Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 21
Næstu leikir ÍslaNds á Ól suður kÓrea – ÍslaNd fimmtudagur 14. ágúst kl. 06:00 kóreumenn féllu af sjónvarsviðinu í smá tíma en eru aftur komnir með magnað lið. Það hefur nú þegar tapað ósanngjarnt gegn Þjóðverjum og sigrað Evrópumeistara dani. Þeir spila framliggjandi vörn sem ætti að henda Íslendingum vel en eru magnaðir sóknarlega og verða ekki vanmetnir. ÍslaNd – daNmörk laugardagur 16. ágúst kl. 12:45 danir hafa farið illa af stað í mótinu og urðu fyrir miklu áfalli þegar michael knudsen gat ekki leikið meira vegna botlangabólgu. Hann er gríðarlega mikilvægur danska liðinu og meira en margir halda. danir eru þó með afar sterkt lið og magnaðan markvörð í kasper Hvidt sem getur klárað heild mót liggi svo undir. ÍslaNd – egyptalaNd mánudagur 18. ágúst kl. 01:00 Það sem sýndist vera auðveldasti leikurinn í riðlinum þegar dregið var verður svo sannarlega ekki auðveldur. Egyptar eru komnir með hörkulið og fór létt með Íslendinga á æfingamóti í strasbourg fyrir leikana. Þeir hafa nú þegar gert jafntefli við Evrópumeistara dana og verða síður en svo auðveld bráð. örN Og JakOB Úr leik sundmennirnir Örn arnarson og Jakob Jóhann sveinsson hafa báðir lokið keppni á Ólympíuleikunum í Pekíng. Í gær keppti Örn í síðustu grein sinni, 100 metra skriðsundi, og tókst ekki að bæta Íslandsmetið. Hann synti á 50,68 sekúndum og varð síðastur í sínum riðli. alls varð Örn í 49. sæti af 64 keppendum. Jakob Jóhann sveinsson keppti einnig í sinni síðustu grein, 200 metra bringusundi. Hann varð annar í sínum riðli á 2:15,58 mínútum og komst ekki áfram. miðvikudagur 13. ágúst 2008 21Sport Sport ragNheiður af stað sunddrottningin ragn-heiður ragnarsdóttir úr kr hefur leik á Ólympíu-leikunum í Pekíng í dag þegar hún keppir í 100 metra skriðsundi. Hún stingur sér til sunds í und-anrásum kl 10:30 en ragnheiður keppir einnig í 50 metra skriðsundi. alls eiga þrír íslenskir keppendur eftir að skella sér í laugina, en ásamt ragnheiði hafa árni már árnason og Hjörtur már reyn-isson ekki enn hafið keppni en þeir byrja á morgun. „Þetta var stórkostlegur sigur,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, lands- liðsþjálfari í handbolta, hæstánægð- ur þegar DV náði í hann eftir frábær- an sigur Íslands á Þýskalandi, 33–29, á Ólympíuleikunum. Strákarnir eru nú búnir að vinna fyrstu tvo leiki sína en áfram er allt opið í riðlinum vegna óvæntra úrslita á mótinu. Til dæmis hafa Evrópumeistarar Dana aðeins eitt stig eftir heppnisjafntefli gegn Egyptum og tap gegn Suður-Kóreu. Íslenska liðið sýndi sama karakt- er og það gerði gegn Rússum í fyrsta leiknum í gegnum allan leikinn gegn Þjóðverjum. Heimsmeistararnir voru yfir, 12-10, um miðbik fyrri hálfleiks en Ísland snéri við taflinu með frá- bærri vörn, mikilvægri markvörslu og leiddi í hálfleik, 17-14. sóknarleikurinn grandskoðaður Þjóðverjar byrjuðu betur í seinni hálfleik, skoruðu fyrstu þrjú mörkin og jöfnuðu leikinn. Þeir höfðu for- ystu um skamma stund en enn og aftur sýndu strákarnir okkar mikinn karakter og tóku leikinn í sínar hend- ur. Ísland náði forystu, 23-22, og lét hana ekki af hendi út leikinn og sigr- aði með fjögurra marka mun, 33-29. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hafði sagt fyrir leik- inn að Ísland gæti vel lagt þýska liðið og var búinn að skoða það vel. „Við vorum búnir að fara vel yfir sóknar- leik Þjóðverjanna. Við ætluðum okk- ur að ganga vel út í skytturnar þeirra, vera ákveðnir, sýna frumkvæði í vörninni og vera á undan þeim í öll- um aðgerðum. Fyrir utan fyrstu tíu mínútur leiksins var vörnin frábær,“ sagði Guðmundur en sterkur og ákveðinn varnarleikur Ingimundar Ingimundarsonar sem átti frábær- an dag varð þess valdandi að helsta skytta þjóðverja, Pascal Hens, þurfti að fara út af meiddur. ekki svona aftur Guðmundur var heilt yfir ánægð- ur með alla þætti liðsins í gær en var ósáttur með fyrstu mínútur síð- ari hálfleiks. „Fyrstu 5-7 mínúturn- ar í síðari hálfleik voru lélegar og við megum ekki gera okkur seka um svona hluti aftur. Ég var ekkert orð- inn smeykur en við vorum ekki jafn- ákafir og á öðrum stundum í leiknum þá. Svona gott lið eins og Þýskaland er fljótt að refsa manni fyrir svoleið- is mistök,“ sagði Guðmundur sem heldur sig alveg niðri á jörðinni þrátt fyrir sigur. „Það er gjörsamlega allt opið í þessum riðli,“ sagði Guðmundur ákveðinn um framhaldið. „Fjögur stig að mínu mati duga ekki fyrir sæti í 8 liða úrslitum og við eigum gífur- lega erfitt prógramm fram undan. Ég get ekki ítrekað það nóg,“ sagði Guð- mundur. skandall hjá Zeitz Christian Zeitz, leikmaður Þýska- lands, hefur löngum átt erfitt með að hemja sig og er gjarn á að hrein- lega meiða aðra leikmenn. Í gær varð Snorri Steinn Guðjónsson fyr- ir fólskulegri árás Zeitz sem algjör- lega viljandi negldi olnboga sínum í hnakkann á Snorra og fékk beint rautt spjald fyrir og hefði enginn ásakað dómara leiksins fyrir að rétta honum flugmiða heim svo út úr korti var þetta heimskulega brot. „Þetta er skandall. Að mönnum skuli detta í hug að gera svona á ól- ympíuleikum er alveg fáránlegt. En Heine Brand heldur áfram að velja hann og verður að eiga það við sig,“ sagði Guðmundur sem sló á létta strengi með Heine eftir leik og fór vel á með þeim félögum. Íslenska landsliðið í handbolta vann svo sannarlega fyrir titlinum „strákarnir okkar“ í gær þegar það lagði heimsmeistara Þýskalands, 33–29, í öðrum leik sínum á Ólympíu- leikunum. Frábær vörn, mikilvæg markvarsla og enn betri sóknarleikur skiluðu þess- um frábæru úrslitum. „Það er langur vegur eftir og 4 stig munu ekki duga í 8 liða úr- slit,“ segir guðmundur guðmundsson landsliðsþjálfari. VALTAÐ YFIR HEIMSMEISTARANA tÓmas ÞÓr ÞÓrðarsON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is „Við leggjum upp með að vinna þennan leik,“ sagði Ólafur Jóhannes- son, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, við DV í gær um vináttuleikinn gegn Aserbaídjan sem fer fram á þjóðar- leikvanginum á miðvikudaginn eft- ir viku. Ólafur kynnti í gær tuttugu manna hóp sem tekur þátt í verkefn- inu en þar eru tveir nýliðar. Jóhann Berg Guðmundsson sem farið hefur á kostum með Breiðabliki í Lands- bankadeildinni og Hólmar Örn Rún- arsson úr Keflavík fá báðir tækifær- ið. „Þeir hafa verið að standa sig vel hér heima og mér fannst þetta tilval- ið tækifæri til að sjá þá í leik,“ sagði Ólafur sem hefur verið duglegur að gefa mönnum hér heima tækifæri í landsliðinu. Stefán Logi Magnússon hirðir sæti Fjalars Þorgeirssonar og þá er Veigar Páll Gunnarsson ekki í hópnum. „Ég lék gegn Baku frá Aserbaídjan þegar ég þjálfaði FH,“ sagði Ólafur aðspurður um hvort hann viti eitt- hvað um gestina. „Við höfum samt engar spólur fengið frá þeim en þeir segja að enginn leikur hafi verið tekinn upp. Þetta er rússnesk þjóð, sterkir leikmenn og góðir á bolta. Ég tel okkur samt betra fótboltalið og við eigum að vinna þennan leik,“ sagði Ólafur. tomas@dv.is Tuttugu manna hópur landsliðsins kynntur: TVEIR NÝLIÐAR HJÁ ÓLAFI ætla sér sigur Ólafur Jóhann- esson vill sigur gegn aserum. kjartan sturluson (valur) stefán logi magnússon (kr) Hermann Hreiðarsson (Portsmouth) kristján Örn sigurðsson (Brann) grétar rafn steinsson (Bolton) ragnar sigurðsson (gautaborg) Birkir már sævarsson (Brann) Bjarni Ólafur Eiríksson (valur) stefán gíslason (Bröndby) Ólafur ingi skúlason (Helsingborg) aron Einar gunnarsson (Coventry) Pálmi rafn Pálmason (stabæk) Hólmar Örn rúnarsson (keflavík) Eiður smári guðjohnsen (Barcelona) gunnar Heiðar Þorvaldsson (Esbjerg) marel Jóhann Baldvinsson (Breiðablik) Emil Hallfreðsson (reggina) theodór Elmar Bjarnason (lyn) arnór smárason (Heerenveen) Jóhann Berg guðmundsson (Breiðablik) laNdsliðshÓpuriNN ÚRSLIT landsbankadeild kvk Valur - Keflavík 9–0 Mörk Vals: Margrét Lára Viðarsdóttir 2, Málm- fríður Erna Sigurðardóttir, Dóra María Lárusdót- tir, Sophia Mundy, Kristín Ýr Bjarnadóttir, Sif Atladóttir, Rakel Logadóttir, Katrín Jónsdóttir. staðaN lið l u J t m st 1. valur 13 13 0 0 58:8 39 2. kr 13 11 0 2 40:10 33 3. Breiðab. 13 8 1 4 31:19 25 4. stjarnan 13 6 3 4 24:17 21 5. aftureld. 13 5 2 6 10:21 17 6. Þór/ka 13 5 1 7 23:22 16 7. fylkir 13 4 1 8 13:31 13 8. keflavík 13 2 3 8 11:33 9 9. fjölnir 13 2 2 9 12:39 8 10. Hk/vík. 13 1 3 9 12:34 6 1. deild karla Stjarnan - Þór 1-1 Fjarðabyggð - ÍBV 0-1 Víkingur R. - KS/Leiftur 1-1 Víkingur Ó. - Leiknir 1-1 Selfoss - Haukar 2-0 KA - Njarðvík 2-1 staðaN lið l u J t m st 1. ÍBv 16 13 1 2 32:9 40 2. selfoss 15 10 4 1 37:21 34 3. stjarnan 16 9 4 3 30:19 31 4. Haukar 15 7 3 5 30:26 24 5. ka 15 5 4 6 22:19 19 6. fjarðab. 16 4 7 5 26:27 19 7. víkingur r. 15 5 3 7 22:24 18 8. víkingur Ó. 15 4 6 5 12:20 18 9. Þór 16 5 2 9 22:31 17 10. leiknir r. 15 3 3 9 18:32 12 11. njarðvík 15 2 5 8 16:30 11 12. ks/leift. 15 1 6 8 14:23 9 frábær vörn ingi- mundur ingimundarson neglir Pascal Hens. sáttur Björgvin Páll varði mikilvæg skot gegn Þjóðverjum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.