Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 9
miðvikudagur 13. ágúst 2008 9Fréttir Íslensk stjórnvöld voru búin að gefa samþykki fyrir því að styðja við innrásina í Írak degi fyrr en áður hefur verið haldið fram. Þetta kemur fram í grein Vals Ingimund- arsonar sagnfræðings í nýútkom- inni bók um íslenska utanríkis- stefnu 1991-2007. Þar kemur fram að Tony Blair, þáverandi forsætis- ráðherra Bretlands, ætlaði að lesa upp lista í breska þinginu þann 17. mars 2003 með nöfnum þeirra ríkja sem myndu styðja við árás- ina. Á þeim lista var Ísland en ein- hverra hluta vegna varð ekki af því að Blair læsi upp nöfn landanna. Hingað til hefur því verið haldið fram að ákvörðunin um stuðning við stríðið hafi verið tekin 18. mars, en þessar nýju upplýsingar sýna að svo var ekki. Stjórnvöld heppin „Þetta var þá bara sögu- fölsun og lygi,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon, for- maður vinstri grænna, um það að ákvörðunin hafi verið tekin að minnsta kosti degi fyrr en áður hefur verið haldið fram. „Þetta er áhugavert en undirstrikar bara enn frekar hvernig öllu þingræði og lýð- ræði var misþyrmt í þessu máli,“ seg- ir Steingrím- ur. Hann segir það þó skipta litlu máli hvort það hafi ver- ið Blair eða Bush sem var lofað stuðn- ingi á undan, þetta staðfesti bara að tveir menn hafi tekið sér vald til þess að ráð- stafa Íslandi. Steingrímur segir að eitthvað samráð hafi verið haft um ákvörðunina þann 18. mars en enginn ríkisstjórnarfundur hafi verið haldinn. Hann segir íslensk stjórnvöld hafa verið heppin að Blair skyldi ekki hafa lesið upp af listanum sínum þann 17. mars. Framsókn þegir „Þetta var ekki ríkis- stjórnarákvörðun sem lá að baki þessu. Ég kom aldrei að þessari ákvörðun og get ekkert um málið sagt þannig,“ segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar- flokksins. Hann vill lítið tjá sig um málið. Hann segist vilja ítreka að það hafi aldrei verið talað við nokkurn ráð- herra um „þennan ein- hliða stuðning við þessar þrjátíu þjóðir“. Halldór Ásgrímsson, fyrr- verandi utanríkisráðherra, vildi ekki kannast við þetta þegar hann var spurður um málið á mbl.is. Ákvörðunin röng, sama hvað „Í sjálfu sér veit ég ekkert um það hvenær ákvörðunin var tekin. Það eru bara þeir einir til frásagnar um sem ákvörðunina tóku. Hitt veit ég að þetta mál bar ekkert mjög brátt að. Þetta hafði átt sér aðdrag- anda aftur í febrúar með sam- ræðum ís- lenskra stjórn- valda við bandarísk um hvern- ig og hvort ís- lensk stjórn- völd myndu styðja árásina,“ seg- ir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra aðspurð um mál- ið. Hún segist engin gögn hafa í höndunum og geti því ekki tjáð sig efnislega um málið. „Ég vil það í rauninni ekki, ég vil bara tjá mig út frá staðreyndum sem ég hef þá í höndunum,“ segir Ingibjörg. Hún tekur fram að þetta breyti engu um ákvörð- unina sem slíka, hún hafi verið röng, hvort heldur sem hún var tek- in 17. eða 18. mars. Þegar Ingibjörg er spurð hvort ástæða sé til þess að rann- saka málið segist hún ekki vilja fara út í of miklar spekúla- sjónir. Óvíst er hvenær ákvörðun um að styðja við stríðið í Írak var tekin. Hingað til hefur því verið haldið fram að ákvörðunin um að vera á „lista hinna viljugu þjóða“ hafi verið tekin 18. mars. Í grein sem Valur Ingimund- arson skrifar í nýja bók um utanríkismál á Íslandi kemur fram að Tony Blair forsætisráðherra Breta hafi verið kominn með lista hinna viljugu í hendurnar 17. mars, 2003. Á þeim lista var Ísland. ÍSLAND FYRR Á LISTA HINNA VILJUGU Jón BJarkI magnúSSon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Þetta er áhugavert en undir- strikar bara enn frekar hvern- ig öllu þingræði og lýðræði var misþyrmt í þessu máli.“ Ekki ríkisstjórnarinnar Formaður Framsóknarflokksins leggur áherslu á það að ríkisstjórnin hafi ekki staðið á bakvið ákvörðun- ina um að styðja við stríðið. Undirstrikar ólögmætið steingrím- ur J. sigfússon segir nýjar upplýsingar vals ingimundarsonar sem komið hafa fram undirstrika það hvernig þingræð- inu hafi verið misþyrmt. Ákvörðunin röng utanríkisráðherra segir nýjar upplýsingar ekki breyta því að ákvörðunin hafi verið röng. RÁðAbRUGG Í RÁðHúSINU

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.