Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Blaðsíða 30
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 200830 Síðast en ekki síst Sandkorn n Á vef zikzak.is er að finna stiklu úr myndinni Skrapp út eftir Sólveigu Anspach. Þar leikur Didda Jónsdóttir konu sem selur kanna- bisefni í Reykjavík. Í stiklunni má sjá hvar Didda lendir í vandræð- um og festist úti á landi en á meðan fyllist íbúð hennar af viðskiptavin- um sem eru leiknir af þekkt- um einstaklingum og leikurum eins og Ingvari E. Sigurðssyni, Ólafíu Hrönn, Óttari Proppé, Erpi Eyvindarsyni, Krumma úr Mínus, Frosta Gringo og fleirum. Myndin er frumsýnd 8. ágúst. n Ellý Ármannsdóttir var gestur í útvarpsþættinum Úr plötuskápnum á Rás 2 á sunnu- daginn. Ellý spilaði nokkur af uppáhaldslögunum sínum og lét allt flakka. Hún spilaði meðal annars nokkur lög sem hún sagði að væri einstaklega gott að kela við auk þess sem hún sagði frá því hversu mikil ást við fyrstu sýn það var þegar hún kynntist eig- inmanni sín- um sem hún sagði vera mjúkan líkt og froðu á bjór. Í þættinum minntist Ellý einnig á það að hún væri enn í sambandi við handritshöfund- inn úti í Ameríku sem keypti réttinn til að gera sjónvarps- þáttahandrit eftir blogginu hennar og hún sendi honum af og til nýjar hugmyndir. n Meðlimir sveitarinnar Maus eru komnir saman á nýjan leik eftir dágóða pásu. Fjórum árum eftir að síðasta breið- skífa þeirra kom út hafa þeir gefið út lagið Cover My Eyes. Ástæðan ku vera að 15 ár eru síðan hljómsveitin var stofn- uð. Biggi og félagar hafa þó haldið góðu sambandi síðastliðin fjögur ár þrátt litla spilamennsku sam- an. Nú síðast var Curver Thor- oddsen veislustjóri í brúðkaupi Birgis Arnar Steinarssonar, forsprakka Maus, sem fór fram þarsíðustu helgi. Hver er maðurinn? „Kristján Þór Einarsson.“ Hvað drífur þig áfram? „Golfið og almenn hreyfing.“ Hvaðan ert þú? „Ég er úr Mosfellsbænum. Frábær bær.“ Uppáhaldsstaður úr æsku? „Vestmannaeyjar. Öll fjölskylda móður minnar er úr Eyjum.“ Skemmtilegasta utanlands- ferð sem þú hefur farið í? „Þær eru svo margar. Ein eftir- minnileg er þegar við (landsliðið) fórum nýlega á Evrópumótið á Ít- alíu. Við héldum okkur inni í mót- inu og ég setti niður 11 metra pútt til að vinna holu.“ Við hvað starfar þú? „Ég vinn á golfvellinum í Mosó.“ Ef ekki golf, hvað þá? „Í rauninni ekki neitt.“ Hvað hefur þú æft lengi? „Frá sumrinu 1998.“ (Kristján er fæddur 1988.) Hélstu að þú ættir möguleika á titlinum þegar mótið hófst? „Í byrjun móts gerði ég það eða eft- ir fyrsta hring. En eftir þriðja hring var ég ekkert að spá í þetta.“ Hvernig fórst þú 16. holuna þegar Heiðar og Björgvin kepptust við að slá út í sjó? „Rétt missti af fuglinum.“ Hvernig leið þér þegar þú vissir að þú ættir sénsinn? „Bara mjög vel en þetta kom nokk- uð á óvart.“ Var sigurinn sætari því Heiðar er fyrrverandi klúbbfélagi þinn? „Hann var mun sætari fyrir vikið.“ Ertu yngstur til að ná þessum árangri? „Ég veit það ekki alveg. Ég held að Úlfar Jónsson hafi verið 19 ára þegar hann vann fyrst en ég er ekki alveg viss.“ Mun þessi titill breyta þér sem golfara eða þínum áherslum? „Nei, í raun ekki. Ég mun halda áfram að spila.“ Hvernig var titlinum fagnað? „Ég fagnaði með klúbbfélögum á lokahófinu í gær. Kannski verður svo eitthvað í golfskálanum þegar ég kem heim en ég veit það ann- ars ekki.“ Hefur þú unnið til annarra verðlauna? „Ekki í karlaflokki. En ég hef tvisv- ar verið í öðru sæti á Íslandsmóti unglinga í höggleik og tvisvar meistari í holukeppni unglinga.“ Hvað á að gera um verslunar- mannahelgina? „Bara vera rólegur heima og æfa.“ Hvað tekur við í vetur? „Ég er að klára stúdentinn á félags- fræðibraut í Borgó. Síðan er ég líka að byrja á nýrri afreksbraut þannig að ég fæ einingar fyrir golfið.“ MAÐUR DAGSINS Sigurinn var Sérlega Sætur Kristján Þór Einarsson varð óvænt Íslandsmeistari í höggleik um helgina. Kristján jafnaði tvo af helstu kylfingum landsins, þá Heiðar Davíð Bragason og Björgvin Sigurbergsson, á lokasprettinum og sigraði loks í bráðabana. Hinn tvítugi Kristján ætlar að klára stúdentinn í vetur og halda áfram að einbeita sér að golfinu. BókStAfleGA „Ég er á útkallinu þar. Það er mjög gott djobb.“ n Magga massi um starf sem öryggisvörður hjá Öryggismið- stöðinni. - Fréttablaðið „Byggt á vin- sælasta söngleik allra tíma.“ n Bíóauglýsing fyrir myndina Mamma Mia! í Morgunblaðinu um síðustu helgi. „Ég var minn- islaus til rúmlega hálf ellefu í gærkvöldi.“ n Jónas Hallgríms- son sem rotaðist í knattspyrnuleik á Mærudögum á Húsavík um helgina. - DV „Það fer alveg að verða skemmtilegra að horfa á tónlistarmyndbönd en handboltaleiki.“ n Snorri Sturluson íþróttafréttamaður í lýsingu á handboltalandsleiknum Ísland - Egyptaland. - Sjónvarpið „Ég hélt ég væri farinn. Skórnir mínir og polla- buxurnar drógu mig niður. Ég er frábær sundmaður, en ég komst ekki upp á yfirborðið.“ n Sjónvarpskokkurinn Gordon Ramsey var hætt kominn við lundaveiðar á Íslandi. – visir.is. „Svo gaf frjálsíþrótta- deild FH mér ferð til Par- ísar klukk- an 7.45 í fyrramál- ið þannig að ég er á leiðinni heim að pakka. Loksins fæ ég frí með manninum mínum.“ n Silja Úlfarsdóttir frjálsíþróttakona. - DV „Það er alveg hægt að segja að það verði mikill hausverk- ur og erfitt verkefni.“ n Guðumundur Guðmundsson landsliðsþjálfari um það verkefni að velja lokahóp fyrir Ólympíuleikana í Kína. - Morgunblaðið. „Raunveruleikinn í öðr- um löndum í kringum okkur er sá að dyraverðir eru í hnífavest- um.“ n Ófeigur Friðriksson, eigandi Hverfisbars- ins, segir það vel hugsandi að fá hnífavesti fyrir dyraverði í miðborg Reykjavíkur. - DV Bogomil og Milljónamæringarnir halda miðnæturtónleika í Þrastalundi: Sætaferðir á tónleikana „Þetta kom til eftir að eigendur í Þrastalundi höfðu samband við okkur og þá langaði að gera eitthvað nýtt, skapa skemmtilega stemningu á staðnum. Við kíktum á staðinn og okkur leist voða vel á þennan stað,“ segir Steingrímur Guðmundsson, trommuleikarinn í Milljónamær- ingunum, betur þekktur sem Steini skil. „Þetta minnti okkur svolítið á stemninguna í Hreðavatnsskála í gamla daga eða fyrir svona fimmt- án árum.“ Um verslunarmannahelgina verða Bogomil og Milljónamær- ingarnir með miðnæturtónleika í Þrastalundi við Sogið, bæði á föstu- dag og laugardag. „Við miðum við að það verði smá dansstemning á svæðinu, því verða þetta dans-tón- leikar,“ segir Steini. Á tónleikunum verða leikin lög af ferli hljómsveitarinnar ásamt öðrum lögum frá síðustu öld. „Við höfum alltaf verið miklir aðdáend- ur Hauks Morthens og verður þetta síðan suðræn sveifla. Svo eru þetta okkur eigin lög sem við höfum gert vinsæl í gegnum tíðina,“ segir Steini. „Við erum með sætaferðir fyrir fólk sem er í bústöðunum í kring. Það verður bíll sem fer þarna um aðal- götuna í gegnum sumarbústaða- byggðina á klukkutíma fresti. Því á fólk ekki að láta sig vanta á tónleik- ana.“ Á tónleikana kostar tvö þúsund og fimm hundruð krónur og fer miðasalan fram í Þrastalundi í síma 482 2010 og hjá Steina í síma 892 7947. Einnig verða miðar seldir við innganginn. berglindb@dv.is Miðnæturtónleikar í Þrastalundi Bogomil og Milljónamæringarnir halda dans-tónleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.