Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 29.JÚLÍ 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
VITNUM ÓGNAÐ
OG ÞAU BARIN
Gunnar Stefán Wathne krefst frávísunar í máli sínu. Hann segir að rússneskir lög-
reglumenn hafi aflað gagna gegn honum með því að beita vitni harðræði í yfirheyrsl-
um. Vel þekkt sé að lögreglan í Rússlandi beiti sakborninga ofbeldi og kúgun en
kviðdómur í máli hans hafi ekki vitað að gagnanna var aflað með þessum hætti.
Gunnar Stefán Wathne hefur far-
ið fram á það fyrir dómstóli í San
Francisco í Bandaríkjunum að
ákærunni gegn honum verði vísað
frá dómi. Gunnar Stefán er ákærður
fyrir að þvætta tugi milljóna króna
í gegnum fjárfestingar í Rússlandi.
Peningarnir komu upphaflega frá
LSD-verksmiðju, sem starfrækt var
í gamalli yfirgefinni neðanjarðar-
eldflaugageymslu í Kansas. Tveir
menn hafa þegar fengið lífstíðar-
dóm vegna málsins.
Lögmaður Gunnars Stefáns
krefst þess að málinu verði vísað
frá á þeim forsendum að banda-
rískir útsendarar hafi ferðast til
Rússlands og notið samstarfs
harðneskjulegra rússneskra lög-
reglumanna við rannsókn málsins.
Rússnesku lögreglumennirnir hafi
notað „óhefðbundnar aðferðir“
við yfirheyrslu vitna og gagnaöflun
gegn Gunnari Stefáni.
Harðir Rússar
Bandarískir fjölmiðlar hafa fjall-
að um mál Gunnars Stefáns og gera
þeir mikið úr því að móðir hans og
systur hennar tvær eru hinar frægu
og vellauðugu Wathne-systur, sem
hafa verið áberandi í samkvæmis-
lífinu á Manhattan síðustu ár. Mik-
ið er gert úr ástæðum þess að jafn-
auðugur maður og Gunnar Stefán
hafi flækt sig inn í auðgunarbrota-
mál af þessu tagi. Hans bíða allt að
20 ár í fangelsi, verði hann fundinn
sekur.
Karen Snell, lögmaður Gunn-
ars Stefáns, er þó ekki á því að
skjólstæðingur hennar sé sekur
og hafnar kenningu ríkissaksókn-
ara um að Gunnar hafi þvættað
peninga í gegnum Rússland gegn
því að fá tíu prósenta hlut af sölu-
ágóða LSD-framleiðslunnar. Hún
hefur sagt við bandaríska fjölmiðla
að hún sé ósátt við að bandarískir
lögreglumenn hafi notið liðsinnis
rússneskra starfsbræðra sinna við
rannsókn málsins. „Rannsóknar-
lögreglumenn fóru til Rússlands,
þar sem þeir leyfðu Rússunum að
handsama og yfirheyra Gunnar
Stefán og vitni í málinu, með sín-
um hörðu og ógnandi yfirheyrslu-
aðferðum,“ sagði hún.
Brotið á rétti Gunnars
Karen Snell bætir enn fremur
við: „Barsmíðar, hótanir og kúg-
un til þess að ná fram játningum
hjá sakborning-
um eru aðferð-
ir sem eru
almennt
notaðar
af lögregl-
unni í Rúss-
landi. Fyr-
ir vikið óttast
þeir sem lenda
í haldi rússneskr-
ar lögreglu mikið að
verða misþyrmt líkam-
lega.“
Bandarísku sak-
sóknararnir notast
við upplýsingarn-
ar sem Rússarn-
ir öfluðu til þess
að sækja málið
gegn Gunnari fyr-
ir bandarískum
dómstólum. Þetta
gerðu þeir án þess
að upplýsa kvið-
dóminn um hvaðan
upplýsingarnar væru
fengnar, verjandinn telur
enn fremur að með þessu hafi
verið brotið á stjórnarskrár-
bundnum rétti Gunnars og því
beri að vísa málinu frá.
Frávísunarkrafan verður
tekin fyrir 12. ágúst, en upp-
haflega átti málið sjálft að
vera tekið fyrir 20. ágúst í
San Francisco. Saksóknari
í Bandaríkjunum vildi ekki
tjá sig um málið við fjöl-
miðla þar í landi.
„Barsmíðar, hótanir og kúgun til þess að ná
fram játningum hjá sakborningum
eru aðferðir sem eru almennt not-
aðar af lögreglunni í rússlandi.
Fyrir vikið óttast þeir sem lenda í
haldi rússneskrar lögreglu mikið
að verða misþyrmt líkamlega.“
valGeiR öRn RaGnaRSSon
blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is
Rússnesk lögregla Beitir harðræði
við yfirheyrslur og almenningur í
landinu óttast lögregluna. Gunnar Stefán Wathne
Vill að málinu verði vísað frá.
„Ég veit að skólastjórar í Kópavogi
eru að skoða þetta mál, sem og for-
maður kennarafélags Kópavogs. Það
er gífurleg óánægja meðal þeirra um
að þarna hafi verið ráðinn sviðsstjóri
fræðslusviðs sem hefur engan fag-
legan bakgrunn í menntakerfinu. Ég
á allt eins von á að þaðan eigi eftir að
heyrast óánægjuraddir. Þessu er síð-
ur en svo lokið,“ segir Guðríður Arn-
ardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í
Kópavogi.
Embætti sem ráðið var í á auka-
fundi bæjarráðs Kópavogs á laug-
ardaginn voru ekki auglýst. Var þar
um að ræða nokkur æðstu embætti
bæjarins, meðal annars stöðu sviðs-
stjóra fræðslusviðs og gæðastjóra
bæjarins. Gunnar I. Birgisson bæjar-
stjóri hefur gefið lítið út á þá miklu
gagnrýni sem ráðningarnar hafa
fengið.
Guðríður segir minnihlutann í
stjórn bæjarins þegar hafa óskað eftir
áliti samgönguráðuneytisins á ráðn-
ingunum. Samkvæmt sveitarstjórn-
arlögum er sveitarfélögum ekki skylt
að auglýsa lausar stöður á vegum
bæjarins. Lög um opinbera starfs-
menn leggja hins vegar slíka skyldu
á herðar ríkinu. „Ef ríkið hefði gert
þetta er ekki spurning um að þetta
væri hreint og klárt lögbrot.“
Í starfsmannastefnu Kópavogs-
bæjar sem og bæjarmálasamþykkt
segir að bæjarstarfsmenn hafi rétt-
indi og skyldur opinberra starfs-
manna. „Það gæti þýtt að þetta væri
lögbrot,“ segir Guðríður.
Hún segir kominn tíma á að
ráðningar bæjarins verði teknar til
gagngerrar endurskoðunar vegna
skorts á því að stöður séu auglýstar
„Hér í Kópavogi hefur þetta ítrekað
verið stundað og mjög mikilvægt að
fá álit ráðuneytis á ferlinu. Þá er ég
ekki beint að tala um stjórnsýslu-
kæru heldur að fá álit og reifa málið
út frá því.“
Þar sem lagalega hliðin virðist
óljós leggur Guðríður til breytingar:
„Ég held að við þurfum að velta fyr-
ir okkur hvort ekki sé rétt að breyta
lögum, hvort ekki sé rétt að sveitar-
félög auglýsi stöður sem þessar eins
og ríkisvaldið.“ erla@dv.is
Skortur á fagmenntun sviðsstjóra fræðslusviðs veldur ólgu meðal skólamanna:
Skólastjórar ósáttir við ráðningu
vill lagabreytingu
Guðríður Arnardóttir telur að breyta
þurfi lögum þannig að sveitar-
stjórnum beri skylda til að
auglýsa stöður á sama hátt
og ríkisvaldið.
Frjálslyndir með
borgarmálafélag
Borgarmálafélag Frjálslynda
flokksins verður stofnað í kvöld.
Stofnun félagsins er liður í því að
efla Frjálslynda flokkinn að sögn
Ásgerðar Jónu Flosadóttur en
hún er talsmaður fyrir stofnun
félagsins. „Við teljum mikilvægt
að Borgarmálafélag Frjálslynda
flokksins sé starfandi í Reykja-
vík,“ segir hún. Kjördæmafélögin
sjá um starf og uppstillingu fyrir
alþingiskosningar en Frjálslyndi
flokkurinn er með
slík kjördæma-
félög víða að
sögn Ásgerð-
ar. Stofnfund-
urinn verður
að Skúlatúni 4
klukkan hálf
níu.
Ólafur kemur
ekki að félaginu
„Ólafur F. Magnússon kemur
ekkert að þessu félagi enda er
hann ekki í Frjálslynda flokkn-
um. Það er hins vegar öllum
frjálst að ganga í félagið,“ seg-
ir Ásgerður Jóna Flosadóttir,
talsmaður stofnunar Borgara-
málafélags flokksins, en félagið
verður stofnað í kvöld. Að sögn
Ásgerðar verða 12 stjórnar-
meðlimir kosnir á fundinum í
kvöld. Þess utan verður skipað í
50 manna fulltrúaráð. „Þetta er
mjög jákvæð þróun inn-
an flokksins og sýnir
að við erum núna
komin með þing-
mann fyrir Reykja-
vík. Við viljum efla
og virkja
sem flest
félög inn-
an flokks-
ins,“ seg-
ir hún.
Afskipti af
tívolídólgum
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu þurfti á föstudags-
kvöld að hafa afskipti af tveimur
mönnum við tívolíið sem nú er
staðsett á Völlunum í Hafnar-
firði en gerðu starfsfólkinu lífið
leitt. Mennirnir höfðu verið að
abbast upp á starfsfólkið þegar
lögreglan var kölluð til en voru
hættir því þegar hún kom á vett-
vang. Lögreglan tóku mennina
á tal og sagði þeim að hafa sig á
brott sem þeir og gerðu. Engir
eftirmálar eru af málinu af hálfu
lögreglunnar.
Lát Pólverja
enn rannsakað
Lögreglan rannsakar enn
andlát pólsks karlmanns sem
fannst látinn eftir fall í húsi við
Frakkastíginn í júní. Lögreglan
hneppti tvo menn í gæsluvarð-
hald en þeir voru grunaðir um
að hafa komið að dauða manns-
ins. Ekkert liggur fyrir í rann-
sókn málsins og eru mennirnir í
farbanni enn sem komið er. Ekki
fengust skýr svör frá rannsókn-
ardeild lögreglunnar um gang
rannsóknar. Dánarorsök er enn
á huldu.