Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1914, Síða 17
Fiskiskvrslur 1912
15
Tölur þessar benda til þess, að hlutdeild þilskipanna í allanum
fari vaxandi. En i rauninni mun hlutur þilskipanna vera drýgri
heldur en tölur þessar gefa í skyn, því að yfirleitt mun fiskurinn
sem á þilskip aílast vera töluvert stærri heldur en bátafiskurinn, svo
sem ráða má af eftirfarandi yfirliti, er sýnir hve mikill hluti aílans
(að tölunni) á þilskipum og bátum hefur verið þorskur:
Pilskip Bátar
1897—1900 meðaltal................... 54°/o 22°/o
1901-1905 — 50— 26—
1906— 1910 — 51— 34-
1907— 1911 — 51— 36—
1911 ....................... 50- 39—
1912 ........................ 39— 32—
Yfirlit þetta sýnir einnig, að meira hefur verið um þorsk í hála-
allanum síðari árin, lieldur en á árunum kringum aldamótin, og er
líklegt, að mólorbátarnir eigi þátt í þeirri brej'tingu, þar sem mest
verður vart við liana, þegar mótorbátarnir fara almenl að verða
nolaðir til fiskveiða.
Yfirlitið sýnir einnig, að árið 1912 hefur verið óvenjulítill þorsk-
alli. En aftnr á móli hefur það ár afiast miklu meir af smáfiski en
nokkru sinni áður.
Þyngd þ i 1 s kipa aflans eins og hann liefur verið gefinn upp
af| úlgerðarmönnum (að undanskildum sildarafla) nam alls árið 1912:
Fullverkaö Hálfverkað Saltað Nýtt
Á botnvörpunga....... 3 381 þús. kg. 77 þús. kg. 1 757 þús. kg. 2 171 þús. kg.
A önnur þilskip ...... 3 065 — — 483 — — 1 178 — — 47 — —
Samtals 6 446þús. kg. 560 þús. kg. 2 935þús. kg. 2218 þús. kg.
Vegna þess að þessar tölur hafa mismunandi gildi, þar sem
fiskurinn er mjög misþungur eftir því á hvaða verkunarstigi hann
er, verða þær ekki lagðar saman. í 4. yfirliti (l)ls. 16) hetur aftur á móti
öllum þilskipaaflanum verið breytt í sambærilega þyngd á þann hált,
að reiknað hefur verið út, hve þungur afiinn af hverri tegund mundi
liafa verið nýr, afhöfðaður og flattur. Hafa verið notuð til þess
hlutföll þau, sem skýrt er frá hjer að framan. Nýi fiskurinn, sem
getið er um í skýrslum botnvörpunga, er fiskur sá, sem sendur er
ísvarinn út til Englands, og er hann livorki flattur nje afhöfðaður.
Hefur honum því (að undanskildu heilagíiski, skötu og »öðrum fisk-
tegundum«) verið breytt i nýjan fisk flattan með því að draga
þriðjung frá þyngd lians. Aftur á móti mun nýi fiskurinn, sem getið
er í skýrslum annara þilskipa, vera flattur fiskur, og er því þyngd
hans látin haldast óbreytt.