfram. Raggi er út í Brasilíu
að kynna Suður-Ameríku fyrir
Heru, næst er það svo Þýskaland
og þá fæ ég að fara með líka,“ segir
Þorbjörg full tilhlökkunar.
Áritar bók
með Mankell
Íslenskir glæpasagnahöfundar
eru á leiðinni til Parísar að kynna
bækur sínar í næsta mánuði. Óttar
Martin Norðfjörð er meðal þeirra
og fannst skrýtið að heyra að hann
muni árita bækur með glæpa-
sagnameistaranum Henning
Mankell.
„Í næsta mánuði mun ég árita
bækur í franskri bókabúð ásamt
Henning Mankell. Það verður
skrítið,“ segir Óttar á Facebook
og er í kjölfarið ráðlagt af vinum
sínum að spyrja hann um ýmsar
óleystar ráðgátur sænsks samfélag,
svo sem hver myrti Olaf Palme.
Hermann
og David á
galeiðunni
Góðvinirnir Hermann Hreiðars-
son og David James eru nærri því
óaðskiljanlegir og sjást oft saman
úti á galeiðunni. Þeir skemmtu
sér vel í miðborginni síðasta
sunnudag og stóð gleðin langt
fram á nótt. Hermann er eins
og mörgum er kunnugt hættur
störfum sem þjálfari karlaliðs
ÍBV í knattspyrnu og hefur ekki
gefið upp annað en
að ástæður brott-
hvarfsins séu
persónulegar.
Fyrr á árinu var
Hermann í fréttum
vegna áforma hans
og föður hans
um að reisa
tíu hótel
hér á landi
fyrir sex
milljarða
króna.
Eyþór Ingi vinnur
nú að því að leggja
lokahönd á fyrstu
breiðskífu sína sem
von er á í nóvem-
ber og mun bera
heitið Eyþór Ingi og
atómskáldin. Mynd
sIGTryGGur arIÓvirkur en
ekki ofvirkur
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
„Ég var
hægur
og utan við mig