Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Blaðsíða 23
Ljónin í vegi ísLendinga
Fréttir 23Helgarblað 8.–10. nóvember 2013
n Króatar spila með sumum af bestu liðum heims n Þessir gætu eyðilagt HM-draum Íslendinga n Níu á gulu spjaldi
Nikica Jelavic
Aldur: 28
Félag: Everton
Þessi stæðilegi
framherji skor-
aði eitt mark í
undankeppn-
inni og hefur
komið við sögu
í fimm leikjum,
þar af tveimur í
byrjunarliðinu. Hann hefur ekki skorað
með Everton á leiktíðinni.
Ivan Strinic
Aldur: 26
Félag: Dnipro
Strinic er
vinstri
bakvörður
sem var í
byrjunarliðinu
í 9 leikjum af 10
í riðlakeppninni.
Spilar í Úkraínu og er
líklegur til að verða í byrjunarliðinu í
leikjunum gegn Íslendingum.
Niko Kranjcar
Aldur: 29
Félag: QPR
Kranjcar
var ekki
fastamaður
í riðlakeppn-
inni; spilaði
sex leiki en var
aðeins tvisvar í
byrjunarliðinu. Þessi
öflugi miðjumaður hefur komið víða
við og spilar nú í ensku Championship-
deildinni.
Nikola Kalinic
Aldur: 25
Félag: Dnipro
Kalinic sem er
framherji spil-
aði fimm leiki í
riðlakeppninni
og var aðeins
einu sinni í byrj-
unarliðinu. Spilaði
í ensku úrvalsdeildinni
með Blackburn árin 2010–2012 en náði
sér ekki á strik.
Domagoj Vida
Aldur: 24
Félag: Dynamo
Kiev
Vida er
varnarmaður
sem kom við
sögu í sex
leikjum í riðla-
keppninni, þar af
þrisvar í byrjunarliði.
Er talinn líklegur arftaki Darijo Srna í
stöðu hægri bakvarðar en getur einnig
spilað í miðri vörninni.
Ivan Perisic
Aldur: 24
Félag: Wolfsburg
Perisic er
öflugur,
sóknarsinnaður
miðjumaður
sem lék 8 leiki
í riðlakeppninni,
sex sinnum í byrj-
unarliði. Spilaði með
Borussia Dortmund áður en hann var
seldur til Wolfsburg sumarið 2012.
Þessir gætu
líka spilað
Luka Modric
Aldur: 28
Hæð/ þyngd: 1.73/65
Félag: Real Madrid
Staða: Miðjumaður
Landsleikir/mörk: 70/8
n Modric er þekktasti leikmaður
Króata og spilar með Real Madrid.
Modric er skapandi miðjumaður og
ótrúlega góður með boltann. Hann
var gagnrýndur fyrir frammistöðu
sína í undankeppninni þar sem hann
spilaði 9 leiki af 10. Honum tókst ekki
að skora en vill væntanlega bæta fyrir
það gegn Íslandi. Modric mun mæta
sínum gamla félaga hjá Tottenham,
Gylfa Þór Sigurðssyni, og verður fróð-
legt að fylgjast með baráttu þeirra.
Ivica Olic
Aldur: 34
Hæð/Þyngd: 1.82/85
Félag: Wolfsburg
Staða: Framherji
Landsleikir/mörk: 87/16
n Flestir reikna með því að Olic
verði á bekknum gegn Íslandi
en það gæti þó breyst. Olic er
leikmaður Wolfsburg í Þýska-
landi en þar áður gerði hann
garðinn frægan með Bayern
München. Hann er eins konar
Heiðar Helguson þeirra Króata,
ótrúlega vinnusamur og sterkur
í loftinu þrátt fyrir að vera ekki
hávaxinn. Olic kom við sögu í
fimm leikjum í riðlakeppninni
og skoraði eitt mark.
Stipe Pletikosa
Aldur: 34
Hæð/þyngd: 1.93/83
Félag: Rostov
Staða: Markmaður
Landsleikir/mörk: 72/0
n Pletikosa hefur verið aðalmark-
vörður Króata um nokkuð langt
skeið og varði hann mark liðsins
í öllum 10 leikjunum í riðla-
keppninni. Þetta er reynslumikill
markmaður sem mestmegnis
hefur spilað í Austur-Evrópu
á ferli sínum. Hann spilar nú í
Rússlandi þar sem hann er fyrirliði
FC Rostov. Tímabilið 2010/11 var
hann þó varamarkvörður Totten-
ham í ensku úrvalsdeildinni en
kom ákaflega lítið við sögu.
Dejan Lovren
Aldur: 24
Hæð/þyngd: 1.88/84
Félag: Southampton
Staða: Varnarmaður
Landsleikir/mörk: 26/4
n Dejan Lovren hefur
hlotið mikið lof fyrir
frammistöðu sína með
Southampton í ensku
úrvalsdeildinni. Hann er
talinn í hópi efnilegustu
varnarmanna Evrópu
og er ein helsta ástæða
þess að Southampton
hefur fengið á sig fæst
mörk allra liða í ensku
úrvalsdeildinni í vetur.
Lovren er sterkur í loftinu
og mun veita Kolbeini
Sigþórssyni mikið aðhald
í leikjunum sem framund-
an eru.
Vedran Corluka
Aldur: 27 ára
Hæð/þyngd: 1.91/80
Félag: Lokomotiv Moskva
Staða: Varnarmaður
Landsleikir: 68/4
n Vedran er lykilmaður í vörn
eins besta liðs Rússlands.
Hann hefur spilað alla leiki
liðsins að einum undanskild-
um. Hann spilaði áður með
Bayer Leverkusen, Tottenham
og Manchester City. Með
landsliðinu hefur Vedran spilað
sjö leiki í undankeppninni og
skorað þar eitt mark. Hann
þykir afar harður í horn að taka,
enda stór og stæðilegur, og
leikur yfirleitt í stöðu hægri
bakvarðar.
Hópur Íslands
Markverðir
n Hannes Þór Halldórsson, KR
n Gunnleifur Gunnleifsson, Breiðablik
n Haraldur Björnsson, Fredrikstad
Varnarmenn
n Birkir Már Sævarsson, Brann
n Ragnar Sigurðsson, FC Kaupmannahöfn
n Kári Árnason, Rotherham United
n Eggert Gunnþór Jónsson, Belenenses
n Ari Freyr Skúlason, OB
n Hallgrímur Jónasson, Sönderjyske
n Kristinn Jónsson, Breiðablik
n Sölvi Geir Ottesen, Ural
Miðjumenn
n Emil Hallfreðsson, Hellas Verona
n Aron Einar Gunnarsson, Cardiff City
n Helgi Valur Daníelsson, Belenenses
n Jóhann B. Guðmundsson, AZ Alkmaar
n Birkir Bjarnason, Sampdoria
n Rúrik Gíslason, FC Kaupmannahöfn
n Ólafur Ingi Skúlason, Zulte Waregem
n Gylfi Sigurðsson, Tottenham Hotspur
n Guðlaugur Victor Pálsson, NEC
Sóknarmenn
n Eiður Smári Guðjohnsen, Club Brügge
n Kolbeinn Sigþórsson, Ajax
n Arnór Smárason, Helsingborg
n Alfreð Finnbogason, Heerenveen
Þeir alltaf
líklegri
„Þeir eru alltaf sigurstranglegri,
öll tölfræði bendir til þess,“ segir
Heimir Hallgrímsson, annar
tveggja landsliðsþjálfara Íslands,
í samtali við DV. Hann er nokk-
uð bjartsýnn fyrir leikina sem
framundan eru við Króata og
bendir á að á þessu ári hafi ís-
lenska landsliðinu gengið vel á
meðan það króatíska hafi átt í ba-
sli. „Þeir grípa inn í það ferli og
skipta um þjálfara. Þeir gera sér
grein fyrir því að þeir hafa verið á
niðurleið.“
Heimir segir aðspurður að
reynsla skipti miklu máli í leikjum
á borð við þá sem framundan
eru. Króatísku leikmennirnir
hafa mikla reynslu í sínum leik-
mannahópi en íslenska liðið er
ungt að árum. „Við sáum í byrjun
leiks gegn Noregi að menn voru
ótraustir. Maður skynjaði að ekki
öllum leið vel,“ segir Heimir. Þess
vegna séu menn eins og Eiður
Smári, sem er leikjahæsti leikmað-
urinn í íslenska hópnum, mikil-
vægir. Hann segir að Króatar geti
valið úr fjölmörgum mjög reynd-
um leikmönnum.
Spurður hvort veðrið kunni
að hafa áhrif á undirbúning fyrri
leiksins hans segir Heimir að svo
sé ekki. Liðið sé að búa sig undir
tvo leiki en það ráðist ekki fyrr en
á leikdegi hvort taka þurfi mið af
vindi og slíku þegar línurnar eru
lagðar fyrir leikmenn. Hann á ekki
von á öðru en að völlurinn verði
fínn á leikdegi – þó útlit sé fyrir
kulda og jafnvel snjó í næstu viku.