Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Síða 11
É g vonaði að börnin mín myndu sjá mér farborða, en þau gerðu það ekki. Ég hafði því ekki um neitt annað að velja en koma hingað,“ segir Shakti Dasi, 65 ára ekkja í Indlandi. Dasi er búsett í bænum Vrindavan sem er 150 kíló- metra norðaustur af Delhi. Vrinda- van er einna þekktastur fyrir að vera aðsetur tilkomumikils hindúahofs, en bærinn er einnig þekktur undir nafninu borg ekknanna. Ekki um annað að velja Flestir sem setjast að í bænum gera það vegna trúar sinnar, aðrir koma þangað vegna þess að þeir hafa ekki um neitt annað að velja og enn aðr- ir eru skildir eftir í bænum af fjöl- skyldumeðlimum sem vilja ekki lengur greiða fyrir uppihald þeirra. Nánast allir í þessum hópi eru kon- ur, ekkjur sem hafa misst eigin- menn sína. Shakti Dasi er í þessum hópi en hún kom til Vrindavan fyrir átta árum þegar eiginmaður hennar lést. Börn hennar höfðu lítið á milli handanna og töldu ófært að greiða fyrir uppihald hennar. Bláfátæk sá hún sér þann kost vænstan að flytja til Vrindavan. 40 milljón ekkjur Talið er að á Indlandi séu að minnsta kosti 40 milljón ekkjur, eða um 10 prósent allra kvenna á Indlandi. Konur sem komnar eru á efri ár eru berskjaldaðri en karlar og fá til að mynda afar takmarkaðar bætur frá indverska ríkinu. Góðgerðasamtök í Vrindavan, Maitri að nafni, hafa þó gert þessum konum kleift að setjast að í bænum þar sem þær geta lifað sómasamlegu lífi. 600 krónur í bætur „Á Indlandi er í raun og veru ekk- ert til sem heitir félagslegt velferðar- kerfi,“ segir Winnie Singh, stofnandi Maitri-góðgerðasamtakanna, í sam- tali við breska ríkisútvarpið, BBC. Allar ekkjur sem eru 60 ára eða eldri eiga rétt á bótum frá ríkinu. Þær hrökkva skammt enda er upphæðin aðeins 300 rúpíur á mánuði, eða rétt rúmar 600 krónur. Margar þessara kvenna eru ólæsar og óskrifandi og eiga ekki einu bankareikning og því sjá þær aldrei þessa smánarlegu upphæð sem þær fá í bætur. „Hvern- ig á fólk að geta lifað á 300 rúpíum á mánuði,“ segir Singh. „Hvernig eiga þær að geta leigt sér herbergi eða keypt sér mat,“ segir hún og bend- ir á að jafnvel þótt þær fái vottun þess efnis að þær séu undir fátækt- armörkum fái þær ekkert gefins og þurfi eftir sem áður að greiða fyrir mat. Það er einmitt af þessum sökum sem margar ekkjur leita til Vrinda- van, þær hafa ekkert annað og fjöl- skyldur þeirra hafa snúið baki við þeim. Þjóðin eldist hratt Í umfjöllun BBC kemur fram að Ind- land sé enn sem komið er tiltölu- lega ungt land. Aldraðir eru aðeins níu prósent af heildaríbúafjölda Indlands. Blikur eru þó á lofti og er indverska þjóðin að eldast nokkuð örugglega. Samkvæmt Sameinuðu þjóðunum gæti fjöldi aldraðra, eftirlaunaþega í skilningi laganna, þrefaldast og verða 300 milljón- ir á næstu 40 árum. Af þessum sök- um hafa margir áhyggjur af því hvað verði um eldra fólkið á Indlandi og hvort ríkið muni standa undir því að halda þessu fólki uppi. Margir, eins og Shakti Dasi, verða að treysta á góðgerðasamtök eins og Maitri, en í dag eru 500 ekkj- ur á snærum samtakanna. Þar fá ekkjurnar eina heita máltíð á dag og fá auk þess ókeypis heilbrigðisþjón- ustu og ókeypis lyf. n Fréttir 11Miðvikudagur 16. október 2013 Látinn, en samt ekki n Lét sig hverfa og var úrskurðaður látinn Þ ó svo að hinn 61 árs Donald Eugene Miller Jr. sé jafn lifandi og þú er hann löngu dáinn – í lagalegum skilningi að minnsta kosti. Donald, sem er Bandaríkjamað- ur, hvarf sporlaust árið 1986 og var úr- skurðaður látinn árið 1994. Ítrekaðar tilraunir hans fyrir bandarískum dómstólum til að fá þessu breytt hafa ekki borið árangur. Í síðustu viku fór enn ein tilraunin út um þúfur þegar bandarískur dómstóll hafnaði beiðni hans um að fá skráningunni breytt. Þegar Miller missti vinnuna árið 1986 missti hann tökin á lífi sínu og hóf að drekka ótæpilega. Svo fór að hann lét sig hverfa og ferðaðist á milli staða í nokkur ár. Hann bjó meðal annars í Atlanta og Flórída þar sem hann tók að sér verkefni gegn greiðslu. Það var svo ekki fyrr en árið 2005 að Donald hafði samband við ættingja sína og voru það foreldrar hans sem færðu honum þau tíðindi að sam- kvæmt lagalegum skilningi væri hann látinn. Var það fyrrverandi eiginkona hans sem fór fram á að hann yrði úr- skurðaður látinn svo hægt væri að greiða tveimur börnum þeirra dánar- bætur. Á þeim tíma skuldaði Donald svimandi háar fjárhæðir í meðlög. Donald getur enn áfrýjað dómi dómstólsins í Hancock-sýslu í Flórída og vonast hann til þess að fá dánarúr- skurðinum snúið við. Lögum sam- kvæmt mega ekki líða meira en þrjú ár frá því að einstaklingur er úrskurðað- ur látinn þar til úrskurðinum er breytt. „Þannig standa málin og þú ert enn látinn í skilningi laganna,“ sagði dóm- arinn, Allan Davis, þegar hann hafn- aði beiðni Donalds. n einar@dv.is n Ayman al-Zawahiri verstur samkvæmt CNN n Þeir bera ábyrgð á dauða þúsunda Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Borg ekknanna n Fjölskyldurnar snéru baki við þeim n Fá 600 krónur í bætur á mánuði Búa frítt Í Vrindavan fá ekkjur heitan mat og þak yfir höfuðið. Lélegt kerfi Winnie Singh er stofnandi Maitri-samtakanna. Hún segir að það sé ómögulegt að lifa á 300 rúpíum á mánuði. í barnaafmælið Bjóðum einnig upp á eggjalausar tertur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.