Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2013, Side 13
Sjón er sögu ríkariGet unnið með öllum Þetta eru bara glæpamenn Tolli Morthens hannar Cintamani-úlpur. – DVÞorbjörg Helga Vigfúsdóttir býður sig fram í borginni. – DVAnna Valdís Jónsdóttir gjaldþrota eftir að hafa hlustað á bankann. – DV Var ekki komið nóg af niðurskurði? Spurningin „Nei, því miður. Ef ég ætti pening.“ Birgitta Guðmundsdóttir 19 ára nemi „Já, að sjálfsögðu. Ég ætla m.a. að sjá Mac DeMarco og Apparat Organ Quartet.“ Birgir Sigurjón Birgisson 22 ára þjónn á Babalú „Nei, ég verð í Mexíkó.“ Snorri Ásmundsson 46 ára myndlistarmaður „Hátíðin er of „mainstream“ fyrir mig í ár. Ég verð samt „back-up“- dansari á Lord Pusswhip-tónleik- unum.“ Marteinn Hjartarson 21 árs tónlistarmaður „Nei, tími því ekki.“ Grétar Guðmundur Sæmundsson 18 ára nemi Ætlar þú á Iceland Airwaves tónleikahátíðina? 1 Líf hennar varð að martröð eftir að nauðgunarmál var fellt niður Samfélagið snérist gegn fjölskyldu stúlkunnar sem býr í Bandaríkjunum. 2 Offitusjúklingur gerðist einkaþjálfari Mike Waudby missti 114 kíló á einu og hálfu ári. 3 Blokk byggð á röngum stað Byggingin var reist við Hrólfsskálamel á Seltjarnarnesi. 4 Burðardýr í Málinu: „Með ecstacy í leggöngunum“ Sölvi Tryggvason fjallaði um burðardýr og fíkniefnasmygl í Málinu á þriðju- dagskvöld. 5 Ólympíusilfur frá Peking 2008 til sölu Safnaramiðstöðin fékk silfrið í umboðssölu frá einum af strákunum okkar. 6 „Þú ert sannarlega stórkost-legur leikari“ Anthony Hopkins er hrifinn af Bryan Cranston í þáttunum Breaking Bad. Mest lesið á DV.is F átt kom mér eins á óvart við fjárlagafrumvarp nýrrar ríkis­ stjórnar og sú staðreynd að hefja ætti að nýju niðurskurð í heilbrigðis kerfinu eftir árs hlé. Það virðist skoðun ríkisstjórnar Fram­ sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að þessi málaflokkur beri meiri niður­ skurð. Í ljós kom í fjárlagafrumvarpi að forgangsröðun nýrrar ríkisstjórn­ ar væri meiri niðurskurður og aukin gjöld á sjúklinga. Niðurskurði fjárveitinga til heil­ brigðismála hætt fyrir ári. Strax haustið 2012 var ljóst að ekki yrði gengið lengra í niðurskurði á heilbrigðisstofnunum og því ákveðið að þær yrðu undanþegnar öllum niðurskurði árið 2013. Í framhaldinu var raunar ákveðið að bæta við um­ talsverðum fjárhæðum til heilbrigðis­ mála. Verkefnin voru næg og nokkur þeirra nefnd hér. Brýnt að endurnýja tækjakost. Í fjárlögum fyrir árið 2013 var bætt 600 m.kr. í tækjakaup á Landspítala (LSH) og 50 m.kr. á Fjórðungssjúkra­ húsið á Akureyri (FSA). LSH hafði þannig tæpar 900 m.kr. til tækja­ kaupa á þessu ári í samræmi við tækja­ og búnaðarlista sem spít­ alinn lagði fram. Reiknað var með að upphæð til tækjakaupa þyrfti að vera 1.000 m.kr. á ári næstu 3 árin. Þessar fjárveitingar falla út í fjárlög­ um 2104. Húsakostur heilbrigðisstofnana þarfnast endurnýjunar Fyrrverandi ríkisstjórn lagði áherslu á að tryggja að endur­ og nýbygging Landspítalans hæfist sem allra fyrst og að allar áætlanir miðuðust við að færa starfsemina sem mest á einn stað. Þá voru ákveðnar endur­ byggingar í Stykkishólmi og á Sel­ fossi. Allt þetta er slegið af í fjárlaga­ frumvarpinu. Bætt kjör heilbrigðis­ starfsmanna. Ríkið og Læknafélag Íslands gerðu kjarasamning árið 2011, sem leiddi til bættra kjara og umtalsverðs kostnað­ arauka fyrir ríkið, en meira þarf til. Aðrar heilbrigðisstéttir, þar sem konur voru í miklum meirihluta, höfðu setið eftir í launum og tekið á sig aukna vinnu og álag og kröfðust leiðréttingar. Í framhaldi af ákvörðun fyrri ríkis­ stjórnar að stíga myndarleg skref til að jafna kynbundinn launamun var í upphafi árs 2013 ákveðið að greiða 4,8% ofan á launaliði allra heilbrigðis stofnana ríkisins til að skapa svigrúm til að gera stofnana­ samning og bæta kjör þessara hópa. Fyrir lá að kostnaður af þessum samningum yrði 1,5–2 milljarðar króna á ári. Fjölga þarf hjúkrunarrýmum Fyrir lá að fjölga þyrfti hjúkrunar­ rýmum, einkum á höfuðborgarsvæð­ inu, svo þeir sjúklingar sem þyrftu á slíkum rýmum að halda gætu útskrif­ ast strax og meðhöndlun á sjúkrahúsi væri lokið. Við átak fyrrverandi ríkis­ stjórnar og sveitarfélaga til endur­ byggingar hjúkrunarheimila, þar sem einbýlum var fjölgað, fækkaði hjúkrunarrýmum nokkuð. Nokkur sveitarfélög sem höfðu samið um byggingu hjúkrunarheimila og fjölg­ un rýma seinkuðu sínum áformum. Því varð að leita annarra leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum. Fagna ber ákvörðun núverandi ríkisstjórnar að taka Vífilsstaði í notkun sem hjúkr­ unarheimili með 40–42 hjúkrunar­ rýmum og létta þannig á LSH. Nýjustu og bestu lyf Loks hefur ítrekað verið nefnt að ný sérhæfð lyf sem koma á markað væru ekki nógu fljótt tekin í notkun vegna fjárskorts. Í fjáraukalögum 2012 var u.þ.b. 800 m.kr. bætt við til lyfjakaupa og fjárveiting ársins 2013 hækkuð um svipaða upphæð. Þessi útgjaldaliður heyrir undir Sjúkratryggingar Íslands og sést því ekki í útgjaldaaukningu til sjúkrahúsanna. Þarna bætir ný ríkisstjórn enn við í fjárlögum 2014, svo vel ætti að vera séð fyrir útgjalda­ aukningu vegna þessara lyfja. Snúum vörn í sókn Heilbrigðiskerfið snýst ekki aðeins öfluga spítala eins og LSH og FSA. Þó niðurskurður hafi verið mildari hjá heilsugæslunni, þá má ekki gleyma henni. Margar heilbrigðisstofnanir landsins hafa sætt jafn miklum eða meiri niðurskurði en LSH og ljóst er að þar verður ekki lengra gengið. Það er því ótrúlegt að sjá að spara eigi um 300 m.kr. til viðbótar hjá þessum stofnunum á næsta ári, þvert á allar fyrri áætlanir og loforð. Þau sparnað­ aráform verða að ganga til baka. Það var nóg komið af niðurskurði fyrir ári og því enginn grundvöllur til að halda áfram niðurskurði. Eins og ítrekað hefur komið fram þá hefur ís­ lenska ríkið svigrúm til að bæta heil­ brigðiskerfið ef ríkisstjórnin og Al­ þingi afsala sér ekki tekjum. Verkefni Alþingis er að breyta forgangsröðun í fjárlagafrumvarpinu og tryggja 3,3– 3,5 milljarða króna aukningu til heil­ brigðismála í fjárlögum 2014. n Haustlitir Það hefur viðrað vel til hjólreiða í borginni síðustu daga og vikur. Haustið skartar sínu fegursta og umhverfið tekur á sig ýmsar myndir. MyNd Sigtryggur ariMyndin Kjallari Guðbjartur Hannesson þingmaður Samfylkingar Umræða 13Miðvikudagur 16. október 2013 „Þau sparnaðar- áform verða að ganga til baka. MyNd Sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.