Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2008, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚLÍ 2008 13Fréttir
Mannaskítur á kornakra
að sumar vörur þeirra innihaldi leðj-
una.
Talsmaður Tesco sagði það óhugs-
andi að fyrirtækið myndi nokkurn
tímann „leyfa einhverju í líkingu við
skólp að komast nálægt vörum sín-
um“. Asda sagði að fyrirtækið hefði
tekið ákvörðun um að selja ekki vör-
ur sem innihéldu matvæli sem rækt-
uð hefðu verið með aðstoð úrgangs
frá mönnum af ótta við matareitr-
anir. Marks og Spencer sögðust ein-
faldlega „ekki hafa áhuga“ á því að
selja slíkar vörur. Nokkrir alþjóðleg-
ir matvælaframleiðendur hafa bann-
að leðjuna, þar á meðal Del Monte,
Campbell Soup og einhverjir fram-
leiðendur barnamatar.
Vont fyrir nýrun og dýrin
Stuðningsmenn áburðarins segja
að allt sé gert til þess að koma í veg
fyrir heilsufarsvandmál af völdum
hans og taka fram að 99 prósent
bakteríanna séu drepin í vinnsluferl-
inu. Rannsóknir hafa sýnt að korn,
kartöflur og grænmeti á borð við kál
og spínat drekka í sig cadmium, sem
er eitt af þeim þungu málmum sem
geta fundist í holræsakerfum borga,
en cadmium getur valdið nýrnasjúk-
dómum. Einnig hafa komið fram
áhyggjur þess efnis að úrgangurinn
hafi slæm áhrif á dýr. Bresk rannsókn
sýndi að kindur sem nærast á korni
sem hefur verið ræktað með leðju-
áburði eignist minni og hormóna-
breytt afkvæmi.
Getur ekki nefnt
einstakar vörur
Aðpurðurhvaða vörur eru rækt-
aðar með leðjuáburði eða innihalda
önnur efni sem hafa verið ræktuð
þannig, segir talsmaður Sainsbury’s-
verslanakeðjunnar að það séu eng-
ar sérstakar vörur sem hægt sé að
nefna. „Samt sem áður er stefna okk-
ar sú að ef áburðurinn er notaður sé
það gert eins og reglur segja til um.“
Talsmaður Waitrose sagði fyrirtæk-
ið fara eftir reglum sem kæmu frá
heilbrigðisráðuneytinu en fyrirtæk-
ið leyfir framleiðendum sínum ekki
að nota leðju í framleiðslu á ávöxtum
og grænmeti. Talsmaður Tesco sagði
fyrirtækið ekki nota neinar vörur sem
framleiddar hefðu verið á ökrum þar
sem leðjan er notuð.
Grænir akrar Á meira en þrjú þúsund
ökrum í Bretlandi er notast við
„leðjuna“ til þess að rækta korn og
aðrar matjurtir.
Sainsbury’s Verslanakeðjan hefur
viðurkennt að selja vörur sem
innihalda matvæli sem ræktuð hafa
verið með hjálp úrgangs frá mönnum.
Fréttir þess efnis að
mannaskítur og hland
sé notað í sífellt meiri
mæli af bændum á
akra sína koma illa við
breska neytendur.