Hagskýrslur um landbúnað - 01.01.1951, Page 28
26*
Búnaðarsliýrslur 1947—48
Skýrsla um laxveiði í hverri sýslu 1947 og 1948 er í töflu XI. og
XXII. (bls. 44 og 88).
B. Hrognkelsaveiði.
Calch of lumpfish.
Hrognkelsaveiðar hafa verið taldar 6 síðustu árin svo sem hér segir:
1943 ....... 104 þús. 1946 43 þús.
1944 ....... 134 — 1947 35 —
1945 ....... 100 — 1948 32 —
Hrognkelsaveiðar hafa farið þverrandi samkvæmt hlunnindaskýrsl-
unum, en biiast má við, að skýrslugerðin hafi beðið nokkurn hnekki við
breytinguna 1946, og muni lækkunin síðan 1945 vart eins mikil og töl-
urnar benda til.
Sundurliðuð skýrsla um hrognkelsaaflann er í töflu XI. og XXII. (bls.
45 og 88).
C. Selveiði.
Seal-hunting.
Selveiði hefur verið talin undanfarin ár svo sem hér segir:
Selir Kópar Selir Kópnr
tnls tnls tnls tnls
1921—1925 meðaltal 554 4 543 1944 ............ 88 2 365
1926—1930 — 438 4 710 1945 103 2 196
1931—1935 — 311 3 760 1946 134 2 183
1936—1940 — 288 3 761 1947 84 1 724
1941—1945 — 155 2 656 1948 68 1 646
Skýrsla um selveiði í hverri sýslu er í töflu XI. og XXII. (bls. 45
og 88).
D. Fuglatekja.
Birding.
Fuglatekja hefur farið mjög minnkandi samkvæmt hlunninda-
skýrslum undanfarinna ára, svo að 1941—45 var hún ekki nema %
af því sem hún var 20 árum áður. Fýlungaveiði var bönnuð samkvæmt
lagaheimild vorið 1940 til varnar því, að menn sýktust af fýlasótt.
Svartfuglaveiði er orðin smáræði í samanburði við það sem áður var,
og rituveiði hefur gengið mjög til þurrðar. Af sjófuglum þeim, sem
áður voru taldir í hlunnindaskýrslum, hefur aðeins 1 u n d i n n komið
fram að nokkru ráði í skattskýrslum. í töflunum hér á eftir (bls. 45 og
88) er lundaveiði talin rúmlega 45 þúsund árið 1947, en 54 þúsund árið
1948. Er það tekið eftir skattskýrslum og í Vestmannaeyjum eftir áætlun.
Á undanförnum árum hefur lundaveiðin verið talin: