Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Síða 2
2 Fréttir 8.–10. nóvember 2013 Helgarblað 1 matsk. safieða 1 hylki. F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i . Jafnvægi og vellíðan lifestream™ nature’s richest superfoods Ósátt við fangaverði 3 Ung kona segir farir sínar ekki slétt- ar af heimsókn á Litla-Hraun í síðustu viku. Í DV á mánu- dag sagðist hún hafa orðið fyrir því að karlkyns fangaverðir hafi ruðst inn á heimsóknarherbergi þar sem hún og maður hennar áttu saman inni- lega stund og voru fáklædd. Hún segist upplifa meinta innrás sem kynferðisbrot, hún hafi verið niður- lægð og þori ekki aftur í heimsókn. Konan, sem er á þrítugsaldri, sagð- ist enn fremur ætla að kæra málið til lögreglunnar. Leyndarmál Hannesar 2 Þrír milljarðar króna runnu sannarlega frá al- menningshlutafé- laginu FL Group og til eignarhalds- félagsins Fons í apríl 2005. Fons, fjárfestingarfélag Pálma Haralds- sonar, notaði peningana svo til að kaupa danska flugfélagið Sterling. Þetta herma heimildir DV sem greindi frá málinu á miðvikudag. Hannes Smárason, þáverandi stjórn- arformaður FL Group, hefur verið ákærður fyrir millifærslu fjárins af embætti sérstaks saksóknara. Með ákærunni er rúmlega átta gamalt leyndarmál loksins upplýst. Spilakassar auglýstir 1 „Þetta er bara hluti af því að skila sem mestum hagnaði aftur til eigenda, að sjálfsögðu snýst þetta alltaf um það,“ sagði Magnús Snæbjörnsson, framkvæmda- stjóri Íslandsspila, í mánudagsblaði DV spurður um ástæður þess að fyr- irtækið taki þátt í nýjum fjölskyldu- þætti, Vertu viss, á RÚV. Íslandsspil, sem rekur spilakassa í sjoppum og á vínveitingastöðum, er aðalstyrktar- aðili þáttarins en strangt til tekið er bannað að auglýsa fjárhættuspil á Íslandi. Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni „Þetta er hálfgerður sértrúarsöfnuður“ n Samtökin Heilsufrelsi Íslands vilja að fólk geti hafnað bólusetningu Þ etta er alveg hrikalegt dæmi, þetta er sprottið upp úr þeim sem eru á móti bólu- efnum. Þetta er hálfgerður sértrúarsöfnuður,“ segir Vil- hjálmur Ari Arason heimilislæknir í samtali við DV spurður um samtök- in Heilsufrelsi Íslands. Á dögunum fór fram kynningarfundur samtak- anna á Grand Hótel. Samtökin segj- ast berjast fyrir frelsi einstaklinga til geta valið að nota „náttúrulyf, fæðu- bótarefni, hómópatískar remedíur“ sem og önnur óhefðbundin og óvís- indaleg úrræði. Þetta kalla samtök- in „lyfjafrelsi“. Anna Katrín Ottesen sjúkraþjálfari er í hópi þeirra sem eru í forsvari fyrir samtökin. Í sam- tali við DV segist hún ekkert gefa út á þessa gagnrýni Vilhjálms Ara. „Stór- hættuleg? Nei, þetta eru nauðsynleg samtök. Maður spyr bara á móti: Af hverju eru allir þessir sjúkdómar? Af hverju hefur tíðni sumra sjúkdóma jafnvel aukist um fjögur hundruð prósent? Hvað er að gerast?“ spyr Anna Katrín. Vilja að hægt sé að hafna bólusetningu Mikið hefur verið rætt um meinta ókosti bólusetningar og bárust frétt- ir af því nýverið að stór hluti barna í Vestmannaeyjum væri ekki bólu- settur. Á heimasíðu samtakanna seg- ir að baráttumál sem sé í forgangi hjá þeim sé „bólusetningarfrelsi“. „Að allir hafi og upplifi frelsi til að velja og hafna lyfjainntöku og bólusetning- um án þess að slíkt hafi á neinn hátt í för með sér takmarkanir á mann- réttindum, s.s. skólagöngu og öðru eða þeim réttindum sem fylgja því að vera íslenskur þjóðfélagsþegn,“ segir á heimasíðunni. „Það eru skipt- ar skoðanir um bóluefni og meira að segja í samtökunum eru skiptar skoðanir. Það sem við viljum hvað varðar bóluefni eru upplýsingar. Ég er á móti svona óþarfa, ég stend al- veg á því. Mér finnst orðið svo mik- ið af bóluefnum, það er alltaf verið að bæta við bóluefnum. Þau virkar stundum bara í stuttan tíma, þau virka ekkert alla ævi, ég hef ekki trú á því,“ segir Anna Katrín. Vafasöm systursamtök Sérstakur gestur á kynningarfundi samtakanna síðastliðinn laugardag var Robert Vereker sem er stofn- andi sambærilegra samtaka í Bret- landi, Alliance for Natural Health. Anna Katrín segir að samtök sín, Heilsufrelsi Íslands, séu nú að ganga inn í þessi samtök. Bresku samtök- in eru þó frekar umdeild. Banda- ríska sjálfseignarstofnunin Quack- watch, sem segist standa vörð gegn húmbúkki og gervilækningum, segir samtökin vera ótraust. Á síðu Quack- watch segir að ein áróðurstækni skottuvísinda sé að tala um val- frelsi. Það segja þau ekki vera ann- að en tilraun til að draga úr eftirliti með hrossalækningum. Helstu bar- áttumál Alliance for Natural Health er að bæta aðgengi neytandans að fæðubótarefnum og óhefðbundnum lækningum, en þess má geta að helstu styrktaraðilar samtakanna eru fyrirtæki sem framleiða og selja fæðubótarefni. Vilja sporna við reglugerðum Anna Katrín segir hlutverk samtak- anna fyrst og fremst vera að upp- lýsa fólk og sporna við reglugerðum. „Eins og með jurtirnar, allt í einu á að fara að banna grasalækna sem eru búnir að læra þetta mann af manni – „Nú máttu ekki gefa fólki grasameðal lengur því þetta er bannað, það er ekki búið að sanna það“ – þá er spurning þegar búið er að sanna það, verður það þá ekki bara flokkað undir lyf?“ segir Anna Katrín. Aðspurð hvort það sé ekki besta mál að grasameðul sem hafi sannaða virkni séu flokkuð sem lyf segir hún: „Hverjir fara að nota þetta þá? Ef það er flokkað undir lyf þá mega grasalæknar ekki gefa það lengur. Af hverju þarf að vera einok- un á að lækna fólk?“ „Þessi hópur lifi aftur á öldum“ Vilhjálmur Ari segir hópa sem þessa vera á móti framþróun í bóluefnum að miklu leyti. „Hann segir alltaf að þarna sé einhver að græða á nýju lyfi og þá verður náttúrulega akkúrat engin framþróun, þá stöðnum við og missum og lyfin og meðferðirn- ar meira og meira frá okkur. Það er eins og þessi hópur lifi aftur í öldum en samt þakkaði fólk í þá daga fyrir þegar hægt var að eyða farsóttum. Það sem mér finnst vanta er hvað á að koma í staðinn? Ef þú ætlar alltaf að vera á móti öllu og þú notar ekki einu sinni vísindi þér til framdráttar heldur eitthvert hyggjuvit og trú þá sjáum við fram á svartar aldir,“ segir Vilhjálmur Ari. n Hjálmar Friðriksson blaðamaður skrifar hjalmar@dv.is Heimilislæknir Vilhjálmur Ari spyr þá sem eru á móti bólusetningu hvað eigi að koma í staðinn. Mynd Sigtryggur Ari Sjúkraþjálfari „Af hverju þarf að vera einokun á að lækna fólk?“ spyr Anna Katrín. Mynd BJOrgVin OSKArSSOn Bólusetning Anna Katrín sem er í forsvari fyrir samtökin Heilsufrelsi Íslands segist efast um ágæti bóluefna. Hún segir sum eingöngu virka í stuttan tíma og að sömuleiðis séu sum þeirra óþörf. 4. 11. 2013 6. 11. 2013 4. 11. 2013 Segir fanga- verði hafa ruðst inn á sig hálfnaktamánudagur og þriðjudagur 4.–5. nóvember 2013 125. tölublað 103. árgangur leiðb. verð 429 kr. SpilakaSSar auglýStir n Spilað með 10 milljónir í spurningaþætti n Styrktaraðilar reka spilakassa n Vilja fjölga fjárhættuspilurum 6 rÚV elur á Spilafíkn Spilafíkill mótmælir: Þessi fíkn er svo falin n Heimsótti sambýlismann á Litla-Hraun 2–3 Egill gagnrýndur af dómara Skrif hans mætti skilja sem hvatningu til ofbeldis 8 18–19 Svíarnir voru bestir Uppgjör við Airwaves Myndir Ögmundur mótmælir við Kerið n Fór inn án þess að borga 9 „Þetta er bara kynferðisbrot Bókaðu tíma á vakahf.is OPIÐ: Virka daga 8-18 Lau 10-14 í Skútuvogi Skútuvogi 8, Reykjavík Sími 567 6700 Harðskeljadekk og vetrardekk fyrir íslenskar aðstæður Valdamesta fólk í heimi Vladimír Pútín efstur 10–11 miðvikudagur og fimmtudagur 6.–7. nóvember 2013 126. tölublað 103. árgangur leiðb. verð 429 kr. LeyndarmáL Hannesar uppLýst n Átta ára leit á enda n Slóðin hvarf í Lúx „ Engin lög voru brotin 8–9 Ragnhildur Geirsdóttir Hótaði með lögreglunni Pálmi Haraldsson Fékk milljarða frá FL Group Inga Jóna Þórðardóttir Hætti vegna millifærslunnar Afh júpu n ákærður í sterLing-máLi Þekkir enga spilafíkla n „Erum ekki að hvetja til fjárhættuspilunar“ Þórhallur Gunnarsson 23 vildi aftur í ríkisstjórn n Sá eftir ráðherrastólnum n Uppgjör Steingríms J. Ögmundur 4 Bókaðu tíma á vakahf.is OPIÐ: Virka daga 8-18 Lau 10-14 í Skútuvogi Skútuvogi 8, Reykjavík Sími 567 6700 Harðskeljadekk og vetrardekk fyrir íslenskar aðstæður Sakar fangavörð um að ráðaSt inn á Sig Fréttir 3 Mánudagur 4. nóvember 2013 2 Fréttir 4. nóvember 2013 Mánudagur Öryggismál Kringlunnar í endurskoðun „Þeir gangast ekki við ábyrgðinni“n Myndavélakerfi fylgist með grunsamlegum gestum n Talsmaður neytenda ósáttur við viðbrögð KSÍ við tillögum sínum G ísli Tryggvason, talsmað­ur neytenda, sat fund með Þóri Hákonarsyni, fram­kvæmdastjóra KSÍ, og Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ, á fimmtudaginn vegna miðasölumáls­ ins á umspilsleik Íslands og Króatíu fyrir HM í Brasilíu. Samkvæmt Gísla ætla Þórir og Geir að fá til liðs við sig sérfræðinga til þess að meta hvern­ ig megi standa betur að miðasölu í framtíðinni. „Menn sátu ekki við sama borð,“ sagði Gísli aðspurður hvernig hon­ um þætti miðasalan hafi farið fram. „Ég hefði haldið að KSÍ með sína ára­ tuga reynslu af miðasölu gæti gert þetta án þess að hnökrar kæmu upp.“ Þórir Hákonarson hefur viður­ kennt mistök sín og segist taka ábyrgð á þeim. Hann hafi tekið ákvörðun um hvenær miðasalan skyldi hefjast einn síns liðs og segir Gísli að vel megi gagnrýna þá starfs­ hætti. „Ég lagði til að framvegis yrði tek­ in ákvörðun um það í stjórn hvernig ætti að gera þetta. Ég var hálf hissa að það lægi ekki fyrir,“ sagði Gísli. Gísli segist hafa lagt það til að afturkalla söluna í heild, enda voru tvær vikur í leikinn þegar hann sat fundinn með þeim. Þeir útilokuðu það strax á fundinum og þrátt fyrir vilja Gísla til að leysa málið með öðrum hætti, þá náðist ekki sátt um það. „Mér fannst þeir ekki bregðast nógu vel við tillögum mínum og gagnrýni sem almennt hefur kom­ ið fram,“ sagði Gísli. „Þeir hafa gert eins og stundum er gert þegar menn viðurkenna mistök, að þeir gang­ ast ekki við ábyrgðinni sem felst í því með því að bæta úr þeim. Menn þurfa helst að gera meira en að viðurkenna mistök.“ n Þ að er gott myndavélakerfi um allt hús þar sem fylgst er með göngum hússins og ferðum þeirra sem gætu talist grun­ samlegir,“ segir Sigurjón Örn Þórs­ son, framkvæmdastjóri Kringlunnar. Það var um klukkan hálf tvö á föstudaginn sem lögregla og sjúkra­ flutningamenn voru kallaðir að Kringlunni vegna hnífstunguárás­ ar. Slagsmál brutust út á meðal hóps karlmanna sem enduðu með því að einn skarst á andliti og annar var stunginn í viðbeinið. Sá var útskrif­ aður stuttu seinna þar sem áverkar hans voru ekki taldir alvarlegir. Einungis einn öryggisvörður var á vakt og var ljóst að hann réð ekki við aðstæður. Nokkrir gestir Kringlunn­ ar skárust í leikinn og meðal annars yfir buguðu árásarmanninn. „Öryggismál Kringlunnar eru í stöðugri endurskoðun,“ segir Sigur­ jón Örn og bætir við að alltaf sé gæsla í húsinu og alltaf öryggisverðir á vakt. „Það er síðan mismunandi eftir tíma dags og álagi hverju sinni.“ Securitas sér um gæslu í hús­ inu en Árni Guðmundsson, fram­ kvæmdastjóri hjá fyrirtækinu, seg­ ir þá meta alltaf fyrir hvert verkefni hvernig öryggisverðir eru útbúnir hverju sinni. Lögregluembætti landsins hafa tekið í notkun svokölluð „varnar­ vesti“ eða „hnífavesti“ og auka þau verulega öryggi lögreglumanna. Fjöl­ margir dyraverðir klæðast þessum vestum í dag en samkvæmt heimild­ um DV hefur notkun slíkra vesti auk­ ist á undanförnum árum. Hvort umræddur öryggisvörður hafi klæðst slíku vesti er ekki vitað en samkvæmt Árna eru þau í notk­ un hjá fyrirtækinu: „Við metum alltaf hvert verkefni fyrir sig og margir hverjir eru í þessum varnarvestum,“ segir hann og bætir við að markmið Securitas sé að tryggja öryggi þeirra sem heimsækja Kringluna sem best verði á kosið. n atli@dv.is Arðgreiðsla í skugga afskrifta n Eigandi Skuggabyggðar stórtækur í verktakabransanum E igandi verktakafyrirtækisins Skuggabyggðar, Kristján Gunnar Ríkharðsson, tekur tæplega 20 milljóna króna arð út úr fyrirtækinu á þessu ári. Þetta kemur fram í nýbirtum árs­ reikningi Skuggabyggðar sem skilað var til ársreikningaskrár ríkisskatt­ stjóra. Hagnaður fyrirtækisins nam tæpum 200 milljónum króna í fyrra. Skuggabyggð er eitt af verktakafyr­ irtækjunum sem reisir Skuggahverf­ ið í miðbæ Reykjavíkur, háar blokkir með íbúðum sem eru í fínni og dýr­ ari kantinum. Blokkir Skuggabyggðar eru við Vatnsstíg. Meint umboðssvik Skuggabyggð og Kristján Gunnar hafa komist talsvert í umræðuna eft­ ir íslenska efnahagshrunið 2008. Í síðustu viku var til dæmis greint frá því að embætti sérstaks saksóknara hefði ákært þá Sigurð Valtýsson, fyrrverandi forstjóra Exista, og Lýð Guðmundsson, annan aðaleigenda félagsins, vegna kaupa trygginga­ félagsins VÍS á 40 prósenta hlut í einu af verktakafyrirtækjum Kristjáns Gunnars, Reykjanesbyggðar ehf., fyr­ ir 150 milljónir króna. Talið er að við­ skiptin hafi verið meint umboðssvik. Kristján Gunnar er svili Sigurðar Valtýssonar og er talið að ákærðu hafi misnotaði aðstöðu sína í mál­ inu. Í ákærunni segir að eiginfjárstaða Reykjanesbyggðar hafi verið neikvæð þegar viðskiptin áttu sér stað en Sig­ urður Valtýsson var jafnframt eigandi skuldabréfa Reykjanesbyggðar upp á 220 milljónir króna. Viðskiptin eru því talin hafa verið óeðlileg í meira lagi þar sem Sigurður hafi verið að verja eiginhagsmuni, og hagsmuna svila síns, í Reykjanesbyggð. Fyrirtækið stóð illa þegar viðskiptin áttu sér stað og virðist ekki hafa verið eins mikils virði og kaupverð VÍS gefur til kynna. Afskrifaði milljarð DV greindi sömuleiðis frá því í lok ágúst síðastliðinn að verktakafyrir­ tæki í eigu Kristjáns Gunnars, Kant­ steinn ehf., hefði fengið rúmlega milljarðs króna kröfu afskrifaða af skuldum sínum við Landsbankann. Bankinn tók yfir 4.000 fermetra fjöl­ býlishús í Víkurhvarfi í Kópavogi en Kantsteinn vann að byggingu þess. Í viðtali við DV sagði Kristján Gunn­ ar að Landsbankinn tapaði ekki neinu á viðskiptunum. „Það tapar enginn neinu á þessu félagi og bank­ inn var búinn að leysa eignina til sín út af peningum sem hann hafði sett í þetta.“ Því eru færðar niður kröfur á hendur þessa félags Kristjáns Gunnars, Kantsteins ehf., en á sama tíma tekur hann arð út úr öðru félagi. Fékk risalán frá lífeyrissjóði DV greindi sömuleiðis frá því í febr­ úar 2012 að Skuggabyggð ehf. hefði fengið 630 milljóna króna lán frá Sameinaða lífeyrissjóðnum árið 2010 til að kaupa ókláraða 55 íbúða blokk við Mánatún í Reykjavík. Það var Arion banki sem seldi félaginu blokk­ ina í Mánatúni og lánaði fyrir hluta af kaupverðinu. Félagið var eignalaust þegar viðskiptin áttu sér stað. Íbúðirnar seldust svo vel – 50 af 55 á einungis fjórum mánuðum – og gat Skuggabyggð hafið endurgreiðslur af láninu sem félagið hafði tekið hjá Arion banka. Sameinaði lífeyrissjóð­ urinn átti því stóran þátt í því, með láni sínu til Skuggabyggðar, hversu vel þessi fjárfesting félagsins gekk upp. DV greindi svo frá því í lok árs 2012 að Skuggabyggð hefði unnið að fram­ kvæmdum við hús framkvæmdastjóra Sameinaða lífeyris sjóðsins í Garða­ bæ árið 2011. Framkvæmdastjór­ inn heitir Kristján Örn Sigurðsson. Í samtali við DV sagði Kristján Örn að Skuggabyggð hefði gert tilboð í loka­ áfanga framkvæmda við hús hans. „Skuggabyggð gerði á síðasta ári til­ boð í lokaáfanga breytinganna og hefur fyrirtækið annars umsjón með framkvæmdunum sem viðsemjandi okkar og verksali. Verktakafyrirtæk­ ið sem fékk 630 milljóna króna lán frá lífeyrissjóðnum þegar eignir þess voru engar vann því við hús fram­ kvæmdastjóra sama sjóðs. Kristján Gunnar og fyrirtæki hans tengjast því nokkrum sérstæðum málum sem komið hafa upp á Íslandi eftir hrunið. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Átti hagsmuna að gæta Sigurður Valtýsson, fyrrverandi forstjóri Exista, hefur verið ákærður vegna viðskipta við verktakafyrir­ tæki svila síns sem hann hafði sjálfur fjármagnað. Metfjöldi í borgaralega fermi Á föstudag höfðu yfir 250 ung­ menni skráð sig í borgaralega fermingu Siðmenntar árið 2014. 209 börn fermdust borgaralega árið 2013 og árið 2012 voru þau 214. Nú er svo komið að aðsókn hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu fimm árum og þrefaldast ef farið er tíu ár aftur í tímann. Í tilkynningu frá Siðmennt kemur fram að enn séu fjórar vik­ ur þar til skráningartíma lýkur. Gæti fjöldinn því hæglega aukist, að sögn Siðmenntar. Á þeim 25 árum sem Siðmennt hefur boð­ ið upp á borgaralega fermingu sem valkost, hafa vinsældir henn­ ar aukist stöðugt. Það var árið 1989 sem fyrsta athöfnin fór fram á vegum Siðmenntar og voru 16 ungmenni í fyrsta árganginum. „Við hjá Siðmennt erum ákaf­ lega þakklát fyrir þann fjölda sem velur borgaralega fermingu fé­ lagsins“ segir Hope Knútsson, formaður Siðmenntar, í tilkynn­ ingunni. „Fjöldinn hefur vaxið stöðugt á undanförnum árum en þriðjungs fjölgun á milli ára er einstaklega ánægjuleg. Við munum einnig fjölga athöfnum og verðum með athöfn á Höfn í Hornafirði í fyrsta skipti en einnig styrkjast í sessi athafnir á Austur­ og Suðurlandi sem við fórum ný­ lega að bjóða upp á. Enn og aftur sannast það að mikilvægt er fyrir unglinga að eiga valkost.“ Fór á fund Gísli segist hafa lagt til að miðasalan yrði endur­ tekin í heild sinni. Fernanda í var Ákvörðun um að draga brennandi skipið Fernanda í var var tekin á samráðsfundi þeirra sem koma að málum skipsins. Talið er að eldinum um borð hafi slotað en varðskipið Þór hefur haft skip­ ið í togi undanfarna daga. Í ljósi slæmrar veðurspár var ákveðið að draga skipið í skjól. „Í framhaldi af því verður svo tekin ákvörðun um hvert verði farið með skipið til að dæla úr því olíu og væntanlega niðurrifs,“ segir í tilkynningu. „Fokking fokk“ „Fokking fokk,“ var skrifað á ísjaka fyrir utan Hörpu. Svo virðist sem einhver hafi, í skjóli nætur, not­ að tækifærið og skrifað á ísjakann sem hafði áður verið notaður sem auglýsing. Hann var í upphafi notaður til að auglýsa Reyka vodka, sem er styrktaraðili Iceland Airwaves. Allt sem tengist Reyka, nema ísjakinn, hefur verið tekið niður og því stendur hann einn og yfirgefinn fyrir utan Hörpu. Þó auglýsingaherferðinni sé lokið vekur ísjakinn engu að síður athygli túrista, sem mynda hann í gríð og erg. Þegar blaðamann DV bar þar að var fjöldi þeirra að taka myndir af ísjakanum og áletruninni, sem flestir virtust hafa gaman af. Kannabis í nærbuxum Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af karlmanni á þrítugsaldri um helgina sem reyndist vera með fjóra poka af kannabisefn­ um í nærbuxum sínum. Karlmað­ urinn stóð fyrir utan fjölbýlishús í bænum og virtist vera að bíða eftir einhverjum en lögreglumað­ ur sem veitti honum athygli gaf sig á tal við hann. Við það varð mað­ urinn mjög flóttalegur og eftir að hafa neitað að hlýða fyrirmælum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem pokarnir fundust. n Var að heimsækja sambýlismann n Segist hafa verið niðurlægð og ekki þora aftur U ng kona segir farir sínar ekki sléttar af heimsókn á Litla­ Hraun á þriðjudag. Þar segist hún hafa orðið fyrir því að karlkyns fangaverð­ ir hafi ruðst inn á heimsóknarher­ bergi þar sem hún og maður hennar áttu saman innilega stund og voru fáklædd. Hún segist upplifa meinta innrás sem kynferðisbrot, hún hafi verið niðurlægð og þori ekki aftur í heimsókn. „Það var brotið gegn mér, hann mátti ekki gera þetta og ég ætla að kæra þetta til lögreglunnar og maðurinn minn líka,“ segir kon­ an sem er á þrítugsaldri. Segir að leitað hafi verið á sér Forsaga málsins er sú að konan, sem baðst undan því að vera nafngreind vegna fjölskyldu sinnar og verður hér eftir kölluð Erla, heimsótti barnsföður sinn sem situr í fangelsi næsta árið á Litla­Hrauni. Hún segir að við komuna á Hraunið hafi karlkyns fangavörður tekið á móti henni ásamt kven­ manni með fíkniefnaleitarhund. Hundurinn hafi þefað mikið af Erlu og vörðunum hafi fundist hann sýna henni óvenju mikla athygli. Erla seg­ ir hundinn samt ekki hafa „merkt“ hana eins og fíkniefnaleitarhundar gera gjarnan þegar þeir finna fíkni­ efni. Í kjölfarið hafi hún verið tekin inn í bakherbergi þar sem tvær kon­ ur framkvæmdu líkamsleit. Ekkert hafi fundist í þeirri leit. Þegar hún hafi komið fram aftur hélt karlkyns fangavörðurinn sem tók á móti henni áfram að þráspyrja hana um fíkniefnin sem hann taldi sig vita að hún væri að smygla. „Hann spurði mig alltaf ítrekað hvort hann ætti að kalla til lögreglu og senda mig í röntgen. Ég sagði hon­ um að gera það bara ef honum þætti hann þurfa að gera það. Svo hélt hann bara alltaf áfram að segja: „Ég veit að þú ert með eitthvað innvort­ is, ég veit að þú ert með eitthvað inn­ vortis.“ En ég þvertók fyrir það. Svo sagði hann loks: „Ég ætla að treysta þér í þetta skipti“ og hleypti mér upp í heimsóknina, sem hann hefði auð­ vitað aldrei gert ef hann hefði haldið að ég væri með eitthvað,“ segir Erla. Hún hafi síðan farið að hitta mann­ inn sinn í heimsóknarherberginu en gamanið hafi kárnað þegar heim­ sóknartíminn var hálfnaður. Sakar fangaverði um innrás „Ég átti einn og hálfan tíma eftir þegar hann bankaði á hurðina. Byrj­ aði að opna hana og spurði hvort við værum klædd – sem ég var ekki og þá var hurðin bara rifin upp,“ segir Erla sem sakar karlkyns fangavörð um að hafa ruðst inn til þeirra ásamt kvenkynsfangaverði með hund. „Ég dreif mig að finna fötin þegar hann ruddist inn og var rétt komin í buxurnar þegar þau voru öll kom­ in þarna.“ Erla segir að barnsfaðir hennar hafi spurt vörðinn hvort þetta væri nú ekki fullgróft og fulllangt gengið og hann hafi þá sagt jú, jú, kannski. Konan með hundinn hafi einnig furðað sig á vinnubrögðunum. Ítrekað var reynt að ná í fang­ elsismálastjóra vegna málsins en blaðamaður fékk þau skilaboð að hann ætlaði ekki að tjá sig um mál­ ið. Hjá fangelsismálastofnun feng­ ust þau svör hjá Erlendi Baldurs­ syni að fangar gætu kært ef þeim þætti á sér brotið en hann gæti ekki rætt einstök mál. Þorir ekki aftur Samkvæmt heimildum DV innan úr fangelsinu misbauð öðrum föngum framganga fangavarðarins gagnvart parinu. Einn úr þeirra hópi hafði samband við DV og lýsti atvikinu með sama hætti og Erla gerir. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Sjálf segist Erla hafa upplifað mikla niðurlægingu og að frek­ lega hafi verið brotið gegn frið­ helgi einkalífs þeirra. „Ég er ekki fangi þarna, ég var bara gestur,“ segir Erla og kemst við. „Hann eyðilagði heimsóknina. Ég var eftir mig því ég var alltaf hrædd um að hann kæmi inn aftur.“ Nú kveðst hún ekki þora í heim­ sókn aftur. „Ég fæ að fara í heim­ sókn á þriðjudögum og föstu­ dögum og ég veit ekki hvort ég þori að fara næst.“ Bæði hún og barnsfaðir henn­ ar segjast ætla að leita réttar síns og kæra málið til lögreglu sem fyrr segir en það hefur ekki ver­ ið gert að svo stöddu. Þegar DV ræddi við Erlu segir hún að það sé enn í vinnslu. n „Það tapar enginn neinu á þessu Litla-Hraun Erla kveðst ekki þora að heim­sækja manninn sinn aftur eftir meinta innrás. Ruddaleg truflun á innilegri stundu Erla og sambýlismaður hennar hyggjast leita réttar síns eftir tilefnislausa innrás fangaverða inn í heimsóknarherbergi þar sem þau áttu innilega stund. Mynd SigTRygguR ARi „Ég er ekki fangi þarna, ég var bara gestur. Bandaríkin hafa ekki enn svarað Engin svör hafa enn borist íslensk- um stjórnvöldum frá bandarísk- um stjórnvöldum vegna hlerana á íslensku þjóðinni samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðu- neytinu. Óskað var eftir svörum frá Bandaríkjunum þegar Luis E. Arreaga, sendiherra Banda- ríkjanna á Íslandi, var kallaður á fund Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra. Upplýsingar um hleranir Bandaríkjamanna víðs vegar um heim hafa borist á undanförnum mánuðum, eftir að uppljóstrarinn Edward Snowden, fyrrverandi verktaki hjá bandarísku þjóðar- öryggisstofnuninni, hóf að birta leynigögn. Í gögnunum hefur komið fram að Bandaríkjamenn telji Íslendinga viljuga til samstarfs um afhendingu gagna og líka að búast megi við því að njósnað hafi verið um bæði íslenskan almenn- ing og stjórnmálamenn. Ekki liggur fyrir hversu víð- tækar hleranirnar hafa verið hér á landi en greint hefur verið frá því að fulltrúar NSA hafi ekki vílað fyrir sér að njósna um Bandaríkja- menn sjálfa og því ólíklegt að þeir hafi séð ástæðu til að láta Ísland afskiptalaust. Sérstakur samningur er í gildi á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda sem kveður á um að Ís- land skipi fulltrúa sem svari fyrir- spurnum Bandaríkjastjórnar um upplýsingar sem varða hernaðar- leg málefni og eftir því sem þörf krefur. Samningurinn var gerður í tengslum við brotthvarf Banda- ríkjahers af landinu árið 2006. Borgarstjóri gegn einelti Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, mun heimsækja Réttarholtsskóla í dag, föstudag, og ræða við nem- endur um leiðir til að stemma stigu við einelti. Tilefnið er dagur gegn einelti sem haldinn er í dag. Af sama tilefni verður endurskins- merkjum með áletruninni Við berum öll ábyrgð dreift til allra leikskóla- og grunnskólabarna í borginni. Borgarstjóri mun afhenda nemendum þetta endurskinsmerki og meðal annars fara yfir hvað þeir geta gert til að stuðla að vinsam- legu samfélagi, samkvæmt áætlun skóla- og frístundasviðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.