Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 18
miðvikudagur 13. ágúst 200818 Skólar og nám
„Það er rosalega margt í boði hjá okkur, bæði lengra nám sem
er nám samhliða starfi og styttri námskeið,“ segir Thelma Jóns-
dóttir, markaðs- og kynningarstjóri Endurmenntunar Háskóla
Íslands. „Í lengra náminu okkar eru níu námsbrautir og við tök-
um við umsóknum til 18. ágúst á flestum brautum en sumt er
orðið fullbókað. Það er fullt í verkefnastjórnun-leiðtogaþjálfun
en við höfum haft þá námsbraut í mörg ár og það má segja að
hún sé vinsælust hjá okkur. Við erum líka að byrja með nýjar
námsbrautir eins og leiðsögunám á háskólastigi og markaðs-
samskipti. Við höfum aldrei verið með það áður og það er rosa-
lega mikill áhugi á því en leiðsögunámið er hægt að fá metið til
eininga í Háskólanum,“ segir Thelma. Hún bendir líka á að hægt
er að fara á námskeið í verðbréfaviðskiptum, þjónustustjórnun,
markaðssamskiptum og mannauðsstjórnun.
Tvö hundruð námskeið
Boðið verður upp á hátt í tvö hundruð styttri námskeið í haust
í ýmsum flokkum, annaðhvort í tengslum við vinnu eða áhuga-
mál. „Til dæmis verður boðið upp á kennslu í samskiptatækni
eins og tölvupósti. Einnig verða fjármálatengd námskeið eins og
gerð viðskiptaáætlana og lestur ársreikninga. Aftur á móti eru
svo námskeið sem eru meira fyrir einstaklinginn sjálfan eins
og námskeiðið Bækurnar í búðstaðinn sem Katrín Jakobsdótt-
ir þingmaður verður með og námskeið um New York, Berlín og
Thor Vilhjálmsson, list hans og starf. Þetta er mjög fjölbreytt og
það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Endurmenntunin
hefur aukið við það að bjóða upp á fjarfundi til þess að sinna
landsbyggðinni eða þeim sem eru lengra í burtu. „Við vitum til
dæmis af fólki sem er í lengra náminu í fjarnámi hjá okkur og er
statt í Evrópu eða í Suður-Ameríku,“ segir Thelma.
Endurmenntun í fjarnámi
„Mörg af þessum styttri námskeiðum eru haldin á sí-
menntunarstöðum úti á landi og það hefur fengið rosalega
góðar undirtektir. Sem dæmi um það vorum við með nám-
skeið sem var haldið á ellefu mismunandi stöðum á landinu
en það var námskeiðið Ráð við reiði. Það var fyrir starfsfólk
sem er að vinna í uppeldisstörfum. Við vinnum líka mik-
ið með hinum ýmsu félagasamtökum og rýnihópum því
við erum ekki öll sérfræðingar hérna þannig við reynum að
vinna með sérfræðingum á hverju sviði. Við fáum hugmynd-
ir frá þeim hvað það er sem atvinnulífið þarf á að halda. Það
er alltaf margt nýtt í gangi og mikilvægt fyrir fólk að endur-
mennta sig.“
Stéttarfélögin borga
Thelma segir að margir kennaranna séu frá Háskóla Íslands
en Endurmenntun er líka með fræðimenn sem kenna það sem
þeir hafa sérhæft sig í. „Við erum með fólk úr ýmsum áttum
sem sér um námskeiðin þannig að við erum með yfir hundrað
kennara.“ Aðspurð hvað kosti á námskeiðin segir Thelma það
vera mjög misjafnt því sum þeirra eru bara eitt kvöld á meðan
önnur eru átta skipti. „Það má ekki gleyma því að stéttarfélög-
in taka alltaf þátt í kostnaði og hjálpa til við að borga. Margir
gleyma því að það er í boði og nýta sér það ekki,“ segir Thelma
að lokum.
astrun@dv.is
Endur-
menntun eflist
Boðið er upp á lengra nám samhliða starfi og styttri námskeið hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands. Hátt í tvö hundruð styttri námskeið eru í boði hjá Endurmenntun og
segir Thelma Jónsdóttir alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Thelma Jónsdóttir „Það er rosalega margt
í boði hjá okkur, bæði lengra nám sem er
nám samhliða starfi og styttri námskeið.“
DV mynd Sigtryggur Ari
Ítarlegt
einkaþjálfaranám
Íþróttaakademía Keflavíkur,
sem er partur af Keili, býður upp á
ítarlegasta einkaþjálfaranám sem
völ er á hér á landi. Námið tekur
einn vetur eða tvær skólaannir
en þau einkaþjálfararéttindi sem
hafa verið í boði hér heima hafa
yfirleitt verið veitt eftir mánaðar-
langt námskeið. Komandi vetur
er þriðja árið sem námið stendur
til boða en á síðasta ári útskrifuð-
ust um 30 einkaþjálfarar.
Þeir áfangar sem kenndir eru
á önnunum tveimur eru meðal
annars vöðva- og hreyfingarfræði,
næringarfræði, lífeðlisfræði, þjálf-
unarfræði og skyndihjálp. Í heild
er námið 28 einingar á fram-
haldsskólastigi og skiptist það í
11 áfanga alls sem dreifast jafnt á
haust- og vorönn.
Mikil áhersla er lögð á verklega
þjálfun í náminu þannig að nem-
endur lesi ekki bara um æfingar
eða þjálfun heldur upplifi hana
sjálfir. Kennt er að greina stoð-
kerfi einstaklinga og líkamsstöðu
svo hægt sé að miða þjálfunina
við hvern og einn en ekki bara að
eitt líkamsræktarform sé fyrir alla
eins oft hefur tíðkast.
Enn er hægt að sækja um í
námið en umsóknarfrestur renn-
ur út 20. ágúst. Engrar lágmarks-
menntunar er krafist í námið en
nemendur þurfa að vera orðnir
18 ára.
asgeir@dv.is
Íþróttaakademía
Keflavíkur býður
upp á öflugt nám í
einkaþjálfun.
Eins árs nám Íak-einkaþjálfaranámið er það
ítarlegasta sinnar tegundar hér heima.