Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 11
miðvikudagur 13. ágúst 2008 11Fréttir
Jose Martinez, eigandi sælgætis-
búðar í Aviles á Spáni, rak upp stór
augu þegar hann sinnti uppgjöri dags-
ins í verslun sinni og sá að ein evr-
an í kassanum stakk í stúf við hinar.
Spænski konungurinn Juan Carlos
prýðir vanalega einnar evru pening-
inn þar í landi en einhver hafði tekið
sig til og breytt andlitsmynd konungs-
ins í teiknimyndapersónuna Hóm-
er Simpson. Virðist sem svo að andlit
Juans Carlos hafi verið slípað niður og
andlit Hómers Simpson rist í evruna í
staðinn.
„Peningnum hlýtur að hafa verið
breytt af fagmanni. Þetta er virkilega
vel gert,“ segir Martinez í samtali við
staðarblaðið á svæðinu. Sælgætissal-
inn tók fyrst eftir hinni breyttu evru
þegar hann fann þrjá evruskildinga
frá Möltu í kassanum. Fundur Marti-
nez hefur vakið upp spurningar hvort
óeðlilegar evrur séu nú í umferð, og
samsæriskenningasmiðir gera einnig
því skóna að um sé að ræða aðför að
spænska konungsveldinu. Sælgæt-
issalinn veltir sér lítið upp úr slíkum
bollaleggingum og sér fram á talsverð-
an gróða á Hómer-evrunni. Vinir og
nágrannar hans munu víst hafa boð-
ið honum allt að 20 evrur fyrir skild-
inginn. Og eftir að fregnir af evrunni
óvenjulegu fóru að breiðast út fóru
tilboð frá Hollandi, Japan, Kanada og
Bandaríkjunum að berast Martinez,
sem þó stendur fast á sínu. Hómer
Simpson er ekki til sölu. mikael@dv.is
Verðbólgumet í Bretlandi
Verðbólga hefur ekki verið meiri
í Bretlandi í fimmtán ár eftir að
tilkynnt var að verðbólga í síðasta
mánuði hafi mælst 4,4 prósent,
samanborið við 3,8 prósent í júní.
Þetta er umfram verstu spár sér-
fræðinga og helmingi hærra en
verðbólguviðmið breskra stjórn-
valda. Síhækkandi matvæla- og
eldsneytisverð eru sögð megin-
ástæður verðbólgunnar í land-
inu. Leiðtogi Íhaldsflokksins í
Bretlandi, David Cameron, segir
aukna verðbólgu vera enn eitt
áhyggjuefnið fyrir illa staddar fjöl-
skyldur í landinu.
Heimsmeistarar í gufubaði
Hundrað og sextíu manns frá 23 löndum
tóku þátt í árlegri gufubaðskeppni í Finn-
landi á dögunum. Bjarne Hermansson
frá Finnlandi sigraði eftir að hafa þolað
hitann í rúmlega 18 mínútur og 16 sek-
úndum betur. Hann segist hafa æft sig
vel og lengi fyrir keppnina en gufuböð-
in í keppninni voru hituð í 110 gráður á
Celsíus og verður afrek hans því að telj-
ast ansi aðdáunarvert. Leila Kulin, sem
einnig er frá Finnlandi, entist í 5,22 mín-
útur í hitanum og varð hún hlutskörp-
ust kvenna. Þetta er í tíunda sinn sem
heimsmeistaramótið er haldið. Finnar
eru miklir áhugamenn um gufuböð en
þar í landi eru fleiri slík böð en bílar.
Foreldrum maddie geFin Von
Hómer Simpson fannst ristur í mynt á Spáni:
Var breytt í Hómer
Konungborinn Hómer konungi skipt út fyrir teiknimyndafígúru á evrunni.
Madeleine McCann Hefur verið saknað síðan 3.
maí 2007 þegar hún hvarf af hótelherbergi foreldra
sinna í sumarfríi fjölskyldunnar í Portúgal.
Gerry og Kate McCann Foreldrarnir
halda í vonina þó veik sé.