Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1930, Blaðsíða 14
12
Dómsmálaskýrslur 1919—1925
hefur hún aldrei orðið hærri. Eftir það fór málatalan aftur smálækkandi
og komst niður í 263 árið 1919. Síðan fór hún aftur hækkandi og komst
upp í 831 árið 1923, en lækkaði svo aftur og var 1925 aðeins 527.
A yfirlitinu sést, að þeim málum fer tiltölulega fækkandi, sem sættiv
komast á í fyrir sáttanefndum. 1891 —1900 var sætzt á nálega 3/s allra
þeirra mála, sem fyrir sáttanefndir komu, en síðan hefur hlutfallið farið
sílækkandi og 1921—25 komst sætt á aðeins í rúmlega þriðjungi
málanna.
Með lögum nr. 32, frá 11. júlí 1911 var sáttanefndum í vissum
tilfellum veitt úrskurdarvald í skuldamálum, er eigi nema hærri upphæð
en 50 kr. Hafa síðan nokkur mál árlega verið útkljáð af sáttanefndum
með úrskurði, en þau hafa þó verið mjög frá, þar til 1923, að sátta-
nefndin í Reykjavík tók að fara eftir nokkru rýmri skýringu á lögunum
en áður. Hafa síðan allmörg mál verið úrskurðuð, en flestöll í Reykjavík.
Það fer fjarri því, að öll þau mál, sein vísað er til dóms af sátta-
nefndum, komi fyrir dómstólana, því að oft hætta menn við málsókn,
enda þótt ekki hafi orðið af sættum fyrir sáttanefnd.
I töflu V (bls. 32—35) sést hve mörg mál hafa komið fyrir sáttanefndir
í hverju lögsagnarumdæmi oa á landinu í heiid sinni á hverju ári 1919—25
og í töflu VI (bls. 36—39) hve mörg mál hafa komið fyrir hverja sáttanefnd.
5. Einkamál.
Affaires civiles.
Tala einkamála, sem stefnt hefur verið til undirréttar, hefur verið
þessi árin 1919—25.
1919 1920 1921 1922 1923 1924 1925 Samtals
Bæjarþing og aulraréttur .... 92 133 214 173 403 269 220 1504
Gestaréitur . . 175 145 393 566 767 725 546 3317
Sjódómur . . . 23 37 38 37 76 50 73 334
Merkjadómur •1 9 17 25 9 15 7 83
Samtals 291 324 662 801 1255 1059 846 5238
Málunum fjölgar mjög fram til 1923, en fer svo aftur fækkandi. Á
þessum árum voru alls afgreidd frá undirrétti 5 169 mál. Að þessi tala
er lægri heldur en sú, sem er tilfærð hér á undan, stafar af því, að fleiri
mál hafa verið óafgreidd í árslok 1925 heldur en í árslok 1918. Hinum
afgreiddu málum lyktaði þannig.