Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 18
ÞRIÐJUDAGUR 29.JÚLÍ 200818 Umræða
Golf er göfug íþrótt. Held-rimannaíþrótt sem hef-ur tekist að breyta jafn-
vel villimönnum í siðaða menn,
þó það kunni aðeins að vera rétt
á meðan menn
stunda þessa
íþrótt heið-
ursmanna.
Þessi merka
íþrótt hefur
sínar hefðir,
sína siði sem
eru stór hluti
af því hversu fág-
uð íþrótt það er að taka kylfu og slá
í bolta þannig að hann fljúgi langar
leiðir.
Og einn siðurinn er sá að golfarar séu almennilega til fara. Það er kannski ekki
hægt að krefjast þess að allri séu
jafn óaðfinnanlega klæddir við golf-
iðkun og Bertie Wooster, í sam-
nefndum breskum grínþáttum
gerð- um eftir samnefnd-
um breskum
gamansögum P.
J. Wodehouse.
En það má
aldrei, aldrei,
aldrei ger-
ast að menn
mæti á golfvöll
og byrji að slá
íklæddir gallabuxum.
Þess vegna hlýtur það að vera svartur dagur í sögu Urriða-vallar í Heiðmörk, dagurinn
þegar Mel Gibson mætti á völlinn.
Þessi stórstjarna sem hefur leikið
jafnt Max hinn brjálaða og Hamlet
hans Shakespeares kom til að leika
nokkrar holur á vellinum. Leikarinn
heimsfrægi sem gerði skoskan upp-
reisnarmann ódauðlegan og lýsti
þjáningum frelsarans svo skörugl-
ega að jafnvel hörðustu karlmenni
fundu til gerðist nú sekur um þau
helgispjöll að spila golf í gallabux-
um. Sök sér að hann skyldi skjóta
boltanum út fyrir brautina en í
gallabuxum má víst enginn mæta á
golfvelli.
Hvað ætli Tiger Woods myndi segja? Blökkumaðurinn sem hefur gert íþróttina
vinsælli meðal almennings heldur
en kannski nokkur annar golfleikari
fyrr og síðar. Tiger Woods er vissu-
lega sportlega klæddur þegar hann
mætir til æfinga
og keppni. En
gallabuxum
sést hann
væntanlega
seint í. Dett-
ur nokkr-
um í hug að
Phil Mickelson
hefði fengið að
klæðast græna
jakkanum
við gallabux-
ur? Senni-
lega hefði það
þótt jafn galið
og ef Christiano
Ronaldo hefði mætt
í bleikum sokkabuxum í stað hvítra
stuttbuxna í leik með Manchester
United eða portúgalska landsliðinu.
Nei, fötin skapa manninn. Alla vega í sumum íþrótta-greinum. Og vei þeim sem
reynir að brjótast út úr hefðinni.
Svartur dagur á urriðavelli
svarthöfði
ReyniR TRausTason RiTsTjóRi skRifaR. Bæjarstjórinn hefur svarað ásökunum með heimskulegum útúrsnúningum.
Spilltur bæjarstjóri
Leiðari
Þeirrar tilhneigingar gætir í vaxandi mæli hjá þeim sem gegna opinber-um ábyrgðarstöðum að fara með stofnanir eins og þær séu einka-
fyrirtæki. Þetta er þekkt varðandi skipan
dómara þar sem stjórnmálamenn hafa lát-
ið geðþótta ráða í stað þess að halda í heiðri
eðlilegar reglur sem miða að því að hin-
ir hæfustu séu ráðnir í vinnu hjá fólkinu og
fyrir fólkið. Nýjasta dæmið um einræðistil-
burði er í Kópavogi þar sem Gunnar Birgis-
son bæjarstjóri auglýsir ekki í stöður heldur
ræður fólk eins og honum sýnist. Bæjar-
stjórinn hefur slæmt orð á sér vegna dek-
urs við nektarstaði en toppar nú allt eigið
rugl með framgöngu sem flestir átta sig á að
samræmist ekki eðlilegum reglum góðrar
stjórnsýslu. Guðríður Arnardóttir, leiðtogi
Samfylkingar og minnihlutafulltrúi í Kópa-
vogi, fordæmdi að ráðning þriggja starfs-
manna í ábyrgðarstöður hjá Kópavogsbæ
hefðu átt sér stað án þess að störfin væru
auglýst. Bæjarstjórinn hefur svarað ásök-
unum með heimskulegum útúr-
snúningum eins og þeim að konur
séu konum verstar. Þessi vörn á sér
þá furðulegu skýringu að af þremur
sérvöldum starfsmönnum eru tveir
þeirra konur. Bæjarstjórinn lætur
sem sagt að því liggja að hann sé að
stuðla að jafnrétti. Þar sem um er að
ræða opinbera stofnun eins og bæj-
arfélagið hlýtur það að vera grund-
vallaratriði að allir eigi jafna mögu-
leika á þeim störfum sem til falla en
ráðningar stjórnist ekki af velþóknun
manna sem kosnir hafa verið til þess
að stjórna og fylgja reglum. Því mið-
ur er svo að sjá sem stjórnsýsla Kópa-
vogs sé með þeim endemum að það
sé afsagnarsök fyrir bæjarstjórann.
Kópavogsbúar eiga allt annað og
betra skilið en að slík spilling þrífist
í bæjarfélaginu þeirra. Það er skylda
minnihlutans í Kópavogi að uppræta
spillinguna í bænum.
DómstóLL götunnar
Hvað finnst þér um mótmæli saving iceland?
„Ég er ekki hrifin af þeim, fólk hefur
eitthvað þarfara að gera.“
Kristín Brynjarsdóttir,
50 ára, án atvinnu
„Mér finnst þau að mörgu leyti góð,
þau fara kannski harkalega í önnur.“
Sigríður Ólafsdóttir,
33 ára, vinnur við Háskólasetur
Vestfjarða
„Mér finnst þetta gott hjá þeim, ég er á
móti því að menga landið.“
Ragnar Hauksson,
46 ára húðflúrari
„Íslendingar taka ekkert mark á þeim,
þeir verða að gera eitthvað róttækara.“
Lárus Ingi Kristjánsson,
50 ára, án atvinnu
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur Helgason, asi@birtingur.is
Dv á netInU: Dv.Is
AÐALnÚMeR: 512 7000, RItstJóRn: 512 7010,
áskRIftARsÍMI: 512 7080, AUGLýsInGAR: 512 70 40.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
sanDkorn
n Silfurmaðurinn Egill Helga-
son er ekki í vafa um að Sjálf-
stæðisflokkurinn í borgarstjórn
og á landsvísu sé í stórfelldum
vandræðum. Hann bloggar um
að ekki sé
sýnilegt að
Sjálfstæðis-
flokkurinn
eigi samleið
með Ólafi
F. Magnús-
syni borg-
arstjóra og
því farsælast
að skipta út.
Egill bloggar einnig um ríkis-
stjórnina sem hann telur vera á
endastöð. „Ef þessi ríkisstjórn
fer ekki að aðhafast eitthvað,
finnst manni eins og hún eigi
ekki mikinn tilverurétt. En lík-
lega þorir Sjálfstæðisflokkur ekki
í ríkisstjórn með Framsókn sem
byggist á eins manns meirihluta
– sem getur til dæmis verið Árni
Johnsen.“
n Enn hefur Geir H. Haarde, nú-
verandi forsætisráðherra, ekkert
gefið upp um fyrirhugað brott-
hvarf Björns
Bjarnasonar
dómsmála-
ráðherra og
þá líklega
innkomu
Bjarna Bene-
diktssonar
á ráðherra-
stól. Óró-
lega deildin
í Sjálfstæðisflokknum stendur í
þeirri meiningu að Geir muni,
ef honum endist ferill til, skipta
út fleirum í leiðinni. En þá gætir
nokkurs kvíða um að Guðfinna
Bjarnadóttir alþingismaður
verði gerð að ráðherra en hún
þykir ekki hafa fundið sína fjöl í
stjórnmálum.
n Þegar kemur að ráðherraskipt-
um Sjálfstæðisflokksins má allt
eins búast við að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir, formaður Sam-
fylkingar, grípi til andlitslyftingar
sín megin. Þannig gæti Þórunn
Sveinbjarn-
ardóttir,
umhverf-
isráðherra
og ísbjarna-
bani, vikið
fyrir Katrínu
Júlíusdótt-
ur alþingis-
manni. Þá er
hugsanlegt að Kristján Möller
samgönguráðherra, sem engan
veginn hefur náð sér á strik, víki
fyrir Gunnari Svavarssyni, leið-
toga Samfylkingar í Kraganum.
En allt er þetta spurning um að
ríkisstjórnin lifi af eigið aðgerða-
leysi.
n Sparisjóður Vestfirðinga er
nú um það bil að gleymast eftir
samruna við Sparisjóð Keflavík-
ur. Á meðal Vestfirðinga er talað
um fjandsamlega yfirtöku frem-
ur en sameiningu og búist er við
að einhver útibú verði slegin af.
Sú ákvörðun yrfirstjórnarinnar í
Keflavík að láta Angantý Jónas-
son úr Kópavogi vera yfirmann
á svæðinu en ekki Flateyringinn
Eirík Finn Greipsson þykir vera
vísbending um að látið verði til
skarar skríða.