Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Blaðsíða 14
14 Fréttir 8.–10. nóvember 2013 Helgarblað Hannes sagði ósatt n Hefur breytt framburði sínum um þriggja milljarða millifærsluna frá FL Group Þ etta er bara þvæla,“ sagði Hannes Smárason, þáver- andi forstjóri FL Group og fyrrverandi stjórnarfor- maður, í viðtali við Kast- ljós Ríkisútvarpsins síðla árs árið 2005 þegar hann var spurður út í þriggja milljarða króna millifær- slu frá reikningi FL Group til Kaup- þings í Lúxemborg þann 22. apríl 2005. Stjórnendur Kastljóss spurðu Hannes hvort hann hefði millifært þessa þrjá milljarða út af reikningi félagsins án vitundar stjórnar og neitaði hann því. Hannes hefur nú verið ákærður af embætti sérstaks saksóknara út af umræddri millifærslu en emb- ættið hefur sannanir fyrir því að fjármunirnir hafi verið notaðir af Fons til kaupa á danska flugfé- laginu Sterling fyrir rúmlega fjóra milljarða króna. Fons undirritaði samninga um kaupin á danska flugfélaginu í mars 2005. Í október 2005 keypti FL Group danska flug- félagið aftur af Fons fyrir 15 millj- arða króna. Hannes sagði ekki satt Alveg ljóst er að Hannes sagði ekki satt um millifærsluna í Kast- ljósviðtalinu þar sem mál sérstaks saksóknara gegn honum byggir á því að millifærslan átti sér stað auk þess sem allar heimildir sem eru tiltækar sýna fram á að hún fór fram. Þrír stjórnarmenn hættu í FL Group, forstjóri félagsins, Ragnhildur Geirsdóttir, hætti eftir einungis nokkra mánuði í starfi og stórir hluthafar í félaginu seldu sig út úr því. Millifærslan hafði því tals- verðar afleiðingar fyrir FL Group. Auk þess þá hafa gögn um milli- færsluna verið gerð opinber af vef- miðlinum Kjarnanum. Í þeim gögn- um kemur meðal annars fram að Kaupþing í Lúxemborg sendi endur- skoðendafyrirtækinu KPMG bréf um millifærsluna í febrúar 2006 þar sem staðfest var að þann 22. apríl 2005 hefðu 46,5 milljónir Bandaríkja- dala verið lagðar inn á reikning FL Group í Lúxemborg. Í lok júní 2005 var þessi upphæð, auk vaxta upp á rúmlega 244 þúsund dollara milli- færð út af reikningnum og aftur inn á bankareikning FL Group á Íslandi. Reikningnum í Lúx var svo lokað í kjölfarið að beiðni FL Group. Sama dag og FL Group fékk peningana aft- ur inn á reikning sinn á Íslandi hættu stjórnarmennirnir þrír í FL Group. Þá liggur einnig fyrir að sama dag og millifærslan átti sér stað þá sendi Hannes Smárason tölvu- póst og spurðist fyrir um hvort gengið hefði verið frá millifærsl- unni. Reikningurinn í Lúxemborg var auk þess stofnaður að beiðni Hannesar Smárasonar og var það undirmaður hans hjá FL Group, Einar Sigurðsson, sem sá um það. Alveg ljóst er því að millifærslan átti sér stað. Neitar aðkomu Fons Ragnhildur Geirsdóttir hefur sagt opinberlega að hún hafi reynt að komast að því varð um milljarð- ana þrjá eftir að þeir voru milli- færðir út af reikningnum og áður en þeir voru fluttir aftur inn á reikn- ing FL Group. Í viðtali við Kastljós árið 2010 sagði Ragnhildur að hún hefði spurt Hannes um ástæðu millifærslunnar og hann hefði alltaf sagt að gott hefði verið að vera með þessa peninga úti í Lúxemborg ef fyrirtækið þyrfti að nota þá. Skýring Hannesar var því allt önnur en sú að Fons hefði átt að fá peningana. Í viðtalinu við Kastljós 2005 neitaði Hannes því einnig að pen- ingarnir hefðu verið notaðir til að fjármagna kaup á Fons á Sterling. Sigmar Guðmundsson: „Lagði FL Group einhverja peninga inn í það þegar Fons keypti Sterling?“ Hannes Smárason: „Nei, alls ekki.“ Lykilgögnin Gögnin sem embætti sérstaks sak- sóknara komst yfir í Lúxemborg og fékk send í sumar munu vera undirstaðan í málarekstri sér- staks saksóknara gegn Hannesi, líkt og DV greindi frá á miðviku- daginn. Án þeirra gagna hefði emb- ættið ekki getað höfðað málið gegn honum. Þessi gögn sýna fram á að Hannes sagði ekki satt um ástæðu þess að millifærslan átti sér stað í apríl 2005. Í þessum gögnum mun koma fram að Ragnhildur Geirs- dóttir náði ágætlega utan um þetta vandamál í viðtali við Kastljós- ið árið 2010. Ragnhildur treysti sér ekki til að fullyrða að peningarnir hefðu runnið frá FL Group til Fons en sagði samt að hún teldi að svo hefði verið. „Það sem berst á þess- um tíma eru gögn sem gefa það til kynna að peningarnir hefðu hugs- anlega á einhverjum tímapunkti farið inn á reikning Fons. Þetta voru hins vegar þannig gögn að það var ekki hægt að nota þau til að sanna eitt né neitt og því var þráfald- lega og ítrekað neitað þannig að það mun alltaf bara vera orð gegn orði nema einhver komist í einhver gögn hjá Kaupþingi í Lúxemborg,“ sagði Ragnhildur. Þetta er það sem nú hefur gerst og leitt til þess að sérstakur sak- sóknari hefur getað ákært Hannes Smárason fyrir millifærsluna út úr FL Group. Í viðtalinu við Hannes árið 2005 svaraði hann stjórnendum Kastljóssins á þá leið að sögur væru ekki staðreyndir: „Sögur eru ekki staðreyndir,“ sagði hann þegar þeir spurðu hann út í málið. Nú hafa staðreyndir frá Lúxemborg hins vegar staðfest þær sögur sem stjórn- endur Kastljóssins inntu hann eftir og eru gögnin frá Lúx þessi grund- völlur sakamálsins sem ákæru- valdið hefur skort hingað til. Önnur saga DV hefur gert ítrekaðar til- raunir til að ná tali af Hann- esi Smárasyni síðustu daga. Það hefur ekki gengið. Hannesi var birt ákæran í máli sérstaks saksóknara á miðvikudag en hann mun halda til hjá foreldr- um sínum í Selvogsgrunni í austurbæ Reykjavíkur. DV hefur hins vegar heyrt að Hann- es sé í dag farinn að segja aðra sögu um millifærsluna. Hermt er að Hannes gangist við millifærslunni, enda er annað varla hægt, miðað við stað- reyndirnar í málinu þar sem fyrir liggja bankagögn um hana. Þá mun það einnig vera svo að Hannes neiti því ekki lengur að milljarðarnir þrír hafi runnið til Fons. DV hefur hins vegar ekki heim- ildir fyrir því á hvaða forsendum Hannes útskýrir millifærsluna í dag. Þær útskýringar Hannesar hljóta hins vegar að hafa komið fram við yfirheyrslur hjá emb- ætti sérstaks saksóknara. Fróðlegt verður að heyra hverjar þær eru því ljóst er að Hannes er orðinn margsaga í milllifærslumálinu og hefur nú verið ákærður þvert á eigin neitan- ir um staðreyndir málsins. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is „Þetta er bara þvæla Gögnin frá Lúx Gögnin sem embætti sérstaks saksóknara fékk frá Lúxemborg eru lykilatriði í mál- inu. Ólafur Hauksson stýrir embættinu. MyNd Heiða HeLGadóttir Sagði ekki satt frá Hannes sagði ekki satt og rétt frá um millifærslumálið sem hann hefur nú verið ákærður fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.