Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2008 11Fréttir
Árni eins og Brésnef
ópusambandið. Hann segir Björgvin
bundinn af stjórnarsáttmála sem nú
sé þó orðinn úreltur í ljósi aðstæðna.
Sáttmálinn geri það hins vegar að
verkum að Björgvin geti ekki sagt
að Íslendingar eigi að ganga í Evr-
ópusambandið. Hann segir Björg-
vin aðhyllast smáskammtalækn-
ingar og nefnir stimpilgjöldin því til
stuðnings. „Þeir geta ekki einu sinni
lufsast til að fullnusta loforðið um að
afnema þetta illræmda gjald. Í stað-
inn hælir hann sér af því að það sé
búið að afnema þetta hjá sumu fólki.
Þess vegna minnir Björgvin mig svo-
lítið á Krjúsjoff. Vill láta smyrja tein-
ana með smáskammtalækningum,
til dæmis með því að stækka dyrnar
hjá Íbúðalánasjóði. Málið er að þeir
láta þennan stjórnarsáttmála blinda
sig og múlbinda,“ segir hann ákveð-
inn.
Bakka inn í fortíðina
Guðmundur segist hafa samúð
með Guðna Ágústssyni. Framsókn-
armenn séu raunsæismenn og skilji
að ekki sé hægt að reka samfélagið
nema fá peninga inn í kerfið. Guðni
vilji taumlausar virkjanir og vilji helst
bakka lestinni á fullri ferð inn í fortíð-
ina. „Þeir eru ófáanlegir til að ræða
kjarna málsins; nýjan gjaldmiðil sem
eitthvað vit er í. Þeir vita að þar með
munum við endanlega tengjast öðr-
um löndum. Þá er þetta landbúnað-
arfyllerí búið spil,“ segir Guðmund-
ur en bætir við að það sé nú
reyndar að verða búið
spil vegna alþjóða-
samninga. Því
sé óþarfi fyr-
ir Guðna að
óttast frekari
tengingu við
önnur lönd.
Snýst um
Evrópu-
aðild
„Mesta
samúð hef
ég með Jóni
Magnússyni
vegna þess
að hann segir
einna minnst,“
seg-
ir Guðmundur. „Ég hef samúð með
hans málstað. Hann tæpir lítils-
háttar á kjarna málsins en auðvitað
verða menn að horfast í augu við að
það þýðir ekkert að láta svona eins
og kjánar. Það er ekki hægt að snið-
ganga Evrópuumræðuna. Það veit
Jón og hittir því naglann að nokkru
leyti á höfuðið. Hann stígur þó skref-
ið ekki til fulls með því að leggja það
til að menn sæki um aðild að Evr-
ópusambandinu,“ segir Guðmundur
um svör Jóns.
Seðlabankastjórnin
þarf að víkja
Guðmundur segir að ef menn vilji
komast til botns í vandanum ættu
þeir að lesa grein Ólafs Ísleifssonar
sem birtist í Markaðnum í síðustu
viku. „Þar bendir Ólafur réttilega á
að efnahagslegt eðli vandamál-
anna sé þekkt. Lausnirnar séu
pólitískar. Það liggi allt fyrir
hvað efnahagsmálin snertir.
Menn þurfi einfaldlega að
koma sér saman um það
hvernig samlagast skuli
Evrópusambandinu,“ seg-
ir Guðmundur.
Hann segir nýjan efna-
hagsráðgjafa góðra gjalda
verðan en að hans hlut-
verk verði fyrst og fremst
að leiða forystu Sjálfstæð-
isflokksins saman. „Tryggvi
Þór verður eitt allsherj-
ar símtæki sjálf-
stæðismanna.
Þeir geta tal-
að saman
í gegnum
Tryggva
en einn stærsti vandi þeirra hefur
einmitt verið samskiptaörðugleikar,“
segir Guðmundur.
„Það er líka öllum ljóst að stjórn
Seðlabankans er rót þess vanda
sem við glímum við. Davíð Odds-
son hæðist að Geir H. Haarde í ræðu.
Kallar hann efnahagsráðherra og ég
veit ekki hvað. Samt þorir Geir ekki
að láta hann víkja. Það á að láta þessa
bankastjórn og bankaráð fara. Það
þarf að móta nýja stefnu í peninga-
málum, stefnu sem byggist á Evr-
ópusambandinu,“ segir hann.
Aðspurður hver Stalín sé í sög-
unni góðu segir hann: „Lesendur fá
að geta sér til um það, hann er senni-
lega ekki lengur í ríkisstjórn, kominn
til starfa annars staðar.“
Árni M. Mathiesen
Guðmundur líkir
honum við Brésnef.
Björgvin G. Sigurðsson Aðhyllist
smáskammtalækningar eins og
Krjúsjoff, að sögn Guðmundar.
Steingrímur J. Sigfússon
Vill alla með, líkt og Gorbatsjov
Jón Magnússon þingmaður
Hittir naglann á höfuðið að
mati Guðmundar.
Að eiga og elska heimsins versta hund
-Mjög fyndin ástarjátning
... Í bókinni Marley og ég
er viðfangsefninu lýst af
hlýju ... gamansemi og
ástúð.
New York Times
-Fyndin og hjartnæm saga um
fimmtíu kílóa Labrador sem
var jafn tryggur og elskulegur
og hann var óþekkur.
People
-Hugsanlega hugljúfasta bók
ársins. Sannarlega
hundavinabók ársins.
USA Today
MARLEY OG ÉG er bók sem allir
hundaáhugamenn verða að lesa
- og hinir líka.
Marley og ég
John Grogan
Að eiga og elska
heimsins versta hund
Á metsölulista New York
Times Frum-
útgáfa í
kilju
HÓLAR
Nánari upplýsingar
í síma 698 2312 - Jón Aðalsteinn
TIL SÖLU !!!
Honda Shadow
1100cc Sabre
árg.2000,
ekin 6þús mílur
Honda Valkyrie
Interstate 1520cc
árg.1999,
ekin 25þús km
Honda Valkyrie
Rune
árg.2004, ekin
1þús km