Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 13
XXXXXXXXXSpennt fyrir skólagöngunni Svava Björk Pétursdóttir er 6 ára og byrjar í skóla 21. ágúst. Hún nemur við Grunnskólann í Borg- arnesi. „Ég er mjög spennt og er búin að vera spennt fyrir að byrja í skólanum mjög lengi.“ Svövu langar mest til að læra að lesa og er hún stolt af því að kunna alla stafina ásamt því að kunna að lesa stutt orð. Svava fékk eins og flestir nem- endur nýja skólatösku. „Ég valdi skólatöskuna sjálf,“ segir Svava stolt en töskuna sem er bleik prýðir mynd af álfaprinsessu. „Ég valdi líka pennaveskið sem er líka bleikt með mynd af einhyrningi.“ Svava er heppin með að búa í næstu götu við skólann og mun stór systir hennar fylgja henni í skólann þar sem hún er að klára tíunda bekk. Lítið verður um ný andlit í bekknum hennar þar sem mikið samstarf er milli leikskól- ans og grunnskólans í Borgarnesi. Bekkjarfélagar hennar voru allir með henni á deild í leikskólanum og því þekkjast allir vel. Krakk- arnir á deildinni hennar fór oft í heimsókn í skólann þar sem þau tóku þátt í náminu eins og aðrir nemar. Fyrsti skóladagur Svövu Bjarkar er á fimmtudaginn í næstu viku: Mynd: María Erla Guðmundsdóttir SK Ó LA R n á m &

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.