Hagskýrslur um iðnað - 01.01.1963, Síða 17
Iðnaðarskýrslur 1960
15*
munandi greina iðnaðarins. Hins vegar verður því ekki neitað, að reikningshald
fyrirtækja hér á landi er ennþá aðallega miðað við slíkt fjármálalegt uppgjör
hinnar lögformlegu heildar (skattauppgjör), og veldur það fyrirtækjunum ýmsum
erfiðleikum við skýrslugerð eins og þá, sem liggur að baki þessum iðnaðarskýrslum.
Þótt hugtökin ,,enterprise“ og ,,establishment“ séu þannig ekki sömu merk-
ingar, þá falla þau mjög oft sainan, og hér á landi a. m. k. hefur skattalöggjöfin
stuðlað mjög að því á þann hátt, að fyrirtæki, sem stækkar, vegna þess að nýrri
framleiðslugrein er bætt við, og verður þannig í raun og veru tvær framleiðsluheildir,
er gert að tveimur sjálfstæðum lögformlegum aðilum (t. d. tveimur hlutafélögum).
Stundum er talið æskilegt að þrengja hugtakið „fyrirtæki“ enn meira en gert
er með því að skoða það sem verkstæði eða verksmiðju. Það er hægt að gera með
því að telja alla starfsemi, sem er bundin við framleiðslu á ákveðinni afurð, sem
sjálfstætt fyrirtæki, en kostnaðarreikningur fyrirtækisins þarf að vera mjög full-
kominn, ef slíkt á að vera framkvæmanlegt. Sama er að segja, cf reynt er að þrengja
verkstæðishugtakið á þann hátt að skoða ákvcðna tegund starfa (ekki nauðsyn-
lega öll störf við framleiðslu sömu afurðar) sem sjálfstæða rekstrarheild.
Langflestir þeirra, sem vinna við iðnaðarstörf, eru slysatryggðir (sbr. 43. gr.
laga nr. 24/1956 um almannatryggingar). Eigendur fyrirtækjanna eru þó ekki
tryggingarskyldir, en þeir mega tryggja sig, ef þeir óska. Hafa ýmsir hinna smærri
atvinnurekenda, sem vinna sjálfir að iðnaðarstörfum, gert það. Heimavinna er ekki
heldur tryggingarskyld. Tölurnar um tryggðar vinnuvikur ná því ekki til allra,
sem vinna að iðnaðarstörfum, og nokkur lítil fyrirtæki eru alls ekki talin með í
iðnaðarskýrslunum, þar sem þau hafa ekkert slysatryggt vinnuafl í þjónustu sinni.
Vísast til töflu II í því sambandi, en þar er tekið fram við hverja iðnaðargrein, hvort
óslysatryggt vinnuafl í henni sé talið mikið eða lítið (L = lítið, M = mikið, N =
nokkuð).1)
Eins og áður er greint frá, er hvert fyrirtæki (,,establishment“) látið tilheyra
þeirri iðnaðargrein, sem mest er framleitt í, ef um blandaðan rekstur er að ræða,
án þess að hægt sé að greina þar á milli tveggja eða fleiri bókhaldslega aðgreindra
framleiðsluheilda. í framtölum hvers einstaks fyrirtækis (eftir ,,enterprise“-hugtak-
inu) til skattyfirvaldanua eru störfin flokkuð eftir áhættuflokkum. Að jafnaði kemur
þar fram, hve margar vinnuvikur eru unnar í hverri atvinnugrein, ef reksturinn
er blandaður. Slíkt fyrirtæki getur því orðið aðili með slysatryggt vinnuafl í fleiri
en einni grein, þó að ekki sé um bókhaldslega aðgreinda framleiðslustarfsemi að
ræða. Vinnuvikur fyrirtækis, sem rekur prentsmiðju og bókband, skiptast þannig
á grein nr. 281 og 282, og fyrirtækið verður aðili með slysatryggt vinnuafl í báðum
greinunum. Vinnuvikur fyrirtækis, sem rekur útgerð og fiskvinnslustöð, skiptast á
grein 204a-b og á sjávarútveg, sem er ekki mcðtalinn í þessum skýrslum. Fyrir-
tækið kemur því í skýrslunum aðeins fram sem aðili í grein nr. 204a-b. Á sama
hátt koma vinnuvikur fyrirtækis, sem rekur bifreiðaverkstæði og bílaverzlun, aðeins
fram í skýrslunum að svo miklu leyti, sem þær falla undir verkstæðið. í 16. dálki
töflu II er getið heildartölu aðila með slysatryggt vinnuafl í hverri grein iðnaðarins
árið 1959, þ. e. tölu þeirra fyrirtækja, sem samkvæmt slysatryggingarframtölum
hafa eitthvert tryggt vinnuafl í viðkomandi grein.2) Þá tölu er hægt að bera saman
við tölu fyrirtækja, sem starfa aðallega í greininni (sbr. 6. dálk sömu töflu). í heild-
artölunni 1956 fyrir iðnaðinn í heild geta sum fyrirtæki verið tvítalin eða marg-
1) Auk þess sem óslysatryggt vinnuafl cr mismunandi mikið í liinum ýmsu greinum, getur verið um að ræða slysa*
trySg1 vinnuafl við iðnaðarstörf, sem alls ckki kcmur fram í töflum I og II, þar sem það er talið til annarra flokka atvinnu-
lífsins en iðnaður (t. d. verður kaffímölun í vcrzlunum ekki greind frá verzlun).
2) Aðilar, scm byggja framlciðslu sína algjörlega á heimavinnu cða öðru óslysatryggðu vinnuafli, koma vitaskuld
hvcrgi fram í þeim tölum.