Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2013, Page 29
Fólk 29Helgarblað 8.–10. nóvember 2013 ná til hennar, enda virðist hún hafa fallið fyrir einhverjum vegtyllum. Allur óheiðarleikinn tók á. Mér fannst pólitíkin orðin svo ljót og draga fram ljótar hliðar á fólki sem ég hafði áður treyst.“ Áfallið Þannig að nú ætlar hún að hætta. Í bili að minnsta kosti. Á meðan hún berst við krabbamein. Það var í júní sem Guðríður fann lítinn hnút í brjóstinu, sem var svo lítill að það var varla hægt að finna hann. Hún hafði ekki miklar áhyggj­ ur af því og tveimur dögum síðar fór hún til Tyrklands. „Ef mig hefði grunað að ég væri með krabbamein í brjóstinu og ætti eftir að verða sköllótt nokkrum mánuðum seinna þá hefði ég farið inn í stóru búðina sem var með ævintýralegt úrval af slæðum og höfuðfötum. En ég sá enga ástæðu til þess.“ Guðríður bendir á að þegar konur eru komnar yfir fertugt þá eigi þær að fara í reglubundið eftir­ lit. Hún var hins vegar orðið 43 ára og hafði ekki sinnt því. Og þótt hún hafi sjaldan farið til læknis þá ákvað hún samt að láta skoða þetta þegar heim var komið. Þar sem leitar­ stöð Krabbameinsfélagið lokar í tvo mánuði á sumrin í sparnaðarskyni þá fór hún til heimilislæknis. Þaðan var hún send á leitarstöðina þegar hún var opnuð. „Þegar ég fór svo í ómskoðun varð strax ljóst að þetta væri líklega krabbamein. Þá fékk ég sjokk. Af því að almennt er ferlið þannig að þú ferð í ómskoðun og ef ástæða þykir til eru tekin sýni sem eru send í frumskoðun. Síðan líða nokkrir Betri manneskja eftir krabbamein dagar þar til það kemur í ljós hvort þetta er illkynja eða góðkynja æxli. Í mínu tilfelli ákvað læknirinn á leit­ arstöðinni hins vegar að panta strax tíma hjá skurðlækni til að láta fjar­ lægja þetta. Ég fór heim og hringdi í mann­ inn minn. Ég sagði honum að þetta liti illa út. Síðan hringdi ég í vin­ konu systur minnar sem hafði feng­ ið brjóstakrabbamein og spurði hvort þetta hefði líka verið svona hjá henni en hún svaraði neitandi. Þá hringdi ég aftur niður á leitarstöð og fékk að tala aftur við lækninn. Ég spurði hvort ég væri með krabba­ mein og hann sagðist halda það.“ „Af hverju ég?“ Guðríður sat ein heima og melti þessar upplýsingar. Þau hjónin tóku sér síðan tvo daga, tvo væmna daga eins og hún lýsir því, þar sem þau vörpuðu upp spurningum og veltu stöðunni fyrir sér. „Á þessum tíma­ punkti hugsaði ég Guð minn góður, ætli þetta sé búið að dreifa sér. Mér leið þannig að ef ég andaði djúpt þá velti ég því fyrir mér hvort ég væri kannski komin með lungnakrabba­ mein. Svo fann ég sting í mjöðminni og óttaðist að þetta væri komið í lifr­ ina. Í gegnum hugann flugu hugsan­ ir á borð við: „ég verð kannski aldrei gömul,“ „af hverju ég?“ og „ætli ég hafi gert eitthvað?“ Ég hef aldrei passað upp á matar­ æðið eða farið í líkamsrækt. Ég hef bara étið majónes og geymt gemsann í brjóstahaldaranum. Fyrir mörgum árum vann ég með þungmálma og kadmíum á Raun­ vísindastofnun háskólans og velti því fyrir mér hvort það gæti verið ástæðan.“ Að svo stöddu sagði hún engum frá því að hún væri kannski með krabbamein. Áður vildi hún fá að vita meira. Nokkrum dögum síðar fór hún svo á fund skurðlæknisins og þá lágu niðurstöðurnar fyrir. Mat læknisins á leitarstöðinni var rétt, hún var með krabbamein. „Þá var ég búin að hafa nokkra daga til þess að melta það.“ Huggaði mömmu Eftir fundinn með skurðlækninum létu þau hjónin börnin og foreldr­ ana vita. „Mér fannst erfiðast að segja foreldrum okkar frá því. Af því að þau eru af þeirri kynslóð að þau muna það þegar krabbamein var dauðadómur. Enda var mömmu mjög brugðið og hún grét og spurði af hverju þetta hefði þurft að koma fyrir mig. Það var vont að sjá hvað mömmu leið illa. Þannig að ég reyndi að hugga hana og sagði að einhver yrði að fá krabbamein og af hverju ekki ég. „Af því að þú ert barnið mitt,“ svaraði hún. Ég er rúm­ lega fertug en ég er enn litla barnið hennar mömmu. Mamma er svo mikill töffari að síðan hún jafnaði sig á sjokkinu hef­ ur hún litið á þetta sem verkefni.“ Hvað börnin varðar þá eru þau af þeirri kynslóð að þau hafa séð mörg dæmi þess að fólk hefur sigrast á krabbameini. „Þeim var auðvitað brugðið en við fórum vandlega yfir þetta með þeim. Við sögðum strax að við myndum leyfa þeim að fylgj­ ast með og segja þeim alltaf satt. Óvissan var auðvitað heilmikil á þessum tíma.“ Óvissan verst Í raun var óvissan erfiðust, að vita ekki hvað væri í vændum. Áður en Guðríður lagðist á skurðbekkinn „Mér fannst pólitíkin orðin svo ljót og draga fram ljótar hliðar á fólki sem ég hafði áður treyst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.