Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Blaðsíða 7
miðvikudagur 13. ágúst 2008 7Fréttir holar@simnet.is SÖNN SAKAMÁL fróðleikur og gamansögur SPENNA - nýtt tímarit spenna1-2008.qxp 7.7. 2008 15:26 Page 1 „Af hverju fær Keflavík niðurgreiðslu frá ríkinu en ekki Hafnarfjörður? Af hverju er verið að mismuna sveitar- félögum á þessum vettvangi?“ spyr Reynir Jónsson framkvæmdarstjóri Strætó bs. Forsvarsmenn fyrirtækis- ins hafa undanfarið talað um að ríkið þurfi að koma að starfseminni í ríkari mæli eigi þjónustan að verða bætt. Kristján L. Möller samgönguráð- herra segir ríkissjóð gefa eftir 80 pró- sent olíugjaldsins og styðja þannig við almenningssamgöngur í höfuð- borginni. Ríkið þarf að koma inn Reynir segir Strætó bs í rekstr- arvanda vegna hækkandi verðs á olíu og slæmt gengi krónunnar. „Það er bara með okkur eins og önnur fyrirtæki, þetta hefur áhrif á okkur,“ segir Reynir en bætir því við að rekstrarvandi fyrir- tækisins hafi ekkert að gera með þá kröfu að ríkið komi meira að rekstr- inum. „Ég held að umræðan sé á villigötum, sveitarfélögin eru ekki að biðja ríkið um að koma að rekstri strætó til að fjármagna tapið.“ Hann segir að verið sé að biðja um meiri fjármuni svo að hægt sé að bjóða upp á meiri þjónustu. Reynir tekur fram að í stefnuskrá ríkisstjórnarinn- ar sé tekið fram að efla skuli almenn- ingssamgöngur, það sé ekki hægt nema með innkomu ríkisins að ein- hverju leyti. Ríkið styður við strætó „Ríkisstjórnin mun beita sér sérstaklega fyrir úrbótum á sam- göngukerfi höfuðborgarsvæðisins,“ segir Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra og vitnar í stjórnarsáttmála Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Þegar hann er spurður um hvað sam- gönguráðuneytið hugsi sér að gera varðandi starfsemi Strætó bs seg- ir Kristján að ríkið styðji við strætó með því að fella niður 80 prósent olíugjaldsins. Til samanburðar voru styrkir ríkisins til innanlandsflugs á seinasta ári 281 milljón. Styrkir til ferjusamgangna og sérleyfishafa voru samanlagt 905 milljónir. Varðandi það hvort ekki sé eðlilegt að meiri pen- ingum sé veitt í rekst- ur almenningssam- gangna í höfuðborginni segir Kristján að Strætó bs sé rekið af sveitarfé- lögum og þess vegna sé það þeirra að koma að því hvernig þeir reki sín samgöngukerfi. Hann tekur fram að málin séu í skoðun hjá ráðu- neytinu. Misræmi Reynir segir strætisvagna borg- arinnar ekki keyra á götum ríkisins nema í 20 pró- sent tilvika en það eru ein- ungis stofn- brautir borgarinnar sem eru í hönd- um ríkisins, aðrar götur eru á vegum sveitarfélaganna. „Það er auðvit- að óvenjulegt að greiða þurfi gatna- gerðargjöld til ríkisins vegna bíla sem ekið er um göt- ur sveitarfélaganna. Þannig að það er varla hægt að líta á þetta sem neinn styrk,“ seg- ir Reynir og bendir á að olíu- gjöldin hafi verið niðurfelld einmitt vegna þess að stræt- isvagnarn- ir noti ekki nema að litlu leyti vega- kerfi ríkisins. Reynir seg- ir heildargjöld Strætó bs til rík- isins vera 350 millj- ónir á ári en af þeim eru 200 milljónir í formi virðisauka- skatts, olíugjalds og annarra op- inberra gjalda. „Sá sem rek- ur rútu sem notuð er í áætlun- arferðir á milli Ak- ureyr- ar og Reykjavíkur þarf ekki að greiða virð- isaukaskatt fyrir þessa rútu í tolli. En sá sem rekur strætó sem sem ekið er frá Akranesi til Reykjavíkur þarf að greiða virðisaukaskatt- inn,“ segir Reynir og bendir á að misræmið sé mikið. „Sá sem rekur rútu sem notuð er í áætlunarferð- ir á milli Akureyrar og Reykjavíkur þarf ekki að greiða virðisaukaskatt fyrir þessa rútu í tolli. En sá sem rekur strætó sem ekið er frá Akranesi til Reykjavíkur þarf að greiða virðisaukaskattinn.“ MISMUNAÐ Í SAMGÖNGUMÁLUM Ríkið varði meira en milljarði í flug-, ferju- og rútusamgöngur í fyrra. Á sama tíma er eini stuðningurinn við almenningssamgöngur í borginni niðurfelling á hluta af olíugjöldum. Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri Strætó bs, segir nauðsynlegt að ríkið komi inn af meiri krafti ef bæta eigi almenningssamgöngur í borginni. Kristján L. Möller segir málin í skoðun en bendir á að sveitarfélögin eigi að sjá um þennan málaflokk. Jón BJaRKi Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Ríkið styður við strætó kristján L. möller samgönguráð- herra segir ríkið nú þegar styðja við strætó bs. Þurfa peninga Niðurfelling virðisaukaskatts og annarra gjalda gæti sparað strætó bs 200 milljónir króna. MILLjóNIrNAr StreyMA út „Það er bara um að gera að ýta á Björn. Ég hef allavega ekki heyrt neitt frá honum, eða einum eða neinum. Hann sagði að það kæmi svar frá hon- um einhvern tímann í ágúst og núna er kominn þrettándi,“ segir Hörður Torfason, listamaður og skipuleggj- andi mótmæla vegna máls Keníu- mannsins Pauls Ramses fyrir utan dómsmálaráðuneytið á fimmtudag- inn. Nú er liðinn rúmur mánuður frá því að Katrín Theodórsdóttir lögmað- ur lagði inn kæru í máli Pauls Ramses til Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra. Mótmælendur sem söfnuð- ust saman fyrir utan dómsmálaráðu- neytið munu endurtaka leikinn nú mánuði eftir að mótmælin voru hald- in síðast. „Tíunda júlí sagði ég að við mynd- um taka okkur frí í mánuð. Ráðuneytið hlýtur að geta komist að niðurstöðu á einum mánuði. Það getur líka vel ver- ið að Björn sjái að sér á fimmtudaginn og birti úrskurð, það er allavega von- in,“ segir Hörður og bætir því við að krafan sé sú að Ramses verði kallaður til Íslands og mál hans verði tekið fyrir hér. Hann segir framkomuna í málinu ósiðlega og óásættanlega. Aðspurður hvað gerist ef Björn ákveður að taka málið ekki fyrir á Íslandi segist Hörð- ur viss um að það verði læti. Boðað er til mótmælafundarins við dómsmála- ráðuneytið í Skuggasundi á morgun klukkan 12 á hádegi. jonbjarki@dv.is Mótmæli eru boðuð á morgun vegna máls Pauls Ramses: Ýta á eftir dómsmálaráðherra Biðinni lokið mótmælendur hafa ákveðið að safnast saman á nýjan leik fyrir utan dómsmálaráðuneytið og krefjast þess að mál Pauls ramses verði tekið fyrir á Íslandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.