Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 8
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 20088 Fréttir
Pústrar í
borgarstjórn
Frá upphafi meirihlutasamstarfsins í borgarstjórn var ljóst að
Ólafur� ��� �a������� og samstarfsfólk hans í Sjálfstæðisflokkn-
um eru um margt mjög ósammála. Þó tilraun hafi verið gerð til að
sætta mismunandi áherslur í stuttum málefnasamningi þeirra er
blaðið sem skilur bakka og egg æði breitt í mörgum óþægilegum
málum. DV rifjar upp þau helstu.
Hvað sem öðru líð-
ur er ljóst að mein-
ingar borgarstjóra
og sjálfstæðis-
manna um flug-
völlinn eru ekki
samræmanlegar.
Bitruvirkjun
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti að hætta
undirbúningi Bitruvirkjunar 20. maí síðastliðinn með
sjálfstæðismanninn Kjartan Magnússon í broddi fylkingar.
Ólafur F. Magnússon fagnaði þeirri ákvörðun sama dag og
fullyrti að þar með hefði virkjunin verið slegin út af borðinu.
Á borgarstjórnarfundi síðar um daginn óskaði hann borgar-
búum og landsmönnum til hamingju með ákvörðunina.
Það skaut því skökku við þegar Kjartan birtist á forsíðu
Fréttablaðsins 24. júlí síðastliðinn og hélt því fram að ekki
hefði verið hætt við virkjunina, heldur hefði undirbúningi
hennar verið frestað. Ólafur brást við orðum Kjartans og sendi
frá sér yfirlýsingu daginn eftir þar sem hann áréttar án refja að
virkjunin hafi verið slegin af. Vangaveltur um annað séu óþarfar
á meðan núverandi meirihluti stjórni borginni.
vatns�ýrin
„Það er mín eindregna skoðun að við eigum að byggja í
Vatnsmýrinni. Þar á að vera íbúðabyggð í framtíðinni,“ var
haft eftir Gísla Marteini Baldurssyni á fundi sjálfstæðismanna
í Reykjavík í janúar. Aðrir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lýstu sömu skoðun á fundinum.
Ólafur F. hefur hins vegar oft tekið af öll tvímæli um af-
stöðu sína til flugvallarins; hann verði áfram í Vatnsmýrinni
til langrar framtíðar.
Í málefnasamningnum var millivegurinn genginn og sagt
að ekki yrði tekin ákvörðun um flutning flugvallarins á þessu
kjörtímabili. Sjálfstæðismenn hafa lýst því yfir að þess í stað
verði tíminn notaður til að kanna önnur flugvallarstæði.
Hvað sem öðru líður er ljóst að meiningar borgarstjóra og
sjálfstæðismanna um flugvöllinn eru ekki samræmanlegar.
ListaháskÓLinn
Tillaga sem vann hönnunarsamkeppni um nýtt húsnæði Listaháskólans gerir ráð fyrir því að hann rísi við Frakkastígsreitinn svo-
kallaða í miðbæ Reykjavíkur. Í tillögunni er gert ráð fyrir því að tvö af þremur eldri húsum á reitnum víki fyrir nýbyggingunni.
Áður en tillagan var tekin til umræðu í skipulagsráði hafði Ólafur F. slegið því föstu að skipulagsráð myndi ekki samþykkja tillög-
una í óbreyttri mynd. Í málefnasamningi F-lista og Sjálfstæðisflokks segir enda að varðveita skuli 19. aldar götumynd miðbæjar-
ins eins og kostur er.
Formaður skipulagsráðs, sjálfstæðismaðurinn Hanna Birna Kristjánsdóttir, hefur síðan boðað til fundar með forsvars-
mönnum Listaháskólans um hvernig sætta megi mismunandi sjónarmið í málinu. Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra lítur á það sem svo að Hanna vilji tryggja að skólinn rísi á grundvelli verðlaunatillögunnar sem kynnt hefur
verið, enda er hann líkt og fleiri afar hrifinn af tillögunni. Hvort niðurstaðan verði Ólafi að skapi verður tím-
inn að leiða í ljós.ingi hennar verið frestað. Ólafur brást við orðum Kjartans og sendi frá sér yfirlýsingu
daginn eftir þar sem hann áréttar án refja að virkjunin hafi verið slegin af. Vangaveltur um annað séu
óþarfar á meðan núverandi meirihluti stjórni borginni.
strætÓ
Sjálfstæðismaðurinn Gísli Marteinn Baldursson hefur lýst því yfir að hann telji rétt að
bjóða út allan akstur Strætó til einkaaðila. Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður
Strætó, hefur einnig viðrað sömu sjónarmið, svo og ýmsir fulltrúar í stjórn Strætó.
Ólafur F. er hins vegar á öndverðum meiði og lýsti
algjörri andstöðu við einkavæðingu Strætó
nýlega. Í samtali við Fréttablaðið rifjaði
hann upp þegar vilji stóð til þess að
einkavæða fyrirtækið árið 1994:
„Ég man eftir því þegar vilji var
til að einkavæða Strætó fyrir
árið 1994. Borgarbúar vildu
það ekki þá og þeir vilja það
ekki nú og ég ekki heldur.“
Stjórn Strætó hefur engu
að síður samþykkt að
bjóða út helm-
ing akst-
ursleiða
fyrir-
tækisins
í haust.
Ólafur� ��� �a�������
Kom ár síns flokks vel fyrir
borð í meirihlutasamstarfinu.
Mynd DV / Stefán
ha��a Bir��a kr�i�tjá��dóttir�
Þarf að stíga varlega til jarðar
varðandi byggingu nýs
listaháskóla. Mynd DV / Gúndi
Gí�li �ar�tei�� Baldur����� Vakti litla
kátínu borgarstjóra með hugmyndum um
útboð strætisvagnaaksturs og íbúðabyggð
í Vatnsmýri. Mynd DV / Stefán
kjar�ta� �a������� Var snarlega
leiðréttur af borgarstjóra eftir að
hafa ýjað að því að Bitruvirkjun væri
enn í spilunum. Mynd DV / Ásgeir
hafsteinng@dv.is